Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 26

Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Afli á sæbjúgum stefnir í met í sögu- legu samhengi, en hann gæti orðið hátt í fimm þúsund tonn á fiskveiði- árinu. Aflinn er nú kominn yfir fjögur þúsund tonn, en til sjós er tæpur mán- uður eftir af árinu. Mest af bjúgunum fer til Kína, en þar og víðar eru þau rómuð til lækninga og notuð þurrkuð í heilsutengda vöru og fæðubótarefni. Davíð Freyr Jónsson, fram- kvæmdastjóri Aurora Seafood, áætl- ar að útflutningsverðmæti fimm þús- und tonna geti verið um eða yfir 1,5 milljarðar króna. Fyrirtækið gerir meðal annars út bátinn Klett ÍS til veiða á sæbjúgum og kaupir afla af tveimur bátum. Til skamms tíma voru sæbjúgu lítt nýtt, en veiðar á sæbjúgum hófust fyrir um 15 árum. Nú eru leyfi til að stunda veiðarnar bundin níu skip- um. Í áhöfnum báta þeirra eru trúlega samtals tæplega 30 sjó- menn og í landi starfa hátt í 50 manns við verkun á aflanum, meðal annars í Þorláks- höfn, Stokkseyri og Hafnarfirði. Upphaflega voru tilraunaveiðar stundaðar í sunnanverðum Breiða- firði árið 2003 en litlu var landað til 2008. Frá árinu 2009 hefur heildarafl- inn aukist verulega og aldrei verið meiri en í ár. Þrjú veiðisvæði eru sér- staklega skilgreind: í Faxaflóa, Aðal- vík á Hornströndum og fyrir austan land í grennd við Neskaupstað. Um þriðjungur aflans á skilgreindum svæðum Leyfilegum heildarafla á svæðun- um hafði nánast verið náð í sumar þegar tveggja mánaða hrygningar- stopp hófst, í maí og júní á vestan- verðu landinu, en í júní og júlí annars staðar. Veiðar eru annars stundaðar allan ársins hring og er mestur afli yf- ir sumarmánuðina, maí, júlí og ágúst. Um þriðjungur heildaraflans fæst á skilgreindum veiðisvæðum, en stærsti hlutinn annars staðar, oft í nágrenni við afmörkuðu svæðin. Fyrir næsta fiskveiðiár ráðlagði Hafrannsóknastofnun að afli færi ekki yfir 1.731 tonn á þessum skil- greindu svæðum: 644 tonn í Faxaflóa, 985 tonn við Austurland og 102 tonn í Aðalvík. Jafnframt var lagt til að skil- greindu veiðisvæðin yrðu öll stækkuð. Þá lagði stofnunin til að allar sæ- bjúgnaveiðar yrðu bannaðar á skel- miðum í Breiðafirði. Um 70 tonnum var landað úr Breiðafirði fiskveiðiárið 2017/2018 segir í kafla um sæbjúgu í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir næsta fiskveiðiár. Lokun í Breiðafirði var skellur Davíð Freyr áætlar hins vegar að í ár hafi um 15% af heildaraflanum veiðst á Breiðafirði eða 4-600 tonn. Það hafi því verið nokkur skellur þeg- ar gefin var út reglugerð í síðasta mánuði um bann við sæbjúgnaveiðum í Breiðafirði. „Það er vægast sagt slæmt fyrir at- vinnugreinina að veiðar hafi verið bannaðar í nánast öllum Breiðafirð- inum og við skiljum heldur ekki af hverju það var gert með þessum hætti,“ segir Davíð Freyr. „Við fórum inn á gamla veiðislóð í Breiðafirðinum sem við höfðum verið á fyrir nokkrum árum. Þarna reyndist vera meira af smáum sæbjúgum heldur en almennt gerist á hefðbundnum slóðum. Flest skipin hættu því annað hvort veiðum þarna eða settu skiljur um borð til að sleppa smáum bjúgum úr, en þau lifa þetta ferðalag vel af. Okkar samskipti við Hafró voru þannig að menn virtust ánægðir með að skiljur væru komnar um borð í skipin. Þar að auki erum við í rann- sóknum með Hafró á áhrifum sæ- bjúgnaplóga á botninn sem eru léttir og vistvænir ef miðað er við til dæmis hörpudiskplóga. Brýnt að bæta samskipti Lokun á Breiðafirðinum nokkrum dögum seinna var því ekki í samræmi við skilaboðin sem við töldum okkur hafa fengið. Við töldum ólíklegt að ein tegund yrði valin fram yfir aðra við stjórn veiða og erfitt er að skilja af hverju öllum Breiðafirðinum var lok- að. Þarna er fullt af svæðum þar sem stór sæbjúgu veiðast en ekki hörpu- diskur, sem fæst á nokkrum blettum í Breiðafirði.“ Davíð Freyr segir brýnt að bæta samskipti þeirra sem stunda þessar veiðar og stjórnvalda og haldbæra þekkingu á sæbjúgnaveiðum sé eink- um að finna innan greinarinnar. Hann segir að á síðustu árum hafi talsverð- ur tími farið í þróun veiðarfæra og leit að nýjum miðum. Í ár hafi til dæmis ágætur afli fengist á nýlegum miðum út af Vestfjörðum. Öflugri skip og betri búnaður „Það er erfitt að svara því hvar há- mark sjálfbærra veiða er,“ segir Dav- íð Freyr spurður um vöxt greinarinn- ar. „Ég held að við séum búin að finna meirihluta af þeim sæbjúgnamiðum, sem munu finnast við landið. Mér finnst ósennilegt að mörg gjöful mið hafi farið framhjá skipstjórunum, sem hafa verið að brasa við þetta í rúman áratug. Þeir hafa fengið fréttir af sæ- bjúgum hér og þar og hafa dýft plóg- um í sjó mjög víða, en flest ný veiði- svæði sem við finnum hafa verið í nágrenni við þekkt veiðisvæði. Næsta ár verður sóknin meiri með öflugri skipum, þróaðri búnaði og veiðarfærum. Ef aðrar forsendur gefa ekki eftir er líklegt að aflinn verði meiri heldur en í ár, en ég hef ekki svar við því hvar hámarkið liggur,“ sagði Davíð Freyr. Sæbjúgu í sögulegu hámarki  Útflutningsverðmæti gæti orðið nálægt 1,5 milljörðum  Heilsu- og lækningavörur í Kína og víðar  Mikil aflaaukning á 15 árum  Illskiljanlegt og slæmt fyrir greinina að banna veiðar í Breiðafirði Ljósmynd/Davíð Freyr Á góðum degi Mokveiði var á sæbjúgum i júlí út af Vestfjörðum og í Breiðafirði, en á myndinni er Ingvar Örn Bergsson, stýrimaður um borð í Kletti ÍS. Bestu mánuðirnir eru maí, júlí og ágúst, fyrir og eftir hrygningarstopp. Skipin hafa síðustu ár orðið öflugri og búnaður betri. Davíð Freyr Jónsson Brimbútur » Sæbjúgu eru einn sex ætt- bálka skrápdýra, en aðrir hópar eru m.a. krossfiskar og ígulker. » Sæbjúgu finnast um öll heims- ins höf. » Þekktar eru um 1.200 tegundir sæbjúgna, en hér við land veiðist tegund sem ber heitið brimbútur. » Sívöl eða tunnulaga líkams- bygging er eitt helsta einkenni þessa hóps skrápdýra. » Það var ekki fyrr en í byrjun aldarinnar sem farið var að nýta sæbjúgu hér við land. » Í Kína hafa sæbjúgu gjarnan verið kölluð ginseng hafsins og eru bæði veidd villt og fást með eldi. » Þurrkuð sæbjúgu eru meðal annars mikið notuð í heilsuvörur. Aurora Seafood hlaut á síðasta ári yfir 200 milljóna króna styrk frá sjóði á vegum Evópusambandsins til að þróa og tæknivæða veiðar og vinnslu á sæbjúgum. Fram kom í fréttum að styrkurinn væri mikil- vægt skref til að hefja vistvænar veiðar á sæbjúgum víðs vegar um Evrópu. Að sögn Davíðs Freys miðar verkefninu vel áfram. Veiðafæratil- raunir hafa staðið yfir undanfarið, meðal annars með tilraunum í sam- starfi við Hafrannsóknastofnun í Breiðafirði í lok júní. Þar var verið að skoða mun á veiðarfærum með tilliti til veiðihæfni, meðafla og fleiri þátta. Veiðarfæratilraunir í sumar Fjölnota Rannsóknatúr í Breiðafjörðinn undirbúinn. Oft er skipt um hafnir og er bifreið höfð til taks um borð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.