Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Á Íslandi er raforkuverð með því
lægsta sem þekkist í Evrópu. Þetta
segir Lovísa Árnadóttir, upplýs-
ingafulltrúi Samorku, um tölur um
kostnað vegna raforku í Evrópu-
löndum í fyrra sem birtar voru á vef
Eurostat, hagstofu Evrópusam-
bandsins. Þar kemur fram að verð á
raforku hér á landi sé eilítið hærra
en í Noregi en sé þó lægra eða á
pari við flest önnur lönd í Evrópu.
Að sögn Lovísu kemur Ísland af-
ar vel út í samanburði við önnur
lönd auk þess sem varast beri að
líta á tölur Eurostat sem heilagan
sannleik. „Í tölum Eurostat er ekki
tekið tillit til fastagjalds á rafmagni
í Noregi. Án fastagjaldsins er mun-
urinn milli landanna um 6.000 krón-
ur í samanburði við 962 krónur þeg-
ar það er tekið með í reikninginn.
Þetta er því í raun nákvæmlega
sama verð enda skera Noregur og
Ísland sig úr í lágu rafmagnsverði,“
segir Lovísa og bætir við að auk
fyrrgreindra skýringa geti ýmislegt
haft áhrif á samanburð á milli
landa.
„Það getur margt spilað inn í eins
og til dæmis gengisbreytingar. Það
getur því verið erfitt að bera raf-
magnsverðið saman,“ segir Lovísa.
Á vef Samorku voru nýverið birt-
ar tölur sem sýna rafmagnskostnað
heimila á Norðurlöndunum það sem
af er ári. Er rafmagnskostnaður
umtalsvert lægri á Íslandi og í Nor-
egi en í hinum löndunum á Norð-
urlöndum. „Við sláum hinum Norð-
urlandaþjóðunum við þegar kemur
að lágu verði á rafmagni,“ segir
Lovísa. aronthordur@mbl.is
Raforkuverð með
lægsta móti hérlendis
28,5
26,7
23,6
21,1
19,3
18,2
17,2
17
16,7
16,5
15,8
15,6
15,4
15,3
15,1
14,8
14,7
14,6
13,9
12,5
12,4
12,4
12,4
11,5
11,3
11,0
9,9
9,9
9,7
9,6
8,1
7,3
6,6
Raforka til heimila
Verð á kWh árið 2017 (evrusent)
ESB EES Önnur Evrópulönd
Belgía
Danmörk
Portúgal
Írland
Austurríki
Grikkland
Bretland
Lettland
Frakkland
Malta
Slóvenía
Svíþjóð
Lúxemborg
Holland
Pólland
Tékkland
Þýskaland
Slóvakía
Finnland
Eistland
Rúmenía
Króatía
Ísland
Ungverjaland
Noregur
Litháen
Svartfjallaland
Moldavía
Búlgaría
Tyrkland
Makedónía
Serbía
Kosovo
Heimild: Eurostat. Gögn vantar frá Albaníu, Bosníu og
Hersegóvínu, Ítalíu, Liechtenstein, Kýpur og Spáni.
Hærra verð í flestum Evrópulöndum Hæst í Belgíu
Morgunblaðið/Einar Falur
Háspennumöstur Byggðalína Landsnets frá Blöndu til Akureyrar.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Reikna má með því að nýnemar í Há-
skólanum á Bifröst verði um 25%
fleiri en á síðasta ári, sem er fjölgun
um 270 nýnema. Rúmlega 50% fleiri
en í fyrra sóttu um grunnám við
skólann. Þá fjölgaði umsóknum um
meistaranám um 5% frá fyrra ári en
meistaranámið hefur verið í miklum
vexti undanfarin ár, er segir í til-
kynningu frá háskólanum.
„Við erum bjartsýn í Háskólanum
á Bifröst. Skólinn er í fararbroddi í
fjarnámi og nýjungar í námsfram-
boði og kennsluháttum hafa verið að
skila sér vel. Háskólinn á Bifröst er
100 ára á þessu ári og hlutverk skól-
ans hefur alla tíð verið að mennta
fólk fyrir leiðandi hlutverk í atvinnu-
lífinu og samfélaginu,“ segir Vil-
hjálmur Egilsson, rektor Háskólans
á Bifröst, í tilkynningunni.
Fjarnám er gífurlega vinsælt við
Háskólann á Bifröst en rúmlega 80%
nemenda kjósa það fyrirkomulag.
Vinsælasta námslína skólans er for-
ysta og stjórnun sem kennd er í
meistaranámi. Í grunnnáminu er
viðskiptafræði með mismunandi
áherslum vinsælust.
Yfir 30 erlendir skiptinemar eru á
Bifröst á hverri önn að jafnaði og auk
þess hefur erlendum nemendum
sem greiða skólagjöld verið að
fjölga, segir í tilkynningu. Stendur
nú yfir sumarskóli á Bifröst þar sem
25 erlendir nemendur sitja námskeið
í sjálfbærri forystu.
Formlegum umsóknarfresti um-
nám við háskólann er lokið en þrátt
fyrir það eru allar umsóknir skoð-
aðar, segir í tilkynningu.
Mikil fjölgun ný-
nema á Bifröst
Umsóknum fjölgar um 25% milli ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bifröst Nýnemum fjölgar um 25% eða 270 nemendur milli ára við skólann.
Nýlegir bílar, yfirfarnir og með eins árs viðbótarábyrgð frá seljanda
Nissan XTRAIL 4x4
2017 - Ek. 53 þ. km. - Sjálfskiptur
Suzuki GRAND VITARA
2012 - Ek. 188 þ. km. - Beinskiptur
Suzuki JIMNY 4x4
2014 - Ek. 57 þ. km. - Beinskiptur
Kia CEED Station
2017 - Ek. 67 þ. km. - Sjálfskiptur
4.290 þ.kr.
1.390 þ.kr.1.190 þ.kr. 2.700 þ.kr.
Subaru FORESTER
2017 - Ek. 81 þ. km. - Sjálfskiptur
VW POLO
2017 - Ek. 67 þ. km. - Sjálfskiptur
Renault MEGANE Station
2013 - Ek. 168 þ. km. - Sjálfskiptur
Renault Clio
2017 - Ek. 71 þ. km. - Beinskiptur
3.690 þ.kr.
1.940 þ.kr.
990 þ.kr. 1.650 þ.kr.
VW POLO
2017 - Ek. 48 þ. km. - Beinskiptur
Renault MEGANE Station
2012 - Ek. 192 þ. km. - Sjálfskiptur
Kia SOUL
2017 - Ek. 32 þ. km. - Sjálfskiptur
Kia SPORTAGE EX 4x4
2017 - Ek. 93 þ. km. - Sjálfskiptur
1.650 þ.kr. 890 þ.kr.2.850 þ.kr. 3.490 þ.kr.