Morgunblaðið - 09.08.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Anna Hulda Júlíusdóttir áog rekur versluninaHjarta bæjarins á Siglu-firði, ásamt tvíburasonum
sínum. Þar er á boðstólum íslensk
hönnun, garn, handverk og gjafav-
ara.
Eitt af því sem vakið hefur sér-
staka athygli þeirra sem leið eiga
þar um, er að ýmislegt þar inni teng-
ist hinni sögufrægu Mjallhvíti og þar
á meðal kjóll í fullri stærð í einum
sýningarglugganna, auk þess sem
Anna Hulda hefur látið útbúa fyrir
sig drykkjarkönnur úr leir með eigin
teikningu af stúlkunni hugljúfu.
Mjallhvít er þjóðsagnapersóna
sem þekkt er úr ævintýrum frá Mið-
Evrópu. Sagan er til í mörgum og
ólíkum útgáfum; þýskar innihalda
t.a.m. dvergana sjö og spegil drottn-
ingar, albönsk útgáfa hefur fjörutíu
dreka í stað dverganna og enn aðrar
útgáfur hafa ræningja í þeirra stað.
Kristín Sölvadóttir, sem fæddist í
torfbæ á Siglufirði árið 1912, er sögð
vera fyrirmyndin að þeirri sjónrænu
útgáfu sem birtist í verkum Walt
Disney á fjórða áratug 20. aldar.
Teiknarinn var einnig Íslendingur,
Karl Stefánsson, sem tekið hafði upp
nafnið Charles Thorson; hann var
fæddur í Winnipeg í Kanada, en for-
eldrar hans voru úr Biskupstungum.
Kristín var fjögur ár í Vesturheimi,
fór utan 18 ára.
Kveikjan var risastór fáni
„Fyrir um sex árum, þegar ég
var stödd á Siglufirði um versl-
unarmannahelgi, rak ég upp stór
augu þegar ég sá risavaxinn fána af
Mjallhvíti, sem Valgeir Sigurðsson
athafnamaður hér þá flaggaði, og
síðar þessa sömu helgi hitti ég Jónas
Ragnarsson sem sagði mér frá þess-
ari skemmtilegu tengingu á milli
Siglufjarðar og þessarar yndislegu
persónu,“ segir Anna Hulda, þegar
hún er spurð um aðdragandann að
þessari áherslu á Mjallhvíti. „Frá-
sögn hans heillaði mig og hefur ekki
látið mig í friði síðan. Sjálf er ég
Siglfirðingur í föðurætt og flutti
hingað alkomin fyrir rúmum tveim-
ur árum og hef mikið hugsað út í það
af hverju við erum ekki að vekja at-
hygli á þessu og af hverju við nýtum
okkur ekki þetta sem aðdráttarafl
eða segul fyrir ferðamenn, að eyrna-
merkja Siglufjörð sem fæðingarbæ
Mjallhvítar.
Eftir miklar vangaveltur og
hugmyndavinnu, sem að mestu var
búin að fara fram í höfðinu á mér,
ákvað ég að fara með þetta lengra,
vinna og útfæra hugmyndir mínar.
Sú vinna er búin að vera einstaklega
skemmtileg og á sama tíma krefj-
andi. Ég sótti um styrk hjá Upp-
byggingarsjóði Eyþings og í fyrra
fékk ég einn veglegan frá þeim, sem
var mér mikil hvatning og án hans er
ekkert víst að ég hafi haldið áfram
og vinna með þessa fallegu sögu. Ég
hef sótt brautargengisnámskeið hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem
var mér hreint út sagt nauðsynlegt –
að koma hugmynd í framkvæmd
tekur á og í mörg horn að líta og því
mikilvægt að geta sótt sér stuðning
og ráðgjöf hjá fagfólki. Sérstaklega
þegar hausinn á manni er stútfullur
af frábærum hugmyndum, að manni
finnst, þá verður maður að ná tökum
á að skipuleggja sig og ná heildarsýn
á það sem maður er að gera.“
Allt þetta ferli er búið að vera
mikið ævintýri, segir Anna Hulda,
en það sem hafi komið sér hvað mest
á óvart sé hve fáir virðist hafa heyrt
þessa íslensku sögu. „Eftir að hafa
grennslast fyrir fann ég viðtal við
Önnu Sigríði Garðarsdóttur, dóttur
Kristínar Sölvadóttur, viðtalið tók
Sindri Sindrason fyrir þáttinn
Heimsókn. Ég setti mig í samband
við Önnu Sigríði og er henni og
hennar fólki ævinlega þakklát fyrir
hlýjar og góðar móttökur.“
Við þetta má bæta að Jónas
Ragnarsson rakti ítarlega þessi
tengsl hinnar siglfirsku Kristínar og
Walt Disney í Fréttablaði Siglfirð-
ingafélagsins í október 2012 og
Skapti Hallgrímsson aftur í Morg-
unblaðinu í janúar 2013.
Kjóllinn og garnið
„Það er mikilvægt að komast
yfir þá spéhræðslu sem getur fylgt
því að opinbera hugsanir og hug-
myndir sínar en ég ákvað að taka
þetta alla leið,“ segir Anna Hulda.
Hún pantaði sér vandaðan kjól sem
hún kveðst munu klæðast þegar hún
komi fram og segi þessa sögu, og
það gerði hún reyndar í sumar í Or-
lofsbúðum eldri borgara á Löngu-
mýri í Skagafirði og á Norrænu
strandmenningarhátíðinni sem hald-
in var á Siglufirði í byrjun júlí og
vakti mikla lukku.
„Já, viðtökurnar hafa verið ein-
staklega góðar og framar öllum
væntingum. Ég hef mjög gaman af
því að segja söguna gestum og gang-
andi sem koma í búðina mína og það
veitir mér mikla ánægju að sjá hvað
allir hafa gaman af því að hlusta og
fara vonandi aðeins fróðari frá Siglu-
firði en þeir komu. Við eigum að
vera óhræddari við að leika okkur
með skemmtilegar sögur eins og
þessa. Hver hefur ekki gaman af
góðri sögu sem tengir okkar litla Ís-
land við stærri heimsmynd?“
Anna Hulda er umboðsaðili á
Íslandi fyrir garn frá svissneska
framleiðandanum LANG YARNS.
Vegna mikillar eftirspurnar ákvað
hún að mæta þörfum viðskiptavina
sinna með opnun vefverslunar,
www.hjartabaejarins.is. Einnig er
hún í leit að söluaðilum um allt land
og gengur vel og allt stefnir í að fyrir
áramót ættu prjónarar að geta nálg-
ast garnið frá LANG í öllum lands-
fjórðungunum.
Hjarta bæjarins var stofnað í
desember árið 2016. Hönnunar- og
handverksvörurnar eru unnar af
einstaklingum sem eiga rætur í
Fjallabyggð og er Önnu sönn
ánægja að segja frá því að yfir 40
einstaklingar eiga þar vörur. Með tíð
og tíma munu þær einnig fást í vef-
versluninni.
Verslunin er við hliðina á bak-
aríinu við Aðalgötuna.
Þetta er búið að vera mikið ævintýri
Anna Hulda Júlíusdóttir
vekur athygli ferða-
manna á siglfirskum
uppruna Mjallhvítar.
Pantaði sér kjól teikni-
myndapersónunnar í
fullri stærð og klæddist
honum í sumar og vakti
mikla lukku. Á sjálf ættir
að rekja til Siglufjarðar.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Í Hjarta bæjarins Anna Hulda Júlíusdóttir í verslun sinni. Þarna er m.a. á boðstólum garn auk handverks rúmlega 40 einstaklinga úr Fjallabyggð.
Ljósmynd/Þórey Dögg Jónsdóttir
Mjallhvít Anna Hulda sem Mjallhvít í sumar í orlofsbúðum eldri borgara.
Mjallhvítarbollar Anna Hulda hef-
ur teiknað mynd af Mjallhvíti og
Siglufjörð inn í kjólinn hennar og sú
mynd er komin á drykkjarkönnur.
Sé heitum vökva hellt í þá dökku
birtist myndin smám saman.
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Merkivélarnar
frá Brother eru
frábær lausn
inná hvert
heimili og
fyrirtæki
Komdu og kíktu
á úrvalið hjá okkur
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
sláttutraktorar