Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 26

Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 Gunnar Möller, brautarstjóri vélstjórabrautar hjá Verkmennta-skólanum á Akureyri, á 50 ára afmæli í dag. Hann er vélfræð-ingur og kennari að mennt og er búinn að kenna við Verk- menntaskólann í rúmlega tuttugu ár og vera brautarstjóri í fimm ár. Um 60 til 70 nemendur eru á vélstjórabraut á hverju ári í skólanum. Gunnar er borinn og barnfæddur Akureyringur og býr í Aðalstræt- inu. „Í sumar hefur allur tíminn farið í að smíða pall við húsið. Núna er ég í afslöppun í sumarbústað á Illugastöðum í Fnjóskadal og ætla ekki að gera neitt sérstakt annað en það í dag.“ Mótorhjól hafa alltaf skipað háan sess hjá Gunnari. „Ég er búinn að vera í mótorhjólunum frá því þau voru fundin upp og var lengi í stjórn Mótorhjólasasafnsins. Ég er reyndar ekki á hjóli núna, í fyrsta skipti í 30 ár. Ákvað að taka mér smá pásu.“ Gunnar er líka í tónlistinni, en hann spilar á bassa og kontrabassa. „Ég hef verið að spila með hópi sem kallast Braz sem er harmónikku- hljómsveit. Við spilum m.a. á harmónikkuböllum fyrir eldri borgara. Sjálfur hlusta ég á alla tónlist og er mikill Bítlaaðdáandi.“ Eiginkona Gunnars er Kristbjörg Anna Guðmundsdóttir. Börn Gunnars af fyrra sambandi eru Erla Ruth, f. 1988, Brandur Loki, f. 1995, og Gunnar Bjarmi, 1996, og stjúpbörn hans eru Axel Snær, f. 2001, og Apríl Mjöll, f. 2002. Hjónin Gunnar og Kristbjörg stödd í Lundúnum fyrir tveimur árum. Verður í afslöppun eftir smíðavinnuna Gunnar Möller er fimmtugur í dag H refna Haraldsdóttir fæddist í Reykjavík 8.8. 1958, ólst þar upp, fyrst í Þingholtunum til sjö ára aldurs og síð- ar í Háaleitishverfinu. Hún var í Ísaksskóla, Álftamýrarskóla, lauk stúdentsprófi frá MH, BA-prófi í ís- lensku frá HÍ, og prófi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda. Auk þess stundaði hún nám í opinberri stjórnsýslu og stjórnun menningar- stofnana við HÍ. Hrefna var framkvæmdastjóri Stúdentaleikhússins, vann við texta- gerð á auglýsingastofu um skeið, hafði umsjón með sjónvarpsþáttum á RÚV og Stöð 2 og stundaði trilluútgerð nokkur sumur frá Hellnum á Snæfells- nesi. Hún kenndi íslensku við MH 1991-2001, stýrði menningarnótt í Reykjavík árið 1999 og árið 2000 var hún framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík og síðar listrænn stjórnandi hennar og er nú framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Hrefna hefur tvívegis verið for- maður í valnefnd Íslensku bók- menntaverðlaunanna. Hún hefur setið í stjórn og úthlutunarnefnd Hlaðvarpans, stjórn Hannesarholts, verið sérfræðingur hjá Norræna menningarsjóðnum og stjórnar- Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri – 60 ára Á brúðkaupsdaginn, 12.9. fyrir 20 árum F.v.: Arnaldur, Björn Brynjúlfur, Björn, Hrefna, Birta og Brynja. Bókmenntir, hálendið og hin víða, fagra veröld Með barnabörnunum Í Frakklandi fyrir tveimur árum, talið frá vinstri: Herdís Anna, Hrefna með Jón Egil, Björn með Sölva Brynjar og Óttar. Reykjavík Valgerður Ósk Kjaran fædd- ist 21. september 2017 kl. 11.42. Hún vó 3.384 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru G. Janus Guðjónsson og Anna María Eiríksdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MOVIE STAR hvíldarstóll Verð frá 398.000,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.