Morgunblaðið - 08.08.2018, Page 16

Morgunblaðið - 08.08.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Jón Pétur segir að um 100-150 raf- hjól seljist í Erninum á ári, sem sé að- eins brot af reiðhjólasölunni almennt. Hann telur að í kringum 1.200-1.500 rafhjól séu flutt inn hingað til lands á ári, en til samanburðar voru um 27 þúsund reiðhjól flutt til landsins allt árið í fyrra, að hans sögn. Róbert Pétursson, verslunarstjóri reiðhjólaverslunarinnar TRI, segir að sala rafhjóla sé að aukast aðeins á milli ára. „Það er engin sprengja samt. Við erum 5-7 árum á eftir Evr- ópu í þessari tísku.“ Róbert segir að rafhjólin séu þó komin til að vera hér á landi. „Raf- hjólin eru alltaf að verða betri, þægi- legri og rafhlöðurnar minni og end- ingarbetri.“ En hvað er að stoppa fólk í að kaupa rafhjól í stórum stíl að mati Ró- berts? „Hjólin eru aðeins dýrari en venjuleg hjól, og þeir sem vilja bara hjóla yfir sumarið horfa kannski í það, og finnst þau þá fulldýr. Aðrir hjóla hinsvegar allt árið á rafhjóli og geta mætt ósveittir í vinnuna.“ Ragnar Kristinn Kristjánsson eig- andi einu sérhæfðu rafhjólaverslun- arinnar á höfuðborgarsvæðinu, Raf- magnshjóla, segist hafa rekið verslun sína síðan árið 2012, fyrst í Skipholti en nú á Fiskislóð, og selji þar hollensk hjól. „Þetta mjakast. Það er alltaf aukning ár frá ári, og svo erum við líka með fylgihluti eins og hjólatösk- ur. Það er mjög algengt að fólk komi aftur og kaupi hjól númer tvö, fyrir makann til dæmis. Fólk er að upp- götva hvað þetta er stórkostlegt,“ segir Ragnar sem hjólar alltaf á raf- hjóli í vinnuna. Hann lýsir því að vera með rafmagnið sem stuðning, eins og hjóla alltaf í meðvindi. „Ég er búinn að hjóla tæplega 19 þúsund km á raf- hjóli, og hjóla allt árið.“ Hann segir að í mörgum tilvikum séu rafhjólin ígildi annars bíls. „Ég veit mörg dæmi um fólk sem losar sig við annan bílinn. Maður þarf ekki að vera stærðfræðingur til að átta sig á sparnaðinum af því.“ IKEA-hjólin áfram á næsta ári Stórverslunin IKEA fór inn á raf- hjólamarkaðinn í vor, og salan hefur gengið vonum framar að sögn Þór- arins Ævarssonar framkvæmda- stjóra. „Við fengum hjólin í nokkrum skömmtum. Fyrst fengum við 300 hjól, sem seldust upp. Svo höfum við fengið fleiri skammta. Alls hafa 600 hjól selst nú þegar.“ Þórarinn segir að hjólin séu sam- anbrjótanleg, og auðvelt að pakka þeim í skottið á bílnum. Hann segir að framhald verði á rafhjólasölunni á næsta ári. „Við förum brattir inn í næsta ár. Ég ákvað að taka stóran séns á þessu ári, og það borgaði sig. Við vorum búin að reyna að selja venjuleg hjól, en það var þung bar- átta, og lítil sala,“ segir Þórarinn, en IKEA-hjólin kosta 99.500 krónur, og eru því talsvert undir því verði sem gengur og gerist á þessum markaði. Rafhjólin hægar af stað Morgunblaðið/Valli Samgöngur Hægt er að hjóla á rafhjólum allt árið og velja um hve mikinn stuðning hjólið veitir hverju sinni.  Rafhjólasala brot af reiðhjólasölu hér á landi  Örninn segir að Ísland þurfi sterk hjól og góða rafhlöðu  Mikill vöxtur í Evrópu í sölu á rafhjólum Hjólatíska » Íslendingar langt á eftir Evrópu í rafhjólatískunni » 4,5 milljónir rafhjóla seldust í Evrópu 2017 » 600 IKEA-hjól hafa selst » Eins og að hafa stöðugan meðvind FRÉTTASKÝRING Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sala á reiðhjólum með rafmagns- hjálparmótor, svokölluðum rafhjól- um, hefur farið hægar af stað hér á landi en Jón Pétur Jónsson, eigandi reiðhjólaverslunarinnar Arnarins, átti von á. Hann segir í samtali við Morgunblaðið að sala rafhjóla hafi aukist mikið í Evrópu undanfarin þrjú ár, en Íslendingar séu enn nokk- uð eftir á í þessum efnum. „Þetta er helsti vaxtarbroddurinn í reiðhjóla- sölu í heiminum í dag. Þetta hefur bjargað iðnaðinum í Mið-Evrópu. Vöxturinn hefur verið óhemjumikill,“ segir Jón Pétur. Hann segir að Örninn hafi byrjað að skoða sölu á rafhjólum fyrir um fimm árum og eftir að hafa prófað ýmislegt í þeim efnum, meðal annars að finna eins ódýr hjól og mögulegt var, sé vöruúrvalið nú í takt við þarfir íslenska markaðarins. „Við áttuðum okkur á því að það gekk ekki upp að vera með ódýrustu tegundirnar og færðum okkur upp í næsta verðbil fyrir ofan. Núna erum við búin að finna þær gerðir og þau gæði sem við viljum bjóða upp á. Við sjáum núna betur hvað hentar íslenskum aðstæð- um, en hérna er bæði kaldara og vindasamara en í Evrópu.“ Hann segir að bæði verði hjólin að vera í sterkari kantinum, og rafhlað- an þurfi að hafa góða endingu. Rafhjól virkar þannig að hægt er að velja nokkur styrkleikastig í raf- magni, t.d. 1-5, eftir því hvað mót- staða eins og brekkur eða mótvindur, er mikil. Einnig eru gírar á hjólunum. Rafhlöður er hægt að fá í ýmsum stærðum, og geta þær langdrægustu dregið vel á annað hundruð kíló- metra. Algengt verð á hjólum er á milli 250 og 400 þúsund krónur. Rafmagnsfjallahjól líka „Íslendingar eru almennt mjög nýj- ungagjarnir og því hefur það komið mér á óvarat hvað þessi tíska fer hægt af stað hér á landi. Reyndar erum við núna komin með rafmagnsfjallahjól líka, og höfum selt dálítið af þeim.“ Jón Pétur og aðrir viðmælendur Morgunblaðsins voru á einu máli um að rafhjól hentuðu öllum aldurshóp- um. „Menn sem vinna í slippnum í Vestmannaeyjum uppgötvuðu til dæmis rafhjólin, og hjóla núna allir á þessu heim til sín upp brekkurnar.“ 8. ágúst 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.55 107.05 106.8 Sterlingspund 138.15 138.83 138.49 Kanadadalur 82.1 82.58 82.34 Dönsk króna 16.564 16.66 16.612 Norsk króna 12.989 13.065 13.027 Sænsk króna 11.954 12.024 11.989 Svissn. franki 107.04 107.64 107.34 Japanskt jen 0.9576 0.9632 0.9604 SDR 148.89 149.77 149.33 Evra 123.45 124.15 123.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.523 Hrávöruverð Gull 1212.0 ($/únsa) Ál 2014.0 ($/tonn) LME Hráolía 73.21 ($/fatið) Brent ● Vöruviðskiptin í júlí voru óhagstæð um 15,5 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan hefur birt. Verðmæti vöruútflutnings nam 47,6 milljörðum króna í mánuðinum en verðmæti vöruinnflutnings 63,1 millj- arði króna. Í frétt á vef Hagstofunnar kemur fram að í júlí hafi verðmæti vöruút- flutnings verið 9,7 milljörðum króna hærra en í júlí 2017 eða 25,6% á gengi hvors árs. Hækkunina á milli ára megi rekja til meðalverðshækk- unar á áli og aukins útflutnings á sjávarafurðum. Þá segir Hagstofan að verðmæti vöruinnflutnings í júlí 2018 hafi verið 3,3 milljörðum króna hærri en í júlí 2017 eða 5,5% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af auknum innflutningi á eldsneyti. Halli reyndist á vöruvið- skiptum í júlímánuði Vörur Meira var flutt inn af vörum til landsins en flutt var út úr landinu. STUTT Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.