Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 34
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Um 130 manns hafa látið lífið vegna jarðskjálftans sem skók indónes- ísku eyjuna Lombok um helgina. Frétt AFP af ástandinu greinir frá því að um 156.000 manns hafi misst heimili sín í skjálftanum og að sums staðar á eyjunni séu heil þorp í rúst. „Í sumum þorpunum sem við komum til var eyðileggingin næst- um alger, öll húsin hrunin, vegirnir sprungnir og brýrnar brotnar,“ sagði Arifin Muhammad Hadi, tals- maður rauða krossins á Indónesíu. Fjölmargir heimilislausir þorpsbúar hírast nú í tjaldbúðum meðfram vegum og hrísgrjónaökr- um eyjunnar og er matur af skorn- um skammti í mörgum þeirra. Auk hinna látnu særðust um 1.477 manns alvarlega í skjálft- anum og tugþúsundir heimila urðu fyrir alvarlegu hnjaski. Yfirvöld telja líklegt að fleiri eigi eftir að finnast látnir þar sem enn er verið að leita að fólki í rústum húsanna sem eyðilögðust. „Líkin eru farin að dauna og við höldum að sumt fólkið sem var grafið sé enn lifandi,“ sagði Sutopo Purwo Nugroho, talsmaður ham- farahjálparinnar í samtali við AFP. „Þess vegna er þetta mjög mikil- vægur tími.“ Rauði krossinn í Indónesíu hefur sett upp tíu farandheilsugæslu- stöðvar á norðurhluta eyjunnar. Hjálparstarfið annar þó varla eft- irspurn og í sumum búðunum hafa birgðir látið bíða eftir sér. AFP Skjálfti Eyjarskeggjar leita eigna sinna í rústum heimila sinna á Lombok. „Eyðileggingin næstum alger“  Eyjan Lombok í rúst vegna skjálfta Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Öldungadeild argentínska þingsins kom saman í gær til að ræða frum- varp um lögleiðingu fóstureyðinga í landinu. Samkvæmt núverandi lög- um Argentínu leyfast fóstureyðing- ar aðeins í þremur tilvikum: Ef móðurinni var nauðgað, ef með- gangan stofnar lífi hennar í hættu og ef fóstrið er bæklað. Þessi lög eru í takt við flest önnur ríki róm- önsku Ameríku. Fóstureyðingar eru aðeins löglegar með öllu í Úrú- gvæ og á Kúbu og aðeins bannaðar með öllu í El Salvador, Hondúras og Níkaragva. Lögleiðing þeirra í Argentínu gæti haft mikil áhrif á viðhorf til fóstureyðinga í heimsálf- unni. Páfinn á móti lögunum Nýju lögin, sem leyfa frjálsar fóstureyðingar fram á fjórtándu viku meðgöngunnar, voru naum- lega samþykkt á neðri deild arg- entínska þingsins í júní. Ekki þykir þó líklegt að öldungadeildin veiti þeim samþykki sitt þar sem 37 af 72 meðlimum hennar höfðu gefið í skyn að þeir myndu kjósa gegn löggjöfinni áður en þingið kom saman. Falli frumvarpið í öldunga- deildinni verður ekki hægt að bera það fram á ný fyrr en eftir ár. Líkt gengur og gerist í róm- versk-kaþólskum löndum eru lög um fóstureyðingar mjög umdeild í landinu og bæði stuðningsmenn og andstæðingar löggjafarinnar hafa barist af hörku fyrir málstað sínum undarfarnar vikur. Á sama tíma og þingið kom saman í gær flykktist fjöldi fólks að þinghúsinu til að styðja frumvarpið eða mótmæla því. Stuðningsmenn báru græna trefla en mótmælendurnir klæddust bláu. Frans páfi, sem er argentínskur, er á móti löggjöfinni og hefur hvatt þingmenn til að hafna henni. Talið er að um 500.000 fóstureyð- ingar fari ólöglega fram í Argentínu á hverju ári og að þeim fylgi um það bil 100 dauðsföll. Deilt um fóstureyðingar á þingi Argentínu  Frumvarp um lögleiðingu fóstureyðinga tekið fyrir AFP Fóstur Mótmælendur gegn frumvarpi um lögleiðingu fóstureyðinga koma saman í Buenos Aires. Á skilti konunnar stendur: „Dráp eru ekki réttindi“. Hlauparar: Arnar Pétursson og Hulda Guðný Kjartansdóttir. 25% afsláttur af hlaupa- og sportgleraugum til 18. ágúst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.