Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
Nýjar
vörur!
Páll Vilhjálmsson ræðir efnisem er efst á baugi:
Við erum ekkifrjáls gerða
okkar en lifum þó í
þeirri blekkingu,
sem auðveldar að-
gang falsfrétta að
vitund okkar og
fær okkur til að
trúa falsinu. Á
þessa lund virðast rök metsölu-
höfundarins Yuval Noah Harari.
Samþætting líf- og upplýs-ingatækni gerir okkur varn-
arlaus gagnvart falsfréttum
vegna þess að þær eru sér-
sniðnar að sjálfsímynd hvers og
eins.
Frjáls vilji er lykilhugtak í
þessari umræðu. Við þykjumst
vita að frjáls vilji sé til. Maður
velur sér ristað brauð eða morg-
unkorn, það er frjáls vilji í verki.
Á hinn bóginn getum aðeins valið
milli kosta sem við vitum um.
Í kjörklefanum eru takmark-
aðir valkostir. Við merkjum ekki
við framboðslista sem ekki er á
kjörseðlinum.
Falsfréttir geta talið okkur trúum að færri eða fleiri kostir
séu í boði og þannig haft áhrif á
möguleika okkar til að iðka
frjálsan vilja. En falsfréttir knýja
okkur ekki til að taka þennan
eða hinn kostinn.
Við tökum sjálf ákvörðun. Tilþess þarf dómgreind. Fals-
fréttir taka ekki hana frá okkur.
En við þurfum að halda dóm-
greindinni í æfingu með því að
beita henni. Annars slævist hún.
Sljó dómgreind leggur trúnaðá falsfréttir. Það eru ekki ný
sannindi.“
Páll Vilhjálmsson
Lokaorðið
á maður sjálfur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 11 léttskýjað
Akureyri 8 alskýjað
Nuuk 6 súld
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 27 heiðskírt
Stokkhólmur 28 heiðskírt
Helsinki 24 heiðskírt
Lúxemborg 25 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 19 skúrir
Glasgow 16 léttskýjað
London 22 skúrir
París 25 heiðskírt
Amsterdam 20 skúrir
Hamborg 28 heiðskírt
Berlín 32 þrumuveður
Vín 33 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 30 heiðskírt
Madríd 34 heiðskírt
Barcelona 30 léttskýjað
Mallorca 34 léttskýjað
Róm 25 þrumuveður
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 26 þoka
Montreal 25 alskýjað
New York 30 heiðskírt
Chicago 24 þoka
Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:01 22:06
ÍSAFJÖRÐUR 4:49 22:28
SIGLUFJÖRÐUR 4:31 22:12
DJÚPIVOGUR 4:26 21:40
Landsréttur felldi á þriðjudag úr
gildi úrskurð Héraðsdóms Vestur-
lands þess efnis að maður sem er
grunaður um að hafa stungið bróður
sinn á Akranesi skyldi sæta gæslu-
varðhaldi til 29. ágúst.
Í úrskurði Landsréttar segir að
vegna atvika málsins teljist ekki
nauðsynlegt, með tilliti til almanna-
hagsmuna, að maðurinn sæti áfram
gæsluvarðhaldi þrátt fyrir að vera
grunaður um að hafa framið afbrot.
Maðurinn hafði áður verið úr-
skurðaðu í gæsluvarðhald til annars
ágúst.
Málsatvik eru þannig að lögregl-
unni á Akranesi barst tilkynning frá
sjúkrahúsinu á Akranesi aðfaranótt
23. júlí um að þar léti maður ófrið-
lega í mjög annarlegu ástandi. Þegar
lögregla kom á vettvang reyndist
hann hafa stungið af og framið
skemmdarverk á sjúkrahúsinu.
Síðar hafði maður samband við
lögreglu og tilkynnti að ráðist hefði
verið á sig. Þegar lögregla kom á
vettvang reyndist maðurinn sem til-
kynnti um ófriðinn hafa stungið
þann sem látið hafði ófriðlega á
sjúkrahúsinu. Játaði maðurinn að
hafa stungið árásarmann sinn sem
er jafnframt bróðir hans. Sá sem var
stunginn særðist alvarlega og var
fluttur á Landspítalann. Hann er nú
á batavegi.
Telst ekki
hættulegur
almenningi
Varðhaldsúrskurð-
ur felldur úr gildi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akranes Brotið var framið á
sjúkrahúsi Akraness í lok júlí.
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi
flugfélagsins Wow air, hefur fengið
framkvæmdaleyfi til að bæta sjávar-
varnargarð við hús sitt að Hrólfs-
skálavör 2 á Seltjarnarnesi. Hann
segir að ekki sé um nýframkvæmd að
ræða, heldur endurbætur.
„Það stendur til að styrkja þarna
núverandi sjávarvarnargarð. Eins og
gerist með tíð og tíma og hækkandi
sjávarmáli, þá er farið að grafa undan
honum í núverandi mynd,“ segir
Skúli.
Á fundi sínum 26. febrúar sl. tók
umhverfis- og
skipulagsnefnd
Seltjarnarness já-
kvætt í umsókn
um heimild til að
bæta sjó/
brimvörn við við-
byggingu á lóðinni
og var umsagnar
Vegagerðarinnar
óskað um tillögu
að frágangi og verktilhögun.
Umhverfisnefnd Seltjarnarness
gerði ekki athugasemdir við gerð
sjávarvarnargarðs á fundi sínum 12.
apríl sl. og lagði byggingafulltrúi
áherslu á að eftirlit umræddra fram-
kvæmda yrði á vegum og í samráði við
strandverkfræðing Vegagerðarinnar
og sviðsstjóra umhverfissviðs Sel-
tjarnarnessbæjar.
„Í ljósi ofanritaðs og þar sem eig-
andi Hrólfsskálavarar 2 hefur ákveðið
að standa undir öllum kostnaði við
framkvæmdina er framkvæmdaleyfi
til umræddra framkvæmda gefið út,“
segir í fundargerð nefndarinnar.
jbe@mbl.is
Bætir sjávarvarnargarð
Skúli
Mogensen