Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Skip, sem norski landkönnuðurinn
Roald Amundsen sigldi á um Norð-
ur-Íshaf, kom í vikunni aftur til Nor-
egs og lauk þar með siglingu um-
hverfis norðurpólinn réttri öld eftir
að hún hófst.
Skipið Maud náðist á flot á ný árið
2016 eftir að hafa legið á sjávarbotni í
85 ár. Skipsflakið var dregið á
pramma yfir Atlantshafið frá Græn-
landi til Bergen í Noregi með stuttri
viðkomu í Vestmannaeyjum og Fær-
eyjum.
„Þetta var löng ferð en hún gekk
vel,“ sagði Jan Wanggaard, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins um að
flytja Maud aftur til Noregs, við AFP
fréttastofuna.
Skipsflakið verður til sýnis í Asker
í Óslófirði en þar var Maud sjósett í
júní árið 1917. Stefnt er að því að
byggja yfir skipið þegar fjármagn
fæst. Maud er eitt af helstu táknum
landkönnununarsögu Noregs en það
var smíðað sérstaklega fyrir Amund-
sen til að rannsaka norðurheim-
skautssvæðið.
„Sum skip hafa gríðarmikla þýð-
ingu fyrir okkur, til dæmis víkinga-
skipin og heimskautaskúturnar. Að
endurheimta flak einnar slíkrar hef-
ur mikla táknræna þýðingu,“ hefur
norska ríkisútvarpið eftir Hanna
Geiran, deildarstjóra hjá norska
þjóðminjasafninu.
Roald Amundsen komst fyrstur
manna á suðurpólinn árið 1911 og
hann varð árið 1906 einnig fyrsti
Evrópubúinn til að sigla svonefnda
norðvesturleið, frá Atlantshafi til
Kyrrahafs gegnum Norður-Íshafið
en slíkrar leiðar hafði lengi verið leit-
að.
Amundsen áformaði að láta Maud
frjósa fasta í heimskautaísnum og
skipið myndi síðan reka með haf-
straumum að norðurpólnum og jafn-
vel yfir hann. Amundsen sigldi skip-
inu eftir norðvesturleiðinni á árunum
1918 til 1920. Hann aflaði mikilvægra
vísindagagna í leiðangrinum en tókst
ekki að komast nægilega langt í norð-
urátt til að ná hafstraumum sem
bæru skipið á leiðarenda. Eftir ítrek-
aðar tilraunir varð Amundson að gef-
ast upp og skipið var árið 1925 selt á
nauðungaruppboði til stórfyrirtæk-
isins Hudson Bay Company. Það var
síðan flutt til Cambridge Bay í Nuna-
vut í Kanada og notað þar sem eins-
konar fljótandi vöruskemma. Um
borð var einnig einnig fyrsta útvarps-
stöðin á norðursvæðum Kanada.
Skipið sökk síðan árið 1930 þar
sem það lá við landfestar í Cam-
bridge Bay. Bæjarráð Asker keypti
skipsflakið árið 1990 fyrir einn dal
með það fyrir augum að flytja það
aftur til Noregs.
Íbúar í Cambridge Bay reyndu
lengi vel að koma í veg fyrir að skips-
flakið yrði flutt þaðan enda hafði það
talsvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn
þar sem hluti þess stóð upp úr sjón-
um. Árið 2012 fékkst loks endanlegt
leyfi til að fjarlægja skipið og
skrokknum var í kjölfarið lyft á
pramma.
Siglingin til Noregs hófst í ágúst í
fyrra. Maud var dregin Norðurvest-
urleiðina til Aasiat á vesturströnd
Grænlands, þar sem skipið hafði vet-
ursetu en hélt síðan ferðinni áfram
nú í júní.
Maud komin
aftur heim
Aldargamalt skipsflak flutt frá norð-
ursvæðum Kanada til Asker í Noregi
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðjónsson
Í Eyjun Flakið af Maud hafði viðkomu í Vestmannaeyjum í sumar.
Heimildir: FramMuseum, maudreturnshome.com, NRK
Skipið Maud dregið yfir
Atlantshaf á pramma réttri
öld eftir að það fór frá Noregi
Sögufrægt skip flutt til Noregs
KANADA
Cambridge Bay
Aasiaat
Bergen Asker
NOREGUR
Maud
32,5 metra langt
385 tonn
Kjölurinn úr eik
1917
Skipið sjósett fyrir íshafsleiðangur
landkönnuðarins
Roalds Amundsens
Áætluð siglingaleið
1930
Sekkur í Íshafinu.
Maud verður að-
dráttarafl fyrir ferðamenn
2016
Lyft af hafsbotni.
Ári síðar leggur
skipið af stað heim
Júní 2018
Fer frá Grænlandi
6. ágúst 2018
Kemur til Bergen
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk framleiðsla
• Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta
og ráðgjöf