Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 47

Morgunblaðið - 09.08.2018, Page 47
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Elsku Helga. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma því sem þú ert mér fyrir í 500 orða minningar- grein og eitthvað í mér vill bara ekkert skrifa minningargrein um þig. Þú átt bara að vera hér. Þeg- ar ég minnist þín þá eru minning- arnar oftar en ekki stormsveipur af rauðu hári þar sem þú situr við trommusettið á hljómsveitaræf- ingum eða tónleikum með Viður- styggð. Ég man eftir tónleikunum okkar á Hvammstanga sumarið 2005 þegar tónleikagestum var nóg boðið við lætin í okkur og fóru út með stóla og borð staðarins. Ein kona skrifaði á blað „þetta er fínt en svolítið hátt“. Það var ekki annað hægt með þig við tromm- urnar. Það er skrítið hvaða hvers- dagslegu hlutir minna mig á þig. Kaffi til dæmis. Það fær mig til að hugsa um allt kaffið sem við drukkum saman út um allan bæ og öll góðu samtölin. Árið sem við bjuggum saman með Valdísi á Fálkagötunni. Ég var unglingur í ástarsorg, þú endalaust á 12 tíma vöktum en komst svo heim í lok dags, settir Smashing Pumpkins á fóninn og helltir uppá eða réttir mér lítinn bjór. Hljómalind á Laugaveginum, sérstaklega þeg- ar þið Nonni voruð að kynnast. Þú varst svo ástfangin og það var svo frábært hvernig það skein í gegn þótt þú hafir líka reynt að halda kúlinu. Svo voru stundirnar okkar saman í eldhúsinu á Kleppsveg- inum svo kærar þegar Árún var lítil. Hún var einbeitt að reyna að opna áhaldaskúffurnar og við Helga Katrín Tryggvadóttir ✝ Helga KatrínTryggvadóttir fæddist 21. júní 1984. Hún lést 26. júlí 2018. Útför Helgu Katrínar fór fram 3. ágúst 2018. drukkum kaffi og töluðum um ástina, lífið og móðurhlut- verkið, hlutverkið sem var þér svo kært og sem ég var síðan svo heppin að deila með þér þegar við vorum óléttar saman af Sivíu og Dýrfinnu. Það var svo gott að tala við þig og ég vona að þú hafir vitað það. Þú varst með ein- stakt innsæi og skýra sýn á lífið. Svo varstu líka bara svo ótrúlega fyndin. Í hvert skipti sem ég horfi ofan í kaffibolla heyri ég hláturinn þinn og sé fyrir mér brosið þitt og kímna augnaráðið bakvið gler- augun þegar þú varst að benda á hið augljósa í ljúfri kaldhæðni undir krumpuðu enninu. Það er missir fyrir samfélagið þegar manneskja eins og þú hverfur. Þú barðist fyrir betri heimi og nú síðustu ár fyrir flótta- fólki í gegnum doktorsverkefnið þitt og sem vinkona. Sárið sem þú skilur eftir er svo stórt og fyrir svo marga. Ég veit ekki hvort það mun einhvern tímann gróa alveg en það gerist óumflýjanlega að einhverju leyti með tímanum og ég lofa að fylla upp tómarúmið með minningum um þig og deila þeim með elsku stelpunum þínum og Nonna. Ég sakna þín svo mikið. Þín vinkona, Guðrún Heiður Ísaksdóttir (Gönner). Á sorgartímum getur verið erf- itt að finna orð til að lýsa því sem býr í brjósti. Okkur langar þó til að reyna og skrifa nokkur orð til minningar um Helgu og hvernig hún snerti líf okkar. Myndin sem kemur í hugann þegar hugsað er um Helgu er af glaðværu og bros- andi andliti litlu systur hennar Jó- hönnu, umvöfðu eldkórónu. Hún kom alltaf til dyra eins og hún var klædd; var einlæg og ákveðin, björt og hress, afburðagáfuð og virtist alltaf vita hvað hún vildi. Hún var ung þegar við kynntumst henni og við fylgdumst með henni þroskast úr áköfum og lífsglöðum unglingi sem spilaði á trommur í Viðurstyggð og rökræddi heims- málin yfir í ákveðna baráttukonu sem hóf upp raust sína gegn óréttlæti og barðist fyrir lítil- magnann. Stoltar gátum við þá sagt: „Þetta er hún Helga, ég þekki hana!“ Nú hefur hún kvatt þennan heim alltof snemma og sorgin situr eftir, en jafnframt gleði yfir að hafa fengið að kynn- ast henni. Minning hennar lifir með dætr- um hennar. Hún lifir með fjöl- skyldu hennar, með okkur og með öllum þeim sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Helgu og eiga, þó ekki nema ör- litla, hlutdeild í hennar lífi. Við viljum votta Nonna og dætrum, Önnu og Tryggva, Jó- hönnu og börnum og Guðnýju okkar dýpstu samúð um leið og við kveðjum Helgu. Eva og María. Það er erfitt að sjóða saman mynd af manneskju í nokkur orð. Þegar ég hugsa um Helgu eru það hláturinn hennar, glettnisleg aug- un, skarpar athugasemdir og vin- semd sem koma efst upp í hug- ann. Tryllingslega fyndnar persónulýsingar hennar, húmor- inn hennar og óstýrilátt hárið sem hæfði henni svo vel. Hún var óstýrilát á góðan hátt. Réttlátan hátt. Lét engan segja sér fyrir verkum. Hún stóð í forsvari fyrir þau sem engan málsvara höfðu og lét sig aðra varða. Sagði sína skoðun, kom henni vel frá sér, var skarpgreind og beitt. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Helgu og að hafa notið fé- lagsskapar hennar daglega í okk- ar námi, þakklát fyrir heimsókn- irnar til Kaupmannahafnar, en fyllist söknuði yfir því að geta núna ekki kynnst henni enn bet- ur. Okkur er öllum missir að rétt- sýnni, sanngjarnri baráttukonu sem lét gott af sér leiða. Elsku Nonni, Árún Emma, Sivía Lára, aðrir ættingjar og vin- ir, ég sendi ykkur mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Með hlýhug, Elín Ösp Gísladóttir. Ég var svo lánsöm að komast í kynni við hana Helgu haustið 2008, en leiðir okkar lágu saman í Háskóla Íslands. Ég fann strax að þarna var á ferð einstaklega heil- steypt, kraftmikil og traust mann- eskja, með brennandi anda og skarpa sýn, kjark og þor. Þessi kynni urðu fljótt að traustum og dýrmætum vinskap. Helga var kona sem gat eigin- lega allt og lét sér ekkert fyrir brjósti brenna. Hvort sem það var að hrista fram úr erminni greinar með pólitískri greiningu á flóknu ástandi, að tromma í pönkhljóm- sveit, að skipuleggja náttúru- verndarhátíð, að tala máli flótta- manna, að vera brautryðjandi í feminísku uppistandi, að hekla og prjóna flíkur og fígúrur, að klára MA-ritgerð með ungbarn á arm- inum, að mæta valdhöfum með kröfur varðandi réttindi flótta- manna, að smíða borð úr trjábol- um, að kenna stelpum og konum að tromma og trúa á sjálfar sig, að skrifa doktorsritgerð þrátt fyrir höfuðmein. Verkin sem eftir Helgu liggja eru ótrúlega mörg og merkileg, og væri að æra óstöðugan að telja þau öll upp. Í sumum þeirra vor- um við samherjar, ber hæst að nefna stofnun barátturitsins Rósta, óteljandi verkefni með No Borders, herferð til stuðnings níumenningunum og sitthvað fleira. Ógleymanleg er pílagríms- förin á 15. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP15, í Kaupmannahöfn í desember 2009. Nú þegar ég er tilneydd að líta um öxl, er ótrúlegt að átta sig á að aðeins eru liðin tæp tíu ár frá okk- ar fyrstu kynnum. Á þessum stutta tíma, í árum talið, höfum við verið samferða gegnum svo ótal margt, sumt erfitt, annað gleðilegt, eins og gengur. Eitt það gleðilegasta var að fylgjast með þeim Levy verða foreldrar, og sjá hve samkvæm sjálfum sér þau voru og eru í uppeldri dætranna, sem bera því fagurt vitni. Við leiðarlok, sem erfitt er að sætta sig við, er mér þakklæti efst í huga. Innilegar þakkir, elsku Helga mín, fyrir samfylgdina og vinátt- una. Hún var mér sönn gæfa. Anna Þórsdóttir. Ég kom inn á heimilið þitt sem feimin stelpa og þú tókst mér opn- um og hlýjum örmum. Þannig hélst það allar götur síðan. Og þú komst mér líka rækilega á óvart! Á bak við látlausa ásjónuna bjó trommuleikari, húmoristi og and- ófsmaður; kona með stóra drauma, gagnrýna sýn og skarpa hugsun; fjölhæfur skríbent og stríðsmaður. Þú barðist fyrir sjálfu lífinu. Þú varst alltaf til staðar, aktív, heilsteypt, hreinskilin og róttæk. Breytandi og bætandi frá rótum. Ekki aðeins samfélaginu til heilla, heldur einnig fyrir yndislegu dæt- ur þínar tvær. Þú veittir þeim frelsi til að vera til á eigin forsend- um, án þess að þurfa að laga sig að staðalímyndum. Helga, þú hefur alið upp tvær sannkallaðar viskugyðjur sem munu halda áfram að vaxa og dafna. Mér er enn að mestu hulið hvað það þýðir að hafa misst þig í raun og veru. Oftast vorum við aðskild- ar af heljarmiklu hafi, en samt var eins og þú byggir hér rétt handan við hornið. Með þig innanborðs var veröldin svo sannarlega fal- legri og ástríkari. Þín verður sárt saknað. Minningin um Helgu kallar fram aragrúa orða og tilfinninga. Ég minnist hugrekkis hennar og kímnigáfu, krafta hennar og vits- muna. Sem aktívisti lagði hún rausnarlega á vogarskálarnar í fjölda málaflokka, af kænsku sinni og hjartahlýju og öllu því þreki sem hún átti til. Margir láta vandamál heimsins sig varða upp að einhverju marki; færri velja að leggja líf sitt að veði; fáir fylgja orðum sínum eftir með aðgerðum af slíkri einlægni sem einkenndi Helgu. Helga skildi heiminn og bjó yfir færni til að fjalla um hann á gagn- rýninn máta. Við hápunkt hins svonefnda „flóttamannavanda“ spurði hún: „Get ég sagt mig úr þessu þjóðríki eða neyðist ég til að tilheyra þjóð aumingja og ræfla?“ Af skarpskyggni sinni, sem ein- kenndi öll hennar störf, beindi hún athyglinni að sameiginlegri ábyrgð okkar á þvinguðum bú- ferlaflutningum annars staðar í heiminum, og því hvernig við virðum að vettugi afleiðingar gjörða okkar. Þannig kona var Helga: ófær um að loka augunum fyrir óréttlæti og ávallt reiðubú- inn að benda á klæðaleysi keis- arans. Það gæfi aðeins hálfa mynd af Helgu að minnast hennar ein- göngu sem aktívista. Minningarn- ar um gönguferðirnar með henni og samtölin við hana kalla sam- tímis fram bros á vör og tár á vanga. Á endanum verður brosið tárunum yfirsterkara, eins og hún sjálf hefði viljað. Ég minnist hennar líka sem ástríkrar móður sem færði dætrum sínum betra veganesti út í lífið en finnst í nokk- urri handbók. Helga háði margar orrustur, en baráttunni um eigið líf tapaði hún alltof snemma. En ég er þess fullviss að hún hefði ekki viljað að við syrgðum hana of lengi. Hyll- um því nú æviverk hennar og beinum svo minningu hennar í farveg baráttunnar sem hún sjálf brann fyrir. Þannig hjálpum við einnig hennar nánustu ástvinum að halda minningu Helgu, þess- arar mögnuðu konu, lifandi. Laura M. Wauters, Jeroen Robbe. HINSTA KVEÐJA Fregnin af andláti Helgu fyllir mig hryggð. En um leið minnist ég takmarka- lausrar hjartahlýju hennar og vinsemdar. Ég dvaldi um hríð á heimili hennar og Jóns, og hafði einungis fagrar minningar með mér þaðan. Jóni og fjölskyld- unni allri sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur. Samarendra Das. Helgi Hróbjarts- son átti langa og við- burðaríka ævi þar sem gengu á víxl skin og skúrir. Faðir hans lést er hann var ung- lingur en Helgi var staðráðinn í að þjóna Drottni. Kristniboðs- starfinu kynntist hann heima fyr- ir og í kristilegu félögunum. Hann undirbjó þjónustu sína með námi í Bandaríkjunum og Nor- egi. Helgi hélt til Eþíópíu ásamt Helgi Hróbjartsson ✝ Helgi Hró-bjartsson fædd- ist 26. ágúst 1937. Hann andaðist 6. júlí 2018. Útför hans fór fram frá Laug- arneskirkju 7. ágúst 2018. fjölskyldu sinni árið 1967, þá sem starfs- maður systursam- taka Kristniboðs- sambandsins, NLM, en fjárhagur hér heima var of þröng- ur til að ráða og kosta fleiri kristni- boða. Í Eþíópíu lá leiðin til Waddera sem segja má að hafi orðið annað heimili hans en hann starfaði einnig um tíma í Neghelle. Fimmtíu ára starfs í Waddera var minnst í liðnum mánuði og til stóð að Helgi tæki þátt í hátíð- arhöldunum. Helgi starfaði mikið hér heima og í Noregi allt sitt líf. Á níunda áratugnum lá leiðin til Senegal þar sem hann var kristniboði annarra norskra samtaka í nokk- ur ár. Loks starfaði hann aftur í Eþíópíu í sex ár fyrir Kristni- boðssambandið. Helgi fór víða um hér á landi og var meðal annars á ferðinni með föður mínum meðan hann var á lífi. Alltaf var líf kringum Helga sem hafði einstakt lag á að tengjast fólki og hikaði ekki við að hafa samband og hvetja það til að mæta á samkomur. Að þessu leyti var Helgi með einstaka náð- argáfu. Eitt sinn vildu þeir faðir minn geta haldið áfram með sam- komuviku sem haldin var á Akra- nesi. Það gekk því miður ekki þar sem næstu tvær vikur voru kristniboðsvikur í Keflavík og Hafnarfirði. Sjálfur hafði Helgi tekið þátt í framlengdum sam- komuvikum víða í Noregi þar sem vakningar urðu. Helgi var einnig frumkvöðull árlegra sumarmóta Kristniboðssambandsins á Löngumýri í Skagafirði og hafa þau haldið áfram frá árinu 1980. Helgi var sífellt á ferðinni og þess vegna hittumst við bæði á Íslandi og í Keníu þar sem við hjónin störfuðum sem kristniboð- ar. Eitt sinn heimsótti hann okk- ur til Chepareria. Helgi hafði hug á að fara víða um Pókothérað þó svo stutt væri stoppað. Endaði það með dagsferð okkar tveggja til Sekerr þar sem fara þurfti upp snarbratt fjallið og tvímennt var á mótorhjólinu. Er snúið var til baka skall myrkrið á og ferðin niður hættulegri en ferðin upp. Reyndi nú á Helga að koma okk- ur heilu og höldnu niður fjallið og urðum við báðir mjög fegnir er heim kom. Helgi bankaði einnig upp á eitt sinn þegar við vorum stödd í Nairobi, þá vorum við reyndar háttuð, en sátum með Helga góða stund. Helgi hafði yf- irleitt nógan tíma, sem var mikils metið af vinum hans í Eþíópíu þó svo það kæmi kannski niður á verkefnum og væntingum ann- arra. Helgi fór gjarnan sínar eigin leiðir og hafði frumkvæði að ýmsu. Meðal annars var það að fljúga í Eþíópíu og fá flugvél þangað frá Íslandi. Stuðningur við flugferðir Helga voru stór þáttur í stofnun samtakanna Fly- misjonen af vinum Helga í Nor- egi. Líf Helga var mótað af brott- förum og komum og stundum birtist hann skyndilega. Þannig kvaddi hann einnig síðasta sinn, öllum að óvörum, meðal góðra vina í Eþíópíu. Stór hluti hjarta hans var þar. Þar átti hann eig- inlega heima. Ragnar Gunnarsson. Helgi Hróbjartsson var óvenju vel af guði gerður, hávaxinn, herðabreiður og fríður sýnum. Hann var einnig góður tónlistar- maður, bæði spilaði og söng. Ætt- menni hans hafa mörg hver unnið kristinni trú. Helgi frelsaðist sem ungur drengur og ólst upp við störf með og fyrir frelsarann Jes- úm Krist. Líf hans snerist um það að leiða aðra til trúar á Jesúm og engan þekki ég sem ber starfs- heitið kristniboði betur. Helga kynntist ég í Vatnaskógi og hann var annar tveggja manna sem urðu þess valdandi að ég tók einnig þá ákvörðun að verða læri- sveinn Krists. Sú ákvörðun hafði afgerandi áhrif á lífsferil minn og er ég Helga ævilangt þakklátur fyrir hans leiðsögn í þessum mál- um á menntaskólaárum okkar. Ég átti eftir að eiga samskipti við Helga á mörgum vígstöðvum; KFUM, Vatnskógi, Kristilegum skólasamtökum en mest urðu samskipti okkar þegar hann var prestur í Hrísey og svo á Noregs- árum okkar beggja. Starfsvettvangur Helga var víða bæði hérlendis og erlendis og þeir eru eflaust margir sem, eins og ég, eiga honum að þakka góða leiðsögn í trúarefnum. Við hjónin munum minnast þessa góða og vel gerða manns og biðj- um Guð að blessa minningu hans um leið og við vottum fjölskyldu hans samúð. Bjarni E. Guðleifsson. Við hittumst í 8 ára bekk D í Austurbæjarskólanum árið 1945, Helgi var stærstur og trúlega sterkastur í bekknum og fylginn sér í leikjum, hlátur hans smitaði því hann sá gjarnan það skoplega í tilverunni. Þetta var í stríðslok, árin liðu og leiðir okkar lágu lítið saman fyrr en um 30 árum síðar í því fjarlæga landi Eþíópíu. Við fjöl- skyldan bjuggum í höfuðstaðn- um, Addis Ababa þar sem ég vann við útvarpsstöð, hann var við kristniboðsstörf í afar af- skekktu og vanþróuðu héraði, Waddera. Kynni okkar endurnýj- uðust, hann kom gjarnan til okk- ar í bæjarferð og sagði okkur frá starfi sínu á sinn glaða og eftir- minnilega hátt. Fólkið í Waddera átti hjarta hans, hann opnaði marga tugi lestrarskóla, læsi er undirstaða þróunar og framfara og studdi fólkið sitt til betra lífs með marg- víslegum hætti af hjartans gleði. Hann var kristniboði af lífi og sál og notaði hvert tækifæri til boðunar jafnvel á bensínstöð eins og við urðum vitni að. Við fluttum heim 1977 en fylgdust með starfi hans erlendis bæði í Senegal og svo auðvitað í Eþíópíu og þeirri gríðarlegu vakningu sem átti sér stað þar sem hann starfaði til dauðadags. Hann var flinkur flugmaður og kom það sér afar vel í hjálpar- starfinu við þær hörmungar sem skollið hafa á Eþíópíu. Kona hans Unnur Venche hjúkrunarfræðingur lést 1991. Börn þeirra eru þrjú. Helgi Hróbjartsson var eftir- minnilegur maður. Hann vann stórmikið starf fyrir Mekane Ye- sus-kirkjuna í Eþíópíu allt frá 1966. Leiðtogar hennar tjáðu mér, er ég var þar á ferð fyrir nokkrum árum, að kirkjan væri í mikilli þakkarskuld við hann og íslensku kirkjuna sem sendi hann til starfa, hinna margþættu starfa að boða Krist og kærleika hans, sem hann gerði þannig að lengi verður minnst. Guð blessi minningu Helga Hróbjartssonar. Rannveig Sigurbjörnsdóttir og Bernharður Guðmundsson. Ástkær frænka okkar, PÁLÍNA JÓNA ÁRNADÓTTIR, fóstra, sem lést á Dvalarheimilinu Grund föstudaginn 3. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 15. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju, félag langveikra barna. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Stefán Björnsson og Pálína Árnadóttir Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.