Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 09.08.2018, Qupperneq 64
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018 Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Plan-B nefnist grasrótarhátíð sem haldin verður í þriðja sinn dagana 9. –12. ágúst í Borgarnesi. „Við erum fjögur sem stofnuðum hátíðina sem erum öll með rætur í Borgarnesi og nágrenni,“ segir Inga Björk Mar- grétar Bjarnadóttir, einn af skipu- leggjendum listhátíðarinnar. „Við köllum þetta Plan-B út af því að áður var blómlegur landbúnaður og iðnaðarstarfsemi í Borgarnesi, en svo fór kaupfélagið og sláturhúsið hætti og þá hugsuðum við að það væri kominn tími á Plan-B sem væru menning og listir. Okkur fannst vanta þetta frjóa grasrótarstarf í menningarlífið í Borgarnesi og lang- aði til að fara aftur á heimaslóðirnar og koma á fót þannig listahátíð“ Samtal milli ólíkra miðla „Þetta er fyrsta listahátíðin af þessari gerð á Vesturlandi, þar sem athyglinni er beint að samtímalist og samtali á milli ólíkra miðla. Lista- mennirnir eru með vídjóverk, gjörn- inga, málverk, það er allur skalinn tekinn. Við skilgreinum okkur sem grasrótarhátíð og förum inn í óhefð- bundin rými og búum þannig til vett- vang fyrir tilraunamennsku í sam- tímalist,“ útskýrir Inga Björk. Hún segir að bæði sé um að ræða sýn- ingar og list sem sköpuð er á svæð- inu. „Það verður haldið gjörninga- kvöld sem er mjög stór hluti af hátíð- inni og fer alltaf fram á laugardags- kvöldinu í Stúdíó Mjólk sem er gamalt fjós rétt fyrir utan Borg- arnes. Það sóttu 150 manns þann viðburð í fyrra. Síðan eru líka alltaf minni viðburðir á sýningaropnun- unum sjálfum, bæði gjörningar og innsetningar.“ Listamenn fá frjálsar hendur Inga Björk segir hátíðina vera orðna mikilvægur hluti af menning- arlífi á Íslandi og sífellt fleiri íbúar mæti með hverju árinu sem líður. „Það er frábært að íbúarnir eru til- búnir að taka þátt í þessu með okk- ur. Helmingur gesta okkar hefur alltaf verið aðkomufólk og mikið úr listasenunni. Við skerum okkur úr með því að vera pínu róttæk. Þótt við sýningarstýrum eitthvað þá er hátíð- in alltaf þannig að hún er lífræn í ferlinu. Við fáum rými til afnota og veljum listamenn sem okkur finnst tala saman; veljum þá hvern út frá öðrum og svo er það hálfgerð til- raunastarfsemi hvernig sýningarnar og viðburðirnir koma út. Listamenn- irnir fá mjög frjálsar hendur bæði hvað þeir gera og hvernig. Það er einmitt það sem er töfrandi við þetta. Við erum á handahlaupum síð- ustu dagana en vitum ekkert hvort þetta verður flopp eða frábært, en síðustu tvö skipti hafa alla vega verið stórkostleg og við vonum að hátíðin í ár verði það líka,“ segir Inga Björk. „Í ár erum við með mikið af ung- um og nýútskrifuðum listamönnum og við erum ein af fáum hátíðum á Íslandi þar sem listamenn geta sótt um að taka þátt. Það hefur verið þakklátt hjá listamönnum, því það skapar tækifæri fyrir þá sem eru á jaðrinum, og líka nýja listamenn sem eiga eftir að skapa sér nafn, að koma til okkar og byrja þar.“ Inga Björk segir listamennina vera alls staðar að. „Við erum alþjóðleg listahátíð og listamennirnir frá upphafi hafa verið frá þrettán löndum og í ár erum við með erlenda listmenn frá Svíþjóð, Ástralíu og Kanada.“ Tilraunamynd eftir tónskáld „Við erum með sérviðburð í fyrsta sinn núna á hátíðinni, og þá verður sýnd tilraunastuttmynd eftir Jóhann Jóhannsson tónskáld. Myndin heitir End of Summer eða Sumarlok og hann gerði hana þegar hann fór til Suðurskautslandsins og tók upp náttúrulífsmyndir og glæddi svo með tónlistinni sinni. Hann fylgdist með náttúrunni breyta um árstíðir. Þetta er landslag sem er al- gjörlega ósnortið af mannshendinni en er samt eitt af þeim svæðum sem eru í mestri hættu í heiminum vegna loftslagsbreytinga. Það má lýsa myndinni sem lágstemmdri stúdíu af náttúrunni og tónlistin er alveg stór- fengleg og þetta er alveg ótrúleg mynd; náttúrulífsmynd án þular þar sem tónlistin segir söguna. Myndin verður sýnd á opnunarhá- tíðinni sem verður haldin á B59 Hót- el, síðan opna fleiri rými það kvöld og svo verður önnur opnun daginn eftir.“ Ákall til listavelunnara Eins og gefur að skilja er erfitt að fjármagna menningarstarf á lands- byggðinni. Inga Björk segir að því hafi þau byrjað að stofna til söfnunar á Karolina Fund sem þau vona að velunnarar myndlistar sjái sér fært að taka þátt í. Upplýsingar um söfn- unina má nálgast á hlekknum: https://www.karolinafund.com/ project/view/2161 Þar má kaupa ýmislegt eins og t.d. miða inn á myndina hans Jóhanns, miða í listasmiðjur fyrir unglinga, einka- og hópleiðsögn um hátíðina eða einfaldlega styrkja hátíðina án umbunar. Róttæk og lífræn grasrótarhátíð  Vettvangur fyrir tilraunamennsku í samtímalist  Stuttmynd eftir Jóhann Jóhannsson tónskáld; lágstemmd stúdía af náttúrunni  Gjörningakvöld í gömlu fjósi sem kallast Stúdíó Mjólk Að störfum Listakonan Freyja Eilíf í Grímshúsi á Plan-B hátíðinni í fyrra. Mörgæsir Stikla úr stuttmynd Jóhanns, Sumarlok. Skipuleggjendur Logi Bjarnason í forgrunni, f. v. Sigursteinn Sigurðsson, Bára Dís Guðjónsdóttir og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir. Stjórnendur dreifingafyrirtækisins Global Road Entertainment hafa ákveðið að fresta frumsýningu á nýjustu kvikmynd Johnny Depp um óákveðinn tíma. Samkvæmt frétt Variety stóð til að frumsýna myndina, sem nefnist City of Lies, í september, en í henni fer Depp með hlutverk lögreglumanns sem rannsakar morðin á rappstjörn- unum Tupac Shakur og Notorious B.I.G. Engin opinber ástæða hefur ver- ið gefin fyrir frestuninni, en í frétt Variety kemur fram að ákvörð- unin er tekin í beinu framhaldi af því að fyrrverandi starfsmaður við gerð myndarinnar hefur farið í mál við Depp fyrir að veit- ast að sér á töku- stað. Er Depp gefið að sök að hafa sleg- ið starfsmanninn ótal sinnum í rifbeinin og síðan út- húðað honum. Þegar starfsmað- urinn neitaði í framhaldinu að skrifa undir trúnaðarsamning þar sem hann héti því að ræða ekki at- vikið opinberlega hafi honum ver- ið sagt upp störfum. Johnny Depp Kærður fyrir líkamsárás á tökustað Hljómsveitin Key to the Highway kemur fram á Hard Rock í kvöld. Sveitin var stofnuð árið 2015 í til- efni af 70 ára afmæli Eric Clapton „til að gera ferli þessa tónlistar- manns góð skil í lifandi flutningi,“ eins og segir í tilkynningu. Sveit- ina skipa Ásmundur Svavar Sig- urðsson á bassa, Gunnar Ringsted á gítar, Heiðmar Eyjólfsson söngv- ari, Jakob Grétar Sigurðsson á trommur, Pétur Hjaltested á hljómborð og Reynir Hauksson á gítar. Tónleikar til heiðurs Clapton *NÝ R HYUNDAI IX35 2.0 CRDI PREMIUM PANORAMA 4x4, dísel, sjálfskiptur – í nokkrum litum, með leðri, glerþaki, leiðsögukerfi, bakkmyndavél o.fl. Verð aðeins kr. 3.990.000 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum *e ft ir ár sb íll fy rs ta sk rá ni ng 8. 20 15 ICQC 2018-20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.