Morgunblaðið - 08.08.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 08.08.2018, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Áhugavert var að fylgjast með frétta- flutningi og um- ræðum í kjölfar þess að franskir ferða- menn festu bíla sína utan vegar í Kerling- arfjöllum á dögunum og voru sektaðir fyrir brot sín. Ljósmyndir af jeppunum kolföst- um og á kafi vöktu at- hygli, umræðu og umfjöllun langt umfram það sem ég hefði getað ímyndað mér. Þegar ég lít hins vegar um öxl virðist umræðan einna helst hafa skilað kröfum um hærri sektir og umfangsmeiri frið- lýsingu á hálendinu. Slíkar ráð- stafanir yrðu að litlu gagni einar og sér. Hvorki aukin refsigleði né meiri friðlýsing dregur úr utanvega- akstri. Það leyfi ég mér að fullyrða eftir að hafa starfað að ferðaþjón- ustu í Kerlingarfjöllum í mörg ár og komið að fjöldamörgum öku- mönnum, íslenskum og erlendum, utan vega og slóða. Afskiptin vekja mismikla hrifningu ökumanna og fæstir þeirra skilja að förin, sem ökutækin þeirra skilja eftir í land- inu, verða mörg hver brennimerki í náttúrunni næstu áratugi. Utanvegaakstur getur komið til af mörgum ástæðum. Algengt er að menn fari út fyrir vegslóða til að sneiða hjá torfærum. Aðrir vilja beinlínis skilja eftir sig hringi eða spólför í hlíðum og á melum og búa þá við svipað hugarfar og veggja- krotarar. Enn aðrir segjast hafa gert þetta til að stytta sér leið. Nýlega kom ég að fólki sem var fast utan fáfarins vegslóða, á svæði þar sem öll umferð var bönnuð. Það kvaðst hvergi hafa séð merk- ingar um lokun og umferðarbann og engar upplýsingar fengið um skaðsemi utanvegaaksturs hjá bílaleigunni eða annars staðar. Ferðamennirnir spurðu réttilega hverjir hefðu átt að upplýsa þá um gildandi reglur en greinilega ekki rækt skyldur sínar? Spurningin var góð en málið vandaðist þegar átti að svara. Allur akstur er bannaður um Kjalveg frá byrjun nóvember til loka maí á hverjum vetri. Bannið er kynnt á skiltum en samt sýnir sjálfvirkur umferðarteljari að 67 ökutæki fari að jafnaði þarna um á banntímanum! Hvílir ekki sú ábyrgð á þeim sem bannar eitt- hvað að fylgja banni eftir? Hverj- um er það til framdráttar að setja óraunhæfar reglur um umferð á hálendinu utan háannatímans að sumri og gera þær jafnframt ómarktækar með hrópandi af- skiptaleysi? Staðreynd er að við eigum ekki tiltæka skilgreiningu á því hvenær vegslóði er í raun vegslóði og hvenær komið er „út fyrir veg“. Þetta er augljóst mál á vegum og vegslóðum sem Vegagerðin lætur hefla nógu breiða til að bílar geti mæst í hefilfarinu. Gamanið kárnar á einföldum jeppaslóðum þegar ökutæki mætast og annað eða bæði víkja með því að aka út fyrir veg. Forgangsverkefni stjórnvalda ætti að vera að skilgreina á sem skýrastan hátt hvað telst ut- anvegaakstur og hvað ekki. Það er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að taka á málinu í smáu sem stóru. Sömuleiðis á að upplýsa íslenskt og erlent ferðafólk betur um há- lendið og hálendisakstur, bæta merkingar við ökuleiðir og sýna fram á það í myndmáli hvernig ut- anvegaakstur skemmir gróður og veldur skaða sem verður seint eða ekki bættur náttúrunni. Ríkið hefur varið ómældum fjár- munum í að gera hálendið að þjóð- lendu og heldur sitt strik í þeim efnum. Sumir við ríkisstjórnar- borðið eru ákafir talsmenn þess að taka næsta skref og gera hálendið að þjóðgarði. Slík myndi samt litlu sem engu breyta út af fyrir sig um nauðsynlega verndun náttúrunnar á hálendinu. Þar hefur ríkið illa sinnt kalli sínu. Þyngri refsingar og hærri sektir hljóma ábyggilega vel í eyrum margra en er sú leið endilega sú rétta til að bregðast við vand- anum? Er ekki nær að þeir sem fara með ríkisvaldið herði sig við eigin heimavinnu? Ljúki brýnum verkefnum sem hafin eru eða bíða í samgöngumálum og í innviðakerf- inu. Stórauki kynningar- og upp- lýsingastarfsemi gagnvart ferða- fólki á hálendinu. Þetta ættu að vera forgangsmál í stjórnkerfi og á löggjafarsamkomunni. Yfirlýsingar um að setja friðlýs- ingu í forgang að öðru óbreyttu hafa hvorki innihald né raunveru- lega merkingu og gagnast ekki náttúru hálendisins. Utanvegaakstur og refsigleði Eftir Pál Gíslason Páll Gíslason » Þyngri refsingar og hærri sektir hljóma ábyggilega vel í eyrum margra en er sú leið endilega sú rétta til að bregðast við vandanum? Framkvæmdastjóri Fannborgar, sem rekur ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum. Margir segja að íslensku vegirnir séu meira og minna ónýtir. Sumir jafnvel handónýtir. En það vita allir að vegirnir á landinu verða ekki lagfærðir með einu pennastriki. Og öllum er líka kunnugt um, að hraðinn orsakar flest hin hræði- legu umferðarslys. Af hverju liggur okkur svona mikið á? Stjórnlaus hraði á ónýtum vegum býður hættunni heim. Nú verða allir að sýna aðgát og kurteisi. Oft var þörf en nú er algjör og þjóð- hagsleg nauðsyn. Þingeyrarakademían biður alla öku- þóra að slappa nú af og aka miðað við aðstæður. Láta ekki smámuni koma sér úr jafnvægi. Og það þýðir ekkert að vera að bölva Vegagerðinni! Hún gerir það sem hún getur blessunin. Í gamla daga var sagt við menn hérna fyrir vest- an, þegar þeir fóru of geyst: „Væri nú ekki ráð að slá af, Mundi!“ Þingeyrarakademían. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Væri nú ekki rétt að fara að slá af, Mundi? Holufyllingar Þennan veg mætti laga. Morgunblaðið/Júlíus Atvinna Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í veislusal okkar, í aðra sali eða í heimahúsi. Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur á jarðhæð, gott aðgengi. Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin í verði þegar erfidrykkja er í sal. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is TOYOTA LAND CRUISER 150 GX nýskr. 06/2010, ekinn 158 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verulega flott eintak! Verð 4.590.000 kr. Raðnúmer 380096 FORD FOCUS TITANIUM nýskr. 07/2016, ekinn 21 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Flottur einkabíll!Verð 2.880.000 kr. Raðnúmer 287776 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI FORDTRANSIT 350 TREND L3H1 4WD NÝR! 170 hö diesel, 6 gíra.Verð 5.150.000+ vsk. Raðnúmer 230593 - Eigum einnig FWD á 4mkr+vsk. KIA CEEDWAGON EX nýskr. 05/2017, ekinn 48 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. Verð 2.850.000 kr. Raðnúmer 380054 VOLVO V60 D4 CROSS COUNTRY nýskr. 07/2017, ekinn 18 Þ.km, D4 dísel 191hö, sjálfskiptur (8 gíra), leður ofl. Glæsilegur bíll! TILBOÐSVERÐ 4.990.000 kr. Raðnúmer 258241 Bílafjármögnun Landsbankans Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir að- sendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.