Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 59
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Sagan og harðstjórn [...] Það er upphaflega vestræn hefð að skoða söguna þegar stjórn- málaskipanin virðist í hættu. Ef okk- ur finnst að amerísku tilrauninni sé hætta búin nú á dögum getum við fylgt í fótspor stofnenda Bandaríkj- anna og hugleitt sögu annarra lýð- ræðisríkja og lýðvelda. Góðu frétt- irnar eru þær að við höfum úr mun meira og nýlegra efni að moða en Grikkir og Rómverjar til forna. Ótíð- indin eru hins vegar þau að saga nú- tíma-lýðræðisríkja er um leið saga hnignunar og hruns. Frá því að am- erísku nýlendurnar lýstu yfir sjálf- stæði sínu undan bresku krúnunni, sem stofnend- urnir sögðu ein- kennast af „harð- stjórn“, hefur saga Evrópu átt þrjú meiriháttar lýðræðisleg augnablik: eftir fyrri heimsstyrj- öldina árið 1918, eftir seinni heimsstyrjöldina árið 1945 og eftir endalok kommúnism- ans árið 1989. Mörg þeirra lýðræð- isríkja sem stofnsett voru á þessum tímamótum misheppnuðust, í að- stæðum sem í nokkrum mikilvægum atriðum líkjast okkar. Sagan getur dregið fram líkindin og hún getur varað við. Seint á nítjándu öld, rétt eins og seint á tutt- ugustu öld, vakti mikill vöxtur á al- þjóðaviðskiptum vonir um framfarir. Snemma á tuttugustu öldinni, rétt eins og snemma á tuttugustu og fyrstu öldinni, var slegið á þessar vonir út af uppgangi nýrra múg- hreyfinga þar sem foringi eða flokk- ur gerði tilkall til að túlka vilja fólks- ins. Evrópsk lýðræðisríki urðu hægrisinnuðu alræði og fasisma að bráð á þriðja og fjórða áratugnum. Hin kommúnísku Sovétríki, sem stofnuð voru árið 1922, fluttu út fyr- irkomulag sitt til Evrópu á fimmta áratugnum. Saga Evrópu á tutt- ugustu öld sýnir okkur að þjóðfélög geta brotnað, lýðræðiskerfi geta hrunið, siðakerfi geta sundrast og venjulegir menn geta einn góðan veðurdag staðið yfir fjöldagröfum með byssu í hönd. Það er ómaksins vert nú á dögum að reyna að skilja hvernig slíkt getur gerst. Bæði fasismi og kommúnismi voru viðbrögð við hnattvæðingunni: við raunverulegri og ímyndaðri mis- skiptingu af völdum hennar og úr- ræðaleysi lýðræðiskerfisins við að bregðast við henni. Fasistar afneit- uðu skynseminni í nafni viljans, af- neituðu hlutlægum sannleika en að- hylltust þess í stað stórfenglega goðsögu sem borin væri fram af leið- togum sem töldu sig vera rödd fólks- ins. Þeir settu andlit á alþjóðavæð- inguna, héldu því fram að flókin úrlausnarefni sem henni fylgdu væru afleiðing af samsæri gegn þjóðinni. Fasistar stjórnuðu í um það bil tvo áratugi og skildu eftir sig ósnortna hugmyndalega arfleifð sem verður sífellt ágengari. Komm- únistar stjórnuðu lengur, nærri sjö áratugi í Sovétríkjunum, og meira en fjóra áratugi í flestum löndum Austur-Evrópu. Stjórn þeirra var grundvölluð á járnaga flokksforyst- unnar sem tók sér alræðisvald yfir skynseminni sem átti að stýra þjóð- félaginu í átt að vísri framtíð- arskipan samkvæmt meintum lög- málum sögunnar. Við gætum freistast til að halda að lýðræðishefð okkar verndi okkur sjálfkrafa fyrir slíkum ógnunum. Það er á misskilningi byggt. Hefð okkar hvetur okkur til að skoða sög- una til þess að skilja dýpri orsakir harðstjórnar, og hugleiða rétt við- brögð við þeim. Við erum ekkert vit- urri en Evrópubúarnir sem horfðu upp á lýðræði láta undan fasisma, nasisma og kommúnisma á tutt- ugustu öldinni. Við höfum það eina forskot að geta lært af reynslu þeirra. Nú er tímabært að gera það [...] 10. Trúið á sannleikann Þegar maður varpar staðreyndum fyrir róða varpar maður frelsinu fyr- ir róða. Ef ekkert er satt getur eng- inn gagnrýnt vald, því að þá fyr- irfinnst enginn grundvöllur fyrir því að gera það. Ef ekkert er satt er allt tómt sjónarspil. Stærsta veskið borgar fyrir skærustu ljósin. Maður lætur undan síga gagnvart harðstjórn þegar maður afneitar muninum á því sem mann langar að heyra og því sem raunverulega á sér stað. Þessi afneitun á veruleikanum getur virst mjög eðlileg og ánægju- leg, en fyrir vikið deyr maður sem einstaklingur – og um leið hrynur sérhvert það stjórnmálakerfi sem byggist á einstaklingshyggju. Eins og rannsakendur alræðisstefnunnar á borð við Victor Klemperer veittu athygli fer dauði sannleikans fram með ferns konar hætti, eins og við höfum öll horft upp á. Fyrsti hátturinn er opinskár fjandskapur í garð staðreyndabund- ins veruleika sem lýsir sér í því að bera fram uppspuna og lygar eins og um staðreyndir sé að ræða. Forset- inn stundar þetta af miklum ákafa. Ein tilraun í kosningabaráttunni 2016 til að rekja fullyrðingar hans leiddi í ljós að sjötíu og átta prósent af staðhæfingum hans voru fölsk. Þetta hlutfall er svo hátt að sönn yrðing verður í samhenginu eins og lítilsháttar yfirsjón á leið mannsins á vit hins fullkomna heilaspuna. Þegar maður gerir lítið úr veröldinni eins og hún er byrjar maður um leið að skapa skáldaðan mótheim. Annar hátturinn eru töfraþulur að hætti seiðkarla. Eins og Klemperer hafði orð á þá byggist fasískur stíll á „þrotlausum endurtekningum“, sem ætlað er að gera uppspunann senni- legan og glæpinn eftirsóknarverðan. Markviss notkun á uppnefnum eins og „Lyin’ Ted“ og „Crooked Hillary“ skapa tilfærslu á tilteknum persónu- einkennum sem betur kynnu að eiga við sjálfan forsetann. En engu að síður hefur forsetanum tekist með blygðunarlausu stagli sínu á Twitter að umbreyta einstaklingum yfir í skrípafígúrur sem fólk talar síðan um. Á kosningafundunum lýstu þrá- tekin hróp eins og „Build that wall“ og „Lock her up“ ekki neinu sem forsetinn hafði beinlínis lýst yfir áformum um, en sjálf fyrirferðin á þeim styrktu böndin milli hans og áhorfendanna. Næsti háttur er bábiljur, eða op- inskár trúnaður við þverstæðuna. Kosningabarátta forsetans hafði að geyma loforð um lækkun skatta öll- um til handa, útrýmingu á skuldum þjóðarbúsins og aukin framlög til bæði félagslegra þátta og varn- armála. Í þessum loforðum rak hvað sig á annars horn. Þetta er eins og að bóndi myndi segja að hann ætlaði að taka egg úr hænsnakofanum, harðsjóða það og leggja á borð handa konu sinni, og svo linsjóða það líka og leggja á borð handa börn- unum sínum, skila því síðan aftur til hænunnar óbrotnu og fylgjast loks með því þegar kjúklingurinn kæmi út úr því. Þegar fallist er á svo róttæk ósannindi þarf að láta alla skynsemi lönd og leið. Lýsingar Klemperers á því þegar hann missti vini sína í Þýskalandi árið 1933 vegna átrún- aðar á bábiljur hljóma ískyggilega kunnuglega nú á dögum. Einn af fyrrverandi nemendum hans hvatti hann til að „gefast tilfinningum þín- um á vald og þú verður ávallt að ein- beita þér að mikilleik Foringjans, frekar en þeim óþægindum sem þú finnur fyrir í svipinn“. Tólf árum síð- ar, eftir öll grimmdarverkin, og við lok stríðsins sem Þjóðverjar höfðu augljóslega tapað, sagði hermaður sem misst hafði útlim við Klemperer að Hitler hefði „enn ekki sagt ósatt. Ég trúi á Hitler“. Síðasti hátturinn er rangsnúin trú. Þar má sjá sjálfsupphafningu á borð við þá sem kom í ljós hjá forset- anum þegar hann sagði: „Ég get einn leyst þetta,“ og „Ég er rödd ykkar.“ Þegar trúin berst niður frá himnum og til jarðarinnar á þennan hátt er ekkert svigrúm skilið eftir fyrir litlu sannleiksbrotin sem okkar persónulega dómgreind og reynsla færir okkur. Það sem skelfdi Klemperer var hversu endanleg þessi yfirfærsla virtist. Um leið og sannleikurinn var bundinn því sem sagt var fremur en staðreyndunum hættu sönnunargögn að skipta máli. Í lok stríðsins sagði verkamaður við Klemperer: „skilningurinn gagnast ekkert, maður verður að hafa trúna. Ég trúi á Foringjann.“ Eugène Ionesco, leikskáldið snjalla frá Rúmeníu, horfði upp á hvern vin sinn af öðrum taka að temja sér talsmáta fasismans á fjórða áratugnum. Sú reynsla mynd- aði grunninn að leikritinu Nashyrn- ingarnir frá 1959 sem var í stíl Fá- ránleikaleikhússins. Þar umbreytast þeir sem falla fyrir áróðrinum í risa- stór dýr með horn. Um persónulega reynslu sína skrifaði Ionesco: Háskólaprófessorar, stúdentar og menntamenn gengust nasismanum á hönd, urðu Járnverðir, hver á fætur öðrum. Í fyrstu voru þeir svo sann- arlega engir nasistar. Við vorum um það bil fimmtán manns sem tókum okkur saman til að ræða og finna rök gegn málflutningi þeirra. Það var ekki auðvelt … Af og til sagði ein- hver vinurinn: „Ég er ekki sammála þeim, alls ekki, en í sumu þó, það verð ég samt að viðurkenna, til dæmis þessu með gyðingana …“ Þetta var sjúkdómseinkennið. Þremur vikur seinna var viðkomandi orðinn nasisti. Hann var kominn inn í vélina, hann féllst á allt, hann varð að nashyrningi. Undir lokin vorum við því bara þrír eða fjórir sem þráuðumst við. Markmið Ionescos var að hjálpa okkur að koma auga á það hversu af- káralegur áróðurinn í rauninni er en samt hversu sjálfsagður hann virðist í augum þeirra sem láta undan hon- um. Með því að nota þessa fáránlegu líkingu af nashyrningum leitaðist Io- nesco við að sjokkera fólk til að það áttaði sig á því hversu ankannalegt þetta var allt saman. Nashyrningarnir eru ráfandi um á gresjum taugakerfis okkar. Öll erum við nú mjög upptekin af einhverju sem við köllum „post-truth“, hand- an-sannleika, og okkur hættir til að halda að sú forakt á staðreyndum sem honum fylgir og framleiðsla á mótveruleika sé eitthvað nýtt eða póstmódernískt. Og samt er fátt hér sem George Orwell var ekki búinn að lýsa fyrir sjö áratugum með hug- taki sínu „þverhugsun“. Í heimspeki sinni hefur handan-sannleikurinn endurreist nákvæmlega viðhorf fas- ismans til sannleikans – og þess vegna myndi ekkert í okkar heimi koma Klemperer eða Ionesco á óvart. Fasistar höfðu ímugust á litlu sannleiksbrotunum í daglegu lífi okkur en voru að sama skapi hrifnir af slagorðum sem hljómuðu eins og nýjar trúarsetningar, og tóku skap- andi goðsagnagerð fram yfir sagn- fræði eða blaðamennsku. Þeir hag- nýttu sér nýja fjölmiðla, sem á þeim tíma var útvarp, til að skapa takt- fastan áróður sem espaði kennd- irnar áður en fólk hafði tíma til að vinna úr staðreyndum. Og nú, rétt eins og þá, ruglar margt fólk saman trú á foringja sem er mikill galla- gripur og sannleikanum um heiminn sem við deilum öll. Handan-sannleikur er fordyri fas- ismans. Lærdómar sem draga má af tutt- ugustu öldinni Í bókinni Um harðstjórn – tuttugu lærdómar sem draga má af tuttugustu öldinni fjallar Timothy Snyder um stöðu heimsmála í einskonar sjálfshjálpar- bók fyrir lýðræðið. Hér birtist brot úr inngangi og einn lærdómur úr bókinni sem Guðmundur Andri Thorsson þýddi. Ljósmynd/Ine Gundersveen Fræðimaður Timothy Snyder er prófessor í sagnfræði við Yale-háskóla og hefur sérhæft sig í sögu Mið- og Austur-Evrópu og Helfararinnar. Glæsilegt úrval af trúlofunar- og giftingarhringa- pörum Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is Verð á pari: 239.181 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.