Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 35

Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 35
MINNINGAR 35Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 AKUREYRARKIRKJA | Þjóðlaga- messa kl. 11. Þjóðlög frá ýmsum lönd- um. Fararblessun. Prestur er Svavar Al- freð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sig- rún Magna Þórsteinsdóttir. Arnarbæli í Ölfusi | Útimessa 12. ágúst kl. 14. Séra Jón Ragnarson messar. Kirkjukórinn leiðir söng, stjórn- andi er Ingi Heiðmar Jónsson. Kirkju- kaffi eftir messu. Arnarbæli er við ósa Ölfusár. Ekið er um Arnarbælisveg, nr. 375, sem er fyrsti afleggjari af þjóðvegi nr. 1, skammt austan við Kotstrandarkirkju. ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Þór Haukssona þjónar og pré- dikar. Sævar Helgi leikur á píanó. Fé- lagar úr kirkjukórnum leiða söng. Kaffi og spjall á eftir. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Almennur söngur. Vinir og vandamenn heim- ilisfólks velkomnir með sínu fólki. BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Arngerður María Árna- dóttir leikur á orgel. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson. Organisti er Daníel Jónasson. Veitingar og samfélag eftir messuna. Ensk bænastund kl. 14. Prestur er Tos- hiki Toma. Kaffi eftir stundina. BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Kvennakór frá Winnipeg í Manitoba í Kanada syngur í messunni undir stjórn Valdine Anderson sem verður með stutta tónleika eftir messuna. Félagar úr Kór Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir verða einnig í messunni. Prestur er Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Messa sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar. Kári Þormar er organisti og félagar úr Dómkórnum syngja. Minnum á bíla- stæðin við Alþingi. FELLA- og Hólakirkja | Sunnudaginn 12. ágúst verður gönguguðsþjónusta frá Fella- og Hólakirkju kl. 20. Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju um hverf- ið og staldrað við á völdum stöðum til bæna og íhugunar. Prestur er Jón Ómar Gunnarsson. GARÐAKIRKJA | Sumarmessa kl. 11. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Arngerður María Árna- dóttir leikur á orgel. GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffi- húsamessa kl. 11. Séra Sigurður Grét- ar Helgason þjónar. Organisti er Hákon Leifsson og forsöngvari leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti er Ásta Haraldsdóttir og prestur María Ágústsdóttir. Félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng. Heitt á könnunni. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er Auður Inga Ein- arsdóttir heimilisprestur. Grundarkór- inn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi- stund kl. 11. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Þórhildur Ólafs. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Alþjóðlegt orgelsumar: Tón- leikar laugard. kl. 12 og sunnudag kl. 17. Hannfried Lucke, organisti í Austurríki, leikur. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8 og tónleikar Schola cantorum kl. 12. Tónleikar Alþjóðlegs orgelsumars fimm- tud. kl. 12. Jónas Þórir organisti Bú- staðakirkju leikur. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari. Organisti er Steinar Logi Helgason. Samskot dags- ins renna til samtakanna Pieta. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma með lofgjörð og fyrirbænum sunnudag. Ólafur H. Knútsson prédikar. Eftir stundina verður boðið upp á kaffi. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn- arprestur, Magnús Ragnarsson org- anisti og söngfólk úr Fílharmóníunni taka vel á móti kirkjugestum. Kaffisopi eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA | Regnboga- messa 12. ágúst kl. 20 í tilefni af Reykjavík Pride. Séra Stefanía Steins- dóttir prestur í Glerárkirkju prédikar, séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar og organisti er Arngerður María Árna- dóttir. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar, Kristján Hrannar Pálsson spilar undir og leiðir almennan söng. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónustur, kl. 20, hefjast á ný. Óskar Einarsson og Áslaug Helga sjá um tónlistina. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar fyrir altari. NESKIRKJA | Blíðviðrismessa kl. 11. Messað úti á palli ef veður leyfir. Fé- lagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Prestur er Skúli S. Ólafsson. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Ef veður leyfir verður kaffihúsamessa í garð- inum en annars leitum við skjóls í kirkj- unni. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng, prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Ungir sem aldnir velkomn- ir, litir og blöð fyrir yngstu þátttakend- urna. SALT kristið samfélag | Sameig- inlegar samkomur Salts og SÍK alla sunnudaga kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Ræðu- maður er Guðlaugur Gunnarsson. Barnastarf. Túlkað á ensku. SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Kvöld- messa kl. 20. Organisti er Rögnvaldur Valbergsson, kirkjukórinn leiðir söng, prestur er Sigríður Gunnarsdóttir. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Org- anisti er Ingi Heiðmar Jónsson, kór kirkjunnar syngur. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, org- anisti er Douglas Brotchie, félagar úr Kór Seljakirkju leiða almennan safn- aðarsöng. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs- þjónusta kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar fyrir altari. Þorgils Hlynur Þorbergsson guðfræðingur pré- dikar. Organisti er Friðrik Vignir Stef- ánsson. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Jón Bjarnason. STRANDARKIRKJA | Maríumessa og lokatónleikar tónlistarhátíðarinnar Englar og menn verða nk. sunnudag, 12. ágúst, kl. 14. Sr. Baldur Kristjánsson og Guðmundur Brynjólfsson djákni þjóna fyrir altari. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Björg Þórhallsdóttir og Sigrún Hjálmtýs- dóttir syngja og Elísabet Waage leikur á hörpu. Í guðsþjónustunni syngja söngkonurnar englalög og dúetta ásamt að leiða al- mennan safnaðarsöng. Á tónleikunum, sem koma strax í kjölfarið heyrist allt frá klassískum perlum til dægurlaga og óperudúetta. TUNGUFELLSKIRKJA | Síðsum- arsmessa kl. 14. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessa Garðaprestakalls verður í Bessastaða- kirkju kl. 11. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Arngerður María Árnadóttir leikur á orgel. ORÐ DAGSINS: Farísei og toll- heimtumaður. (Lúk. 18) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Kirkjur Tálknafjarðarkirkja Hún Heiða, stóra systir er lát- in. Við fylgjum henni sorgmædd en þakklát til grafar í dag. Minningarnar um trausta syst- ur og sterka konu vakna við hvert fótmál. Hugurinn leitar fyrst í Asparvík – norður á Böl- um á Ströndum. Þar búa þá tvær stórar fjölskyldur; Jón afi og amma Guðrún ásamt sumum af sínum börnum og svo for- eldrar, Bjarni og Laufey með sístækkandi barnahóp. En alls urðum við tíu systkinin. Jón afi smíðaði amboðin sem hæfðu hverjum og einum eftir stærð og aldri svo allir gætu tekið þátt í bústörfunum. Þvottar, matargerð, prjón og saumar, allt var þetta unnið inni á heim- ilinu. Sjórinn var sóttur nánast hvern dag – þar var í raun bjargræði fjölskyldunnar. Heiða var okkar elst og bráð- ger í öllu. Og það hlaut það lenda mikið á henni að ala önn fyrir okkur hinum – yngri systkinunum – og veita okkur skjól og öryggi. Víst er að við eigum öll ljúfar minningar um Heiðu; um rúmið hennar þar sem alltaf var hægt að bæta við litlum barnunga í viðbót undir hlýja sængina. Þar var alltaf pláss. Heiða varð snemma „karl- menni“ að burðum og afls var þörf. Hún sagði frá því með angurværum tón hve oft hefði verið kalt og hráslagalegt að fara á fætur um miðja nótt til að skera hálffrosna beituna og beita lóðirnar í óupphituðum skúr í fjöruborðinu í Asparvík. Hún þá sem unglingsstelpa. En lóðirnar þurfti að leggja við birtingu. Heiða var líka kennari okkar hinna yngri og skriftar- kennsla hennar er mér mjög eftirminnileg en þar skyldi vanda hvern krók á staf. Heiða var okkur sönn fyr- irmynd. Henni féll aldrei verk úr hendi. Hún var listhneigð og mikil hannyrðakona, hvort sem það var útsaumur eða prjón. Heiðu langaði til að ganga menntaveginn en efni og að- stæður leyfðu ekki slíkt á þeim tíma. Heiða gifti sig síðan honum Jónasi á Kóngsbakka, fjöl- skylduvini okkar, og flutti sig um set á næsta bæ við okkur í Bjarnarhöfn. Fjölskyldurnar stóðu saman í leik og starfi í áratugi. Hús þeirra á Jónasar á Kóngsakka var eins og veitinga- hús á krossgötum og gestrisnin ómæld. Sama hvenær komið var alltaf nóg af bakkelsi og kjöt- súpupotturinn á réttardögunum hafði þá náttúru að tæmast aldrei þó gestirnir skiptu mörg- um tugum. Öll eigum við ljúfar minningar frá Kóngsbakka og Stykkishólmi, frá þeim tveimur saman, Heiðu og Jónasi, að fífl- Aðalheiður Bjarnadóttir ✝ AðalheiðurBjarnadóttir fæddist 26. sept- ember 1932. Hún lést 2. ágúst 2018. Útför Aðalheiðar fór fram 10. ágúst 2018. ast hvort í öðru eins og unglingar. Heiða bar reisn og var afar „mynd- arleg“ í sér eins og gjarnan var sagt um konur á fyrri tíð. Það átti við um allt sem hún tók sér fyrir hendur. Börn okkar og barnabörnin dáðu Heiðu og hún tók þeim ávallt af svo mikilli hlýju. Þau Heiða og Jónas áttu svo vel saman. Nú mun verða hleg- ið dátt og sagðar sögur við kaffiborð sem svignar undir veitingum í nýjum heimkynn- um, þangað sem leið okkar allra liggur. Kannski verður Heiða komin á hann Jarp sem Jónas heillaði hana með á sínum tíma. Við Ingibjörg og fjölskyldan öll þökkum Heiðu fyrir sam- ferðina og allt það sem hún gaf okkur af ómældri hlýju og rausnarsemi sem hún var svo rík af. Blessuð sé minning góðrar systur og mágkonu. Ingibjörg Sólveig Kolka og Jón Bjarnason. Hann Óðinn gamli var latur hestur. Þess vegna var hann settur undir börn í Bjarnahöfn. Eina leiðin fyrir mig að fá klár- inn áfram var að nota keyrið. Það var þó einn vegspotti þar sem hesturinn hafði fúsan vilja – og það var á afleggjaranum heim að Kóngsbakka. Óðinn var frá Kóngsbakka – og var ávallt heimfús. Stundum tók hann jafnvel á rás þegar hann sá bæ- inn. Ég skildi sjálfur mætavel hvað klárnum leið. Ég hlakkaði ávallt sjálfur til að koma til Heiðu frænku minnar og Jón- asar. Þar beið ávallt fullt borð af kræsingum – kökum eða mat eftir því hvaða tími var dagsins. Heiða sjálf settist aldrei niður þegar gestir voru við – líkt og góðar húsfreyjur á fyrri tíð. Hún stóð ávallt og sá um að ekkert vantaði á borðið. Jónas hins vegar sat sem hrókur alls fagnaðar með gamanyrði á vör – ávallt jafn hnyttinn og skemmtilegur. Heiða greip inn þegar við átti og bætti um bet- ur. Stundum fífluðust þau hvort í öðru eins og unglingar. Heiða var ávallt glaðsinna og hlátur- mild – líkt og ung stúlka. Það voru raunar mörg tilefnin fyrir okkur í Bjarnarhöfn til að fara að Kóngsbakka – hvort sem það voru reiðtúrar, bústörf eða fara út í eyjar. Og svo komu þau til okkar í sömu erindum. Þau voru ótal skiptin sem ég sat í eldhúsinu á Kóngsbakka. Hún Heiða frænka mín var sterk og dugleg kona – og vann eins þjarkur alla ævi. Ég hef aldrei séð eins örugg og hröð handtök við að prjóna lopa- peysu eins og hjá henni. Og ekki aðeins það. Hún hafði einnig listrænt auga sem sést af öllum hennar hannyrðum. Hún var einnig vel ritfær – og kunni gríðarlega mikið ljóðum og vís- um sem hún kastaði gjarnan fram. Hún var einnig ákaflega minnug hafði ákaflega gaman af því að segja frá. Þess naut ég þegar hafði komist til vits og ára. Já – það var mikið í Heiðu spunnið. Hún var sannarlega ágætur fulltrúi þeirrar kynslóð- ar sem byggði upp Ísland á ár- unum eftir seinni heimstyrjöld. Þegar ég hugsa um íslenska matargerð – eftir að súrmatn- um sleppir og áður en ham- borgar og pítsur yfirtóku Ís- land – þá sé ég matinn hennar Heiðu frænku. Já – í æsku- minningunni stafar ljómi af eld- húsborðinu á Kóngsbakka. Það hefur líka stundum verið sagt að allar samræður sem raun- verulega skipti máli á Íslandi fari fram við eldhúsborð – eða yfir kaffibolla. Eldhúsborðið hennar Heiðu átti eftir að fær- ast til. Fyrst í hús í Stykk- ishólmi þegar þau Jónas hættu í búskap. Og að lokum var hennar borð í mötuneyti dval- arheimilis aldraðra þar í bæ. Alltaf þó jafn gaman að sitja við borðið með þeim tveimur – og undir það síðasta með Heiðu einni. Og alltaf sveif hinn gamli andi Kóngsbakka yfir samræð- unum. Fyrir þessar stundir er ég þakklátur. Ég er einn þakk- látur fyrir að börnin mín náðu að kynnast þeim Heiðu og Jón- asi við eldhúsborðið þeirra. Og ég – sem eitt sinn var barn í Bjarnarhöfn með Óðin gamla til reiðar – sé nú tómt skarð þar sem þau voru Heiða frænka og Jónas. Einn fastur punktur er horfinn úr lífinu – eldhúsborðið á Kóngsbakka. Já – mikið sakna ég hennar Heiðu frænku. Ásgeir Jónsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG RÓSA KARLSDÓTTIR, Kirkjuvegi 1, Keflavík, lést á Hrafnistu, Hlévangi, miðvikudaginn 24. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar HSS og Hlévangs fyrir frábæra umönnun. Þórður Andrésson, Nína Hildur Magnúsdóttir Sóveig Karlotta Andrésdóttir AgnarBbreiðfjörð Þorkelsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNEA ÓLÖF FINNBOGADÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður Langagerði 50, Reykjavík, lést fimmtudaginn 9. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. ágúst klukkan 15. Runólfur Þorláksson Anna Grímsdóttir Sigríður Þorláksdóttir Guðjón M. Jónsson Finnbogi Þorláksson Katrín Eiðsdóttir Agnar Þorláksson Kristín Rut Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.