Morgunblaðið - 11.08.2018, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Guðjón Jensson, bókasafnsfræð-
ingur og leiðsögumaður, hefur um
nokkurt skeið rýnt í áttatíu ára
gamalt mál, sem hann telur að sé í
raun sakamál.
Fyrir réttum áttatíu árum, þann
áttunda júlí 1938, lést þýskur svif-
flugmaður að nafni Carl Reichstein
í herbergi sem hann bjó í að
Freyjugötu 44 í Reykjavík. Talið
var að um sjálfsmorð væri að ræða
en Guðjón segir að raunin gæti ver-
ið önnur og ástæður fyrir veru
Þjóðverjans á Íslandi aðrar en
hann hafði gefið upp.
„Opinber ástæða fyrir því að
hann kom hingað til lands var sú að
hann ætlaði að kenna áhugasömum
Íslendingum svifflug. Það gerði
hann að vísu en það gæti verið að
hann hafi ekki einungis verið hér í
þeim tilgangi.“
Guðjón telur að Reichstein hafi
verið gyðingur, en hann segir nafn
hans gefa það sterklega til kynna.
„Á þessum tíma voru nasistar að
færa sig upp á skaftið í Þýskalandi
og ofsóknir gegn gyðingum voru
hafnar fyrir alvöru. Það hefur því
ekki verið vænlegt fyrir gyðing að
vera í Þýskalandi.“
Gyðingur í SS
Í grein Morgunblaðsins um
dauða Reichstein, sem birtist þann
níunda júlí, var Reichstein sagður
hafa verið meðlimur í SS, hersveit
þýska nasistaflokksins. Þegar Guð-
jón er spurður að því hvort það sé
ekki þversagnakennt þar sem
Reichstein var einnig gyðingur seg-
ir Guðjón: „Mjög svo. En það eru
dæmi um að það hafi verið tilfellið.“
Guðjón hefur komist yfir lög-
regluskýrslu um andlát Reichstein
sem varðveitt er á Þjóðskjalasafni.
„Hún fannst eftir langa leit í
skjalasafni borgarfógeta. Þegar
hún fannst var það mér mikill hug-
arléttir enda skjalasafn lögregl-
unnar frá þessum tíma mikill
óskapnaður og það fara margar
sögur af óreiðu.“ Guðjón segir
skýrsluna mjög snubbótta en það
vakti athygli hans að málið var af-
greitt sama dag og að engin krufn-
ing fór fram á hinum látna. „Ef við
rennum yfir þetta þá sjáum við
hvað hefur gerst. Klukkan 12.45 er
tilkynnt að maður liggi meðvitund-
arlaus í blóði sínu í herbergi sínu á
efsta lofti Freyjugötu 44. Það vek-
ur strax tortryggni mína að sam-
dægurs er fullyrt að maðurinn hafi
framið sjálfsmorð án þess að nokk-
ur rannsókn hafi farið fram.“
Hinn látni var með snöru um
hálsinn en hafði líka verið skorinn á
púls. „Ég tel að það sé ekkert úti-
lokað að hann hafi verið drepinn en
látið hafi verið líta út fyrir að um
sjálfsmorð hafi verið að ræða. Það
er mjög óvenjulegt að fólk reyni
tvöfalt sjálfsmorð og því er spurn-
ing hvort það hafi átt að vera tákn-
rænt.“
Fram kemur í lögregluskýrslunni
að í fórum hins látna hafi fundist
þrjú bréf á þýsku og enda tvö
þeirra á nasistakveðjunni „Heil
Hitler“.
„Það fyrsta er dagsett í maí 1937
og það er frá sambandsráði þýska
nasistaflokksins. Öll bréfin eru
skrifuð á mjög dæmigerðu þýsku
embættismannamáli,“ segir Guðjón.
Eitt af bréfunum inniheldur skip-
un til Reichsteins um að snúa aftur
til Þýskalands. „Hann er kallaður
heim í síðasta bréfinu og það er
hrein og klár skipun. Bréfið er dag-
sett 25. maí svo hann hefði í raun
átt að vera löngu farinn aftur til
Þýskalands þegar hann fannst lát-
inn þann áttunda júlí.“
Reichstein var einungis 29 ára
gamall þegar hann dó. Hann var frá
bænum Erfurt í Thüringen í Þýska-
landi. Guðjón hefur sankað að sér
miklu efni sem tengist dauða Reich-
steins. Á meðal þess sem Guðjón
hefur safnað saman eru greinar í
dagblöðum þann níunda júlí 1938
um dauða Reichsteins. Í Þjóðvilj-
anum segir meðal annars: „Það
verður þegar að rannsaka hverjir
það voru sem ráku þennan mann út
í dauðann, rannsaka hvort hann
hafi verið kallaður heim að undir-
lagi flugumanna þýskra nasista
hér“.
Skáldsaga um mannréttindi
Guðjón vinnur um þessar mundir
að skáldsögu byggðri á efninu. „Ég
held að einhverjir séu smeykir um
að ég sé að reyna að vekja upp ein-
hverja gamla drauga með skrif-
unum en það er alls ekki mark-
miðið. Tilgangurinn er að skrifa
sögu um það hversu mikilvæg
mannréttindi og lýðræði eru okkur
öllum og því verðum við að varð-
veita og hlúa vel að hvoru tveggja,“
segir Guðjón. „Skáldsagan mín
fjallar um mann sem kemur frá
landi þar sem mannréttindi og lýð-
ræði eru virt að vettugi.“
Dularfullur dauðdagi svifflugmanns
Bókasafnsfræðingur hefur grafið upp gögn sem benda til þess að dauða svifflugmanns hafi borið
að á annan hátt en talið hefur verið Kom mögulega hingað til lands til að flýja nasismann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grúskari Guðjón hefur sankað að sér efni um svifflugmanninn þýska um
langa hríð. Nú skrifar hann skáldsögu upp úr efninu og er kominn vel á veg.
Gögn Hér má sjá grein Morgunblaðsins um dauða Reichsteins. Guðjón nýtir
sér Tímarit.is mikið til upplýsingaöflunarinnar og styðst við gamlar fréttir.
Á sunnudagskvöld hefjast framkvæmdir við brúna yfir Ölfusá við Selfoss.
Brúin verður opin yfir daginn á mánudag en frá mánudagskvöldi verður
hún lokuð í allt að viku og er áætlað er að hægt verði að hleypa umferð á
brúna 20. ágúst. Áætlaður verktími er rúmur og ef veðurlag verður hag-
stætt er gert ráð fyrir að verkið taki skemmri tíma.
Ástæður lokunar eru m.a. slit á brúnni, en hjólför eru orðin 40-50 milli-
metra djúp. Dagleg umferð um Ölfusárbrú yfir sumartímann er um 17 þús-
und bílar á sólarhring. Breidd brúarinnar er 6,1 metri og áætlað vinnu-
svæði 3,3 metrar þannig að ómögulegt er að halda einni akrein opinni fyrir
almenna umferð, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar. Umferðarstýring
myndi tefja vinnu og gæti tvöfaldað, jafnvel þrefaldað, framkvæmdatíma.
Lokun á Ölfusárbrú við Selfoss
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds