Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Bragð af
vináttu • Hágæðagæludýrafóður
framleitt
í Þýskalandi
• Bragðgott og
auðmeltanlegt
• Án viðbættra
litar-, bragð- og
rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko,
Dýraland, Gæludýr.is,
4 loppur, Multitask,
Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Fyrsta ágúst síðastliðinn byrj-aði ég í fimm mánaða áskor-un. Áskorunin gengur út á að
hreyfa sig markvisst í allavega þrjá
klukkutíma á dag. Ástæðan var sú að
ég uppgötvaði eftir að ég byrjaði aft-
ur að vinna að ég var ekki að hreyfa
mig nóg yfir daginn. Sat of mikið við
tölvuna. Eftir frí, þar sem ég var
mikið á hreyfingu, fann ég skýrt
hvað þessi mikla seta fór illa í mig.
Maður verður orkuminni, þreyttari
andlega og stirðari í skrokknum.
Skiljanlega, við mannfólkið erum
ekki hönnuð til að sitja á rassinum
heilu og hálfu dagana. Samt gerir
stór hluti okkar það.
Mín leið til þess að breyta þessu er
að setja mér fasta ramma, 180 mín-
útur á dag. Síðan hef ég frelsi innan
rammanna, öll hreyfing telst með.
Grunnurinn hjá mér eru göngutúrar.
Ég hef í mörg ár byrjað daginn á
morgungöngu en nú er ég búinn að
lengja þann tíma sem ég nota í hana
og er líka búinn að bæta hádegis-
göngu við mitt daglega prógramm.
Þegar maður þarf að ná að fylla upp í
hreyfikvóta fer maður að leita að og
finna tækifæri. Ég til dæmis notaði
klukkutíma til að kaupa mat í
Borgarnesi á leið norður á Strandir
um daginn. Lagði bílnum spölkorn
frá búðinni, rölti niður í fjöru, gerði
nokkrar liðleikaæfingar, labbaði
lengri leiðina að búðinni og svo til-
baka að bílnum með þunga poka sinn
í hvorri hendi – fékk þannig auka og
ókeypis styrktaræfingu í leiðinni.
Garðvinna, leikir við börn eða
barnabörn, fjallgöngur og sund eru
nokkur dæmi um hreyfingu sem auð-
velt er að framkvæma með öðrum.
Tengja þannig saman hreyfi- og fé-
lagslega þörf okkar. Reglulegar æf-
ingar er önnur leið til þess að halda
manni við efnið. Æfa með hópi sem
maður hlakkar til að hitta nokkrum
sinnum í viku. Styrkja sig og efla í
góðum félagsskap.
Það er ekki eins flókið eða erfitt og
margur heldur að hreyfa sig mark-
visst í þrjá klukkutíma á dag og það
skilar sér margfalt til baka, bæði til
styttri og lengri tíma.
Á meðan á fimm mánaða áskor-
uninni stendur skráset ég alla daga
hvað ég geri til þess að ná 180 mín-
útum af hreyfingu inn í minn dag.
Fylgstu með mér á Instagram, gud-
jon_svansson, eða taktu þátt í áskor-
uninni með mér.
Njótum ferðalagsins!
Morgunblaðið/Eggert
Gönguferð Það er ekki eins flókið eða erfitt og margur heldur að hreyfa
sig markvisst í þrjá klukkutíma á dag og það skilar sér margfalt til baka.
180 mínútur á dag
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
guðjon@njottuferðalagsins.is
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Morgunblaðið/Steinþór
Konur í sviðsljósinu Wanda Anderson fjallkona, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Heather Alda Ireland.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
H
eather Alda Ireland,
fyrrverandi kjörræð-
ismaður Íslands í
Vancouver í Kanada,
flutti minni Íslands í
hátíðardagskrá Íslendingadagsins í
Gimli um helgina.
„Þetta er mikill heiður,“ segir
Heather, sem ólst upp í Winnipeg.
„Ég hef oft verið á þessari hátíð,
bæði sem barn og fullorðin, síðast
fyrir tveimur árum, og veit að fyrir-
rennarar mínir hafa verið hátt sett-
ir Íslendingar eða Kanadamenn af
íslenskum uppruna, einstaklingar
sem hafa verið áberandi í samfélag-
inu. Á vegg heima er ég með mynd
af afa mínum, Guttormi J. Gutt-
ormssyni, sem sýnir hann flytja
ræðu á Íslendingadegi á sjöunda
áratug liðinnar aldar. Ásgeir Ás-
geirsson, þáverandi forseti, situr
við hliðina á honum. Ég er viss um
að afi var ánægður og brosti til mín,
þegar ég flutti minni Íslands.“
Þegar hún nefnir afa sinn rifj-
ar hún upp að hann hafi fengið
Morgunblaðið sent til Riverton á
sínum tíma. „Þá sagði afi að
Morgunblaðið væri útbreiddasta
blað í heimi.“
Áhyggjulaus ár í Winnipeg
Fyrstu Íslendingarnir sem sett-
ust að í Winnipeg bjuggu flestir í
vesturbænum. Heather segir það
hafa verið frábært að alast þar upp,
en foreldrar hennar voru Bergljót
Guttormsson, dóttir Guttorms J.
Guttormssonar skálds, og Jóhannes
Sigurðson frá Oak Point í Manitoba.
Hún segir að tvær móðursystur
hennar hafi búið í nágrenni við þau,
rétt eins og föðurbróðir og og tvær
föðursystur, og frændsystkinin hafi
leikið sér saman. Mörg skólasystkini
hafi átt íslenska foreldra og öflugur
barnaklúbbur hafi verið í Lúthersku
kirkjunni. „Allt var í göngufæri og
þegar við fórum í miðbæinn var
næsti strætó handan við hornið á
Sargent. Þetta voru áhyggjulaus
ár.“
Heather áréttar að á upp-
vaxtarárunum hafi hluti tilverunnar
verið að sækja Íslendingadagshátíð-
ina heim á hverju ári. „Við notuðum
ferðina og heimsóttum afa og ömmu
í Riverton og Oak Point,“ rifjar hún
upp.
Eiginmaður Heather er lög-
maðurinn William Edmund Ireland,
oftast kallaður Bill. Hún segir að
þegar honum hafi boðist vinna hjá
lögmannaskrifstofu í Vancouver hafi
þau slegið til, flutt 1970 og hafi búið í
borginni við vesturströndina síðan.
„Við höfðum heimsótt Vancouver og
það var spennandi að fá tækifæri til
þess að búa þar,“ segir Heather.
„Loftslagið, hafið og fjöllin bjóða
upp á sérstakan lífsmáta.“
Sumir Íslendingar fikruðu sig
vestar samfara lagningu járn-
brautarteinanna, en íslensku sam-
félögin þar voru og eru ekki eins
fjölmenn og í Manitoba. Heather
bendir á að foreldrar hennar hafi
ekki talað ensku fyrr en þeir fóru í
skóla og fólk af þeirra kynslóð hafi
parast innbyrðis. Sú hafi ekki verið
raunin í Vancouver, en engu að síður
standi Íslendingafélagið í Vancouver
fyrir árvissum viðburðum og nýflutt-
ir Íslendingar sæki þá í bland með
öðrum.
„Íslenska samfélagið er samt
fámennt í samanburði við hópa fólks
af öðrum uppruna,“ segir hún. Fólk
af norrænum uppruna starfi saman
og haldi meðal annars sameiginlega
sumarhátíð, sem njóti mikilla vin-
sælda.
Beint flug Icelandair
mikilvægt
Icelandair hóf áætlunarflug til
Vancouver fyrir nokkrum árum og
segir Heather að það hafi greinilega
aukið áhuga á Íslandi.
„Þegar ég hitti fólk, sem ég
þekki ekki og segi því frá íslenska
uppruna mínum eru viðbrögðin allt-
af á sama veg: „Ó! Þangað vil ég
fara.“ Þetta fólk er meðvitað um
beint flug Icelandair og það skiptir
miklu máli.“ Hún bætir við að vegna
flugsins sé hægt að kaupa þorsk og
ýsu frá Íslandi í Vancouver og það
auki enn á tenginguna.
Ríkisstjórn Íslands bauð Gutt-
ormi tvisvar til Íslands, m.a. á Al-
þingishátíðina 1930, en konu hans,
Jensínu Júlíu Daníelsdóttur, sem
var tíu ára þegar hún flutti frá Ís-
landi vestur um haf, langaði alltaf
aftur heim til Íslands en fór aldrei.
Heather hefur hins vegar heimsótt
Ísland sjö sinnum, síðast þegar Ver-
öld – hús Vigdísar var formlega opn-
að í apríl 2017. Hún og Bill eiga þrjú
börn, sem öll hafa komið til Íslands,
og fjögur barnabörn. „Eldri sonur-
inn hefur verið nokkrum sinnum á
Íslandi, talar örlitla íslensku og er
tengdur,“ segir hún hreykin. „En
það er líka alltaf gaman að koma á
Íslendingadagshátíðina og hitta ætt-
ingja og vini.“
Heather Alda Ireland flutti minni Íslands í hátíðar-
dagskrá Íslendingadagsins í Gimli
Góðar minning-
ar frá Manitoba
Glaðir Tveir ungir þátttakendur í
Íslendingadeginum í Gimli.
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is