Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.08.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Það var í maí 1960 að mamma sagði okkur að Hadda elsta systir okkar væri að koma heim eftir vertíð í Eyjum. Með henni væri ungur maður frá Dalvík. Þetta var sunnudagsmorgunn og komu þau með flugi. Ég og eldri systir mín ákváðum að labba á móti þeim, þar sem þau voru að koma með leigubíl af flugvelli, þvílíkur var spenningurinn. Við klæddum okk- ur í sparifötin og lögðum af stað. En við fórum á mis við þau, og þau voru komin heim í Sólvelli þegar við komum til baka. Þau höfðu sett upp hringana einhvers staðar á leiðinni norður. Þarna sat hann inni í stofu og hitti þarna yngri systkini og foreldra Höddu, og pabbi sagði honum að standa upp og snúa sér í hring, og segir síðan við mömmu: „Mér finnst hann heldur magur.“ En þótt holdafarið væri ekki mikið stóð hann alla tíð fyrir sínu. Jóhann var einstakur í lipurð og hjálpsemi. Ótal minning- ar rifjast upp nú þegar að komið er að tímamótum. Þegar þau giftu sig út á Möðruvöllum og við krakkarnir áttum að vaska upp á meðan farið var í þá athöfn. En eitthvað var slugsið í okkur og uppvaskið ekki búið þegar brúð- hjón og foreldrar beggja ásamt einhverjum fleirum komu úr kirkju, það þótti ekki sæmandi á þessum degi. Þau fluttu á Dalvík um kvöldið og bjuggu þar alla sína tíð. Næsta minning er þegar Hadda kom inn eftir til að fæða Maríönnu, það var mikill snjór, þetta var í apríl og hafði hún kom- ið nokkrum dögum fyrr til Akur- eyrar. Við sátum þetta sunnu- dagskvöld og hlustuðum á Svavar Gests í útvarpinu. Þegar þáttur- inn var búinn var Hadda komin með verki, svo að mamma fór með henni upp á fæðingardeild, en við hin fórum að sofa stuttu seinna. Upp úr kl. 2 um nóttina opnaði Jó- hann herbergisdyrnar hjá okkur Jóhann Arnar Tryggvason ✝ Jóhann Arnarfæddist 14. júlí 1939. Hann lést 12. júlí 2018. Útför Jóhanns fór fram frá Dal- víkurkirkju 19. júlí 2018. og spurði um Höddu sína, við sögðum að hún væri á fæðingar- deildinni og hvenær fór hún þangað, í gær sögðum við, svefndrukknar og ruglaðar og af hverju var ég ekki látinn vita, þá áttuð- um við okkur á að það var ennþá nótt og sögðum að hún hefði farið eftir klukkan tíu. Þá var hann búinn að vera rúma fjóra tíma að brjótast inn eftir á jeppa með vini sínum í ófærðinni, hann var ekki lengi að snarast út í bíl og á sjúkrahúsið. Ein minning er þegar þau komu af balli, þá settist Jóhann inn til okkar, opnaði rúm- fataskápinn og hló inn í hann og sagðist vera búinn að fylla hann af hlátri, næst stóð hann upp og fór og lokaði eftir sér, opnaði aftur og hló inn í herbergið og þá var hann búinn að fylla það líka af hlátri og þá gátum við ekki annað en hlegið með. Það eru ótal svona ljúfar og góðar minningar, t.d. kortið sem fylgdi gjöfinni þegar einn sonur okkar fæddist, æðsta ósk hins ný- bakaða föður er smá þögn, þetta kort valdi hann. Jóhann kom víða við í atvinnu sinni, hvort sem það var akstur Dalvíkurrútunnar eða mjólkurbíla, seinna gerðist hann leigubílstjóri, starfaði við verslun hjá KEA og saumastofu ráku þau, fatahreinsun og áfengisbúðin var þar með. Hann var til sjós og var kokkur. Fyrir rúmum þrjátíu ár- um datt hann og höfuðkúpubrotn- aði og það blæddi inn á heila, núna seinni árin kom afleiðing þessa slyss svo berlega í ljós, hann fékk algjört verkstol. Það var erfitt og sárt að horfa upp á þennan mann ekki geta gert neitt. Við vorum þakklát þegar þessu lauk og hann þurfti ekki lengur að dvelja í þess- um veika líkama, sjálfsagt hefur hann verið hvíldinni feginn. En tvennt var ekki tekið frá honum, það var ást hans og umhyggja fyr- ir fjölskyldu sinni og húmorinn hafði hann fram á seinasta dag, það var mikil guðsgjöf. Þakka innilega góð kynni og samveru lið- inna ára. Sendi systur minni og hennar afkomendum samúðar- kveðju. Sjáumst seinna. Pálína S. Jónsdóttir (Palla). ✝ Kári Sigur-jónsson fædd- ist á Rútsstöðum í Svínadal, A-Hún., 17. ágúst 1923. Hann andaðist á Hjúkrunar- heimilinu Skjóli 11. júlí 2018. Foreldrar hans voru Guðrún Jó- hannsdóttir, fædd á Guðrúnar- stöðum í Vatnsdal 23. júlí 1898, dáin 12. maí 1966, og Sigurjón Oddsson, fæddur í Brautarholti í Reykjavík 7. júní 1891, dáinn 10. september 1989. Kári var fimmti í röð 13 alsystkina auk þess átti hann fjögur hálfsyst- kini samfeðra. 29. mars 1953 kvæntist Kári Helgu Pálsdóttur, f. í Höfnum á Reykjanesi 27. júlí 1927, d. 8. febrúar 1995. Þau skildu. Kári og Helga eignuðust þrjú börn. Þau eru 1) Steinunn Sigur- björg, f. 2. maí 1949, gift Hirti Hjartarsyni. Börn þeirra eru I) Rúnar Ingi, f. 18. júlí 1969, maki Agnieszka Sosnowska, f. 1. júní 1971. II) Einar Már, f. 4. mars 1973, í sambúð með Elínu kvæntur Maríu Guðrúnu Svein- björnsdóttur, f. 28. júní 1980, börn þeirra a) Vigdís Helga, f. 2001, b) Iðunn Anna, f. 2005, c) Sigurjón Kári, f. 2010. II) Kári Þór, f. 7. nóvember 1980. III) Anna Dröfn, f. 19. ágúst 1982, gift Hjörleifi Stefánssyni, börn þeirra a) Jóhannes Þór, f. 2006, b) Eyjólfur Ágúst, f. 2008, c) Helga Sigríður Guðfríður, f. 2013, og fyrir átti Sigurjón IV) Sigríði Þórlaugu, f. 29. mars 1972, börn hennar a) Sigrid Josefine, f. 1994, b) Fredrik, f. 1998. Kári fór snemma að heiman og var á ýmsum bæjum í vinnu- mennsku. 23 ára fór hann suð- ur til Reykjavíkur og gerðist bílstjóri hjá Alþýðubrauðgerð- inni, síðan bílstjóri hjá Stein- dóri og framhaldi á því á eigin bíl á BSR og starfaði við akstur til starfsloka 70 ára. Eftir starfslokin byrjaði hann að stunda hestamennsku af mikilli ástríðu. Hann fór í margar hestaferðir og og var oft farar- stjóri. Bridsspilamennska var mik- ið áhugamál hjá honum og einnig lomberspil. Síðustu árin bjó Kári á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk Kára. Hreinsdóttur, f. 16. mars 1967. Börn þeirra a) Steinunn Edda, f. 2002, b) Jökull Helgi, f. 2006. Elín á fyrir c) Fjólu Hreindísi, f. 1995. III) Guðbjörg Helga, f. 7. septem- ber 1978, í sambúð með Jóni Sigurðs- syni, f. 8. desember 1977. Börn þeirra a) Védís Lilja, f. 2008, b) Eldey Arna, f. 2014. 2) Páll, f. 21. jan- úar 1953, kvæntur Málfríði Baldursdóttur, f. 15. septem- ber 1949, áður kvæntur Anne- lise L. Kaasgaard. Börn Páls og Annelise I) Mads Kári, f. 23. júní 1980, maki Mia Witten- dorf, þeirra börn a) Lilja, f. 2008, b) Rósa, f. 2010, II) Ína Steinunn, f. 23. apríl 1984, í sambúð með Róberti Sæmunds- syni, og hennar börn a) Ágúst Pálmi, f. 2007, b) Stormur Fenrir, f. 2010, c) Tinna Lind, f. 2018. 3) Sigurjón, f. 27. ágúst 1954, kvæntur Vigdísi Helgu Eyjólfsdóttur, f. 27. október 1956. Börn þeirra I) Eyjólfur Bjarni, f. 16. júní 1979, Mig langar í örfáum orðum að minnast gamals vinar sem ég því miður gat ekki fylgt til grafar á síðustu dögum, Kára Sigurjóns- sonar, fyrrverandi leigubílstjóra, sem var jarðaður í kyrrþey í júlí- mánuði. Ég kynntist Kára í sam- félagi hestamanna í Gusti í Kópa- voginum en hann tilheyrði hópi leigubílstjóra á BSR og Bæjar- leiðum sem allir héldu hesta þar á áttunda áratug síðustu aldar. Kári var brosmildur og léttur karakter sem þó átti skap ef ein- hver kom ekki nógu vel fram en réttsýnn var hann með eindæm- um. Það var sérstakt þetta sam- félag leigubílstjóra sem hélt hesta í Gusti en þeir áttu það sameiginlegt að eiga tíma sinn sjálfir yfir daginn og geta sinnt hestunum að vild. Í Glaðheimum var oft mikið líf og fjör á þessum tíma og þar var að finna ýmsa svipmikla persónuleika og minn- ist ég sérstaklega Kára, Guðna, Zopha, Bubba og Stranda- Gvendar sem einnig lést fyrr á þessu ári. Kári átti heima skammt frá mér í Reykjavík og á yngri árum áður en ég fékk bílpróf fékk ég oft að fljóta með honum upp í Kópavog til að gefa í hesthúsi föð- urbróður míns, Egils Einarsson- ar þar sem ég sjálf var með tvo á húsi. Í þá daga var engin Smára- lind og nutum við útreiða á því svæði – í landi Smárahvamms, upp að Breiðholti, í átt að Vífils- staðavatni í landi Garðabæjar. Ég á ófár minningar um reiðtúra í alls kyns veðrum með þessum köppum sem létu ekkert stoppa sig. Oftast var nú samt riðið í átt- ina að Kópavogi og áð við Smára- hvamm en mikið hefur breyst síð- an þetta samfélag dafnaði þarna í Kópavoginum sem nú er nánast alveg afmáð nema í minningunni. Öll vor riðum við saman austur yfir Hellisheiðina með hestana í sumarhaga og oft var farið í hestaferð á sumrin með leigubíl- stjórunum. Þá var gaman að fylgjast með köllunum eiga við hrossin. 17. ágúst 1984 fékk ég folald undan meri sem ég hafði fengið frá Auðkúlu í Húnavatns- sýslu og auðvitað gat ég ekki stillt mig um að nefna folann Kára sem átti afmæli sama dag og nafni hans var bara ánægður með uppátækið. Kári var með eindæmum hlýr og umhyggju- samur, alltaf tók hann hlýlega í höndina á mér og ræddi heima og geima þegar hann skutlaði mér heim. Á þeim aldri þegar ég fór stundum út að skemmta mér um helgar gat ég hringt á stöðina um miðjar nætur og látið kalla upp 106 þegar erfitt var að fá bíl. Hann lét sig ekki um muna að koma mér örugglega heim. Núna hafa þessir tímar runnið sitt skeið og þessir karakterar horfið inn í eilífðina. En þótt enginn kalli lengur blíðlega á hrossin sín inn í hús í gerðinu við Stjarna- holt, eða kalli 106 upp á stöðinni þá lifir minningin um þessa tíma, minningin um 106 – Kára, kæran vin í hugskoti mínu. Hans nán- ustu votta ég mína dýpstu samúð og Kára þakka ég verndina og hlýleikann sem hann sýndi mér alla tíð. Farðu í friði, kæri vinur. Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Kári Sigurjónsson Það er skrítið að fá hringingu um að Þorsteinn Ingólfs- son sé látinn. Það er skrítið vegna þess að ég var hjá hon- um fyrir tveimur dögum. Hann var að vísu að fara til læknis, en ekki gat maður látið sér detta í hug að þar væri upphaf- ið að endalokunum. Hugurinn fer ósjálfrátt af stað og rifjar upp allt það sem við áttum sameiginlegt og höfð- um gert saman. Við Sólrún kynntumst Þor- steini þegar þau Fríða fóru að draga sig saman fyrir mörgum árum, sem voru samt svo fljót að líða. Við fórum gjarnan til þeirra þar sem þau bjuggu hverju sinni og gerðum okkur glaðan dag. Ferðuðumst og nutum þess að vera saman. Á sumrin komu Fríða og Þorsteinn alltaf heim í Gnoð- arvoginn, þá var líka búið að plana ferð um Ísland. Margar eru minnisstæðar og alltaf var Fríða búin að gera plön og panta gistingu. Við ferðuðumst þannig að þau voru í húsi en við í bílnum. Grill var alltaf með og passað upp á að gott kjöt væri með, því ekkert fannst Þorsteini betra. Hann var líka frábær og mikill grillari og þótti gaman að gefa góðan mat. Það er skrítið að sitja hér og skrifa minningarorð um Þor- Þorsteinn Ingólfsson ✝ Þorsteinn Ing-ólfsson fæddist 9. desember 1944. Hann lést 19. júlí 2018. Útför Þorsteins fór fram frá Foss- vogskirkju 1. ágúst 2018. stein, sem er far- inn svona langt á undan tímanum. Hann sem átti eftir að gera svo margt. Minningin um góðan dreng lifir og þökkum við fyr- ir að hafa fengið að vera með honum og njóta alls þess góða sem frá hon- um kom. – Maður veit ekki daginn, en hann kemur. Fríða mín, með þessum fáu línum sendum við Sólrún ein- lægar samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar og þín. Steindór. Ég minnist þess enn þegar ég hitti Þorstein Ingólfsson í fyrsta skipti. Ég var boðaður til viðtals í ráðuneytinu eftir að hafa sótt um starf þar og gekk inn ganginn milli þeirra Þor- steins og Ólafs Egilssonar og fann glöggt til smæðar minnar og reynsluleysis. Allnokkru síð- ar hóf ég síðan störf og var svo heppinn að fyrsti yfirmaður minn var Þorsteinn. Sem yfirmaður hafði Þor- steinn sérstakt lag á að kalla fram bestu eiginleika sam- starfsmanna sinna. Frá fyrsta degi var manni treyst til þess að ráða fram út málum á eigin forsendum en jafnframt fylgdist hann grannt með, leiðbeindi þegar þess þurfti með, leiðrétti og sá til þess að mál færu í réttan far- veg. Alla tíð síðan bjó ég að þeim grunni sem þar var lagður. Ég veit að sömu sögu hafa að segja samstarfsmenn hans hjá NATO, Sameinuðu þjóðunum og Alþjóðabankanum svo aðeins sé minnst á þrjár starfsstöðvar á löngum og fjölbreyttum ferli. Leiðir okkar lágu saman aft- ur í ráðuneytinu á árunum 1991-1994 þegar hann var ráðu- neytisstjóri en ég gegndi starfi skrifstofustjóra á viðskipta- skrifstofu. Verkefnin voru ærin, innleiðing EES-samningsins og einhver lengsta umræða á Al- þingi í manna minnum, stað- festing aðildar Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og enn mætti lengi telja. Í þeirri pólitísku orrahríð var gott að geta leitað til Þorsteins, sem ævinlega hélt ró sinni, setti hluti í samhengi og skakkaði leikinn þegar þess þurfti. Ég varð ekki var við annað en að dómgreind hans væri óskeikul. Hann lét sér ekki nægja að bjarga andlegri velferð minni með rósemi sinni því líkamlegt ástand mitt skánaði til muna því hann dreif mig með sér tvisvar í viku í leikfimitíma í stjórnarráðshóp undir stjórn Valdimars Örnólfssonar. Þorsteinn var traustur og yfirvegaður embættismaður alla tíð, lengst af hjá alþjóða- stofnunum og var treyst fyrir veigamiklum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi. Orðspor Ís- lands var í öruggum höndum hvar sem hann kom að málum. Það er þyngra en tárum taki að Þorsteinn hafi ekki náð að njóta lengur verðskuldaðrar hvíldar eftir farsæla starfsævi og samveru með börnum og barnabörnum og henni Fríðu sinni. Ég sendi henni og fjölskyld- unni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar Snorri Gunnarsson. Með Þorsteini Ingólfssyni er genginn traustur maður sem leysti af festu og samviskusemi þau verk sem honum voru falin, hvort heldur var á vettvangi utanríkisþjónustu eða sem bankaráðsmaður í Alþjóðabank- anum. Þorsteini kynntist ég fyrir margt löngu er báðir unnu í stjórnarráðinu, hann sá um fjármál utanríkisráðuneytis og átti sem slíkur tíð samskipti við fjármálaráðuneyti. Tortryggni gætti í fjarmálaráðuneyti gagn- vart erindum um óvænt fjár- útlát ráðuneyta eða stofnana. Bæri Þorsteinn Ingólfsson upp mál við fjármálaráðuneyti lærð- ist fljótt að ganga mátti að því sem gefnu að slík mál hefðu áð- ur hlotið vel ígrundaða skoðun af hans hálfu. Leiðir okkar lágu aftur sam- an er Þorsteinn var yfirmaður varnarmálaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins og undir hann heyrðu samningar um upp- byggingu Íslenska loftvarna- kerfisins „IADS“. Að afla samþykkis fyrir því að Íslendingar önnuðust sjálfir rekstur og viðhald slíks kerfis var flókið milliríkjamál þar sem ótal fulltrúar erlendra stór- velda, sem og íslenskir aðilar, reyndu að hafa áhrif á fram- vindu málsins. Kom í hlut Þor- steins að halda til haga íslensk- um hagsmunum í málinu. Var unun að því að sitja með honum fundi og sjá hversu fastur hann var fyrir og gætti vel íslenskra hagmuna. Var sama hvort viðmælendur voru borðalagðir hershöfðingjar eða sendiherrar eða hétu Schultz eða Holst eða eitthvað annað, Þorsteinn sýndi aldrei minnsta vott undanlátssemi á slíkum stundum heldur stóð dyggan vörð um þá ákvörðun að IADS skyldi viðhaldið og rekið af Íslendingum ella ekk- ert IADS. Að öðrum embættismönnum utanríkisráðuneytis ólöstuðum tel ég Þorstein hafa átt hvað mestan þátt í farsælli niður- stöðu samninga um íslenska loftvarnakerfið. Ég þakka fyrir góð og traust samskipti við Þorstein Ingólfs- son á liðnum áratugum og votta börnum hans og ekkju samúð á erfiðum tíma í lífi þeirra. Gunnlaugur M. Sigmundsson. Gunnar Hauks- son var einn þeirra fyrstu sem ég kynnt- ist hjá Héðni þegar ég byrjaði að halda utan um markaðs- og kynn- ingarmál fyrirtækisins fyrir meira en áratug. Við Gunnar áttum alla tíð í miklum samskiptum, enda snerust kynningarmálin löngum um þau verkefni sem hann hafði á sinni könnu. Það var ánægjulegt og gefandi að vinna með Gunnari. Hann leit á sölu- og kynningarmál Héðins sem langhlaup, vildi ekkert fara sér óðslega og taldi – réttilega – að trúverðugleiki gagnvart við- skiptavinum væri grunnforsenda árangurs. Oftar en ekki sagði hann við mig að við skyldum bíða og sjá til. Þetta kemur, sagði hann, menn verða að fá að melta það sem við erum að segja og átta sig sjálfir, þá koma þeir. Sem reynd- Gunnar Helgi Hauksson ✝ Gunnar HelgiHauksson fæddist 5. nóvem- ber 1955. Hann lést 12. júlí 2018. Útför Gunnars fór fram frá Hafnarfjarðar- kirkju 20. júlí 2018. ist raunin. Þolin- mæði og þrautseigja höfðu mikið að segja um þann árangur sem Gunnar náði í störfum sínum hjá því frábæra fyrir- tæki sem Héðinn er. Gunnar var hlýr persónuleiki, átti alltaf tíma til að ræða málin og var hafsjór af fróðleik, ekki síst um sjávarútveginn. Hann var rólyndismaður, nema þegar kom að umræðu um kvótakerfið. Þá átti hann það til að hækka róm- inn. Hann taldi kvótakerfið hafa skapað grundvöllinn að heilbrigð- um sjávarútvegi hér á landi og lét engan eiga neitt inni hjá sér sem hafði efasemdir. Á sjávarútvegs- sýningum naut hann þess að benda á þau fjölmörgu fyrirtæki og starfsfólk þeirra sem byggja grundvöll sinn á þeim öfluga sjávarútvegi sem hér þrífst. Það voru forréttindi að fá að kynnast og starfa með Gunnari Haukssyni, sem er horfinn á braut allt of snemma. Ég votta sam- starfsfólki hans hjá Héðni og fjöl- skyldu hans innilega samúð mína. Ólafur Hauksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.