Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 58

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 sáum á viðburðinum í gær [síðasta þriðjudag, innskot blaðamanns] sem var einstaklega stór og náði til mjög fjölbreytts hóps,“ segir Gunnlaugur, en á þriðjudaginn fór fram dragsýn- ingin We like it like that í Gamla bíói. Drag hefur einnig öðlast vin- sældir hér heima og á alþjóðlegum vettvangi með sjónvarpsþáttunum RuPaul’s Drag Race, sem hafa verið sýndir frá árinu 2009. Viðburðir á Hinsegin dögum eru yfir 30 talsins og hafa aldrei verið svo margir áður. „Við þurfum því jafnvel að fara að spyrja okkur hvort það sé tímabært að lengja hátíðina eða hvað við gerum. Sannarlega tek- ur undirbúningurinn töluverðan tíma og í rauninni fljótlega í næstu viku eða vikum förum við að taka saman lærdóminn og fara að skrifa niður hugmyndir fyrir næstu hátíð,“ segir Gunnlaugur um undirbúning og umfang hátíðarinnar sem hefur vaxið ár frá ári. Sífellt að læra af fyrri hátíðum Aðspurður hvaða breytingar hafa verið gerðar og hvaða lærdómur hafi verið dreginn af hátíðinni í fyrra segir Gunnlaugur að t.a.m. hafi upp- stilling Gleðigöngunnar í ár verið færð frá Hverfisgötu að Hörpu þar sem er meira pláss. „Það sama á við ýmsa minni viðburði yfir vikuna, það er alltaf eitthvað sem má bæta. Þá kvikna einnig alltaf hugmyndir að nýjum viðburðum fyrir næsta ár, hvort sem það eru framhalds- viðburðir eða annað tengt, meðan á öðrum viðburðum stendur. Hug- myndavinnan er því alltaf í gangi,“ segir Gunnlaugur að auki. Baráttusaga í máli og myndum Líkt og áður segir skipta við- burðir Hinsegin daga tugum og eru af ýmsu tagi. Sýningin, Baráttu- gleðin í máli og myndum, er opin gestum og gangandi á Skólavörðu- stíg alla vikuna. Sýningin er haldin í tilefni 40 ára afmælis Samtakanna ’78. Þar má sjá myndir, bréf, blaða- greinar og fleira sem tengist mann- réttindabaráttu síðustu áratuga. „Þarna sést hvernig orðanotkun hefur breyst, þ.e. hvernig við höfum færst frá því að tala um kynvillinga yfir í að tala um homma og lesbíur og þaðan yfir í hinsegin fólk. Þarna eru líka mjög gleðilegir hlutir sem sýna fögnuð á áfangasigrum, t.d. staðfesting samvistar samkyn- hneigðra, en einnig eru erfiðari hlut- ir, s.s. fordómafullar umfjallanir og aðstæður þar sem fólk er statt í því að berjast fyrir réttindum sem manni finnst vera sjálfsögð,“ segir Gunnlaugur um sýninguna á Skóla- vörðustíg. Sýningin stendur út vik- una og mögulega eitthvað lengur að sögn Gunnlaugs. Hvað felsti í karlmennskunni? Fjölmargir fræðslufyrirlestrar fara fram í Safnahúsinu í vikunni og einn þeirra er fyrirlesturinn „Karl- mennskan“. Aðspurður hvað felst í fyrirlestrinum segir Gunnlaugur að viðburðurinn er sjálfstætt framhald af umræðuvettvangi sem hófst hjá Samtökunum ’78 síðasta vetur. „Í ljósi þess að gríðarleg umræða hefur myndast um karlmennskuna, t.d. í tengslum við #MeToo- byltingunni, er því velt fyrir sér hvað er karlmennska og eitruð karl- mennska og hvernig hún tengist hin- segin samfélaginu,“ segir Gunn- laugur og heldur áfram: „Hefur karlmennskan og eða eitruð karl- mennska áhrif á líðan samkyn- hneigðra karla, sem að einhverju leyti tengja ekki við þá karl- mennskuímynd sem þeir eru aldir upp við?“ Þess sama, segir Gunn- laugur, má spyrja í tengslum við samkynhneigðar konur, hefur karl- mennskan áhrif á þær og hvernig þá? Auk þess verður rætt hvernig samfélagseinkennið karlmennskan samræmist fjölbreyttum samfélags- hópum og hver upplifun þeirra hópa er af karlmennskunni. Fræðslu- viðburðurinn fer fram í Safnahúsinu á morgun, föstudag, kl. 12 og að- gangur er ókeypis. Veðrið mun ekki spilla fyrir Gunnlaugur segir að öðruvísi en góð stemning hafi myndast í Hljóm- skálagarðinum eftir Gleðigönguna í fyrra. Áður lauk göngunni við Arn- arhól. „Við vorum auðvitað afar heppin með veður í fyrra, sem spil- aði ef til vill inn í, en það myndast öðruvísi stemning í garði heldur en á hól. Þannig að við erum spennt að prófa það aftur og vonum það besta með veðrið,“ segir Gunnlaugur brattur. Veðrið hefur verið nokkuð gott í höfuðborginni síðustu daga og er ágætis útlit fyrir komandi daga. Spurður um framhaldið segir hann að allir í stjórn hátíðarinnar séu ein- faldlega mjög spenntir og hátíðin byrji vel. „Við finnum ekki annað en stemningu og eftirvæntingu allt í kringum okkar. Það verður gaman hjá okkur, sama hvernig viðrar,“ segir Gunnlaugur að lokum. „Pöbbaröltið er nýjung og bygg- ist að hluta til á grein sem Hilmar Magnússon tók saman í tilefni 30 ára afmælis Samtak- anna ’78 en hann skrifaði þá sögu hinsegin skemmtistaða sem hafa í gegnum tíðina verið ansi margir, bæði yfirlýstir og ekki, og lifað mislengi,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga, um viðburð sem kallast „Hinsegin pöbbarölt“ sem fer fram annað kvöld. Á nú að gera úttekt Hilmars frekari skil auk þess að taka fyrir þær breytingar á skemmt- analífinu sem hafa orðið frá rit- un greinarinnar fyrir 10 árum. Lagt verður af stað frá Hlemmi klukkan 18 og er miðaframboð afar takmarkað. „Markmiðið er að rifja upp sögu þessara staða og heyra hvað einkenndi þá og hvað fólk sem sótti þá segir um stemn- inguna sem þar ríkti, auk þess að dreypa á einhverjum drykkjum í leiðinni,“ segir Gunnlaugur enn fremur. Í blaði Hinsegin daga segir m.a. að íslenskir samkyn- hneigðir karlmenn döðruðu við hermenn á Borginni á fimmta áratug síðustu aldar. Síðar leit- uðu samkynhneigðar konur skjóls í Stúdentakjallaranum og að dragið hafi blómstrað á Rauðu myllunni. „Íslenskt hin- segin skemmtanalíf hefur verið alls konar í gegnum árin – leynt og ljóst, hávært og lágvært,“ segir einnig í lýsingu pöbba- röltsins í blaði Hinsegin daga. Hinsegin pöbbarölt Miðbær Hýri skemmtistað- urinn Kiki er á Laugavegi ÚTTEKT Á SKEMMTANALÍFI Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Allskonar ást verður fagnað í Hannesarholti laugardaginn 11. ágúst kl. 17, þar sem leik- og söng- konan Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir og Karl Olgeirsson, píanó- leikari og tónskáld, flytja dagskrá sem þau hafa sett saman með uppáhalds ástarlögunum sínum. Lögin koma úr öllum áttum og fjalla um ástina í ýmsum myndum, og með þeim verða tveir gestir: söngvararnir og leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir. „Tónleikarnir okkar byrja strax á eftir tónleikunum í Hljómskála- garðinum, þar sem Gleðigangan endar. Þá er tilvalið að rölta til okkur í Hannesarholtið,“ segir Sigga Eyrún. Vill syngja söngleikjalög Yfirskrift tónleikanna er Ástin er allskonar og segir Sigga Eyrún að þau muni m.a. syngja um móður- ást, hinsegin ást, og að þau hafi reynt að finna til ástarlög sem fjalla ekki um stelpuna sem er skotin í stráknum eða öfugt. – Hlustið þið mikið á ástarlög? „Ja, fjalla ekki öll lög að ein- hverju leyti um ástina? Við erum alltaf að hlusta á tónlist, lifum og hrærumst í tónlist og tölum um vinnuna allan sólarhringinn.“ – Voruð þið sammála um laga- valið? „Já. Mig langar reyndar alltaf að syngja lög úr leikhúsinu og Kalli ritskoðar það vel og vandlega svo það sé ekki of dramatískt,“ segir Sigga Eyrún og hlær. „En þetta verður góð blanda af poppi og djassi og svo ég fæ ég auðvitað að lauma tveimur söngleikjalögum að. Þótt lögin séu úr öllum áttum eru þau öll með svipaðri stemningu.“ – Eru þetta lög sem þið hafið hlustað mikið á í gegnum tíðina? „Já, og sum lögin eru eftir Kalla. Hann að vinna í djassplötu þar sem ég syng eitt lag og ég ætla að frumflytja það. Eitt lagið samdi hann með Hönsu í huga, þau flytja það saman.“ Ást er ást Sigga Eyrún segir að þar sem tónleikarnir fari fram á aðaldegi Hinsegin daga verði lög á dag- skránni sem fjalli um hinsegin ást. „Það er lag sem ég er lengi búin að vera að mana mig upp í að syngja og er úr söngleiknum Everybody is talking about Jamie. Það fjallar um strák í smábæ í Norður- Englandi sem langar að vera dragdrottning og fara í kjól á skólaballið, en það er ekki í boði. Það er mamma hans sem syngur þetta lag. Ég get varla talað um þetta lag án þess að gráta, það er svo flott. Bjarni flytur líka lag sem heitir „Taylor the Latte Boy“ og þar er karlmaður að syngja til karlmanns. Þema tónleikanna er umburðarlyndi í garð allra. Ást er ást,“ segir Sigga Eyrún, söng- og leikkona, sem hlakkar til að fagna ástinni með sem flestum í Hann- esarholti. Fagna allskonar ást með allskonar lögum  Þemað er umburðarlyndi í garð allra  Nýtt djasslag verður frumflutt Morgunblaðið/Eggert Ást í öndvegi Tónlistarparið Karl Olgeirsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir vilja fagna ástinni. ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// ///////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.