Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
ina, „og svo er nafnið á aðalflugvirkj-
anum hérna hinum megin,“ sagði
hann meðan vélin var skoðuð. „Við
grínumst gjarnan með það að vélin
sé mín og hann fái bara að sjá um
hana og hann segir á móti að vélin sé
hans og ég fái bara að fljúga henni.
En við erum allavega sammála um
að halda henni bestri í flokknum,“
sagði Irish og lýsti því að vingjarn-
legur metingur um hver væri með
bestu vélina væri daglegt brauð í
flokknum.
Vélin sem Irish flýgur er frá árinu
1984 og benti blaðamaður á að hon-
um þætti vélin heldur gömul og
spurði hvort hún væri ekki komin til
ára sinna. „Þessi vél er reyndar sú
elsta í flokknum en það eru vélar í
flughernum sem eru frá árunum ’76
og ’77,“ svaraði Irish og bætti við að
vélin ætti mörg ár inni.
Þar sem Irish hafði fengið hlé frá
flugi á þriðjudagsmorgun var annar
flugmaður að setjast í flugstjórasæti
vélarinnar þegar hún var skoðuð.
„Ég er ekkert viðkvæmur fyrir
því að aðrir fljúgi vélinni. Ég veit að
hann á eftir að koma niður úr háloft-
unum og segja að þetta sé besta vél-
in í deildinni,“ sagði hinn skælbros-
andi Irish og bætti við að síðustu:
„Ég elska að sýna fólki vélina mína.“
Annasamt Á meðan bandarísku þoturnar undirbjuggu flugtak lentu á vellinum margar farþegavélar, til að mynda þessi vél frá Air Canada.
Hugaðir Flugmaður og einn af mörgum kátum flugvirkjum á svæðinu undirbúa flugtak á þriðjudagsmorgun.
„Þetta er í rauninni löggæsla í
lofti og eftirlit á friðartímum. Um
það snýst loftrýmisgæsla fyrst
og síðast.“
Þetta sagði Jón B. Guðnason,
framkvæmdastjóri varn-
armálasviðs Landhelgisgæsl-
unnar, um loftrýmisgæsluna þeg-
ar Morgunblaðið leit við hjá
honum í „öruggasta húsi lands-
ins“; stjórnstöð Atlantshafs-
bandalagsins á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli.
„Þetta verkefni sem er hér
þrisvar til fjórum sinnum á ári í
rúmar þrjár vikur í senn er af
hálfu Atlantshafsbandalagsins
ekki síður hugsað til þess að
þjálfa þjóðirnar í að vera hér
þannig að þær geti komið með
stuttum fyrirvara ef þarf,“ sagði
Jón um loftrýmisgæsluverkefnið.
Aðspurður hvort fjarvera loft-
gæslu hérlendis væri áhyggjuefni
svaraði Jón:
„Ég segi kannski ekki að það
sé áhyggjuefni hér en í öðrum
aðildarríkjum í Evrópu þá eru
þessar vélar ræstar út daglega út
af einhverjum atvikum. Flest at-
vik eru farþegavélar sem missa
fjarskiptasamband eða vélar sem
fara inn á svæði þar sem þær
eiga ekki erindi. Einnig er tölu-
vert um óauðkenndar flugvélar í
Eystrasaltinu og við strendur
Noregs.“
Hann sagði að þegar loftrým-
isgæslan væri ekki hér á landi,
og eitthvað óeðlilegt ætti sér
stað innan loftrýmiseftirlits-
svæðis Atlantshafsbandalagsins,
væri það í verkahring bandalags-
ins að ákveða hvað gera skyldi.
Spurður hvort segja megi að
loftrýmisgæslan sé bara forms-
atriði í Atlantshafsbandalags-
samstarfinu svaraði Jón:„ Það er
mikilvægt að undirstrika að loft-
rýmisgæslan er hluti af almennu
loftrýmiseftirliti Atlantshafs-
bandalagsins hér á landi. Þótt
hér séu ekki þotur öllum stund-
um fer fram eftirlit með loftrým-
inu í gegnum ratsjárstöðvar ís-
lenska loftvarnakerfsins allan
sólarhringinn, allan ársins hring.
Kerfið er hluti af samþættu loft-
varnakerfi Atlantshafsbandalags-
ins. Sjálf loftrýmisgæslan skiptir
svo verulegu máli. Bæði er verið
að þjálfa fólk og flugmenn en
ekki síður að sýna getu Atlants-
hafsbandalagsins til að halda
uppi slíkri gæslu.“
Fjöldinn skiptir ekki öllu
Þegar Jón var spurður hvernig
hefði gengið að hafa hér tæplega
þrjú hundruð Bandaríkjamenn í
heimsókn svaraði hann: „Það er
búið að ganga bara mjög vel. Í
rauninni alveg ótrúlega vel. Það
er kannski ekki endilega fjöldinn
sem skiptir máli, það eru veður
og þess háttar þættir sem
kannski skipta meira máli.“
„Þetta er meira en oftast áður en
við höfum verið með fleiri vélar,“
sagði Jón, spurður um orrustu-
þoturnar þrettán sem nú eru í
Keflavík.
„Við höfum verið með upp undir
tuttugu orrustuþotur hérna, síð-
ast þegar Norðmenn voru hérna
með loftrýmisgæslu. Það kemur
annað slagið fyrir að hér séu um
tíu vélar,“ sagði Jón og sagði því
fjöldann af orrustuþotum sem nú
er hér á landi ekkert stórkostleg-
an.
„Við leggjum áherslu á að loft-
rýmisgæslan fari fram í sátt við
landsmenn og þoturnar valdi
eins litlu ónæði og frekast er
kostur.“
Áhersla á að sátt ríki
um loftrýmisgæsluna
LÖGGÆSLA Í LOFTINU OG EFTIRLIT Á FRIÐARTÍMUM
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Gæslan Jón segir að orrustuþotur séu ræstar út daglega í Evrópu.
W W W. S I G N . I S