Morgunblaðið - 08.08.2018, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Íbúð í Grafarvogi lögð í rúst
2. Lögreglan vill ná tali af ...
3. Skúli hélt upp á daginn í ...
4. Seldi barnaníðingum son sinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hildur Vala og Jón Ólafsson hefja
tónleikaferð sína um landið í dag. Þau
koma fram á Höfða í Svarfaðardal í
kvöld kl. 21, á Kaffi Klöru á Ólafsfirði
á morgun kl. 21, í Fjarðarborg á
Borgarfirði eystra á föstudag kl.
21.30 og í Havaríi í Berufirði á laugar-
dag kl. 21. Þau koma fram 19. ágúst í
Norræna húsinu kl. 15 og í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði kl. 17.
Leggja land undir fót
Ásta Kristín
Benediktsdóttir,
íslensku- og bók-
menntafræðingur,
leiðir hinsegin
bókmenntagöngu
sem hefst í kvöld
kl. 19. Gengið
verður frá Borgar-
bókasafni í Gróf-
inni um Austurvöll að Lækjargötu og
þaðan áleiðis kringum Tjörnina, en
gangan tekur rúman klukkutíma.
Þema göngunnar er ljóð, smásögur
og skáldsögur frá miðri 20. öld, rit-
skoðun og tjáning á hinsegin tilfinn-
ingum og reynslu í listum fyrir tíma
sjálfsmyndarpólitíkur.
Gengið á vit hinsegin
bókmennta í kvöld
Söngvaskáldið Lára Rúnars kemur
ásamt hljómsveit fram á næstsíðustu
tónleikum sumar-
tónleikaraðar Nor-
ræna hússins
sem hefjast í
kvöld kl. 21. Á
efnisskrá tón-
leikanna verða lög
af nýjum diski
tónlistarkon-
unnar.
Lára Rúnars leikur
í Norræna húsinu
Á fimmtudag Norðvestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað
með köflum, dálítil væta norðaustan til, en bjartviðri syðra. Hiti 10
til 16 stig sunnan- og vestanlands, annars 5 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestlæg átt, 5-13 m/s, og rigning með
köflum norðan og norðaustan til, en bjartviðri syðra. Hiti 5 til 10
stig fyrir norðan, en 10 til 17 sunnan heiða.
VEÐUR
„Ég hef ekkert nema gott
um Erik Hamrén að segja.
Ég kom til Örgryte 1999 eft-
ir erfitt ár hjá Vålerenga.
Hann var í raun nýtekinn við
liðinu þegar ég kom til Sví-
þjóðar,“ segir Brynjar Björn
Gunnarsson, fyrrverandi
landsliðsmaður, meðal ann-
ars um næsta þjálfara
karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, en Brynjar lék um
tíma undir hans stjórn í
Svíþjóð. »1
Brynjar Björn
hælir Erik Hamrén
Íslandsmeistarar kvenna í knatt-
spyrnu í Þór/KA fóru vel af stað í
fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meist-
aradeildar Evrópu í
gær. Þór/KA hafði
betur gegn Linfield
2:0 en leikið var á
Norður-Írlandi og
þar munu Akureyr-
ingar leika tvo
leiki til viðbótar
á næstu dögum.
Efsta liðið af
þeim fjórum sem
í riðlinum eru
kemst áfram í
keppninni. Sigur
Þórs/KA var nokkuð
öruggur í gær og gat
liðið leyft sér þann
munað að brenna af
vítaspyrnu. »4
Nokkuð öruggt hjá Þór/
KA gegn Linfield
„Það er mikið af stórum nöfnum að
taka þátt í ár og þetta eru meira og
minna allt strákar sem maður hefur
horft á í sjónvarpinu undanfarin ár,“
segir Sindri Hrafn Guðmundsson, Ís-
landsmeistari í spjótkasti, sem
keppir á fyrsta stórmóti sínu í flokki
fullorðinna á Evrópumótinu í Berlín í
dag. Sindri telur sig eiga góða mögu-
leika á að komast í úrslit. »3
Í glímu við þá sem hann
hefur horft á síðustu ár
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Tuttugu ár eru liðin síðan Félag um
endurreisn listasafns Samúels Jóns-
sonar í Selárdal eða „Sambafélagið“
var stofnað. Af því tilefni mun félag-
ið efna til Sambahátíðar á Listasafni
Samúels Jónssonar laugardaginn
11. ágúst.
Dagskráin verður fjölbreytt og
verður boðið upp á föndur fyrir
börn, kvikmyndasýningu, gönguleið-
sögnog tónleika í kirkjunni.
Listamaðurinn Samúel, sem var
gjarnan kallaður Sambi, er þekktur
fyrir hæfileika sína í myndlist, högg-
myndalist og byggingarlist. Samúel
var fæddur 1884 á Horni í Arnarfirði
en bjó stærstan hluta ævinnar við
mikla fátækt í Selárdal. Hann mál-
aði fjölmörg olíumálverk og lands-
lagsmyndir sem hann rammaði inn
sjálfur, auk þess að gera sér högg-
myndalistagarð.
Listasafnið er þar sem Samúel
átti heima en „Sambafélagið“ stend-
ur fyrir endurreisn á heimili Sam-
úels. Til stendur að koma því í rekst-
ur og hafa kaffihús og gistiaðstöðu
þar. „Núna er vinna í gangi sem
miðar að því að koma húsinu í notk-
un. Það var að hruni komið og þurfti
að taka það niður, en nú er búið að
reisa það og innrétta það, að hluta
til,“ segir Ólafur Jóhann Engil-
bertsson, einn stofnenda félagsins.
Félagið hefur sinnt viðgerðum á
listaverkum og byggingum Samúels
í hátt í tvo áratugi. Myndhöggvarinn
Gerhard König hefur frá upphafi
verið verkstjóri viðgerðanna og
hafa sjálfboðaliðar frá hátt í 20
löndum komið að endurreisn
listasafns Samúels. Helstu
styrktaraðilar verkefnisins
eru Uppbyggingarsjóður
Vestfjarða, Menning-
arráð Vestfjarða og
Framkvæmdasjóður
ferðamannastaða. Í febr-
úar fór fram söfnun á vegum Karol-
ina Fund þar sem tvær og hálf millj-
ón safnaðist, sem varð til þess að
félagið náði endum saman við endur-
reisn húss Samúels.
Listasafnið er vel þekkt innan-
lands sem utan, en Ólafur reiknar
með því að um 5.000 manns heim-
sæki það á sumri hverju. Lítið eða
ekkert hefur verið fjallað um Sam-
úel í íslenskri listasögu en Ólafur
segir áhugann hafa aukist með tím-
anum. „Þannig er það með list Sam-
úels og annarra alþýðulistamanna
að þeir voru lengi vel ekki viður-
kenndir sem alvöru listamenn.
Verkin eru fyrst og fremst alþýðu-
list og áhuginn á henni hefur aukist
á undanförnum áratugum,“ segir
Ólafur.
Halda Sambahátíð í Selárdal
„Sambafélagið“
fagnar 20 ára af-
mæli um helgina
Gosbrunnur Myndhöggvarinn Gerard König gerði grein fyrir viðgerðum ljónagosbrunnsins á Sambahátíð 2011.
Samúel Jónsson var fæddur á bæn-
um Horni í Arnarfirði árið 1884. Líf
hans var enginn dans á rósum og
missti hann föður sinn fjögurra ára
gamall. Hann eignaðist þrjú börn
með eiginkonu sinni Salóme Sam-
úelsdóttur en þau létust öll fyrir ald-
ur fram. Árið 1947 fluttu
hjónin í Selárdal en
Salóme lést
skömmu eftir
það. Samúel bjó
því einn í Selárdal um 22 ára skeið.
Þar byggði hann af miklum móð
íbúðarhús, kirkju og listasafn. Sam-
úel hafði einungis eitt sett af móta-
timbri og gat því aðeins steypt það
sem nam einni fjöl í einu. Hann sótti
mölina niður í fjöru og bar á bakinu
en sementið sótti hann á Bíldudal.
Samúels er hvergi getið í ritum um
íslenska listasögu. Þó var hann af-
kastamikill höggmyndalistamaður
og málari en smíðaði einnig líkön.
Afkastamikli listamaðurinn
LÍF SAMÚELS VAR EKKI DANS Á RÓSUM
Kirkja Samúels
Jónssonar.