Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Á fyrstu sjö mánuðum ársins tók lög-
regla 1.428 ökumenn grunaða um
akstur undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna. 939 einstaklingar búa að baki
fjöldanum en þeir voru 790 á sama
tíma á síðasta ári. Á síðasta ári var
heildarfjöldi brota 2.055.
Ítrekuð brot eru tíðari þegar um
fíkniefnaakstur er að ræða en ölvun-
arakstur, en 900 einstaklingar búa að
baki 973 ölvunarakstursbrotum á
fyrstu sjö mánuðum ársins. 832 höfðu
framið slík brot á sama tíma á síðasta
ári. Heildarfjöldi brota á síðasta ári
var 1.548.
62% þeirra einstaklinga sem teknir
voru fyrir ölvunarbrot á fyrstu sjö
mánuðum ársins höfðu íslenskt rík-
isfang og hefur hlutfall einstaklinga
með erlent ríkisfang hækkað úr 18% í
38% frá árinu 2013. Næstir á eftir Ís-
lendingum eru Pólverjar, 12%. Á
sama tímabili hefur hlutfall erlendra
einstaklinga vegna fíkniefnabrota
hækkað úr 6% í 19%. Á fyrstu sjö
mánuðum ársins voru Íslendingar
81% þeirra sem teknir voru fyrir slík
brot. Næstir í röðinni voru aftur Pól-
verjar, 8%.
„Algjörar tímasprengjur“
Í síðustu viku kom fram í Morgun-
blaðinu að fíkniefnaakstur hefði stór-
aukist og væri nú tíðari en áður á
virkum dögum. Ásgeir Þór Ásgeirs-
son, yfirlögregluþjónn hjá Lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu, segir að
fíkniefnanotkun hafi alvarleg áhrif á
aksturshæfni ökumanna enda geti
þeir ekki metið aðstæður rétt.
„Á slævandi efnum á borð við
kannabis hefur fólk ekki þá við-
bragðsgetu og athyglisgáfu sem þarf
að hafa í umferðinni. Á örvandi efnum
metur fólk aðstæður ekki rétt og það
verður mun örara. Mat þess á að-
stæðum brenglast og hugsunin er
ekki í takt við það sem þetta fólk
myndi gera við eðlilegar aðstæður,“
segir Ásgeir Þór.
„Fólk sem er í stöðugri fíkniefna-
neyslu er yfirleitt í fíkniefnaneyslu
yfir daginn líka og dettur ekki bara í
það um helgar,“ segir Ásgeir Þór og
nefnir að svefnleysi geti haft slæm
áhrif til viðbótar á ökuhæfnina.
„Ef fólk er í mikilli fíkniefnaneyslu
hefur það kannski verið án svefns í
einn, tvo, þrjá sólarhringa. Þegar það
bætist við neysluna og fólk fer út í
umferðina, þá er ekki að sökum að
spyrja,“ segir Ásgeir Þór og nefnir
mál frá því í vor þar sem ökumaður
sem grunaður var um akstur undir
áhrifum fíkniefna og talinn hafa sofið
lítið í talsverðan tíma ók á ógnarhraða
aftan á lögreglutæki sem stóð við bil-
aðan bíl í vegarkanti með blikkandi
bláum ljósum. Tveir lögreglumenn
slösuðust og voru frá vinnu í nokkurn
tíma. „Það má segja að sumt af þessu
fólki sé algjörar tímasprengjur í um-
ferðinni,“ segir Ásgeir Þór.
Hann segir að þrátt fyrir að margir
náist megi enn bæta í löggæsluna og
þá mætti gera enn betur. „Við erum
með frekar ungt lögreglulið núna sem
er fantaduglegt í frumkvæðislög-
gæslunni. Með þeirra krafti og elju
náum við þessum aðilum úr umferð,
en eitt af vandamálunum er að það er
aðeins tímabundið og talsvert hefur
aukist að sömu aðilar eru ítrekað
teknir í akstri, grunaðir um akstur
undir áhrifum,“ segir Ásgeir Þór og
nefnir einnig að úrvinnsla málanna
valdi auknu álagi fyrir allt embættið.
„Við höfum ekki getað fjölgað í út-
kallslöggæslunni, heldur þvert á móti
og önnur verkefni stjórna því hve
mikinn tíma og kraft við höfum til að
sækja þessa ökumenn. Það sést á
fréttatilkynningunum frá okkur að
mynstrið er breytt og við erum að
moka þessum málum inn allan sólar-
hringinn.“
1.839 hafa ver-
ið teknir undir
áhrifum á árinu
Hlutfall erlendra ökumanna hækkað
Ítrekuðum brotum fjölgað talsvert
Ölvunarakstur og akstur undir áhrifum
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
40%
30%
20%
10%
0%
’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
2013 2014 2015 2016 2017 2018
Ríkisfang
Ísland, 62%
Pólland, 12%
Litháen, 8%
Lettland, 4%
Bandaríkin, 2%
Annað, 12%
Ríkisfang
Ísland, 81%
Pólland, 8%
Litháen, 4%
Lettland, 1%
Annað, 6%
Ölvun við akstur
Fjöldi einstaklinga frá jan. til júlí 2018 eftir ríkisfangi
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna
Fjöldi einstaklinga frá jan. til júlí 2018 eftir ríkisfangi
Heimild: Ríkislögreglustjóri
*Jan.-júlí 2018
*Tölur fyrir 2018 eru
fyrstu 7 mánuðir ársins
(janúar til júlí)
Fjöldi brota á landsvísu 2006-2018*
Hlutfall erlendra ríkisborgara 2013-2018*
18% 19% 20%
26%
33%
38%
6% 8%
11% 12%
16%
19%
Ölvun við akstur
Akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna
Ölvun við akstur
Akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna
Heildarfjöldi:
900
Heildarfjöldi:
939
1.428
2.055 2.115
97
9731.0461.1851.005
1.272
1.452
1.249
1.548
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Vesturíslenski kvennakórinn Esp-
rit de Choeur, sem er frá Winnipeg
í Kanada, er staddur hér á landi og
heldur ferna tónleika á næstu dög-
um. Kórinn samanstendur af þrjá-
tíu konum en þriðjungur þeirra er
af íslenskum ættum.
„Þær hafa því mikla tengingu við
Ísland og það er auðvitað mjög
skemmtilegt að tengingunni skuli
vera haldið við,“ segir Jónas Þórir
Þórisson, organisti í Bústaðakirkju,
sem hefur verið kórnum innan
handar.
Kórinn kemur fram í Skálholts-
dómkirkju, Bústaðakirkju og
Hörpu. Meðal þess sem mun hljóma
á tónleikum kórsins eru kanadísk
og íslensk sönglög, ný kanadísk
tónverk og heimsfrumflutningur.
Morgunblaðið/Hari
Hafa mikla
tengingu
við Ísland
Söngur Kórinn flutti í anddyri Hörpu í gær brot af söngdagskrá sem hann syngur í Norðurljósum á mánudagskvöld.
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar,
segir að kostn-
aður við árshátíð
Reykjanesbæjar
2017 verði að öll-
um líkindum
gerður opinber, í
ljósi niðurstöðu
úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál. Þegar
óskað var eftir upplýsingum um
kostnað við árshátíðina synjaði
bærinn beiðninni. Synjunin var
kærð til úrskurðarnefndar sem
komst að þeirri niðurstöðu að
Reykjanesbæ beri að afhenda
reikninga vegna árshátíðar. Í úr-
skurðinum kemur jafnframt fram
að sérstök áhersla sé lögð á rétt al-
mennings til upplýsinga um ráð-
stöfun opinberra fjármuna.
Kostnaður við
árshátíð gefinn upp
Kjartan Már
Kjartansson
Morgunblaðið hefur nú opnað nýj-
an vef, www.mbl.is/andlat, þar
sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru
birtar andláts-, útfarar- og þakk-
artilkynningar sem eru aðgengi-
legar öllum en auk þess geta
áskrifendur lesið minningar-
greinar á vefnum.
Vefurinn er einnig gátt fyrir þá
sem vilja leita að, senda inn, eða
fá upplýsingar um minningar-
greinar.
Á vefnum er að finna upplýs-
ingar um þjónustuaðila sem að-
stoða þegar andlát ber að höndum
og aðrar gagnlegar upplýsingar
ætlaðar aðstandendum við fráfall
ástvina.
Árni Matthíasson, vefstjóri
mbl.is, segir að mikið hafi verið
kallað eftir þessari þjónustu.
„Vefurinn auðveldar fólki að
afla sér upplýsinga og senda inn
minningargreinar.“
Á vefsíðu mbl.is er hægt að
smella á tengilinn „andlát“ til þess
að komast inn á vefinn.
Margar minningargreinar ber-
ast Morgunblaðinu á hverjum degi
en í fyrra bárust blaðinu rúmlega
15.500 minningargreinar.
Nýr minningarvefur Morgunblaðsins
Auðveldar
öflun upplýsinga
Nýr vefur Auðvelt er að afla sér upplýsinga og senda inn minningargreinar.