Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Trump stjórn-ar myndar-legum hluta
alþjóðlegrar dæg-
urumræðu með
tísti. Um það verð-
ur ekki deilt. Umdeilanlegra
er hvort hann geri sjálfum sér
eða umræðunni ætíð gagn með
stýringunni. Svo yfirþyrmandi
er fréttastýring forsetans að
fjöldi manna er sannfærður
um að Trump hafi fundið tíst-
stjórnunina upp. En svo er
ekki. Obama sendi reglubund-
ið út tíst merkt sér. En það
lásu fáir og varla nokkur nema
einu sinni. Hvers vegna? Ekki
er ástæðan sú að Obama sé
ekki prýðilega gegn og greind-
ur maður og var í lykilstöðu til
að opna fréttagáttir. En tíst
hans bar með sér að það var
samið af nefnd lágt settra
aðstoðarmanna. Efasemdir
eru um að forsetinn hafi lesið
það fyrir sendingu.
En nú velkist enginn í vafa
um hver er á tísttökkum Hvíta
hússins. Meira að segja inn-
sláttarvillur og stafsetningar-
villur eru látnar vaða. Það
myndi vandræðalegur starfs-
hópur óreyndra aðstoðar-
manna Obama aldrei hafa látið
henda sig.
Þeir sem eru komnir með
Trump-syndromið á ólæknandi
stig, eins og sumir fjölmiðlar
sem löngum hafa þótt áhrifa-
miklir vestra, leggja nú heila
fréttaskýringaþætti undir
hvert tíst. Þeir minna helst á
áköfustu áhangendur popp-
goðs, nema að því leyti að þeir
hatast við „ídólið,“ sitt og
leggja hvert orð hans út á
versta veg.
Nú síðast tísti Trump um
fund sem lengi hefur verið vit-
að að átti sér stað í turni kemp-
unnar í New York löngu áður
en sigur í forsetakosningunum
lá fyrir. Einn sona forsetans
var á þeim fundi ásamt Rúss-
um sem um hann báðu. Beitan
sem veifað var til að fá fund
var að þetta fólk byggi yfir
gómsætum upplýsingum um
keppinautinn Clinton (dirt on
Hillary). Á tístinu fjallaði
Trump um þennan fund og
nefndi að gestirnir hefðu þóst
hafa „dirt on Hillary“. Strax
hefði komið í ljós að gestirnir
höfðu ekkert slíkt í pokahorn-
inu og fundurinn því runnið út
í sandinn eftir stutta stund.
Þeir fjölmiðlarnir sem
skjálfa svefnlitlir allan sólar-
hringinn af Trump-syndrom-
inu slógu tístinu upp sem stór-
tíðindum. Trump hefði í fyrsta
sinn viðurkennt að háttsettir
forsvarsmenn kosningabarátt-
unnar hefðu verið tilbúnir að
fá upplýsingar frá Rússum um
óhreint mél í pokum andstæð-
ingsins. Gengu stórfréttirnar
um þetta allan daginn.
En stór-tístið
var í raun endur-
tekið efni. Hinn
13. júlí á síðasta
ári sagði Trump
efnislega hið sama
á fjölmennum blaðamanna-
fundi með Macron, forseta
Frakklands. Og í sjónvarps-
viðtölum sagði hann í fram-
haldi að þessi „ógeðfellda“
upplýsingasöfnun væri alsiða í
stjórnmálum vestra.
En merkilegast er að stuðn-
ingsmenn demókrata telji sér
rétt að gera mál úr þessum
fundi, sem engu skilaði, hvorki
skít né öðru. Kosningastjórn
demókrata og framboðs
Hillary vörðu leynilega háum
fjárhæðum í furðuskýrslu um
samsæri Trumps og Rússa,
sem höfundurinn, fyrrverandi
breskur njósnari, sagðist hafa
gert í samvinnu við ónefnda
tengiliði sína í Moskvu! Síðar
hefur komið í ljós að skýrslan
var uppspuni í bland við
hrærigraut. En það alvarlega
var að Comey, forstjóri FBI,
og Brennan hjá CIA notuðu
vellinginn til að ýta undir sam-
særiskenningar sem Robert
Mueller hefur nú „rannsakað“
á annað ár.
Svipuð gleymska umlykur
fréttir af uppsögn forsetans á
samningi við Íran um kjarn-
orkuvopn. Fréttamenn í
erindagjörðum nota þá um-
sögn jafnan að Trump forseti
hefði ákveðið að Bandaríkin
stæðu ekki við orð sín. Þarna
er langt seilst. Obama vissi að
alþjóðlegur samningur af
þessu tagi yrði að fá samþykki
þingsins. Hann hafði sagt að
það yrði gert. En svo varð ljóst
að mikið vantaði upp á stuðn-
ing í þinginu. Ekki aðeins voru
flestir þingmenn repúblikana
andvígir málinu heldur einnig
fjölmargir í flokki demókrata.
Hvers vegna? Kannski ekki
síst vegna þess að skoðana-
kannanir sýndu að einungis
22% Bandaríkjamanna studdu
samningsgerðina. Íranssamn-
ingurinn var því munaðarlaus,
hvort sem horft var til þings
eða þjóðar.
Obama lét sig hafa það að
skilgreina samninginn sem
minniháttar ákvörðun sem for-
setinn gæti prívat og persónu-
lega borið ábyrgð á. Sama
gerði hann með Parísar-
samning um loftslagsmál sem
mikil andstaða var við á
þinginu, þótt hann segði í hinu
orðinu að hann væri mesta og
mikilvægasta utanríkismál
sinnar embættistíðar. Þess
vegna gat Trump breytt þessu
án þess að spyrja nokkurn
mann. Fréttaskýrendur, sem
rísa illa undir því nafni, reyna
að gleyma þessum stað-
reyndum þótt sáraeinfalt sé að
hressa upp á minnið.
Það hefnir sín að
stytta sér leið í
stærstu málum}
Eindæma gleymskuvilji
Á
meðan ríkisstjórn Katrínar Jak-
obsdóttur lækkar bankaskattinn
um 63% og neðra skattþrepið um
1% sem jú gæti gefið láglauna-
manninum andvirði hálfrar pitsu á
mánuði, þá heldur ógnin áfram vegna morfín-
lyfjanna sem eru að drepa unga fólkið okkar
tugum saman. Það hlýtur að vera mikið að hjá
ríkisstjórn sem finnst eðlilegt að skerða tekjur
ríkissjóðs árlega um 21 milljarð króna
(21.000.000.000 kr.) en gerir ekkert þegar kem-
ur að því að verja fjármagni í öflugar forvarnir
og linnulausa baráttu gegn þeirri dauðans al-
vöru sem hér er á ferð. Ekkert sýnilegt og
marktækt átak frá þeirra hendi, heldur sumar-
frí og sól.
Það er hræðilegt þegar ung manneskja deyr
vegna ofskömmtunar lyfja. En á sama tíma og
sú þróun á sér stað hérlendis þá vex framboð á fíknilyfjum
á svörtum markaði. Á ávanabindandi róandi lyfjum á borð
við xanax og sterkum morfínlyfjum á borð við oxycontin
og kódín. Þrátt fyrir vaxandi vanda þá skortir viðbótar-
fjármagn til þeirra sem helst hafa unnið með þá ein-
staklinga sem glíma við fíknina. SÁÁ.
Það er óafsakanlegt að mæta ekki aukinni þörf á með-
ferðarúrræðum með auknu fjármagni úr ríkissjóði. Það er
ekki nóg að setja á fót stýrihóp til að vinna á vandanum.
24 lyfjatengd andlát til skoðunar
Lyfjateymi Embættis landlæknis fær til skoðunar
matsgerðir eftir lyfjaleit í látnum einstaklingum. Í
júnímánuði greindi Fréttablaðið frá því
að þær væru nítján talsins. Nú eru þær
orðnar 24. Sterkur grunur leikur á að
þessi andlát megi rekja til lyfjaeitrunar
þótt ekki sé víst að þau verði flokkuð sem
slík í dánarmeinaskrá. En það er víst að
árið 2017 voru lyfjatengd andlát 30 tals-
ins í dánarmeinaskrá. Það má fastlega
gera ráð fyrir því að fjölgun dauðsfalla af
þeim völdum verði um tugi prósenta á
milli áranna 2017 og 2018.
Staðreyndirnar tala sínu máli, unga
fólkið okkar deyr vegna ofneyslu fíkni-
lyfja sem eiga ekki að ganga hér kaupum
og sölum á svörtum markaði.
Staðreyndin er sú að það skortir stór-
lega á aðgerðir nú strax til að bregðast við
þessari vá.
Ég trúi því að það séu afar fáir skattgreiðendur sem
frekar vilja lækka bankaskattinn um 63% og lægra
skattaþrepið um 1% en þeir sem vilja leggja aukinn
kostnað í að koma í veg fyrir neyslu barnanna okkar á
þessum dauðans alvöru fíknilyfjum sem hér flæða
óhindrað.
Fyrir börnin okkar eigum við að gera allt. Í þessu
tilviki öflugar forvarnir og fullkomið meðferðarúrræði
fyrir alla þá sem á þurfa að halda.
Inga
Sæland
Pistill
Ömurleg forgangsröðun ríkisstjórnar
Höfundur er alþingismaður og
formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Við viljum að fólk ráði þvísjálft hvort það flokki rusl-ið sitt eða ekki. Þess utanteljum við okkur vera mjög
framarlega í þessum málaflokki,“
segir Eygerður Margrétardóttir,
deildarstjóri umhverfis- og úrgangs-
stjórnunar í Reykjavík, spurð hvort
Reykjavíkurborg hafi setið eftir í
sorphirðu og öðru sem henni við-
kemur á síðustu árum. Mikil fram-
þróun hefur orðið í málaflokknum í
flestum sveitarfélögum hér á landi
undanfarin ár.
Að sögn Eygerðar eru nú um tvö
ár síðan Reykjavíkurborg kynnti
grænu tunnuna til leiks sem ætluð er
fyrir plast. Frá þeim tíma hafa ýmsar
nýjungar verið kynntar til sögunnar í
öðrum sveitarfélögum sem allar miða
að því að einfalda og auka flokkun
sorps. Engar frekari breytingar hafa
verið kynntar í Reykjavík en Ey-
gerður segir þó að Reykjavíkurborg
standi framarlega þegar kemur að
sorphirðu og reyni ávallt að fylgja
nýjustu stöðlum og reglum til að há-
marka endurvinnslu.
Mismunandi þarfir fólks
Í öllum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu, að Kópavogi og
Reykjavík frátöldum, hefur nú verið
sett á stofn verkefni sem finnur plasti
sérstakan endurvinnslufarveg. Verk-
efninu er ætlað að stuðla að stórauk-
inni endurvinnslu á plasti en til að
endurvinna plastið er það sett í plast-
poka sem eingöngu eru ætlaðir undir
hreinar plastumbúðir. Plastpokinn
ásamt innihaldinu er settur í almenn-
ar sorptunnur en er síðan aðskilinn
frá almennu sorpi síðar í ferlinu og
settur í endurvinnslu. Með þessu
vonast bæjaryfirvöld í sveitarfélög-
unum til að hægt verði auka magn
plasts sem fer í endurvinnslu um 15
kg á íbúa á ári. Þá hafa bláar tunnur
verið settar við öll hús í Kópavogi en í
þær er hægt að setja bæði plast og
pappír sem síðar er aðskilið með
vélum.
Vilji fólk fá sambærilega þjónustu í
Reykjavík þarf það að greiða sér-
staklega fyrir það. Eygerður segir að
eðlilegt sé að fólk greiði sérstaklega
fyrir auka tunnur. „Auðvitað viljum
við að fólk flokki en við viljum einnig
að fólk hafi val. Fyrir suma hentar
betur að fara með ruslið á endur-
vinnslustöðvar á meðan aðrir vilja
flokka þetta í tunnur fyrir utan húsið
sitt. Í Reykjavík viljum við ekki
skylda fólk til að vera með tunnur við
heimili sín,“segir Eygerður.
Borgarbúar borga meira
Til að fá sambærilega þjónustu og
íbúar annarra sveitarfélaga verða
íbúar Reykjavíkur að greiða talsvert
hærra verð. Sorphirðugjald í Reykja-
vík er 40.500 krónur á ári vilji fólk
flokka pappa og plast frá venjulegu
sorpi, en það er um 7.000 krónum
meira en íbúar Kópavogs greiða.
Lægst er sorphirðugjaldið í Garðabæ
þar sem íbúar þurfa einungis að
greiða 24.450 krónur á ári.
Spurð hvers vegna gjaldið sé eins
hátt og raun ber vitni segir Eygerður
að ýmislegt geti spilað þar inn í. Taka
verði þó með í reikninginn að verið sé
að bjóða upp á fleiri tunnur í Reykja-
vík auk þess sem fólk hafi val um það
hvort það vilji flokka. „Þetta er auð-
vitað misdýrt eftir því hversu mikið
fólk flokkar. Þess utan bjóðum við
upp á fleiri tunnur en í öðrum sveit-
arfélögum auk þess sem skoða þarf
hversu oft ruslið er sótt,“ segir Ey-
gerður.
Íbúar stýri því hvort
þeir flokki eigið sorp
Morgunblaðið/Eggert
Sorphirða Til að íbúar Reykjavíkur geti flokkað sorp á sambærilegan
hátt og í öðrum sveitarfélögum þurfa þeir að borga talsvert meira.
Á Akureyri hefur nú verið kom-
ið fyrir hólfi í ruslatunnum
fólks sem ætlað er lífrænum
eldhúsúrgangi. Lífræni úrgang-
urinn fer í sérstakan kartöflu-
sterkjupoka sem sérstaklega
er ætlaður fyrir lífrænt sorp. Á
endanum brotna pokarnir
ásamt innihaldinu niður í hólf-
inu og úr verður mold. Sorpið
verður því hluti af eðlilegri
hringrás og jarðgerðarferli í
umhverfinu.
Í Reykjavík hefur hingað til
ekki verið boðið upp á hólf eða
tunnur við heimili fólks þar
sem hægt er að flokka lífrænt
sorp. Eygerður segir þó vel
koma til greina að bjóða upp á
slíka þjónustu í framtíðinni en
borgin reyni að fylgja leiðbein-
ingum sem koma frá útlönd-
um.
Hólf sett í
tunnur íbúa
FLOKKA LÍFRÆNT SORP