Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 11

Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Síðustu dagar útsölunnar Nýjar vörur komnar Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is VERÐHRUN 60-80% afsláttur gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn VERÐHRUN GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL. á gæðamerkjavöru Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 60-70% afsláttur REYFARAKAUP um okkur,“ segir Eva Björg Ósk- arsdóttir, framkvæmdastjóri hátíð- arinnar. Þau sem mæta í þjóðbúningi á há- tíðina fá frítt inn. Eva segir að nú þegar séu dæmi um slíkt. „Það voru nokkrir sem mættu í þjóðbúningi á kvöldvökuna og það var mjög gam- an að sjá. Við hvetjum fólk til þess að halda því áfram, það er bara um að gera að nota þessa búninga.“ Veðurblíða verður líklega á Norðurlandi um helgina og hvetur Eva fólk því til að koma norður og njóta bæði Handverkshátíðar og Fiskidagsins mikla. „Það er vel hægt að nýta báðar hátíðirnar, líta við hér og fara svo á tónleika á Fiskideginum á laugardagskvöld- inu.“ Ásamt handverkssölu verður boðið upp á dagskrá fyrir börn og ýmsar aðrar uppákomur. Ljósmynd/Brynjar Gauti Sciöth Blíða Handverksfólk notar blíðuna í Eyjafjarðarsveit og vinnur að verkum sínum utandyra. Ef veðurspár ganga eftir mun sólin skína þar alla helgina. aðsókn á Fiskidaginn mikla í ár seg- ir Júlíus: „Ef það halda áfram að koma gestir þá stefnir í það. Það er alla vega mjög vel mætt nú þegar.“ Í fyrra mættu 33.000 manns á há- tíðina, en í Dalvíkurbyggð búa tæp- lega 1.900 manns og því ekki nema von að bærinn breytist mikið í kring- um Fiskidaginn mikla. Garðurinn hjá Birni breytist til að mynda í tjaldsvæði á þessum tíma árs. „Það er víða þannig. Margar fjölskyldur nýta tækifærið og hittast þessa helgi. Í kringum okkur er svona smá blettur sem er ekki búið að byggja á og þangað koma fjöl- skylda og vinir með sitt fellihýsi, tjald, hjólhýsi eða hvað það nú er og það er bara gaman.“ Í bænum hefur jafnvel þurft að út- búa ný tjaldsvæði. „Það eru komin tjöld eða hjólhýsi á hvern einasta græna blett hérna. Ég veit að þeir sem sjá um tjaldsvæðin voru á ferð- inni í morgun að undirbúa ný tjald- svæði, ásóknin er svo mikil núna. Það er bara þétt alls staðar og bara mikill samhugur í fólki,“ segir Björn sem segir Dalvíkinga leggjast á eitt við að gera allt tilbúið fyrir Fiski- daginn mikla. „Þeir eru að smyrja rúgbrauð, pakka fiskinum sem er grillaður á Fiskidaginn og ýmislegt fleira. Ein- hverjir gestir leggja líka hönd á plóg og mæta á þriðjudegi eða miðviku- degi og hjálpa til við undirbúning- inn.“ Margir gestanna láta sjá sig ár eftir ár, að sögn Björns. „Suma sér maður á hverju ári. Um einn þeirra sagði ég nú að það væri eins með hann og kríuna, ég vissi nákvæm- lega hvenær hann kæmi til Dalvík- ur.“ Sólina má finna á Fiskidegi Sólríkt verður á Dalvík um helgina ef marka má spár Veðurstof- unnar. „Spáin er frábær og þetta lít- ur allt mjög vel út,“ segir Júlíus. Lögreglan á Norðurlandi eystra mun huga sérstaklega að umferð- arskipulagi í kringum hátíðina og mun björgunarsveit Dalvíkur að- stoða við það. Í tilkynningu frá lög- reglunni á Norðurlandi eystra er fólk minnt á það að umferð dróna sé bönnuð yfir mannfjölda, samkvæmt reglugerð. Hundar eru sömuleiðis ekki leyfðir á svæðinu. Lögreglan tekur sérstaklega fram í tilkynningunni að mikill fjöldi öku- tækja verði á svæðinu á laugardags- kvöldið og umferðin þung. „Þegar flugeldasýningunni lýkur verða ökumenn að taka með í reikn- inginn að það tekur tíma að komast úr bænum. Við biðjum ykkur því að sýna þolinmæði og samvinnu meðan á þessu stendur.“ Morgunblaðið/Atli Rúnar Kátir Drengir pakka bleikju sem er marineruð í rauðrófum og hunangi inn í álpappír. Bleikjuna á að elda á grillum á hafnarsvæðinu á Dalvík. Um 150 sjálfboðaliðar tóku þátt í undirbúningi veitinganna sem boðið verður upp á í dag. Morgunblaðið/Björn Friðþjófsson Þétt Út um stofugluggann hjá Birni má sjá fjöldann allan af hjólhýsum enda margt fólk mætt til Dalvíkur til að smakka fiskisúpu og fiskrétti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.