Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 185. tölublað 106. árgangur
ÞETTA HEFUR
VERIÐ MIKIÐ
ÆVINTÝRI BARÁTTUGLEÐIN RÍKIR
BIRGÐASTÝRING
ER SÉRSTÖK
LISTGREIN
HINSEGIN DAGAR 58 VIÐSKIPTAMOGGINNMJALLHVÍT OG SIGLÓ 12
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Skráðum ofbeldis- og hótunarbrot-
um gegn lögreglumönnum á höfuð-
borgarsvæðinu fjölgaði á fyrri hluta
ársins frá meðaltali þriggja síðustu
ára. Á fyrstu sex mánuðum ársins
var tilkynnt um 42 ofbeldisbrot og 20
hótanir um ofbeldi gegn lögreglu-
manni. Fjölgaði ofbeldisbrotum um
64%, sé miðað við meðaltal áranna
2015 til 2017 og hótunarbrotum um
36%.
Mar og tognanir algeng meiðsli
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög-
regluþjónn hjá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segir það sjaldgæft
að lögreglumenn séu frá störfum í
langan tíma vegna ofbeldis sem þeir
séu beittir. Þó séu dæmi um slíkt.
„Stundum þurfum að taka fólk í
skjól og setja í önnur störf tíma-
bundið eða þá að fólk er beinlínis
slasað og er frá í lengri tíma,“ segir
hann.
Algengar árásir gegn lögreglu eru
spörk í fætur og hnefahögg í andlit
og afleiðingarnar oft mar og togn-
anir. Karlar eru í miklum meirihluta
meintra gerenda í ofbeldis- og hót-
unarbrotum. Á síðustu misserum
hafa konur í nær öllum tilfellum sætt
grun um ofbeldi, en ekki aðeins hót-
anir, þegar þær eiga í hlut. »4
Fleiri veittust að lögreglunni
Ofbeldisbrotum fjölgaði um 64% frá síðustu árum Hótanir einnig fleiri
Karlmenn voru 76% gerendanna Sumir lögreglumenn tímabundið óstarfhæfir
Alls dvelja nú 274 liðsmenn bandaríska
flughersins í Keflavík í tengslum við loft-
rýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Kan-
arnir hafa með sér þrettán F-15 orr-
ustuþotur sem flogið er um Ísland þessa
dagana, en blaðamaður og ljósmyndari
Morgunblaðsins fylgdust með mögnuðu
sjónarspili þegar tíu þeirra tóku á loft á
þriðjudagsmorgun.
Einn af bandarísku orrustuflugmönn-
unum segir það mikilvægt að vera vel kunn-
ugur aðstæðum í löndum Atlantshafs-
bandalagsins og bendir á mikilvægi æfinga.
Framkvæmdastjóri varnarmála hjá Land-
helgisgæslunni tekur í sama streng og segir
að þótt orrustuþotur séu ekki hér allt árið
um kring fari eftirlit með loftrýminu fram
allan sólarhringinn, allan ársins hring. Bæði
er verið að þjálfa flugmenn, en líka sýna
getu Atlantshafsbandalagsins. »22 & 24
Morgunblaðið/Árni Sæberg
13 bandarískar orrustuþotur sinna tímabundinni loftrýmisgæslu
Knattspyrnusamband Íslands
kynnti Svíann Erik Hamrén til sög-
unnar í gær sem næsta þjálfara
karlalandsliðsins á blaðamanna-
fundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laug-
ardalnum.
Svíinn segist ekki vera kominn til
Íslands til að umbylta leikstíl liðsins
og hefur kynnt sér þær áherslur
sem forverar hans í starfi lögðu til
grundvallar. Segir hann í því felast
mikla áskorun að reyna að koma Ís-
landi á þriðja stórmótið í röð.
Nokkuð sem fjölmennari þjóðum en
Íslandi reynist snúið í knattspyrn-
unni. Rætt er við Hamrén og for-
mann KSÍ í íþróttablaðinu.
Svipaðar áherslur og á síðustu árum
Morgunblaðið/Valli
Þjálfarinn Erik Hamrén á fundinum í gær.
Stefnt er að opnun tveggja nýrra
hollustuveitingastaða undir merkj-
um Gló í Kaupmannahöfn á næstu
sex mánuðum. Fyrsti staðurinn var
opnaður fyrir rúmu ári í kjallar-
anum á verslunarhúsinu Magasin
du Nord á einum fjölfarnasta stað
borgarinnar. Annar staðurinn var
svo opnaður í nóvember í fyrra í
nýrri mathöll við Tívolí. Reksturinn
gengur vel að sögn Birgis Þórs
Bieltvedt, aðaleiganda Gló, og er
helsti styrkleiki staðarins í Dan-
mörku að hann selur nánast alfarið
lífrænan mat. Leit að álitlegri stað-
setningu fyrir staðina tvo stendur
yfir og gæti Svíþjóð orðið næsti
áfangastaður. »Viðskiptamogginn
Vilja fjölga stöðum Gló í Kaupmannahöfn
Gló Fyrsti staðurinn var opnaður í Magasin.
Sæbjúgnaafli
stefnir í sögulegt
met en hann gæti
orðið fimm þús-
und tonn á fisk-
veiðiárinu. Mest
af bjúgunum er
selt til Kína, en
þar eru þau nýtt í
heilsu- og lækn-
ingavörur.
Davíð Freyr
Jónsson, framkvæmdastjóri Aurora
Seafood, áætlar að útflutnings-
verðmæti fimm þúsund tonna geti
verið um eða yfir 1,5 milljarðar
króna. Davíð áætlar að um 15% af
heildaraflanum veiðist í Breiðafirði.
Af þeim sökum sé ný reglugerð um
bann við sæbjúgnaveiðum á firð-
inum þeim mjög óhagstæð. „Það er
vægast sagt slæmt fyrir atvinnu-
greinina að veiðar hafi verið bann-
aðar í nánast öllum Breiðafirðinum,“
segir Davíð Freyr. »26
Aflamet í
sæbjúgna-
veiðum
Verðmæti aflans
allt að 1,5 milljarðar
Davíð Freyr
Jónsson