Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu – fyrir dýrin þín Ást og umhyggja fyrir dýrin þín Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna. Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is 15 kg 8.990 kr. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Staða mála vegna Skaftárhlaups var til umræðu á ríkisstjórnarfundi í gær. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra og Sig- ríður Andersen dómsmálaráð- herra upplýstu samráðherra sína um málið. „Skaftárhlaup er eitthvað sem við eigum alltaf von á á nokkurra ára fresti og við erum í sjálfu sér ágætlega undir þau búin. Þarna eru áætlanir sem hrint er í framkvæmd og þetta gengur alltaf smurt fyrir sig hjá almanna- vörnum og lögreglu,“ segir Sigríður. Loka þurfti þjóðvegi 1 í um tvo sólarhringa vegna hlaupsins. Sigurð- ur Ingi segir það mat Vegagerðar- innar að vegurinn hafi ekki skemmst. „Vegaxlirnar var hægt að lagfæra eftir hendinni. Það er mat Vegagerð- arinnar að Eldvatnsbrúin hafi ekki hlotið verri skaða en árið 2015, þann- ig að það er búið að hleypa umferð á hana,“ segir Sigurður Ingi, en nefnir að með hliðsjón af nýafstöðnu hlaupi þurfi að horfa til framtíðar. Nokkrir möguleikar í stöðunni „Það hefur komið fram hjá vís- indamönnum og Vegagerðinni að í framtíðinni megi búast við því að það reyni meira á þjóðveg 1 vegna þess að hraunið er að fyllast og flóðin að stækka. Þar af leiðandi fara þau um meira svæði og þar af leiðandi meira niður undir þjóðveg. Þetta hefur ekki verið greint frekar,“ segir Sig- urður Ingi. „Þróunin gæti orðið sú að þegar allt hraun er orðið fullt og vatnið leit- ar auðveldustu leiðar, fari að reyna meira á veginn. Eftir því sem ég best veit, þá er til gamall farvegur þarna sem er mun beinni, frá því áður en Eldhraunið rann. Það þarf svolítið að horfa til framtíðar um það hvað hægt sé að gera til að verja veginn í framtíð- arflóðum. Það hafa ekki verið teknar neinar ákvaðanir, en það er mögu- leiki á að koma fyrir fleiri ræsum, koma vatninu undir veginn eða hækka hann þannig að það renni lengra meðfram honum áður en það flæðir yfir,“ segir hann. Morgunblaðið/RAX Skaftárhlaup Að mati Vegagerðarinnar er þjóðvegur 1 ekki skemmdur eftir Skaftárhlaupið, en horfa verður til lengri tíma. Vegna stærri hlaupa og þess að hraunið er yfirfullt gæti reynt meira á þjóðveginn í framtíðinni. Horfa verði til flóða framtíðar  Skaftárhlaup til umræðu í ríkisstjórn  Vegaxlir voru lagfærðar jafnóðum  Hraunið fyllist og flóðin stækka Sigurður Ingi Jóhannsson Vinnueftirlitið stöðvaði vinnu við Eyrarveg á Akureyri í byrjun mán- aðarins. Í eftirlitsheimsókn kom í ljós að þar var verið að rífa niður og fjarlægja byggingarefni sem innihélt asbest, án formlegs leyfis. Öll vinna við asbest er leyfisskyld frá Vinnu- eftirlitinu og heilbrigðiseftirliti. „Asbest er hættulegt krabba- meinsvaldandi efni og einungis starfsmenn sem sótt hafa sér fræðslu um hættur af völdum asbestmeng- unar og vinnureglur þar að lútandi mega starfa við niðurrif og hreinsun á asbesti,“ segir í tilkynningu frá Vinnueftirlitinu. Vinna var heimiluð aftur nokkrum dögum síðar eftir að viðkomandi að- ili hafði fengið viðurkenndan aðila til verksins. Stöðvaði vinnu við niðurrif asbests Akureyri Unnið var við asbest án leyfis. isútvarpsins vegna heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu fyrr í sumar. Í dagskrárkynningunni, eða eftir at- vikum auglýsingum, voru þjóðþekkt- ir einstaklingar fengnir til að lesa upp þjóðsönginn. Katrín Jakobsdótt- ir var þar á meðal. Í kjölfarið bárust nokkrar kvartanir til forsætisráðu- neytisins, en samkvæmt lögum um þjóðsönginn er óheimilt að nota hann í viðskipta- eða auglýsingaskyni. Var skýringa Ríkisútvarpsins þá aflað í kjölfarið þar sem kom fram að ekki væri litið á myndskeiðið sem auglýsingu heldur dagskrárkynn- ingu sem hafði verið ætlað að skapa stemningu fyrir heimsmeistaramót- ið. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra hefur ákveðið að víkja sæti í þjóðsöngsmáli Ríkisútvarpsins. Mun Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sinna málinu sem staðgengill hennar. Katrín kveðst hafa tekið þessa ákvörðun á þeim grundvelli að hún hafi áður komið að málinu og vildi tryggja að öll málsmeðferð yrði yfir allan vafa hafin. „Ég ákvað, í ljósi þess að ég kom að þessu máli á fyrri stigum, að mér fyndist réttast eftir mína umhugsun að víkja sæti og bað Bjarna um að taka þetta mál fyrir mig. Það sem liggur fyrir núna er að taka afstöðu til málsins og hann mun gera það,“ sagði Katrín á mbl.is í gær. Það fellur nú í skaut Bjarna að skoða hvort lög hafi verið brotin með notkun þjóðsöngsins í kynningu Rík- Katrín víkur sæti í umfjöll- un um þjóðsöngsmál RÚV  Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tekur við málinu Morgunblaðið/Hari Víkur sæti Bjarni Benediktsson kannar hvort lög hafi verið brotin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.