Morgunblaðið - 08.08.2018, Page 27

Morgunblaðið - 08.08.2018, Page 27
formaður Miðstöðvar íslenskra bók- mennta. „Þegar ég var skálavörður á hálend- inu nokkur sumur á 9. áratugnum fékk ég hálendisbakteríuna og hef ferðast mikið um landið frá þeim tíma, farið í fjölmargar langar og stuttar göngu- ferðir um allt land. Fyrr í sumar fórum við með gönguhópnum okkar mjög fal- lega leið, Ólafsdalshringinn við Gils- fjörð, þangað hafði ég ekki komið áður, því sem betur fer er alltaf eitthvað nýtt að sjá.“ En Hrefna er ekki síður veik fyrir heimshornaflakki: „Við Björn fórum í nokkurra mánaða ævintýralega reisu í kringum hnöttinn árið 1987. Ég var þá ófrísk að eldri syni okkar. Kína var á þeim tíma næstum alveg lokað land og mikil upplifun að koma þangað, t.d. varla bíl að sjá í Peking, bara hafsjó af hjólum – allt var gerólíkt því sem blasti við þegar ég kom þangað aftur 2010. Við eigum marga uppáhaldsstaði í henni veröld, Ítalía er einn þeirra, en við vorum einu sinni þar í litlu fjalla- þorpi á Amalfiskaganum í hálft ár með öll börnin, lærðum ítölsku, gengum á fjöll og lékum okkur.“ Svo má ekki gleyma bókmennt- unum: „Ég hef verið í leshring með skólasystrum úr HÍ í rúma þrjá ára- tugi, þar sem við lesum bara bækur eftir konur. Ég er auk þess í öðrum kvennalesklúbbi sem les allt milli him- ins og jarðar. Svo er ég í tveimur saumaklúbbum. Það er sem sagt nóg af skemmtilegum konum í kringum mig og ég fer á menningarviðburði af öllu tagi – og hef gaman af að spila golf.“ Fjölskylda Eiginmaður Hrefnu er Björn B. Björnsson, f. 2.8.1956, kvikmyndagerð- armaður. „Við hófum sambúð 1986 en giftum okkur ekki fyrr en 1998.“ For- eldrar Björns: Björn Br. Björnsson, f. 14.8. 1910, d. 27.1. 1972, tannlæknir á Íslandi og í Danmörku, og Jóna Sig- urjónsdóttir, f. 19.2. 1933, d. 6.10. 2013, var búsett á Íslandi og Englandi. Synir Hrefnu og Björns eru Björn Brynjúlfur Björnsson, f. 2.2. 1988, hag- fræðingur í Reykjavík, og Arnaldur, 4.1. 1991, landvörður, búsettur í Reykjavík. Stjúpdætur Hrefnu eru Birta Björnsdóttir, f. 28.9. 1979, fréttamaður í Reykjavík en maður hennar er Sveinn Logi Sölvason, og Brynja Björnsdóttir, f. 29.8. 1982, leikmynda- hönnuður í Reykjavík en maður henn- ar er Hjörtur Jóhann Jónsson. Barnabörnin eru fjögur á aldrinum 3ja til 12 ára. Systur Hrefnu eru Helga, f. 1956, sérfræðingur í atvinnu- og nyýsköp- unarráðuneytinu en maður hennar er Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson tón- skáld en þau búa í Reykjavík, og Halla, f. 1967, markaðsfulltrúi hjá Nóa, en maður hennar er Víðir Sigurðsson kvikmyndatökumaður og þau eru bú- sett í Garðabæ. Hálfsystkini, sammæðra: Elín, f. 1946, fyrrv. skrifstofu- og verslunar- maður en maður hennar er Hrafn Sveinbjörnsson, og Jón Haukur, f. 1948, d. 2009, lengst af búsettur í Reykjavík en ekkja hans er Sigurlína Kristín Scheving, ritari í Reykjavík. Foreldrar Hrefnu: Haraldur Sæ- mundsson, f. 25.2. 1929, kaupmaður í Reykjavík, nú í Garðabæ, og Aðal- heiður Jónsdóttir, f. 11.5. 1927, d. 28.11. 2017, húsmóðir og verslunar- kona. Hrefna Haraldsdóttir Helga María Þorvarðardóttir húsfr. í Rvík Gísli Halldórsson b. í Holti, síðar byggingam. í Rvík Elín Gísladóttir klæðskeri í Rvík Jón Guðnason tré- og bílasmiður í Rvík Aðalheiður Jónsdóttir húsfr. og verslunarkona í Garðabæ, áður í Rvík Margrét Jónsdóttir húsfr. í Bakkakoti á Akranesi Guðni Þorbergsson b. á Lækjarbotnum, Kolviðarhóli og Bakkakoti Stefanía Tómasdóttir húsfr. á Járngerðarstöðum Tómas Þorvaldsson forstj. Þorbjörns í Grindavík. Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor og sáttasemjari ríkisins ríkur Tómasson útgerðarm. á Járngerðarstöðum EiEllert Eiríksson fv. bæjarstj. í Reykjanesbæ Ásgeir Sæmundsson framkvstj. tæknisviðs Rafmagnsveitna ríkisins Gísli Jónsson rafmagnsverkfræðingur og prófessor, frumkvöðull í rafbílum á Íslandi Guðný Erlingsdóttir húsfr. á Þorvaldsstöðum Sigurður Sigurðsson b. á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu, af Efstabæjarætt Guðný Sigurðardóttir húsfr. í Grindavík og Rvík Sæmundur Tómasson trésmiður í Grindavík og Rvík Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur Anna Bjarnadóttir enskukennari og námsbókahöfundur Bjarni Einarsson forstj. Byggðastofnunar Guðmundur Einarsson forstj. Skipaútgerðar ríkisins Margrét Sæmundsdóttir húsfr. á Járngerðarstöðum, bróðurdóttir Þorláks, langafa Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, og bróðurdóttir Einars í Garðhúsum, langafa Ólafs Gauks tónlistarmanns Tómas Guðmundsson útvegsb. á Járngerðarstöðum, Grindavík Úr frændgarði Hrefnu Haraldsdóttur Haraldur Sæmundsson kaupm. í Garðabæ, áður í Rvík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018 103 ára Stefán Kemp 90 ára Albert Þorsteinsson 85 ára Laufey Guðbjörg Jóhannesdóttir 80 ára Elvar Bjarnason Haraldur Hafsteinn Jónsson Hrafnkell Kárason Leifur Gíslason 75 ára Björgvin Magnússon Unnur Ragnars 70 ára Auður Jóna Maríusdóttir Guðfinnur Pálmar Sigurfinnsson Hjálmar Hjálmarsson Sigríður Þorvaldsdóttir Vilhelm Valgeir Guðbjartsson 60 ára Elín Bjarnadóttir Emiliana D. Sigurðsson Hrefna Haraldsdóttir Ólafur Jónsson Sæbjörg B. Þórarinsdóttir 50 ára Aziza Ascour Claudia Yvonne Bolk Edda Valdís Valtýsdóttir Gísli Arnar Gíslason Guðfinna Kristófersdóttir Gunnar Möller Halla Einarsdóttir Haraldur Örn Hannesson Marta Esther Hjaltadóttir Piotr Paciejewski Sigurborg Ólafsdóttir Þorleifur Gunnar Elíasson Örn Logi Hákonarson 40 ára Andri Ottósson Antero José Da C. Ferreira Ágústa Hera Harðardóttir Ernesto Jose B. Curbelo Jakub Mikolaj Kubs Jaroslaw Stefanowicz Joel Charles Owona Jóna Björg Pálmadóttir Jón Grétar Herjólfsson Lukasz Wieczorek Ósk Norðfjörð Þrastardóttir Piotr Olszewski Rannveig Richter Röðull K. Arinbjargarson Sigurður Bjarnason Sigursteinn Sumarliðason Svala Birna Sæbjörnsdóttir Sylvía Heiður La Voque 30 ára Andri Már Friðriksson Branislav Banda Brynjólfur Örn Sigurðsson Daniela X. San M. Álvarez Dominik Matyka Grzegorz Wieczorkowski Hákon Örvar Hannesson Jirasak Homehow Joanna Anna Nowak Jóhanna M. Gísladóttir Kristín Hansdóttir Magda Kwiatkowska Nathalie F. La Hargue Stéphanie Muriel User Sylvía H. Steingrímsdóttir Sævar Snær Pétursson Viktor Alex Brynjarsson Viktor Freyr Róbertsson Vorpon Choeipho Ýmir Guðmundsson Þórey Ólöf Þorgilsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Viktor ólst í upp Keflavík, býr í Reykjanes- bæ, er að ljúka námi í raf- virkjun á starfssamningi hjá ÍAV og starfar jafn- framt hjá ISAVIA. Maki: Heiðrún Þórðar- dóttir, f. 1989, grunn- skólakennari. Börn: Daði Freyr, f. 2014, og Írena Sif, f. 2016. Foreldrar: Arnbjörg Gunnlaugsdóttir, f. 1957, og Róbert Smári Reynis- son, f. 1956. Viktor Freyr Róbertsson 30 ára Viktor ólst upp í Malmö í Svíþjóð og síðan í Kópavogi, er nú búsettur í Reykjavík, er að ljúka BS- prófi í tölvunarfræði frá HÍ og er forritari hjá Voda- fone. Unnusta: Ragnheiður Ásta Karlsdóttir, f. 1985, forritari hjá Fiskistofu. Foreldrar: Brynjar Óskar Hallmannsson, f. 1968, og Valgerður Helga Valgeirs- dóttir, f. 1968. Þau eru búsett í Kópavogi. Viktor Alex Brynjarsson 30 ára Sylvía ólst upp í Grindavík, býr í Hafnar- firði og er langferðabíl- stjóri hjá Gray Line. Maki: Sigurður Fannar Guðmundsson, f. 1984, rútubílstjóri hjá Gray Line. Sonur: Þorsteinn Hjálmar Fannarsson, f. 2013. Foreldrar: Olga Rán Gylfadóttir, f. 1960, hús- freyja í Reykjavík, og Steingrímur Thorarensen, f. 1960, húsasmiður í Grindavík. Sylvía Harpa Steingrímsdóttir HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í  Ásta Jóhannsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í félagsfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Kynjaðar sjálfsmyndir á Íslandi, landi kynjajafnréttis – Möguleikar og tak- markanir á birtingu kyngervis meðal ungs fólks í Reykjavík 2012-2016 (e. Gender Identities in Gender Equal Ice- land – Possibilities and Limitations in the Performance of Gender Among Young People in Reykjavík 2012- 2016). Leiðbeinandi var dr. Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði við Há- skóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á samtíma kyngervishug- myndir ungs fólks í Reykjavík. Skoðað var að hve miklu leyti konur og karlar eru takmörkuð af viðteknum hug- myndum um kyngervi og hvort rými sé til að ögra eða hafna þessum hug- myndum. Rannsóknin skoðar með hvaða hætti orðræður um kynjajafn- rétti, femínisma og nýfrjálshyggju hafa áhrif á sjálfsmyndarmótun og sjálfsskilning ungs fólks. Rannsóknin er sett í samhengi við fræðilega umfjöllun um kyngervi, sjálfsmyndir og ögun sjálfsins í anda kenninga Michels Foucault og tengsl við póst-femíníska orðræðu um sjálf- skapandi ein- staklinga. Hrif- kenningar eru einnig notaðar til að skýra sterkt tog í átt að ákveðnum hug- myndum sem á þátt í að skapa ráðandi orðræðu. Í rannsókninni var notast við margskonar eigindlegar aðferðir – hálf-stöðluð viðtöl við ungt fólk á aldr- inum 18-25 ára, samvinnurannsókn með ungum konum, orðræðugreiningu á fjölmiðlum í kringum #freethenipple og tilviksrannsókn á líkamshára venj- um. Mun meiri hefting tengd líkam- anum var meðal kvenna á meðan karl- ar gátu í meira mæli valið um jákvæðari og nútímalegri hugmyndir um karlmennsku og hafnað neikvæð- um og gamaldags hugmyndum. Aukin óánægja meðal íslenskra kvenna með- an á rannsókninni stóð leiddi (að hluta til) til aukningar á femínískum aðgerð- um – þar sem skorað var á stjórnvöld að taka á femínískum málefnum eins og kynferðisofbeldi og kynferðislegri hlutgervingu kvenna. Ásta Jóhannsdóttir Ásta Jóhannsdóttir fæddist á Hvammstanga árið 1978. Hún lauk BA-prófi í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2008, MA-prófi í mann- fræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og diplómu í kynjafræði frá Háskóla Íslands 2011. Hún er með nýdoktorastöðu í fötlunarfræði á félagsvísindasviði við Háskóla Íslands Ásta býr með Sveini Guðmundssyni og á einn son, Mikael Óskar Arnarsson. Doktor

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.