Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 26

Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Hersveitir Bandaríkjamanna gerðu loftárásir til að hafa hemil á áhlaupi talibana á héraðshöfuðborgina Ghazni í suðausturhluta Afganistan í gær. Frá þessu er greint á frétta- veitu AFP. Ghazni er í aðeins tveggja klukkustunda ökufjarlægð frá höfuðborginni Kabúl og afgönsk stjórnvöld hafa sent sérsveitir sínar þangað til þess að koma í veg fyrir að talibanar taki sér bólfestu í þétt- býliskjarnanum. Talibanar lýsa yfir sigri Árás talibana á Ghazni hófst seint á fimmtudagskvöldi. Íbúar borgar- innar hafa margir lokað sig inni á heimilum sínum og hírast þar inni á meðan sprengingar og byssuskot glymja um borgina. Lokað hefur verið á rafmagn til borgarinnar frá því að orrustan hófst og kveikt hefur verið í að minnsta kosti einni ríkis- stjórnarbyggingu. Talibanar segjast hafa hertekið flestar ríkisstjórnar- byggingar borgarinnar og drepið og sært að minnsta kosti 140 hermenn, en mögulega eru þetta ýkjur í áróð- ursskyni. Borgarbúi að nafni Yasan segir að talibanarnir noti hátalara úr moskuturni til þess að vara íbúa við því að hætta sér út. Embættismenn afgönsku ríkis- stjórnarinnar neita því að borgin sé fallin í hendur talibana en þeir við- urkenna að árásarher þeirra sé inn- an 275 metra frá skrifstofu héraðs- stjóra Ghazni. „Við munum ekki leyfa þeim að taka borgina,“ sagði Mohammad Arif Noori, talsmaður héraðsstjórans, í símtali við The New York Times. Árásin á Ghazni er önnur skipuleg árás talibana á afganska borg á þessu ári. Sú fyrri var á borgina Fa- rah í vesturhluta Afganistan, sem talibanar hertóku í maí en voru rekn- ir þaðan degi síðar í gagnárás afg- önsku ríkisstjórnarinnar. Borg á þjóðveginum Aðeins ein önnur borg hefur fallið í hendur talibana frá því innrás Bandaríkjamanna hrakti þá frá völd- um árið 2001: Borgin Kunduz í norð- urhluta landsins féll tvisvar í hendur talibana, árin 2015 og 2016. Hvorki Farah né Kunduz eru þó eins hern- aðarlega mikilvægar og Ghazni, sem er höfuðborg Ghazni-héraðs. Þjóð- vegurinn frá Kabúl til næststærstu borgar Afganistan, Kandahar, liggur um Ghazni. Takist talibönum að læsa klónum í Ghazni-borg munu þeir því hafa lokað landleiðinni frá höfuð- borginni til menningarkjarna Afgan- istan. Afganski stjórnarherinn hefur átt fullt í fangi með að halda aftur af vígasveitum talibana frá því að her Atlantshafsbandalagsins hvarf frá landinu árið 2014. Ashraf Ghani, for- seti Afganistan, hefur boðið talibön- um að setjast til friðarviðræðna en talibanar hafa enn ekki þegið boðið. Afgönsk stjórnvöld láta sér þó fátt finnast um siguryfirlýsingar tali- bana í Ghazni. Talsmaður varnar- málaráðuneytisins, fylkishershöfð- inginn Mohammad Radmanish, sagði Ghazni ekki vera í alvarlegri hættu. „Þetta er bara áróður tali- bana. Borgin er öll undir stjórn afg- anska stjórnarhersins.“ AFP Stríð Reykur liðast um loftið í árás talibana á borgina Ghazni í gær. Afganski herinn reynir nú að bægja þeim frá. Barist um Ghazni  Talibanar segjast hafa hertekið höfuðborg Ghazni-héraðs, stutt frá Kabúl  Stjórnarherinn neitar því að borgin sé fallin Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Að minnsta kosti fjórir létu lífið í skotárás í borginni Fredericton í Nýju-Brúnsvík í Kanada í gær. Með- al hinna látnu eru tveir lög- reglumenn. Einn maður er í haldi lögreglunnar grunaður um árásina en lögreglan ráðlagði þó íbúum að forðast svæðið í kringum Brooks- ville Drive í borginni því enn væri verið að rannsaka málið. Ríki íslams lýsti yfir ábyrgð á árásinni en kanadíska lögreglan sagði ekkert benda til þess að hryðjuverkahópurinn tengdist árás- inni á neinn beinan hátt. Samkvæmt kanadíska ríkisfjöl- miðlinum CBC var árásin gerð í íbúðahverfi norðan við miðbæ Fred- ericton. Vitni segjast hafa séð hlaup riffils eða skammbyssu í glugga á íbúð í fjölbýlishúsi og að skotið hafi verið út í húsagarð. David MacCoubrey, íbúi Fred- ericton, sagði kanadískum fjöl- miðlum að skotin virtust hafa komið innan úr íbúðablokkinni þar sem hann býr. Hann vaknaði við skotin klukkan sjö um morgun og sagði þau hafa hljómað eins og þau kæmu úr tíu metra fjarlægð frá rúminu hans. „Hræðilegar fréttir frá Freder- icton,“ skrifaði Justin Trudeau, for- sætisráðherra Kanada, á Twitter- síðu sinni. „Hugur minn hvílir hjá öllum sem urðu fyrir afleiðingunum af skotárásinni í morgun. Við fylgj- umst grannt með aðstæðunum.“ Fjórir látnir eftir skotárás í kanadískum bæ  Skotið í húsagarð úr íbúðarglugga BANDARÍKIN KANADA Fredericton OTTAWA Skotárás á föstu- dagsmorgun AFP Árás Kanadíska lögreglan rannsakar nú skotárás sem gerð var í Freder- icton í gærmorgun. Einn maður er í haldi vegna málsins. Fjórir létu lífið. ar guð,“ sagði Erdogan við tyrk- nesku þjóðina og hvatti Tyrki til þess að skipta á öllum dollurum og öðrum erlendum gjaldmiðli og tyrk- neskum lírum. Samkvæmt grein New York Tim- es um málið gæti hrun tyrknesku lír- unnar leitt Tyrki í vítahring. Tyrkir gætu neyðst til að greiða meira fyrir innfluttan varning og þar með gæti líran lækkað enn meira í verði. Erdogan er þó fullur sjálfstrausts: „Dollarinn getur ekki staðið í vegi okkar,“ sagði hann. „Ekki hafa áhyggjur!“ Gengi tyrknesku lírunnar er nú í sögulegu lágmarki. Í gær hrundi verð gjaldmiðilsins um tæp tuttugu prósent gagnvart Bandaríkjadoll- aranum. Sömuleiðis eru samskipti þessara tveggja ríkja stirð vegna yfirlýsinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að hann hyggist tvöfalda verndartolla á innflutt stál og ál frá Tyrklandi. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti er þó hvergi bang- inn og segist viss um að Tyrkir muni vinna þetta „efnahagsstríð“. „Þeir eiga sína dollara en við okk- AFP Gjaldmiðill Tyrkneska líran hefur hrunið í verði gagnvart Bandaríkjadoll- aranum en Erdogan Tyrklandsforseti hvetur þjóð sína þó til bjartsýni. „Þeir eiga sína doll- ara en við okkar guð“ Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 17. ágúst Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is AUGLÝSINGA nn 14. ágúst. SÉRBLAÐ jallað um þá ti sem í boði na á að auka ína og færni ust og vetur. NÁNARI UPPLÝSINGAR: PÖNTUN fyrir þriðjudagi Í blaðinu verður f fjölbreyttu valkos eru fyrir þá sem stef þekkingu s í ha

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.