Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 56

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 56
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þegar deilur um viðkvæm mál- efni hafa farið úr böndunum. Láttu það samt ekki draga úr þér kjarkinn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú sérð hvernig þú getur öðlast meiri áhrif í vissum aðstæðum. Vertu óhræddur að eiga skoðanaskipti við aðra en varastu hroka. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu á varðbergi gagnvart til- raunum til þess að leggja steina í götu þína. Leitaðu eftir samstarfi við aðra því það mun gefa þér góðan árangur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Lífsgleði þín er mikils virði og stór hluti af ástæðunni fyrir velgengni þinni. Gerðu hvað þú getur til að vekja athygli yf- irmanna þinna á verkum þínum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu hroka ekki ná tökum á þér í sam- skiptum við aðra þótt þeir reyni að láta ljós sitt skína. Vertu opinskár og þá munu aðrir fallast á þín rök. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst öll spjót standa á þér og ert úrvinda af þeim kröfum sem til þín eru gerðar. Stattu fastur fyrir og láttu engan ganga á rétt þinn í hvaða mæli sem er. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að fá sem mest út úr starfi þínu þannig að óleyst verkefni hrúgist ekki upp á skrifborðinu. Gættu þess að flækjast ekki inn í atburðarás sem gæti komið þér í koll. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Jákvætt viðhorf þitt í vinnunni bætir andrúmsloftið og áhugi þinn virkar smitandi á aðra. Það er ákaflega gefandi að rétta öðrum hjálparhönd. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitthvað er að angra þig í dag og þar að auki heyrast efasemdaraddir innra með þér. Taktu þér tak og kláraðu þau verk- efni, sem fyrir liggja. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ekki nauðsynlegt að aðrir séu þér sammála í öllum atriðum þótt þeir geti fylgt þér í aðalmálum. Fáðu einhvern sem þú treystir til að koma þér í samband við raunveruleikann. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu ekkert að halda aftur af hugmyndaflugi þínu þótt einhverjir séu með nöldur í þinn garð. Þú vilt örvunina af því að læra eitthvað nýtt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að búa þig undir breytingar á vinnustað þínum og þarft að tileinka þér ný vinnubrögð. Reyndu að gera eitthvað nýtt og spennandi. Ferð án fyrirheits“ hét ljóðabókSteins Steinars og á víðar við. Hallmundur Guðmundsson yrkir á Boðnarmiði „Ferðaljóð“: Æði af stað og bikið brunað í Benza mínum vegum á. Hvurt skal haldið get ei grunað því giska víða æja má. Margt ber við á ferðalögum, – Magnús Halldórsson vitnar í frétta- texta: „en hún horfði á tjald sitt fjúka inn í nóttina“: Upp mun komin önnur mynd, ef að gerist kári bráður, því tjöldin út í veður og vind, vanalega fuku áður. Kristján frá Gilhaga er með á nót- unum: Ellismellir út á lífið halda, öll að fleiri gleðistundum keppa, halda til í húsbílum og tjalda, hjólhýsin um landið draga á jeppa. Ellismellir alltaf sama sinnis, sókn í útivistir lítið skert er, silungsstöng þeir munda þar án minnis, muna ekki til hvers þetta gert er. Sumir eru úti að aka, – Hall- mundur Kristinsson yrkir: Svo mun hér til máls að taka að Matti fór út að aka. Seinna var séð sem nú skal téð: Hann aftur kom ekki til baka. Gunnar J. Straumland yrkir og „enn af sólarferð á Íberíuskaga“ : Í sólbaði sit ég og glói sáttur, þó varla það tjói, því nágrannar spurðu með nokkurri furðu : „Er þetta albinói? “ Magnús Halldórsson fellir í rím og stuðla lýsingu sundvarðar á laugardegi og sólardegi um versl- unarmannahelgi: Sundið jafnt og sólbaðið safna lit að skinni, hingað stöðugt haugast lið, heldur glatt í sinni. Svo rennur upp frídagur versl- unarmanna, mánudagur: Svo eru skil í tíma tvenn, talsvert færri gestir, og dembast hingað daufir menn, drulluþunnir flestir. Hreinn Guðvarðarson yrkir um Elli kerlingu: Þreyttri lund og þungu sinni þrái frið og ró. Að lifa aðeins einu sinni er alveg feikinóg. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Benz, tjöldum og ellismellum „SVARAÐU SPURNINGUNNI OG HÆTTU AÐ FIKTA VIÐ STILLINGARNAR.“ „ÉG KLEIF ÞAÐ AF ÞVÍ AÐ VAR ÞARNA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sinna heimilisverkum með bros á vör. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LÍSA! JÓN! LÍSA! SVONA NÚ, ÞÚ SKULDAR MÉR EITT JÁ! HÉR ER MESTALLUR GULLFORÐI KONUNGSINS! ÞAÐ GÆTI SKAÐAÐ OKKUR AÐ TAKA HANN! EKKI EF VIÐ BEYGJUM HNÉN VEL ÞEGAR VIÐ LYFTUM! JÓÓÓÓÓN... Vegamál eru Víkverja hugleikin.Hann ólst upp á landsbyggðinni þar sem vegir voru ræddir meira en venjulegt getur talist. Vangaveltur um snjómokstur, holur og slitlag voru reglulega meðal umræðuefna. Sem barn skildi Víkverji ekki þennan gíf- urlega áhuga á vegum. Var ekki bara hægt að keyra þessa vegi og láta þar við sitja? x x x Eftir því sem Víkverji eldist ogkemst til ára sinna hefur honum sífellt orðið ljósara mikilvægi vega og samgangna í lífi Íslendingsins. Líkt og veðrið spila vegirnir stórt hlutverk í hversdeginum. Vegamálin sameina hin ýmsu svið samfélagsins; umhverf- ismálin, pólitíkina, iðnaðinn, kaffistof- urnar. x x x Góður vegur er gulls ígildi. Þvíkomust margir ferðamennirnir að þegar þeir þurftu að keyra gamlan malarveg í fimmtíu kílómetra í kjölfar Skaftárhlaupsins. Frá örófi alda hef- ur óslitinn strengur milli náttúru og samgangna litað líf Íslendinga. Vík- verji veltir því fyrir sér hver séu í raun mörkin milli vegar og náttúru? Náttúran er lifandi og minnir reglu- lega á sig. Með sama hætti eru sam- göngurnar lifandi. Vegir beygjast og brotna og brýr síga, eftir einhver náttúruátökin. x x x Um lífið sagði einhver eitt sinn;þetta snýst ekki um áfangastað- inn, heldur vegferðina. Því öll viljum við jú drífa okkur á leiðarenda. Get- um ekki beðið eftir að renna í hlað, lenda, koma í höfn. Ferðalagið er aukaatriði sem við viljum helst ljúka við. Best væri að við færum að staldra aðeins við, njóta vegferðarinnar. x x x Reglulega keyrir Víkverji vestur íheimahagana. Um daginn þurfti hann að keyra á holóttum malarvegi í allt að tíu mínútur, vegna vegafram- kvæmda í Dölunum. Orðfærið í bíln- um var miður fallegt meðan á þessu stóð. En eftir að slæma kaflanum lauk var sem birti til og fuglar hófu að syngja. Malbikið tók við og lífið hófst að nýju. vikverji@mbl.is Víkverji En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég gerði Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum. (Sálm: 73.28) Einfasa rafmótor 2800 W Sjálfbrýnandi kurlaravals Koma með safnkassa Meðfærilegir og hljóðlátir 45 mm hámarks sverleiki stofna Flottur í garðinn eða í sumarbústaðinn Wolf Garten - Model SDL2800 Greinakurlarar í garðinn eða sumarbústaðinn Öflugur og afkastamikill 9 HP Honda bensínmótor 60 mm hámarks sverleiki stofna Hámarks afköst 2.5 m3 / klst Tilvalinn í sumarbústaðinn Jo Beau - Model M200 ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.