Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 42
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Samkomulag milli útvarpsstöðv-
arinnar K100 og Hinsegin daga var
undirritað á dögunum og hófust Hin-
segin dagar formlega í Reykjavík í vik-
unni. Er þetta annað árið í röð þar sem
K100 og Hinsegin dagar gera með sér
formlegan samstarfssamning, en í
fjórða sinn sem útvarpsstöðin gerir
eitthvað í tilefni Hinsegin daga.
Dagskrá K100 vikuna sem hátíðin
fer fram í Reykjavík mun taka mið af
því sem er að gerast þar sem viðburðir
hátíðarinnar verða kynntir á hverjum
degi auk þess sem skemmtilegir gestir
líta við til þess að ræða eitt og annað
sem tengist Hinsegin dögum og hin-
segin samfélaginu. Föstudaginn 10.
ágúst verður dagskrá stöðvarinnar
snúið á hvolf og mun stöðin taka upp
nafnið Hinsegin 100.
Á laugardaginn verður svo bein út-
sending frá Gleðigöngunni og dagskrá
henni tengdri í Hljómskálagarðinum
þar sem alls konar fólk verður tekið
tali þannig að hlustendur fái stemn-
inguna úr miðborg Reykjavíkur beint í
æð hvar sem þeir eru staddir.
Á meðan Hinsegin dagar standa yfir
er litríkasta Kaupfélag landsins rekið í
Suðurgötu 3 í sama húsnæði og Sam-
tökin ’78, félag hinsegin fólks á Íslandi,
eru til húsa. Þetta er ein aðaltekjulind
Hinsegin daga og þar er jafnframt
upplýsinga- og þjónustumiðstöð hátíð-
arinnar og er opið á meðan Hinsegin
dagar standa yfir. Starfsfólk K100
skellti sér að sjálfsögðu í verslunarleið-
angur til að geta skreytt hátt og lágt
þegar stöðin verður Hinsegin 100 í
einn dag til að sýna baráttu hinsegin
fólks á Íslandi stuðning. Hulda Bjarna-
dóttir hulda@mbl.is
Litríkt Kaupfélag Við Suðurgötu 3 er Kaupfélag Hinsegin daga rekið.
Gleði Starfsfólk K100 litu inn í
verslunina í Suðurgötu.
Skrautlegt Sjálfboðaliðar Kaup-
félagsins standa vaktina viku á ári.
Hinsegin 100
annað árið í röð
„Þegar maður fer á framandi staði
þá virka þeir svolítið ógnandi úr fjar-
lægð en ég upplifði það þannig að
um leið og maður er lentur og kom-
inn inn í þann veruleika þá er það
yfirleitt ekki sérlega ógnandi.
Flest virkar hættulegra úr fjarska
en það gerir úr návígi,“ segir Una
Sighvatsdóttir, fréttamaður og
ferðalangur sem er óhrædd að
ferðast á óhefðbundnar slóðir en hún
er nýkomin heim til Íslands eftir að
hafa ferðast ein vítt og breitt um
Suður-Ameríku í sex mánuði.
„Auðvitað þarf maður að fara var-
lega og beita brjóstvitinu og dóm-
greindinni. Það er mín reynsla og
þeirra sem ferðast einir að fólk er al-
veg rosalega opið fyrir því að
hjálpa.“
Eins og að lenda á Sauðárkróki
„Ég bókaði miða aðra leið til
Buenos Aires, ég vissi ekki hvað ég
hefði mikinn tíma til að ferðast og
vissi ekki hvar ég myndi enda. Það
eina sem ég var búin að ákveða 100%
að gera var að fara suður eftir til
Patagoniu og ganga. Þetta er svæði
sem er mjög svipað Íslandi að mörgu
leyti og var alveg stórkostlegt að
fara þangað, þetta var svolítið eins
og að lenda í einhverjum hliðarveru-
leika. Þegar flugvélin, sem var lítil
vél, lenti þarna í einhverjum litlum
bæ þá fannst mér eins og ég væri að
lenda á Sauðárkróki.“
Una segir kostinn við að ferðast
einn vera þann að maður kynnist svo
mörgu fólki því það sé ófeimnara við
að nálgast þann sem er einn en þá
sem eru í hóp. „Mín reynsla er svo-
lítið sú að skemmtilegasta og besta
fólkið hittir maður þegar maður er á
göngu, þannig að ég gerði talsvert
mikið af því í þessu ferðalagi.“
Una vann sem upplýsingafulltrúi
fyrir Atlantshafsbandalagið (NATO)
og lauk verkefni í Afganistan fyrir
samtökin áður en hún fór til Suður-
Ameríku og segir þessa heima gjör-
ólíka. „Það var rosalega mikil inni-
lokun í Afganistan og fyrir það
fyrsta allt öðruvísi menningar-
heimur. Þar var ég líka að vinna
langa vinnudaga alla daga vikunnar
þar sem vinna mín fólst í því að taka
upp myndbönd fyrir NATO þannig
að ég var talsvert að ferðast um þar
en það var samt allt mjög stíft.
Sennilega var það svo ástæðan fyrir
því að ég hafði svona mikla þörf fyrir
þetta algjöra frelsi sem ég dembdi
mér svo í úti í Suður-Ameríku. Una
heldur til Georgíu í lok mánaðarins
þar sem hún heldur áfram störfum
sínum fyrir íslensku friðargæsluna,
hún er því hvergi nærri hætt flakki
og ferðalögum enda engin ástæða til.
islandvaknar@k100.is
Valdeflandi
að ferðast ein
Flest virkar hættulegra úr fjarska en það gerir úr návígi,“ segir Una
Sighvatsdóttir, fréttamaður og ferðalangur, sem er óhrædd að ferðast
á óhefðbundnar slóðir en hún er nýkomin heim til Íslands eftir að hafa
ferðast ein vítt og breitt um Suður-Ameríku í sex mánuði.
Una Sighvatsdóttir,
fréttamaður og ferða-
langur hefur ferðast víða.
Una segir stórkostlega
upplifun að vakna við
sólarupprás í Machu
Picchu.