Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 8

Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina ÍViðskiptamogganum á fimmtudagvar rætt við Birgi Örn Birgisson, framkvæmdastjóra Domino’s, sem segir að eftir kröft- ugan hagvöxt síðustu ára og hóflega verð- bólgu séu nú blikur á lofti. Hann segir: „Laun hafa hækkað of mikið fyrir sum fyrirtæki og til dæm- is eru margir í veit- ingageiranum við þolmörk.“    Birgir bætir við aðferða- mannageirinn sé á krossgötum og að jafnauðvelt sé fyrir hagkerfið að fara niður og upp „og við þurfum að gæta okkar mjög næstu árin og vera skyn- söm í ákvörðunum.“    Í sama blaði er rætt við Gunnar ÖrnÖrlygsson, sem kemur úr allt öðr- um geira. Gunnar er í fiskverkun og segist greina „að vaxandi útflutn- ingur er að hafa áhrif á fiskverð á mörkuðum innanlands og eru ís- lenskar fiskvinnslur í þeim sporum að þurfa að keppa við erlend fyrir- tæki sem búa við allt annað rekstr- arumhverfi. Munar þar ekki hvað síst um launaþróunina hér á landi sem segja má að hafi verðlagt íslenskar fiskvinnslur út af markaðinum.“    Gunnar bætir því við að fjöldistarfa geti verið í hættu ef fram haldi sem horfir. Ástandið er eins í fleiri geirum, einkum í mann- aflsfrekustu geirum atvinnulífsins. Þetta þýðir með öðrum orðum að mikill fjöldi starfa er í hættu ef menn gæta ekki að sér.    Í þessu sambandi er verulegtáhyggjuefni að hlusta á ýmsa for- ystumenn verkalýðshreyfingarinnar tjá sig um launaþróun og komandi kröfugerðir. Birgir Örn Birgisson Launaþróunin og atvinnulífið STAKSTEINAR Gunnar Örn Örlygsson Veður víða um heim 10.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 11 skýjað Akureyri 10 alskýjað Nuuk 17 léttskýjað Þórshöfn 12 heiðskírt Ósló 19 skýjað Kaupmannahöfn 21 léttskýjað Stokkhólmur 24 heiðskírt Helsinki 24 skúrir Lúxemborg 21 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 17 skúrir Glasgow 17 skúrir London 17 rigning París 22 heiðskírt Amsterdam 19 skúrir Hamborg 18 skúrir Berlín 24 heiðskírt Vín 24 skúrir Moskva 25 heiðskírt Algarve 28 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 30 léttskýjað Róm 31 léttskýjað Aþena 29 léttskýjað Winnipeg 27 þoka Montreal 23 léttskýjað New York 29 heiðskírt Chicago 26 þoka Orlando 29 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:08 21:59 ÍSAFJÖRÐUR 4:56 22:20 SIGLUFJÖRÐUR 4:39 22:04 DJÚPIVOGUR 4:33 21:33 Heildarfjöldi frjókorna á mælistöð í Garðabæ í júlímánuði reyndist frekar lítill eða 715 frjó/m3, en meðaltalið fyrir júlí er 949 frjó/m3. Þetta er skýrt með því að úrkoma á höfuðborgarsvæðinu var yfir með- allagi í júlí og einungis alveg þurrt í fimm daga. Sólarlítið var og kald- ara en í meðalári. Frjó mældust alla daga mán- aðarins en lítið var um háar frjótöl- ur. Hæst fóru þau í 61 frjó/m3 fimmtudaginn 5. júlí, en aðallega grasfrjó mældust þann dag. Flest frjókorn í júlí voru grasfrjó, 483 frjó/m3, sem er töluvert undir með- altalinu sem er 654 frjó/m3. Gras- frjó geta mælst í ágúst í töluverðu magni ef veðurskilyrði eru þeim hagstæð. Í frétt frá Náttúrufræðistofnun kemur fram að heildarfjöldi frjó- korna í júlí á Akureyri var 916 frjó/ m3, sem er svolítið yfir meðaltali 1998-2017 sem er 895 frjó/m3. Frjó- korn voru samfellt í lofti á Akur- eyri allan mánuðinn. Langflest frjókornanna voru grasfrjó, 611 frjó/m3, og fóru þau hæst í 74 frjó/ m3 föstudaginn 27. júlí. Meðaltal grasfrjóa í júlí er 663 frjó/m3. Grasfrjó mest áber- andi í júlí  Frjókorn undir meðallagi í borginni „Hreyflar þessara flugvéla eru mjög aflmiklir og í raun talsvert aflmeiri en hreyflar flestra annarra skrúfu- þotna,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Air Iceland Con- nect, um bilun sem upp kom í hægri hreyfli flugvélar félagsins í fyrra- dag. Vélin er af tegundinni Bomb- ardier Dash-8 en hún var nýlögð af stað til Egilsstaða þegar bilunin kom upp. Að sögn Árna eru vélar af þessu tagi mjög kraftmiklar og tals- vert kraftmeiri en margar aðrar vél- ar í sama flokki. Þá geti þær flogið lengi á öðrum hreyfli án þess að eig- inleikar þeirra breytist mikið. „Umrædd vél er hlutfallslega með mjög mikið afl í báðum hreyflum auk þess sem eðlisfræðilega er það þann- ig að við gerð og hönnun flugvéla er miðað við að þær geti flogið á öðrum hreyflanna. Þessi hreyfill var vel bú- inn og gat veitt vélinni orku til að halda sömu flugeiginleikum og ef hún væri með tvo hreyfla,“ segir Árni og bætir við að flugmenn á veg- um Air Iceland Connect fari reglu- lega í æfingabúðir þar sem farið er yfir hvernig bregðast á við aflmissi annars hreyfils. „Þetta er æft einu sinni til tvisvar á ári þar sem menn fara í flugherma og fljúga á öðrum hreyfli. Þetta er mikið æft hjá flugrekendum og þar á meðal okkur,“ segir Árni. aronthordur@mbl.is Kraftmeiri hreyflar en í öðrum vélum  Flugvél Iceland Air Connect missti afl í öðrum hreyfli  Viðbrögðin vel æfð Morgunblaðið/Árni Sæberg Bombardier Flugvél fyrirtækisins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.