Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 35

Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 35
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Grunnt er áþví góðamilli Kan- ada og Sádi- Arabíu þessa dag- ana. Sádar köll- uðu sendiherra sinn heim og ráku þann kanadíska úr landi eftir að kanadísk stjórnvöld kröfð- ust þess að pólitískur fangi yrði látinn laus og fylgdu því eftir með því að stöðva öll ný viðskipti og fjárfestingar. Meðal viðskipta, sem það hefur áhrif á, eru fyrirhuguð kaup Sáda á brynvörðum far- artækjum að andvirði 15 milljarða dollara. Í frétta- skeytum er haft eftir sér- fræðingum að þúsundir starfa kynnu að vera í húfi. Hafa stjórnvöld í Ríad jafnframt sagt að Sádar í há- skólanámi í Kanada, alls um 15 þúsund, verði ekki styrkt- ir til náms nema þeir fari annað. Þá tilkynnti ríkisflug- félagið Saudia að öllu flugi til Kanada hefði verið aflýst. Sádar kunna gagnrýni illa og eru greinilega tilbúnir að hnykla vöðvana þegar þeim þykir að sér vegið. Það er ekki víst að þetta dugi til að Kanadamenn lúffi enda hefur stjórn landsins lýst yfir því að hún ætli að láta mannrétt- indi ráða för í utanríkis- málum. Sádar vonast þó ugg- laust til þess að þetta komi í veg fyrir að stjórnvöld í öðr- um löndum gagnrýni þá vegna mannréttindabrota, en hér gæti einnig meira búið undir sem tengist valda- pólitík Mið-Austurlanda. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, Heather Nauert, var varkár þegar á hana var gengið um málið. Hún sagði að málið, sem um ræðir, hefði verið tekið upp við Sáda og bætti við að Bandaríkjamenn virtu vissulega frelsi og mannrétt- indi, það hefði ekkert breyst, en Kanadamenn og Sádar yrðu að leysa úr málinu með diplómatískum hætti sín á milli: „Við getum ekki gert það fyrir þá.“ Kínverjar hafa iðulega brugðist ókvæða við gagn- rýni á mannréttindabrot í Kína og viljað ráða því hverja ráðamenn annarra þjóða um- gangast. Íslendingar voru atyrtir fyrir að taka á móti ráðamönnum frá Taívan og Dalai Lama, andlegum leið- toga Tíbeta. Kínverjar settu Norðmenn lengi vel í frystikistuna fyrir að veita Liu Xiaobo friðarverðlaun Nóbels og sveið þá undan því. Stóðu Norðmenn þá á berangri og sýndu fáir samstöðu. Eftir hryðju- verkin í Banda- ríkjunum 11. september var ráðist inn í Afg- anistan og Írak. 15 þeirra 19 hryðjuverka- manna, sem gerðu árásina, voru frá Sádi-Arabíu, þeirra á meðal Osama bin Laden. Sádar hafa ýtt undir út- breiðslu öfgaútgáfu íslams, wahabbisma, víða um lönd. Áhrifin á öfgahreyfingar ísl- amista á borð við Ríki íslams og al-Qaeda eru ótvíræð. Um leið á að heita að Sádar séu nánir bandamenn Banda- ríkjamanna í baráttunni gegn hryðjuverkum. Gagnrýni Kanadamanna beinist að handtöku Samar Badawi og kröfu um að hún verði tafarlaust látin laus. Árið 2012 veitti bandaríska utanríkisráðuneytið henni viðurkenningu fyrir framlag hennar til kvenréttindabar- áttu. Hún er systir Raifs Ba- dawis, sem hefur setið í fang- elsi frá 2012 fyrir að „móðga íslam“ í bloggi sínu. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi og þúsund vandarhögg 2014. Kona Badawis og þrjú börn þeirra fengu hæli í Kanada 2013 og hafa Kanadamenn reglulega þrýst á um að hann verði látinn laus síðan. Mannréttindi verða seint vanmetin. Þeir sem njóta þeirra vilja oft gleyma þeim forréttindum sem þeir búa við. Um leið verður að halda þeim sem brjóta mannrétt- indi við efnið. Oft vex þrýst- ingur vegna mannréttinda- brota í öfugu hlutfalli við stærð ríkja og bolmagn. Barátta fyrir mannrétt- indum snýst hins vegar ekki bara um að hafa hátt og hreykja sér, heldur hafa áhrif. David Chatterson, fyrrverandi sendiherra Kan- ada í Sádi-Arabíu, er gagn- rýninn í samtali við AFP: „Var markmið okkar að milda aðstæður Badawis? Hafi svo verið mistókst okkur. Átti að hafa áhrif í stærri dráttum á hvert Sádi-Arabía stefnir? Ég held að okkur hafi ekki tekist það. Höfum við komið einhverjum kanadískum hagsmunum áleiðis? Nei. Þetta er algerlega misheppn- að.“ Svo er spurningin með við- brögð Sáda og að hvað miklu leyti þau snúast um það að stjórn Justins Trudeaus, for- sætisráðherra Kanada, neitar að taka þátt í refsiaðgerðum á hendur Írönum, þeirra helsta keppinauti í Mið- Austurlöndum, frekar en mannréttindi. Barátta fyrir mann- réttindum snýst ekki bara um að hafa hátt og hreykja sér, heldur hafa áhrif} Deila Sáda og Kanadamanna F yrir hrunið haustið 2008 bárust fregnir af því að þessi eða hinn auðmaðurinn hefði „tekið stöðu gegn krónunni“. Á mannamáli þýðir þetta að þeir veðjuðu á að krónan myndi falla gagnvart öðrum gjald- miðlum. Þegar það gekk eftir stóðu þeir sem áttu gjaldeyri og ætluðu að nota hann á Íslandi betur en áður. Sumir kenndu þetta við svindl. Þeir sem skiptu peningum í erlendan gjaldeyri hefðu orð- ið ríkari á viðskiptunum. Þessi fullyrðing er af- stæð. Nær öll heimsbyggðin notar annan gjald- miðil en krónuna. Urðu þá allir í útlöndum ríkari við gengisfellinguna? Svarið er auðvitað nei. Ís- lendingar sem áttu bara krónur eða eignir á Ís- landi urðu aftur á móti fátækari í evrum þegar gengið féll. Þeir sem skulduðu lán í erlendri mynt á móti íslenskum eignum voru sérstaklega illa stadd- ir, því að lánin hækkuðu mikið í íslenskum krónum talið. Hagur þeirra sem ráku fyrirtæki sem borguðu laun í ís- lenskum krónum en seldu vöruna til útlanda vænkaðist aft- ur á móti mjög þegar gengið féll. Útgerðarmenn hafa margir grætt á tá og fingri undanfarin ár. Margar stórar útgerðir hafa endurnýjað skipastól sinn og sumar jafnvel getað borgað nýju skipin án þess að taka lán, svo góð er staðan orðin. (Vinstri græn telja að einmitt þá sé rétti tím- inn til að lækka auðlindagjöld á stórútgerðir, en það er efni í annan pistil.) Gengisfelling er tilfærsla á fjármunum frá almenningi til útflutningsfyrirtækja, eins konar öfugur Hrói höttur sem stelur frá þeim fátæku og færir þeim ríku. Þetta eiga stjórnmálamenn og fulltrúar atvinnurekenda við þegar þeir lofa og prísa sveigjanleika krónunnar. Sumir tala hátt um krónuna sem bjargvætt Íslendinga, en geyma sjálfir sína peninga í útlöndum. Tökum eftir því hvað þeir gera, ekki hvað þeir segja. Ætla mætti að gengisstyrking væri himna- sending fyrir almenning og hún er það til skemmri tíma litið. Erlendar vörur og utan- landsferðir verða ódýrari í krónum talið og lífið skemmtilegra. Fyrirtækin stynja aftur á móti ákaft því að tekjur af útflutningi minnka og samkeppni við innflutning harðnar meðan kostnaður vex. Galdurinn er að finna jafnvægi þarna á milli og halda því. Það mun aldrei tak- ast með íslensku krónunni. Hvað getur almenningur gert til þess að tryggja sig gegn þjófnaðinum næst þegar gengi krónunnar fellur? Því miður er það bara eitt. Fyrir þá sem geta lagt eitthvað fyrir er skynsamlegt að færa hluta af sínum sparnaði í erlenda mynt. Eftir að síðasta ríkisstjórn losaði krónuna úr höftum mega allir kaupa gjaldeyri og stofna gjaldeyrisreikninga. Gengi krónunnar fellur fyrr eða síðar. Ríkisstjórnin hefur þegar misst verðbólguna fram yfir mörk Seðlabankans og lækkandi gengi er skrifað á vegginn. Munum að við tryggj- um ekki eftirá. Benedikt Jóhannesson Pistill Krónan: Íslenska rúllettan Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Lyf til varnar HIV-smiti hjáeinstaklingum 18 ára ogeldri, sem samkvæmtáhættumati eru í aukinni hættu á að smitast við kynlífs- athafnir, hefur verið samþykkt til greiðsluþátttöku af lyfjagreiðslu- nefnd, að því er fram kemur í til- kynningu á vef Landlæknisembætt- isins. Um er að ræða samheitalyfið Emtricitabine/Tenofovir disoproxil Krka og er einkum vísað til karl- manna, sem hafa mök við karlmenn (MSM), sem mögulega notendur þess, í leiðbeiningum um notkun lyfsins sem finna má í hlekk við til- kynninguna. Einungis læknar Landspítala Íslands (LSH), með sérfræðivið- urkenningu í smitsjúkdómum, mega ávísa lyfinu. Þeir, ásamt hjúkr- unarfræðingum göngudeildar smit- sjúkdóma á LSH, hafa umsjón með mati, meðferð og eftirfylgni ein- staklinga á fyrirbyggjandi HIV- meðferð. Það er, forvarnarfræðsla, rannsóknir á lífsýnum og áhættumat á borð við MSM-áhættumat, sem fel- ur m.a. í sér spurningar um fjölda rekkjunauta, skipta endaþarms- maka án smokks og með HIV- jákvæðum rekkjunautum, allt sl. sex mánuði og hvort viðkomandi hafi notað spítt. Þegar hægt að sækja um lyfið Nú þegar er hægt að sækja um heimild til að fá lyfið til lyfjanefndar LSH, með aldri, sjúkdómum, færn- ismati og sjúkdómsstöðu ein- staklingsins, ásamt upplýsingum um fyrri meðferð. Séu skilyrði leiðbein- inganna til staðar er heimild veitt til eins árs í senn. Morgunblaðið hafði samband við sóttvarnalækni, Þórólf Guðnason hjá Landlæknisembættinu: Hver er ástæðan fyrir að karl- menn sem stunda mök með karl- mönnum virðast teknir út fyrir sviga sem mögulegir notendur lyfsins? „Þeir eru klárlega langstærsti áhættuhópurinn til að fá HIV-smit, en það er alls ekki þannig að aðeins þeir geti fengið þetta lyf. Þessi með- ferð getur átt við alla sem eru í áhættu að fá HIV-smit. Með fyr- irkomulaginu er ekki einungis verið að reyna að draga úr útbreiðslu HIV-veirunnar heldur einnig ann- arra kynsjúkdóma, þar sem rann- sóknir og fræðsla eru hluti af um- sóknarferlinu fyrir greiðsluþátttöku hins opinbera. Einstaklingar í áhættuhópi geta líka verið útsettir fyrir aðra kynsjúkdóma, eins og lek- anda og sýfilis.“ Hversvegna var ákveðið að nota lyfið á þennan hátt? „Lyfið hefur verið niðurgreitt sem meðferð við HIV-smiti. En það er töluvert síðan það kom ábending um fyrirbyggjandi notkun lyfsins og síðar beiðni þess efnis frá smit- sjúkdómalæknum á Landspít- alanum.“ Er mikil eftirspurn eftir fyrir- byggjandi meðferð? „Já, það hefur verið á undan- förnum árum samkvæmt upplýs- ingum frá læknum Landspítalans og fyrirspurnir hafa borist Land- læknisembættinu, Lyfjastofnun og ráðuneytinu um greiðslu- þátttöku vegna svona lyfja. Við vitum nú þegar að fólk er að kaupa þessi lyf erlendis og panta þau á netinu. Þetta nýja fyrirkomulag verður gert upp í lok árs, þá verður komin sex mánaða reynsla og hægt að sjá hvernig kostn- aðurinn verður. Leyfið frá lyfja- greiðslunefnd núna er bundið við eitt ár.“ Lyf til að fyrirbyggja HIV-smit niðurgreitt Almenn meðferð felur í sér inn- töku á einni töflu daglega eða að hámarki sjö töflur á viku. Skv. upplýsingum frá lyfja- greiðslunefnd kostar mán- aðarskammtur af lyfinu, með 30 töflum í pakkningu, 50.000 kr. í heildsölu skv. lyfjaverðskrá, en 62.000 kr. með VSK. Sjúkra- tryggingar Íslands greiði fyrir lyfið til einstaklinga að fullu. Morgunblaðið hafði samband við apótek sem gaf þær upplýs- ingar að lyfið væri þar til sölu, gegn ávísun sérfræðings, fyr- ir 65.534 kr., en með lyfja- skírteini þurfi almennur einstaklingur að borga mest um 22 þúsund kr. í fyrsta skiptið, næst 15% af heildarverð- inu, þar næst 7,5% og ekkert eftir að upp- safnaðar greiðslur hans ná um 62 þúsund kr. á árinu. Hvað kostar meðalið? LYFIÐ FÆST GEGN ÁVÍSUN SÉRFRÆÐINGS Í APÓTEKI Þórólfur Guðnason Morgunblaðið/Sigurgeir S. HIV-forvörn Smokkar hafa þótt góð vörn gegn HIV-smiti en nú fæst líka lyf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.