Morgunblaðið - 11.08.2018, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Nú er vinkona og
samstarfskona til
margra ára farin í
ferðina löngu sem
enginn kemst frá.
Guðný lést eftir hræðilegt um-
ferðarslys í Mosfellsdal. Eftir
sitja vinir og vandamenn með
sorg og söknuð í hjarta. Árin sem
við unnum saman eru orðin
býsna mörg.
Gígí, eins og hún var kölluð,
var einstaklega ljúf kona. Sam-
viskusöm og gætin í orðum sín-
um. Það var oft mikið um að vera
á svo mannmörgum vinnustað,
eins og Talsamband við útlönd
var, og þurfti oft að hliðra til með
vaktir og var Gígí alltaf reiðubúin
að hjálpa.
Á deildinni fór fram mikil
vinna sem þurfti að skipuleggja
vel og var Gígí þar fremst í flokki.
Eftir að deildinni var lokað héld-
um við nokkrar sambandi og vor-
um nýbúnar að hittast er Gígí
lést.
Ég tala fyrir munn margra
sem sakna hennar og biðjum við
Guðný
Þórðardóttir
✝ Guðný Þórð-ardóttir fædd-
ist 8. júní 1937. Hún
lést 21. júlí 2018.
Útför Guðnýjar
fór fram 30. júlí
2018.
henni blessunar
Guðs. Hvíldu í friði,
kæra Gígí.
Edda F. Kinchin
Það er svo sárt og
óraunverulegt að
kveðja þig, elsku
Gígí. Þú fórst svo
snöggt. Okkar
kynni hófust á
gömlu símstöðinni á
Króknum. Þú leystir af sumarfrí-
in fyrsta árið mitt þar. Við náðum
fljótt saman og brölluðum margt.
Þú fluttir til Akraness varst þó
alltaf með annan fótinn fyrir
norðan hjá pabba þínum og Tótu.
Nokkrum árum seinna er ég kom
til Reykjavíkur varst þú orðin yf-
irumsjónarmaður á Talsambandi
við útlönd. Þar vann ég undir
þinni umsjón í yfir tuttugu ár. Þú
varst elskuð af starfsfólki þínu,
lést þér annt um alla, skilningsrík
og ráðagóð. Tímarnir breyttust,
við urðum einar á báti, endurnýj-
uðum þá okkar fyrri stelpukynni,
fórum í utanlandsferðir og gerð-
um margt skemmtilegt. Þú miðl-
aðir mér af þínum fróðleik, enda
víðförul, ég sá um að rata, þú
varst ekki góð í því. Oft var mikið
gaman.
Þú varst bókaormur, listunn-
andi og ekki síst náttúrubarn,
lagðir þitt af mörkum við að
græða og fegra landið. Um það
ber skógræktin ykkar Grétars
fagurt vitni og verður þinn minn-
isvarði um aldur og ævi. Nú
hringir engin Gígí oftar til að
spjalla um heima og geima. Það
er komið að leiðarlokum allt of
fljótt, mörgu var ólokið. Ég kveð
þig, kæra Gígí, og þakka fyrir
allt. Ástvinum votta ég innilega
samúð.
Valdís Helgadóttir (Dísa).
Ég vil í örfáum
orðum minnast hér
Tedda frænda
míns. Fyrstu minningar mínar
um hann er umræðan um par-
húsin sem þau systkinin, hann
og Abba, byggðu í Hvammi. Ein-
hvern veginn varð það þó svo að
Teddi flutti aldrei inn í sinn
helming. Hann settist að í Sand-
gerði. Á sumrin komu þau í
heimsókn, hann og Milla, þá var
mikið fjör við eldhúsborðið
heima á Brúarlandi, hlátur,
glens og gaman. Eftir að ég flyt
sjálf til Reykjavíkur komu þau
Aðalsteinn Krist-
björn Sigfússon
✝ AðalsteinnKristbjörn Sig-
fússon fæddist
þann 25. júní 1937.
Hann lést 15. júlí
2018.
Útför fór fram
frá Þórshafnar-
kirkju 21. júlí 2018.
stundum við hjá
mér með sendingar
úr sveitinni. Síðan
er það sumarið 1995
sem Teddi fær land
hjá pabba og byggir
þar nýbýlið Höfða
þar sem hann sér
vel yfir sveitina.
Hann hafði
breytt um stefnu í
lífinu og var fluttur
norður. Þeir voru
nánir vinir, pabbi minn og Teddi
bróðursonur hans. Báðir aldir
upp í Hvammi við almenn sveita-
störf þess tíma. Þarna er pabbi
orðinn einn í húsinu. Það var því
mjög kærkomið fyrir hann að fá
Tedda á Höfðann. Teddi var sér-
staklega orðheppinn og
skemmtilegur, hafði gaman af að
gantast svolítið, þeir voru góðir
saman, hann og pabbi. Báðir
með þá góðu eiginleika sem
margir Hvömmungar hafa, að
njóta dagsins. Teddi komst strax
í kynni við alla karlana í kring-
um pabba. Hann hafði gaman af
því að matreiða, baka og setti
sjálfur niður kartöflur. Mér eru
minnisstæðar mjólkurfernurnar
út um allt hús þar sem hann var
að forrækta.
Allur matur varð alltaf eins og
veisla hjá honum. Pabbi naut
góðs af þessu því oftar en ekki
borðuðu þeir veislumatinn sam-
an sem Teddi kom með ofan úr
húsi sínu. Það var gott að leita til
hans frænda míns ef eitthvað bil-
aði, s.s. slátturorfið í miðjum
garðslætti. Þá var hann strax
kominn til hjálpar. Teddi hafði
gaman af öllu sem hann fékkst
við. Þar voru veiðar í Hafralónsá
vinsælar, sérstaklega á silunga-
svæðinu sem hann lengi sá um,
sé hann sjálfan fyrir mér á veið-
um á árbakkanum með Svani fé-
laga sínum. Halli, góður vinur
Tedda, fór að koma mikið norður
til hans á þessum árum. Þeir
nutu þess að vera saman. Mikill
var söknuðurinn þegar hann lést
skyndilega nokkrum dögum eftir
að hann kom suður úr einni ferð-
inni á Höfða. Ég held að flestir
af körlunum hans pabba hafi
flutt sig upp á Höfða eftir að
hann lést 2008. Margir fleiri ef-
laust líka komið til liðs við hóp-
inn. Núna undanfarin ár hafa
þeir spilað brids hjá Tedda,
ungu bændurnir í kring komið í
kaffi og gleðin svifið yfir, svo
mikið er víst. Fyrir rúmu ári
greindist Teddi með krabbamein
og núna í júlí þegar ég hitti hann
var farið að draga verulega af
honum. Það fyrsta sem hann
sagði við mig var það að nú væri
hann líklega að fara. Hann væri
komin með leyfi frá lækninum til
að deyja heima. Vikuna sem ég
var fyrir norðan hitti ég hann
daglega og allt stefndi í sömu
átt. Íris dóttir hans vék ekki frá
honum síðustu vikurnar og
hugsaði einstaklega vel um
hann. Blessuð sé minning Tedda
frænda míns á Höfða og hafi
hann þökk fyrir hve vel hann
hugsaði um pabba minn síðustu
árin hans. Teddi var jarðsettur
við hliðina honum. Það er nú
ekki leiðinlegt fyrir þá að hvíla
þar saman. Börnum Tedda og
systkinum hans sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Sigrún Lilja Jónasdóttir
frá Brúarlandi.
Elsku Áslaug
mín, bara nokkur
kveðjuorð. Ég sakna
þín, eins og öll fjölskyldan gerir,
eilífa brosið þitt og góða skapið er
mér efst í huga. Þegar þið Björn
hófuð búskap í Stekkjargerði, var
ég í Grænumýri og stutt á milli,
enda fórum við oft á milli, fengum
okkur kaffisopa og spjölluðum
saman, mest um börnin, enda þau
á líkum aldri. En svo fluttuð þið
suður, þá var það bara síminn og
einstaka heimsókn á báða bóga.
Einu sinni sögðu dætur þínar mér
að þú værir að fá Alzheimer-sjúk-
dóm, mér fannst það svo ótrúlegt.
Ég kom í heimsókn nokkru seinna
og við drukkum kaffi eins og alltaf.
Þú varst nýbúin að telja lyfin þín í
vikubox en misstir allt á gólfið. Ég
ætlaði að hjálpa þér, en þú sagðist
tína þau upp sjálf og raða þeim á
dagana. Þú gerðir það og ég
Áslaug María
Þorsteinsdóttir
✝ Áslaug MaríaÞorsteinsdóttir
fæddist 5. ágúst
1939. Hún lést 14.
júlí 2018.
Áslaug var jarð-
sungin frá Akur-
eyrarkirkju 26. júlí
2018.
spurði Björn hvort
þetta væri rétt, hann
sagðist halda það,
það væri allavega
alltaf eins. Þá sagði
ég: „Þessi kona er
ekki með Alzheimer-
sjúkdóm!“ Enda
reyndist það vera
smá heilablæðing.
En fyrir tveimur ár-
um, á aðfangadag,
fékkst þú alvarlega
heilablæðingu og Áslaug mín, þá
varst þú alveg lömuð. Svona fóru
jólin, þú á spítala, alvarlega veik,
en fjölskyldan í ótta um þig. En þú
hafðir það af, en varst alveg löm-
uð. Svona lást þú í nærri tvö ár, en
Áslaug mín, alltaf brostir þú.
Björn var duglegur að heimsækja
þig á hverjum degi og sat og
spjallaði við þig. En svo í júlí í ár
fékkstu stærri blæðingu, sem
leiddi til þess að þú hvarfst yfir
landamærin miklu, sem við öll
þurfum að fara yfir. Ég bið Guð að
varðveita þig og gefa þér eilífan
frið og ró. Ég bið líka Guð að
vernda alla aðstandendur þína og
hjálpa þeim með sorgina. Vertu
Guði falin, Áslaug mín.
Þín mágkona,
Bára.
Ættingjar, vinir
og kunningjar
hverfa á braut hver
af öðrum og þeir
sem hverfa síðar og
síðast verða að horfa á eftir því
góða fólki.
Nú á sunnudaginn kvaddi ein
mín besta vinkona og frænka,
Ragnheiður Jónsdóttir frá Berja-
nesi í Vestmannaeyjum, þennan
heim.
Vorum við Ragnheiður svo nán-
ar vinkonur að þegar við mættum
á félagsfundi vorum við iðulega
kallaðar systurnar, okkur til mik-
illar gleði.
Það er með yl í hjarta sem ég
minnist allra góðu stundanna sem
Ragnheiður
Jónsdóttir
✝ RagnheiðurJónsdóttir
fæddist 10. apríl
1928. Hún lést 29.
júlí 2018.
Útför hennar fór
fram 7. ágúst 2018.
við Jónsteinn áttum
með þeim hjónum,
Ragnheiði og Ernst
Backman.
Saman fórum við í
ferðalög um okkar
fallega land, dönsuð-
um gömlu dansana
saman og þá iðulega
með fleira fólki.
Eitt lítið spor
í dagsins önn
í þúsund ár
og stendur enn
(Halldóra Helga Kristjándóttir)
Elsku vinkona, um leið og ég
kveð þig í hinsta sinn þá veit ég að
þinn elskulegi eiginmaður Ernst
og vinur ykkar, Steini, taka vel á
móti þér á áfangastað.
Samúðarkveðja til Þuríðar,
Jóns Rúnars og fjölskyldna.
Þin vinkona og frænka,
Halldóra Helga
Kristjánsdóttir.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EIRÍKUR HILMARSSON
framkvæmdastjóri Vísindagarða
Háskóla Íslands,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 8. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 17. ágúst
klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Aðalheiður Héðinsdóttir
Andrea Eiríksdóttir Hafþór Ægir Sigurjónsson
Héðinn Eiríksson Kristrún Aradóttir
Bergþóra Eiríksdóttir
og barnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
GUÐMUNDUR INGI BENEDIKTSSON,
fyrrv. stýrimaður og bílstjóri,
Sólvangsvegi 1,
lést miðvikudaginn 8. ágúst.
Útför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svala og Linda Guðmundsdætur
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
HELGI ÞRÖSTUR VALDIMARSSON,
læknir og prófessor emeritus,
sem lést á heimili sínu aðfaranótt
mánudagsins 6. ágúst, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju föstudaginn 17. ágúst klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á líknarfélög.
Guðrún Agnarsdóttir
Ásgeir Rúnar Helgason
Valdimar Helgason Helena Jóhannsdóttir
Birna Huld Helgadóttir Timothy S.P. Moore
Agnar Sturla Helgason Anna Rún Atladóttir
Kristján Orri Helgason Ingibjörg J. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
elskulegur faðir, tengdafaðir og kærleiksríki
afi,
HELGI FRÍMANN JÓNSSON
stýrimaður,
lést sunnudaginn 5. ágúst.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 14. ágúst
klukkan 13.
Fríða Friðgeirsdóttir
Eiríkur Aron Ingólfsson
Eyrún Ösp Ingólfsdóttir Orri Jóhannsson
Kristín Ruth Helgadóttir Jóhann Dalberg Sandridge
Jón Valur Helgason Eimana Farhad
og barnabörn
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
PAUL RICHARD FAWCETT SR.,
Dick,
lést 5. ágúst.
Birna Óskarsdóttir Fawcett
Þórunn Fawcett
Ósk Fawcett
Paul R. Fawcett Jr.
PO Box 732, Flowery Branch, Georgia 30542, USA.