Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 19
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 SAMSTARFSAÐILI HVAR SEM ÞÚ ERT Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | eimskip.is Þann 6. september 2018 kl. 16:00 er boðað til hluthafafundar í Eimskipafélagi Íslands hf., kt. 690409-0460, í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2. Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 27. ágúst 2018. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir hluthafafund. Framboðstilkynningu má nálgast á skrifstofu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja fund stendur til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Eigi síðar en fimm dögum fyrir fund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin skulu berast félaginu fyrir fundinn. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík umboð skulu berast félaginu áður en fundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors HLUTHAFAFUNDUR EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF. 1. Kosning stjórnar félagsins 2. Önnur mál, löglega upp borin drög að dagskrá reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum Skjöl sem lögð verða fyrir fund er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar einni viku fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar viku fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á fundardegi. Reykjavík, 10. ágúst 2018, Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. aðrar upplýsingar Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Rannsóknarnefnd samgönguslysa mun ekki taka atvik sem upp kom á Reykjavíkurflugvelli í gær til skoð- unar. Í atvikinu sem um ræðir var dróna flogið í veg fyrir þyrlu sem taka var á loft frá flugvellinum snemma í gærmorgun. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gert við- vart um atvikið og mætti í kjölfarið á svæðið. Í tilkynningu sem lögreglan sendi frá sér í gær kom fram að dróninn hefði verið utan þeirra marka sem leyfilegt er að fljúga fjar- stýrðum loftförum í grennd við flug- völlinn. Að sögn Ragnars Guð- mundssonar, rannsakanda hjá flugsviði rannsóknarnefndar sam- gönguslysa, barst engin tilkynning um atvikið inn á borð til nefnd- arinnar. Þá hafi atvikið ekki verið þess eðlis að rannsaka þyrfti það nánar. „Það bendir ekkert til þess að þetta hafi verið alvarlegt. Það eru auðvitað engin sönnunargögn í máli eins og þessu þannig að það er erfitt fyrir okkur að rannsaka það,“ segir Ragnar, en í tilkynningu lögregl- unnar kom fram að flugmaður þyrl- unnar hefði náð að afstýra árekstri. Þá sagði jafnframt í tilkynningunni að engar upplýsingar lægju fyrir um hver eða hverjir stýrðu drónanum þegar atvikið kom upp í gær. Að því er fram kemur á vef Samgöngustofu þarf, í hvert sinn sem dróni er keypt- ur, að auðkenna hann með nafni, heimilisfangi og símanúmeri. Þá segir enn fremur að tryggja þurfi að notkun dróna valdi ekki óþarfa ónæði eða einhvers konar tjóni. Rannsaka ekki flug dróna Drónaflug Dróna var flogið í veg fyrir þyrlu í Reykjavík í gær. Ungir menn á krossurum nýttu blíðviðrið í vikunni til þess að þeysa um brautirnar á Bolaöldu. Brautirnar voru með besta móti, þurrar og nýsléttar, og kepptust kapparnir við að sýna listir sínar, eins og sá á myndinni hér fyrir ofan gerir svo afbragðsvel. Urrið í hjólunum yfirgnæfði auð- veldlega umferðarniðinn frá þjóð- veginum þrátt fyrir að margir hafi verið á leið út úr bænum. Morgunblaðið/Hari Kappar á krossurum léku listir sínar á Bolaöldu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.