Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 45
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018
✝ Margrét Geirs-dóttir, eða
Gréta eins og hún
var alltaf kölluð,
fæddist í Vopna-
firði 6. apríl 1966.
Hún lést á gjör-
gæsludeild LSH í
Fossvogi 25. júlí
2018.
Foreldrar henn-
ar eru Geir Frið-
björnsson vöru-
bifreiðarstjóri, f. 3. apríl 1943,
og Laufey Leifsdóttir hús-
móðir, f. 12. janúar 1944. Systk-
ini Grétu eru: 1) Svandís Geirs-
dóttir, f. 2. desember 1965, gift
Inga Grétarssyni; 2) Hreiðar
Geirsson, f. 4. september 1970,
unnusta hans er Kristín Þóra
1934. Börn Sigmars og Grétu
eru: 1) Laufey Sigrún, f. 24.
september 1989, unnusti henn-
ar er Steindór Gíslason, f. 18.
febrúar 1987, og eiga þau dæt-
urnar Guðrúnu Telmu og Guð-
björgu Tönju. 2) Ólafur
Tryggvi, f. 9. mars 1996 , kær-
asta hans er Jóhanna Björg
Hlöðversdóttir, f. 20. apríl
1998. Fyrir átti Gréta soninn
Olgeir Sigurgeirsson, f. 22.
október 1982, og á hann tvo
syni, þá Pétur Alex og Valdi-
mar Vopna. Faðir Olgeirs er
Sigurgeir Pétursson, f. 1965.
Gréta ólst upp í Vopnafirði.
Gréta fluttist til Vestmannaeyja
1987 og vann í Ísfélagi Vest-
mannaeyja allt til loka ársins
2006 en þá fluttist fjölskyldan
búferlum til Reykjavíkur. Gréta
starfaði á leikskólanum Huldu-
heimum í Grafarvogi frá árs-
byrjun 2007 til æviloka.
Útför Margrétar fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 9. ágúst
2018, klukkan 13.
Ólafsdóttir; 3)
Gunnhildur Inga
Geirsdóttir, f. 13.
október 1979, gift
Þorkeli Inga Ólafs-
syni; 4) Guðrún
Sigríður Geirs-
dóttir, f. 6. desem-
ber 1981, sambýlis-
maður hennar er
Guðbergur Rafn
Ægisson; 5) Helga
Kristjana
Geirsdóttir, f. 7. janúar 1983.
Eftirlifandi eiginmaður
Grétu er Sigmar Guðlaugur
Sveinsson skipstjóri, f. 17. jan-
úar 1966. Foreldrar Sigmars
eru Sveinn Páll Gunnarsson, f.
14. mars 1929, d. 7. júlí 2003, og
Sigrún Gísladóttir, f. 30. mars
Elsku yndislega mamma mín,
hjartað mitt er brotið og mun
ekki gróa heilt á ný. Allt virðist
svo tómt þótt í kringum mig sé
fullt af fólki, þá vantar mig svo
þig, rödd þína, hlátur og bros.
Ég verð því að sætta mig við
þær fjölmörgu og góðu minn-
ingar sem ég á, við vorum sem
betur fer duglegar að búa þær
til saman.
Ég var ótrúlega heppin að
eiga þig sem mömmu, enda
stóðstu þig einstaklega vel í því
hlutverki. Uppeldið á okkur
gekk prýðilega og máttu vera
stolt af sjálfri þér, enda varstu
mikið ein þar sem pabbi var
skipstjóri og því eðlilega mikið
frá. Við systkinin vorum alltaf í
forgangi og þú settir sjálfa þig
alltaf í annað sæti til þess að við
fengjum það besta úr lífinu.
Heimili okkar var alltaf opið
fyrir öllum okkar vinum og þú
lagðir þig fram um að kynnast
þeim öllum, enda varstu fullur
þátttakandi í lífi okkar alveg til
síðasta dags. Ég þakka þér
þetta allt, elsku mamma, þótt ég
vildi að þú hefðir oftar sett
sjálfa þig í fyrsta sætið.
Ég flutti ung að heiman til að
fara í menntaskóla. Það var
spennandi og skemmtilegt, en á
sama tíma kunnum við ekki að
vera í sundur og reyndist það
okkur mjög erfitt. Það var því
ekkert annað að gera en að
hringja daglega og spjalla, oft-
ast í búð til að bera undir þig
það sem ég væri að kaupa og
hvað mér fannst allt kosta mik-
ið, eitthvað sem ég gerði enn
þann dag í dag þótt símtalið
snerist núna um daginn og veg-
inn og yndislegu stelpurnar
okkar. Sem betur fer komu þú
og pabbi og Óli bróðir fljótt á
eftir mér í bæinn, það var betra
að hafa þig nær.
Ég man svo vel daginn sem
ég sagði þér frá því að ég væri
að verða mamma. Ég kom til
þín þar sem þú varst ein heima,
ég var með hjartað í buxunum
enda aðeins 21 árs og var
hrædd um að þú yrðir svekkt
útí mig. Ég ætlaði aldrei að
koma orðunum út úr mér og
endaði á að skrifa þau á miða og
rétta þér. En ég veit ekki af-
hverju ég hafði áhyggjur, þú lof-
aðir mér því að taka fullan þátt í
lífi barnsins eins og þú hafir
gert í mínu. Sem þú svo sann-
arlega gerðir, þú varst orðin
amma og það besta amma í
heimi. Þú og Guðrún Telma mín
áttuð einstakt samband. Deilduð
áhuga ykkar á búðum, fötum og
jólunum. Þú þarft ekki að hafa
áhyggjur, hún er búin að lofa
afa sínum að hjálpa við að
skreyta fyrir hátíðarnar, hún
veit hvernig amma sín vill hafa
þetta. Þú varst líka einstaklega
glöð þegar Telma mín tilkynnti
þér að hún væri að verða stóra
systir, enda vildir þú endilega
að ég myndi eignast fleiri börn.
Guðbjörg Tanja og þú urðuð
líka einstakar vinkonur þótt hún
hafi alltaf verið afastelpa, sem
er yndislegt, hún hjálpar honum
í gegnum þessa erfiðu tíma. Þú
mættir á allt sem tengdist þeim
enda óendanlega stolt af þeim.
Þitt heimili var þeirra heimili og
voru þær alltaf velkomnar, takk
fyrir það, mamma. Sem betur
fer eru minningarnar margar og
munum ég og Steindór minn
vera dugleg að rifja þær upp
með þeim og segja þeim hversu
yndisleg og einstök þú varst.
Takk fyrir allt, elsku mamma,
ég held utan um pabba og
strákana eins og þú hélst utan
um okkur.
Ég elska þig.
Þín dóttir,
Laufey Sigrún.
Elsku Gréta okkar, það er
svo erfitt að trúa því að þú sért
farin frá okkur. Það er svo stutt
síðan að við fengum þig í fangið
í fyrsta skipti. Svo falleg, ekkert
rauð og þrútin og með svart
hár. Fallegasta barn sem ég hef
tekið á móti, sagði læknirinn við
okkur. Tíminn leið svo hratt.
Áður en við vissum af varst þú
sjálf komin með fjölskyldu. Við
pabbi þinn orðin afi og amma
áður en við eignuðumst yngsta
barnið okkar þannig að mér
fannst elsku Olgeir minn vera
eitt af mínum. Svo komu þau
Laufey Sigrún og Óli Tryggvi,
hvert öðru yndislegra. Þið voruð
svo dugleg að koma og dvelja
hjá okkur. Minningarnar eru
margar sem á hugann leita,
ferðalög, útilegur eða bara sitja
og spjalla, allt alveg yndislegar
minningar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Hvíl í friði, elsku Gréta okk-
ar,
og hafðu þökk fyrir allt.
Mamma og pabbi.
Elsku Gréta, mikið er lífið
ósanngjarnt, nú kveð ég þig
langt um aldur fram en margar
góðar minningar lifa með mér.
Það sem ég var stoltur að fá að
leika við stóru systur þegar við
bjuggum í Sigtúni, hvað ég var
sár þegar þú fórst í sveit á
sumrin og ég skilinn eftir, en ég
var mjög ánægður að fá þig
heim aftur á haustin.
Hvað við vorum ósátt að fá
ekki frí í skólanum á veturna
þegar vont var veður en ekkert
frí var í skólanum þar sem veðr-
ið var bara vont uppi á brekk-
unni og mamma opnaði dyrnar,
setti stól við skaflinn og við
stukkum út, þá var gott að geta
haldið í höndina á stóru systur
meðan við löbbuðum niður
brekkuna í betra veður. Síðasta
minning okkar var þegar við
vorum í brúðkaupi hjá Guðrúnu
og Jóni og fórum á Bæjarins
bestu þegar komið var í bæinn,
þið systur vilduð ekki fara þang-
að. Ég og Guðbergur mágur
okkar sögðum að þangað yrði
farið enda ekki oft sem við
kæmum í bæinn. Við fórum
þangað ásamt Simma og Kela
en þið sögðust ætla heim en
ekki gátuð þið slitið ykkur frá
okkur og komuð gangandi til
okkar og þar var mikið hlegið
og skemmt sér.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
(Pétur Þórarinsson)
Þinn bróðir,
Hreiðar.
„Hvað er að frétta? Ertu ekki
að verða komin í frí til að klára
að undirbúa brúðakaupið ykk-
ar.“ Svona byrjaðir þú, elsku
Gréta mín síðasta símtalið sem
við áttum mánudaginn 16. júlí,
þú varst í sólbaði og beiðst eftir
að ég hringdi og sagðist vera
komin í sumarfrí því við ætl-
uðum að eyða saman mánudeg-
inum í allskonar brúðkaupsund-
irbúning sem við og gerðum.Við
áttum alveg yndislegan dag
saman. Ég er svo þakklát að þú
lagðir lokahönd á brúðarkjólinn,
fötin á krakkana og fötin á Kela,
það kláruðum við þennan ör-
lagaríka dag sem og margt ann-
að sem þú vildir að yrði klárað.
Þegar þú fórst heim um kvöld-
mat fórstu að skreyta köku-
standinn okkar og vá hvað hann
var fallegur hjá þér. Það var
þitt síðasta verk sem þú gerðir
fyrir okkur því um kvöldið kom
versta símtal sem ég hef fengið
frá Simma þegar hann lét mig
vita að það væri verið að flytja
þig á sjúkrahús og það væri lík-
lega heilablóðfall. Mér fannst
veröldin hrynja en reyndi þó að
hugsa jákvætt og vonaði inni-
lega að þú yrðir jafn heppin og
ég. En 9 dögum síðar kvaddir
þú okkur, aðeins 52 ára að aldri.
Ég var ekki nema 8 ára þeg-
ar þú fluttir til Vestmannaeyja
með Olgeir son þinn og ég man
ennþá hvað mér fannst leiðin-
legt að þú skyldir flytja. En sem
betur fer þá fluttir þú til Eyja
því fljótlega kynntist þú Simma
þínum og 1989 í september
koma einkadóttirin hún Laufey
Sigrún í heiminn. 1995, árið sem
þú sagðir mér að þú værir ólétt,
þá sagði ég strax að ég ætlaði
sko í heimsókn til þín um leið og
þetta barn ætti að fæðast. Þann
9. mars kom svo prinsinn okkar,
hann Óli Tryggvi, í heiminn og
það sem 16 ára gömul móður-
systirin var stolt.
Þegar ég er að kynnast Kela
mínum í upphafi árs 2008 þá
fylgdist þú mjög vel með. Keli
man mjög vel eftir fyrstu ferð
okkar saman suður, þú hringdir
nokkrum sinnum í mig á leiðinni
til að athuga hvar við værum
því við áttum að koma beint í
kaffi. Um haustið fluttum við
Keli svo suður og áttum við eftir
að gera alveg helling saman og í
dag yljum við okkur við allar
þær minningar sem við höfum
búið til með ykkur Simma, elsku
Gréta mín.
Jólin, áramótin, páskarnir og
afmælin eru minningar sem við
erum þakklát fyrir. Þér leið best
ef öll börnin ykkar, tengdabörn-
in, barnabörnin og við Keli vor-
um hjá ykkur Simma á þessum
dögum. Þú vildir hafa mikið líf í
kringum þig og heimili ykkar
stóð okkur Kela alltaf opið. Efst
í huga okkar núna eru þó ferð-
irnar til Tenerife með þér og
Simma en þær minningar geym-
um við í hjörtum okkar. Elsku
Gréta mín, ég gæti skrifað svo
miklu meira en ætla að láta hér
staðar numið og geyma minn-
ingarnar í hjarta mínu og rifja
upp á góðum stundum með fólk-
inu okkar. Missir minn er mikill
en mestur er hann þó fyrir
Simma, Olgeir, Laufeyju, Óla og
sólargeislana þína fjóra. Mikill
og sár er missir mömmu og
pabba að horfa á eftir dóttur
sinni. Við Keli reynum af
fremsta megni að vera til staðar
fyrir þau öll eins vel og við get-
um. Hjálpa þeim á stórum sem
litlum stundum í lífi þeirra því
ég veit að þú aðstoðar mig við
það bara frá öðrum stað. Elska
þig endalaust.
Inga systir.
Elsku Gréta mín, af hverju er
lífið svona ósanngjarnt, ég trúi
ekki ennþá að þú sért farin,
þetta er allt svo óraunverulegt.
Þú í blóma lífsins, umvafin ynd-
islegu fjölskyldunni þinni. Þú
varst svo stolt af börnunum þín-
um og barnabörnum enda mátt-
ir þú það svo sannarlega, enda
öll svo yndisleg. Það var ynd-
islegt að koma til Grétu minnar
í Vestmannaeyjum og í einni
ferð minni þangað þá hvatti hún
mig til þess að fara í hvíta-
sunnukirkjuna Fíladelfíu á leið
minni aftur heim og hitta fólkið
þar.
Fljótlega eftir það fórum við
á jólatónleika hjá Fíladelfíu sem
verður afskaplega skrýtið að
fara á næst og engin Gréta syst-
ir með okkur Ingu systur. En
ég mun ylja mér við minning-
arnar sem ég á um þig og segja
barnabörnum þínum sögur þeg-
ar ég hitti þau. Elsku Simmi,
Olgeir, Pétur Alex, Valdimar
Vopni, Laufey, Steindór, Guð-
rún Telma, Guðbjörg Tanja, Óli
Tryggvi, Jóhanna Björg,
mamma, pabbi, systkini mín öll
og fjölskyldur innilegar samúð-
arkveðjur til ykkar allra. Við
munum rifja upp minningar
saman fjölskyldan og tala mikið
um Grétu systur. Hún var ein-
stök og alltaf hægt að leita til
hennar ef á þurfti að halda. Nú
ert þú engillinn okkar eins og
barnabörnin segja og við það
ætla ég að bæta að þú ert fallegi
engillinn okkar og ég veit að
ömmur okkar og afar hafa tekið
vel á móti þér.
Vonandi er alltaf sól þarna
hinum megin því í sólinni leið
þér best. Takk fyrir allt, elsku
systir.
Ég ætla að kveðja þig með
þessu ljóði.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Helga systir.
Elsku besta amma okkar.
Takk fyrir samveruna.
Takk fyrir að vera alltaf
svona góð við okkur.
Takk fyrir öll kósýkvöldin.
Takk fyrir alla ísana.
Takk fyrir öll knúsin.
Takk fyrir allar heita potts
ferðirnar.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar.
Okkur fannst svo gaman að
vera hjá þér því þú leyfðir okk-
ur að taka svo mikinn þátt í öllu.
Við vorum alltaf velkomnar og
hjá þér leið okkur svo vel. Við
pössum uppá þig í hjartanu okk-
ar. Við elskum þig og söknum
svo mikið.
Þínar,
Guðrún Telma og
Guðbjörg Tanja.
Ég fékk símtal sem ég átti
alls ekki von á. Það var eins og
ég hefði verið stungin í hjartað,
áfallið var mikið. Þú hafðir feng-
ið heilablóðfall og blóðtappa.
Veikindi þín voru stutt, aðeins
rúm vika og ég trúði því svo
innilega að þú myndir lifa þau
af, þú sem varst alltaf svo sterk
og hraust.
Ég kynntist þér fyrir rúmum
12 árum þegar þú sóttir um
vinnu hjá mér í Hulduheimum.
Nýkomin frá Vestmannaeyjum
og mér leist svo vel á þig og
mikil var gæfa okkar að fá þig í
starfsmannahópinn. Þú fékkst
toppmeðmæli og varst ein af
mínum bestu eins og ég sagði
oft. Það er stórt skarð komið í
hópinn okkar og verður skrýtið
að koma í heimsókn og þú ekki
þar.
Hver hefði trúað því að þú
yrðir farin frá okkur svona allt
of fljótt, aðeins 52 ára. Ég sé
þig svo ljóslifandi fyrir mér,
þegar þú labbaðir alltaf til mín
þegar ég birtist í dyrunum í
Hulduheimum eftir að ég hætti í
janúar.
Alltaf komstu brosandi til
mín eins og áður og við spjöll-
uðum aðeins. Mikið á ég eftir að
sakna þín, yndisleg sem þú
varst alltaf, góð vinkona, mann-
eskja og mikill fagmaður. Enda
treysti ég þér fullkomlega fyrir
því að taka að þér deildarstjóra-
stöðu hjá okkur. Þú elskaðir
börnin og sýndir þeim mikla
umhyggju og aga. Mig langar að
þakka þér fyrir hvað þú hugs-
aðir vel um dótturson minn,
hvað þú varst fagleg alltaf,
metnaðarfull og hvað það var
gaman að vinna með þér. En
mest af öllu þakka ég þér fyrir
vináttuna og trúnaðinn sem við
áttum.
Elsku Gréta mín, alltaf svo
falleg, smart og glæsileg. Mér
finnst ótrúlegt að ég fái ekki að
sjá þig aftur í þessu lífi. Eina
sem ég get sagt núna er að ég
hlakka til að hitta þig seinna og
trúi því að við eigum eftir að
hittast aftur. Góða ferð, elsku
vinkona mín.
Elsku Sigmar, Olgeir, Laufey
Sigrún, Ólafur Tryggvi, foreldr-
ar og fjölskyldan öll. Ég sendi
ykkur einlægar samúðarkveðjur
og bið ykkur Guðs blessunar.
Blessuð sé minning elskaðrar
Grétu. Við erum öll betri mann-
eskjur sem höfum fengið að
kynnast henni.
Í hjartans einlægni,
Bryndís Markúsdóttir,
vinkona og fv. leikskóla-
stjóri í Hulduheimum.
Elsku Gréta okkar.
Þeir eru óteljandi hlutirnir
sem við eigum eftir að sakna.
Við á Álfhóli hlökkuðum alltaf
til að mæta til vinnu og gátum
gengið að því vísu að þú tækir á
móti okkur með bros á vör og
tilbúin að takast á við daginn.
Þú varst svo brosmild og falleg,
vel til höfð og alltaf var stutt í
grínið og hláturinn.
Þú varst frábær vinnufélagi
og vinkona og ávallt tilbúin að
gefa af þér. Þú varst einstak-
lega ósérhlífin og alltaf reiðubú-
in að rétta fram hjálparhönd og
til staðar á raunastundu. Þú
hafðir sterkar skoðanir og lást
ekki á þeim en staldraðir alltaf
við til þess að hlusta á sjón-
armið annarra og finna sameig-
inlegar lausnir á hverju sem við
tókum okkur fyrir hendur.
Að eignast svona traustan og
trúan vin á vinnustaðnum er
ekki sjálfgefið og erum við
þakklát fyrir það. Að mæta til
vinnu á Hulduheima eftir sum-
arfrí verða erfið spor að stíga en
við munum taka styrk þinn okk-
ur til fyrirmyndar og halda í
minninguna um þig, elsku Gréta
okkar. Þótt húsið fyllist af börn-
um og öllu sem þeim fylgir þá
mun ákveðinn tómleiki verða yf-
ir Hulduheimum. Þitt skarð
verður aldrei fyllt. Þú varst vel
inni í öllum hlutum og ávallt
reiðubúin að hlaupa til ef þörf
var á enda varstu mjög fljót að
sjá lausnir og að koma hlut-
unum í verk.
Við höfum misst mikið en
ekki síður börnin sem þú hafðir
einstakt lag á. Ekki skorti þig
þolinmæði gagnvart þeim. Það
eru mörg dæmi um að börn sem
voru farin af Álfhóli á aðrar
deildir leituðu oft á tímum til
þín, hvort sem þau sóttu í hrós,
stuðning eða bara knús.
Það var einstaklega gaman að
fylgjast með þér í samveru-
stundum þar sem þú varst búin
að raða upp öllum barnahópnum
fyrir framan þig. Það var sama
hvort þú varst að syngja, segja
þeim sögu eða kenna þeim vík-
ingaklappið, þá áttir þú óskipta
athygli þeirra allra. Börnin eiga
eftir að sakna þín mikið.
Að hafa fengið að vinna með
þér hafa verið forréttindi.
Hugur okkar er hjá fjöl-
skyldu þinni sem var þér allt og
vottum við þeim okkar dýpstu
samúð.
Hlátur, harmur, ekkasog,
í húsi leiks við Grafarvog.
Gréta var mín stoð og stytta,
styrk ég sótti hana að hitta.
Bestu kosti kaus að bera,
besta kona til að vera.
Litir, leikir, lubbastund,
Litríkt bros og létta lund.
Hverskyns degi á hvaða öld,
hverjum degi fylgir kvöld.
Í minni okkar, mér er vaknað,
Margrèt mín, þín verður saknað.
Èg sakna þeirra sem èg missti,
sál sem dauðinn loksins kyssti.
Tími kominn til að kveðja,
um tíð og tíma munt mig gleðja,
tær minning um þig, ætíð lifir.
Orðstír góður ber þig yfir.
(Steinunn Gústavsdóttir)
F.h. vinnufélaga og vina í
Hulduheimum,
Steinunn Gústavsdóttir og
Svanlaug Sigurðardóttir.
Í dag mun ég stíga þung
skref þar sem ég fylgi kærri
vinkonu sinn síðasta spöl. Kærri
vinkonu sem var kippt út úr
þessu lífi allt, allt, allt of
snemma, lífið er sannarlega
hverfult. Traustari vinkonu er
varla hægt að finna í þessu jarð-
ríki en hana Grétu mína sem ég
kynntist um leið og hún gekk
inn ganginn á Hulduheimum.
Ég vissi um leið og við tókumst
í hendur að þarna var kær vin-
skapur að myndast sem svo
varð í raun. Gréta hefur verið sú
vinkona sem hefur stutt mig í
Margrét
Geirsdóttir