Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
GENUINE SINCE 1937
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Árlegt þjóðræknisþing Þjóðræknis-
félags Íslendinga, ÞFÍ, verður hald-
ið á Hótel Natura í Reykjavík
sunnudaginn 19. ágúst næstkom-
andi. „Tilgangurinn er að efla
tengslin við fólk af íslenskum ættum
í Bandaríkjunum og Kanada með
fræðslu og skemmtun,“ segir Hjálm-
ar W. Hannesson, formaður ÞFÍ.
Fjölbreytt dagskrá
Þjóðræknisfélag Íslendinga í
Vesturheimi, INLofNA, var stofnað
1919 og ÞFÍ 20 árum síðar. Mark-
miðið með stofnun ÞFÍ var að auka
samskipti og samstarf við fólk af ís-
lenskum ættum vestra. Starfsemin
var blómleg í áratugi, en lá niðri um
skeið áður en félagið var endurvakið
1997. Þá hófst nýtt blómaskeið sem
enn stendur með stuðningi stjórn-
valda og fyrirtækja.
Fjölbreytt dagskrá verður á þjóð-
ræknisþinginu frá klukkan 14 til
16.30. Að lokinni setningu formanns
flytja stutt ávörp þau Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra, Anne-
Tamara Lorre, sendiherra Kanada á
Íslandi, Jill Esposito, varasendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi, Be-
verly Arason, forseti INLofNA frá
Edmonton, og Douglas Hanson,
fyrrverandi yfirmaður í bandaríska
flotanum, en hann nefnir erindi sitt
„Discovering My Icelandic Story“.
Sönghópurinn Voces Thules sér
um tónlistaratriði og síðan flytja er-
indi Eliza Reid („My Iceland Story“)
forsetafrú og Jakob Þór Krist-
jánsson („Vesturíslenskir piltar í víti
fyrri heimsstyrjaldarinnar). Þá
verður stutt kynning á íslenskum
sumarbúðum, sem hafa verið starf-
ræktar í nágrenni Gimli í Manitoba í
Kanada í 45 ár, Ásta Sól Kristjáns-
dóttir verkefnastjóri ræðir um
Snorraverkefnin á tímamótum og
ungir íslenskir þátttakendur í
Snorra West-verkefninu fjalla um
ferð á Íslendingaslóðir í Vest-
urheimi.
Um 200 manns hafa mætt á þjóð-
ræknisþing undanfarin ár og áréttar
Hjálmar að það sé öllum opið, en að-
gangur er ókeypis og boðið verður
upp á veitingar.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Í sviðsljósinu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Hjálmar W. Hannesson, formaður ÞFÍ, á Íslendingahátíð í
Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum um liðna helgi. Hjálmar setur þingið og Katrín flytur ávarp.
Fræðsla og skemmtun
á þjóðræknisþingi
Styrkja tengslin við fólk af íslenskum ættum vestra
Morgunblaðið/Ómar
Forsetafrú Eliza Reid flytur erindi.
„Þetta er hið furðulegasta mál,“ sagði
listakonan Steinunn Þórarinsdóttir í
samtali við mbl.is í gær. Styttu eftir
hana, sem var
hluti af verkinu
Landamæri eða
Borders, var stol-
ið úr miðbæ Bat-
on Rouge í Loui-
siana. Styttan
vegur rúmlega
181 kíló og hafði
verið boltuð niður
á bekk.
„Þetta er ótrú-
legt af því að
verkið er svo þungt og það er ekki
mjög auðvelt að komast að því á far-
artæki,“ segir Steinunn.
„Ég hef lent í þessu nokkrum sinn-
um áður, þannig að ég er orðin vön,“
segir Steinunn. Verki eftir hana var
stolið í Kaupmannahöfn fyrir þremur
árum og auk þess var verki stolið í
Hull í Bretlandi árið 2011.
„Verkið í Kaupmannahöfn fannst á
svölum hjá manni en verkið í Hull
fannst aldrei. Menn telja sig samt
vita hver gerði það og fundu leifar af
bronsdufti í bíl en höfðu ekki nógu
mikið af sönnunum.“
Fram kemur í bandarískum miðl-
um að líklega hafi styttunni verið
stolið í mars eða apríl. „Þetta upp-
götvaðist fyrir þremur vikum og síð-
an hefur verið langt ferli um hvernig
eigi að taka á málinu. Væntanlega
hafa þeir skoðað upptökur frá svæð-
inu og telja að það sé lengra um liðið
síðan styttunni var stolið.“
Steinunn vonast til þess að verkum
hennar sé stolið „á réttum for-
sendum“. „Ég vona að þetta sé ást á
listinni. Verður maður ekki að reikna
með því?“ johann@mbl.is
Ljósmynd/MurrayHead
Landamæri Styttan sem var stolið
sést hér í góðum félagsskap.
Listaverkum stolið
Listakonan reiknar með að styttum
hennar sé stolið vegna ástar á listinni
Steinunn
Þórarinsdóttir
Sorpa og Ístak undirrituðu nýverið
samning um byggingu gas- og jarð-
gerðarstöðvar á Álfsnesi. Með fram-
kvæmdinni verður endurnýting á líf-
rænum úrgangi tryggð en jarð-
gerðarstöðin mun geta tekið til
vinnslu allt að 36.000 tonn af heim-
ilisúrgangi á ári. Reykjavíkurborg
úthlutaði Sorpu lóðina á Álfsnesi
sem er um 85.000 fermetrar að
stærð. Ráðgert er að gólfflötur
stöðvarbyggingarinnar verði um
12.000 fermetrar en samningur um
byggingu stöðvarinnar er stærsti
einstaki samningur sem Sorpa hefur
gert um nýframkvæmdir frá stofnun
byggðasamlagsins.
Í jarðgerðarstöðinnni verður mót-
tökuaðstaða fyrir úrgang, vinnslu-
salur og tíu þroskunarklefar fyrir líf-
rænan úrgang auk tanka til
hauggasgerðar. Vonir standa til að
framleiðsla stöðvarinnar muni skila
sér annars vegar í töluverðu magni
af metangasi, sem nýtast mun sem
eldsneyti á bíla, og hins vegar í um
11.000 tonnum af jarðvegsbæti sem
hentar vel til landgræðslu.
Framkvæmdir við gerð bygging-
arinnar hefjast um miðjan mánuðinn
og er að stefnt að opnun stöðvarinn-
ar í árslok 2019. Þegar framkvæmd-
um lýkur og stöðin verður komin í
gagnið má búast við því að yfir 95%
heimilisúrgangs, sem berst til mót-
töku- og flokkunarstöðvar Sorpu á
Gufunesi, verið endurnýtt.
Bygging stöðvarinnar er liður í
enn frekari flokkun úrgangs á heim-
ilum í Reykjavík, en líkt og áður hef-
ur komið fram stendur íbúum
Reykjavíkur nú til boða að vera með
fjórar mismunandi gerðir af tunnum
við heimili sín. Þá geta íbúar einnig
valið að fara sjálfir með sorp á end-
urvinnslustöðvar í stað þess að vera
með sorptunnu við heimili sitt.
aronthordur@mbl.is
Framkvæmdir á
Álfsnesi að hefjast
Lífrænn úrgangur verði endurnýttur