Morgunblaðið - 08.08.2018, Qupperneq 31
Einbeitt Ólöf Nordal leggur lokahönd á verk sem verður til sýnis.
það er flóð, en í Gróttu þegar það er
fjara. Upplifun sýningargesta við að
koma hingað út eftir verður líka í
takt við náttúruna það sem hún
ræður aðgengi okkar að eyjunni og
þar með sýningunni.“
Mögnuð lífsreynsla
Von Girsewald segir að hún sé
mjög þakklát ráðafólki á Seltjarnar-
nesi fyrir að bjóða henni afnot af
húsunum á Gróttu, það hafi verið
einstakir samstarfsaðilar.
„Listamennirnir hafa verið alveg
frábærir og það er mikill heiður fyr-
ir mig að fá að vinna þessa sýningu
hér sem útlendingur og taka á þessu
málefni. Íslenska listasamfélagið er
einstakt, allir sérlega hjálplegir,
sem ég kann mjög mikið að meta,
eftir að hafa búið og starfað í Lond-
on, Berlín og Bandaríkjunum. Þetta
hefur verið alveg mögnuð lífs-
reynsla,“ segir von Girsewald, sem
vonast til að geta komið á lista-
mannaskiptum á milli Reykjavíkur
og Berlínar þar sem hún er búsett.“
– Heldurðu að þú getir með þess-
ari sýningu ýtt við Íslendingum að
velta meira fyrir sér torfbæjunum?
„Ég vona það svo sannarlega, því
það er áríðandi að gera það núna.
Seinasta fólkið sem bjó í þeim er að
hverfa, og það eru sögur sem þarf
að segja og deila. Hins vegar finn ég
að það er áhugi á Íslandi nú þegar á
torfbæjum, t.d. á hleðslulistinni,
þannig að þessi sýning kemur alveg
á réttum tíma,“ segir Annabelle von
Girsewald, sýningarstjóri TORFS.
af torfbæjum
Sköpunargleði Sean Patrick O’Brien er meðal sýnenda, en hann hefur byggt sér lítinn kofa.
Sýningartímar í Ráðagerði: fös –
sun kl. 12–18. Sýningartímar í
Albertsbúð, Vitavarðarhúsinu,
Fræðasetrinu og Gróttuvita: fös –
sun þegar að það er fjara.
Vinsamlega skoðið Earth Homing
á Facebook og Instagram til að
nálgast flóðatöflu fyrir Gróttu.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2018
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Nú stendur yfir tónleikaröð hér á
landi með söngkonunni Stínu Ágústs-
dóttur en hún hefur getið sér gott orð
fyrir djasstónlist á undanförnum ár-
um, m.a. var plata hennar, Jazz á ís-
lensku, tilnefnd til íslensku tónlistar-
verðlaunanna fyrir tónlistarárið 2016.
Stína gaf sig á tal við blaðamann
Morgunblaðsins um tónleikana ferna
sem hún heldur hérlendis og hvað
annað sé fram undan.
Tilfinningaríkir tónleikar
Stína hefur nú þegar haldið tvenna
tónleika, 31. júlí á KEX Hostel og á
Bryggjunni Brugghúsi síðasta
sunnudag. Á morgun spilar Stína í
Hannesarholti kl. 20 ásamt Önnu
Grétu Sigurðardóttur píanista og
Mikael Mána Ásmundarsyni gítar-
leikara. „Það var mikið á stuð á
Bryggjunni og sömuleiðis á KEX
Hostel. Fólk grét, hló og öskraði. Það
er alltaf stemning. Ég er ekki beint í
feimnum krúttsöng,“ segir Stína
hress.
Á tónleikunum annað kvöld í
Hannesarholti mun Stína ásamt
Önnu Grétu og Mikael Mána flytja
eigin lög í bland við lög tónlistarfólks
eins og Joni Mitchell og Bob Dylan.
Stína hefur áður spilað í Hannesar-
holti og spurð hvað heilli við þann til-
tekna stað segir hún að þar sé af-
skaplega fallegur hljómburður en
einnig sé flygillinn þar frábær. „Það
gerir Hannesarholt svo sérstakt til
þess að spila á,“ segir Stína til við-
bótar. Tónleikarnir eru hluti af KÍ-
TÓN tónleikum, en KÍTÓN er félag
kvenna í tónlist.
Afar ólíkir tónleikastaðir
Tónleikarnir fernir eru allir á afar
ólíkum stöðum, þ.e. KEX Hostel,
Bryggjanni Brugghúsi, Hannesar-
holti og að lokum á laugardaginn á
Jómfrúnni í miðborg Reykjavíkur. „Á
Jómfrúnni var planið að hafa blús-
aðan djass en vegna þess að Gleði-
gangan verður á sama tíma þá ætla
ég reyna að hafa smá „pride“ í tónlist-
inni líka,“ segir Stína.
Stína segir að hún leggi alltaf upp
með að spila á mismunandi stöðum,
með mismunandi fólki og fyrir mis-
munandi gesti. Spurð hvers vegna
það sé segir Stína að það sé einfald-
lega vegna þess að það er gaman.
„Fjölbreytnin er skemmtileg. Fólk er
stundum hrætt við djass, sérstaklega
söngdjass, en það er einfaldlega mis-
skilningur. Söngdjass er alltaf mjög
aðgengilegur og algjör óþarfi að vera
hræddur við hann,“ segir Stína og
hlær.
Djassinn býður upp á fjölbreytni
Stína segir að það sé svo sérstakt
hvað djasstónlist getur þróast í marg-
ar og mismunandi áttir. „Maður veit
ekki hvað mun gerast. Það getur allt
gerst. Þess vegna er líka gaman að
spila með mismunandi fólki og fá
þannig mismunandi upplifanir,“ segir
Stína. Þannig eiga tónleikastaðurinn,
stemningin, gestirnir, hljóðstigið, og
tónlistarmennirnir allir sinn þátt í að
skapa einstakt andrúmsloft hverju
sinni.
Fram undan eru tónleikar í Stokk-
hólmi í haust þar sem einn vinsælasti
djassgítarleikari Svíþjóðar, Erik
Söderlind, mun spila með Stínu. „Það
verður svona vókalísudagskrá eins og
ég var með á Bryggjunni þar sem ég
sem texta við þekkt hljóðfærasóló,“
segir Stína.
Spurð hvort hún sé að vinna að
nýrri plötu kveður Stína já við, hún sé
að semja nýja tónlist. Hins vegar er
hún með mörg önnur járn í eldinum
að auki um þessar mundir. „Ég er
stödd í nokkrum ólíkum verkefnum,
t.a.m. er ég í hústónlistarverkefni, bý
til hústónlist og svokallað „nu-disco“
og er búin að gefa út tvær smáskífur
á árinu í því verkefni,“ segir Stína að
lokum.
Ástríðufull djasstónlist í miðborginni
Söngkonan Stína Ágústsdóttir er
með mörg járn í eldinum í tónlistinni
Ljósmynd/Magnus Andersen
Fjölbreytni Söngkonan Stína Ágústsdóttir býr til bæði djass- og hústónlist.
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////
///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////