Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 20

Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í sumar hefur verið unnið við að setja upp göngupalla og tröppur við Dettifoss vestanverðan. Með því batnar aðgengi að fossinum, en þar eru þegar komnir tveir stórir útsýn- ispallar sem nú verða tengdir betur við aðalgönguleiðina. Pallasmíðin er mikið verk, en í vetur voru einingar forsmíðaðar hjá vélaverkstæðinu Grími á Húsavík og þær svo fluttar á staðinn í vor. Þyrla var notuð til að selflytja stærstu ein- ingarnar frá bílastæði að áfangastað, en smærri einingar fluttar á sex- hjóli, eins langt og hægt var að koma því. Lokametrana voru þær svo bornar á höndum. Gálgar halda göngubrautinni uppi meðan á smíði stendur en verða teknir burt þegar varanlegar undirstöður sem eru sniðnar til á staðnum eru tilbúnar. Þrír útsýnisstaðir „Með þessari framkvæmd eru komnir minnst þrír góðir útsýn- isstaðir við fossinn vestanverðan,“ segir Guðmundur Ögmundsson, þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum, - og heldur áfram: „Þessir nýju pallar dreifa álagi af umferð ferðamanna við fossinn, auk þess sem þeir vernda viðkvæman jarðveg og gróður. Þá beinum við allri vetrar- umferð á nýju pallana og eykur það verulega ör- yggi ferðamanna. Um þrjú ár eru síðan fyrstu út- sýnispallarnir við Dettifoss voru settir upp. Þetta höfum við tekið í þremur áföngum og samanlagður kostnaður er kominn í um 50 millj- ónir króna. Verkinu er þó engan veginn lokið og stefnt er á að í fram- tíðinni verði fært fyrir hjólastóla alla leið upp á nýju pallana.“ Setja upp nýja göngu- palla við Dettifoss  Mikil framkvæmd sem kostar um 50 milljónir króna Ljósmynd/Guðmundur Ögmundsson Dettifoss Gálgar halda göngupöllunum uppi uns varanlegar undirstöður koma. Með þessari framkvæmd er vænst að létta á viðkvæmri náttúru á þessu svæði, en hún er undir miklu álagi vegna mikils fjölda ferðamanna. Guðmundur Ögmundsson Glæsilegur veitingastaður á Hótel Örk. Vandaður matseðill og hlýlegt umhverfi. Pantaðu borð í síma 483 4700 eða á hverrestaurant.is Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 . heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú einstakt 2 fyrir 1 tilboð á síðustu flugsætunum á valda áfangastaði með eða án gistingar. Flugsæti frá 29.900 2 FYRIR 1 AF FLUGSÆTUM MEÐ EÐA ÁN GISTINGAR Á VÖLDUM DAGSETNINGUM Í ÁGÚST Flug & gisting frá 62.845 á mann Alicante 16. ágúst - 23. ágúst 19. ágúst - 26. ágúst 23. ágúst - 30. ágúst 30. ágúst - 6. september Almería 23. ágúst - 30. ágúst Costa del Sol 13. ágúst - 23. ágúst 24. ágúst - 3. september Gran Canaria 14. ágúst - 28. ágúst 21. ágúst - 28. ágúst 28. ágúst - 4. september Ítalía / Króatía (Trieste) 20. ágúst - 31. ágúst 31. ágúst - 10. september Krít 27. ágúst - 7. september Mallorca 12. ágúst - 26. ágúst 19. ágúst - 26. ágúst 26. ágúst - 2. september Nánar á vef okkar www.heimsferdir.is Bílar Bæjarráð Ak- ureyrar hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með svör velferð- arráðuneytisins við kröfum Ak- ureyrarbæjar vegna reksturs Öldrunarheimila Akureyrar. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðsins frá því á fimmtudag en velferðarráðu- neytið synjaði nýverið Akureyrarbæ um endurgreiðslu vegna taps af rekstri öldrunarheimila. Samkvæmt úttekt KPMG frá því í október í fyrra greiddi bærinn 843 milljónir með rekstrinum, sem bæjaryfirvöld telja að ríkið hafi átt að greiða. Í bókun frá umræddum fundi seg- ir einnig: „Svör ráðuneytisins eru í hróplegu ósamræmi við kröfur ráðu- neytisins og embætti landlæknis um þjónustu sem veita ber íbúum hjúkr- unarheimila.“ Bæjarráð kallar eftir beinum við- ræðum við Sjúkratryggingar Ís- lands og velferðarráðuneytið sem allra fyrst og felur Ingu Þöll Þór- gnýsdóttur bæjarlögmanni að fylgj- ast með framvindu dómsmáls Garða- bæjar gegn ríkinu vegna reksturs hjúkrunarheimilisins Ísafoldar. Vonbrigði með svör ráðuneytis Inga Þöll Þórgnýsdóttir ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.