Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 12

Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Sigurður Ægisson sae@sae.is Anna Hulda Júlíusdóttir áog rekur versluninaHjarta bæjarins á Siglu-firði, ásamt tvíburasonum sínum. Þar er á boðstólum íslensk hönnun, garn, handverk og gjafav- ara. Eitt af því sem vakið hefur sér- staka athygli þeirra sem leið eiga þar um, er að ýmislegt þar inni teng- ist hinni sögufrægu Mjallhvíti og þar á meðal kjóll í fullri stærð í einum sýningarglugganna, auk þess sem Anna Hulda hefur látið útbúa fyrir sig drykkjarkönnur úr leir með eigin teikningu af stúlkunni hugljúfu. Mjallhvít er þjóðsagnapersóna sem þekkt er úr ævintýrum frá Mið- Evrópu. Sagan er til í mörgum og ólíkum útgáfum; þýskar innihalda t.a.m. dvergana sjö og spegil drottn- ingar, albönsk útgáfa hefur fjörutíu dreka í stað dverganna og enn aðrar útgáfur hafa ræningja í þeirra stað. Kristín Sölvadóttir, sem fæddist í torfbæ á Siglufirði árið 1912, er sögð vera fyrirmyndin að þeirri sjónrænu útgáfu sem birtist í verkum Walt Disney á fjórða áratug 20. aldar. Teiknarinn var einnig Íslendingur, Karl Stefánsson, sem tekið hafði upp nafnið Charles Thorson; hann var fæddur í Winnipeg í Kanada, en for- eldrar hans voru úr Biskupstungum. Kristín var fjögur ár í Vesturheimi, fór utan 18 ára. Kveikjan var risastór fáni „Fyrir um sex árum, þegar ég var stödd á Siglufirði um versl- unarmannahelgi, rak ég upp stór augu þegar ég sá risavaxinn fána af Mjallhvíti, sem Valgeir Sigurðsson athafnamaður hér þá flaggaði, og síðar þessa sömu helgi hitti ég Jónas Ragnarsson sem sagði mér frá þess- ari skemmtilegu tengingu á milli Siglufjarðar og þessarar yndislegu persónu,“ segir Anna Hulda, þegar hún er spurð um aðdragandann að þessari áherslu á Mjallhvíti. „Frá- sögn hans heillaði mig og hefur ekki látið mig í friði síðan. Sjálf er ég Siglfirðingur í föðurætt og flutti hingað alkomin fyrir rúmum tveim- ur árum og hef mikið hugsað út í það af hverju við erum ekki að vekja at- hygli á þessu og af hverju við nýtum okkur ekki þetta sem aðdráttarafl eða segul fyrir ferðamenn, að eyrna- merkja Siglufjörð sem fæðingarbæ Mjallhvítar. Eftir miklar vangaveltur og hugmyndavinnu, sem að mestu var búin að fara fram í höfðinu á mér, ákvað ég að fara með þetta lengra, vinna og útfæra hugmyndir mínar. Sú vinna er búin að vera einstaklega skemmtileg og á sama tíma krefj- andi. Ég sótti um styrk hjá Upp- byggingarsjóði Eyþings og í fyrra fékk ég einn veglegan frá þeim, sem var mér mikil hvatning og án hans er ekkert víst að ég hafi haldið áfram og vinna með þessa fallegu sögu. Ég hef sótt brautargengisnámskeið hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem var mér hreint út sagt nauðsynlegt – að koma hugmynd í framkvæmd tekur á og í mörg horn að líta og því mikilvægt að geta sótt sér stuðning og ráðgjöf hjá fagfólki. Sérstaklega þegar hausinn á manni er stútfullur af frábærum hugmyndum, að manni finnst, þá verður maður að ná tökum á að skipuleggja sig og ná heildarsýn á það sem maður er að gera.“ Allt þetta ferli er búið að vera mikið ævintýri, segir Anna Hulda, en það sem hafi komið sér hvað mest á óvart sé hve fáir virðist hafa heyrt þessa íslensku sögu. „Eftir að hafa grennslast fyrir fann ég viðtal við Önnu Sigríði Garðarsdóttur, dóttur Kristínar Sölvadóttur, viðtalið tók Sindri Sindrason fyrir þáttinn Heimsókn. Ég setti mig í samband við Önnu Sigríði og er henni og hennar fólki ævinlega þakklát fyrir hlýjar og góðar móttökur.“ Við þetta má bæta að Jónas Ragnarsson rakti ítarlega þessi tengsl hinnar siglfirsku Kristínar og Walt Disney í Fréttablaði Siglfirð- ingafélagsins í október 2012 og Skapti Hallgrímsson aftur í Morg- unblaðinu í janúar 2013. Kjóllinn og garnið „Það er mikilvægt að komast yfir þá spéhræðslu sem getur fylgt því að opinbera hugsanir og hug- myndir sínar en ég ákvað að taka þetta alla leið,“ segir Anna Hulda. Hún pantaði sér vandaðan kjól sem hún kveðst munu klæðast þegar hún komi fram og segi þessa sögu, og það gerði hún reyndar í sumar í Or- lofsbúðum eldri borgara á Löngu- mýri í Skagafirði og á Norrænu strandmenningarhátíðinni sem hald- in var á Siglufirði í byrjun júlí og vakti mikla lukku. „Já, viðtökurnar hafa verið ein- staklega góðar og framar öllum væntingum. Ég hef mjög gaman af því að segja söguna gestum og gang- andi sem koma í búðina mína og það veitir mér mikla ánægju að sjá hvað allir hafa gaman af því að hlusta og fara vonandi aðeins fróðari frá Siglu- firði en þeir komu. Við eigum að vera óhræddari við að leika okkur með skemmtilegar sögur eins og þessa. Hver hefur ekki gaman af góðri sögu sem tengir okkar litla Ís- land við stærri heimsmynd?“ Anna Hulda er umboðsaðili á Íslandi fyrir garn frá svissneska framleiðandanum LANG YARNS. Vegna mikillar eftirspurnar ákvað hún að mæta þörfum viðskiptavina sinna með opnun vefverslunar, www.hjartabaejarins.is. Einnig er hún í leit að söluaðilum um allt land og gengur vel og allt stefnir í að fyrir áramót ættu prjónarar að geta nálg- ast garnið frá LANG í öllum lands- fjórðungunum. Hjarta bæjarins var stofnað í desember árið 2016. Hönnunar- og handverksvörurnar eru unnar af einstaklingum sem eiga rætur í Fjallabyggð og er Önnu sönn ánægja að segja frá því að yfir 40 einstaklingar eiga þar vörur. Með tíð og tíma munu þær einnig fást í vef- versluninni. Verslunin er við hliðina á bak- aríinu við Aðalgötuna. Þetta er búið að vera mikið ævintýri Anna Hulda Júlíusdóttir vekur athygli ferða- manna á siglfirskum uppruna Mjallhvítar. Pantaði sér kjól teikni- myndapersónunnar í fullri stærð og klæddist honum í sumar og vakti mikla lukku. Á sjálf ættir að rekja til Siglufjarðar. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Í Hjarta bæjarins Anna Hulda Júlíusdóttir í verslun sinni. Þarna er m.a. á boðstólum garn auk handverks rúmlega 40 einstaklinga úr Fjallabyggð. Ljósmynd/Þórey Dögg Jónsdóttir Mjallhvít Anna Hulda sem Mjallhvít í sumar í orlofsbúðum eldri borgara. Mjallhvítarbollar Anna Hulda hef- ur teiknað mynd af Mjallhvíti og Siglufjörð inn í kjólinn hennar og sú mynd er komin á drykkjarkönnur. Sé heitum vökva hellt í þá dökku birtist myndin smám saman. Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Sterkir og notendavænir sláttutraktorar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.