Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.08.2018, Qupperneq 43
DÆGRADVÖL 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018 www.gilbert.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI ! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Veldu orð þín af kostgæfni. Allir taka eftir þér og því sem þú gerir. Einhver (þú veist ekki endilega hver) stenst ekki mátið og forvitnast um þig á bak við tjöldin. 20. apríl - 20. maí  Naut Gefðu þér tíma til að meta það sem þú átt. Breytingar eru í vændum í einkalíf- inu, til góðs. Allir vilja fá þig í sumarpartíin, því veldur smitandi hlátur þinn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Lánið virðist leika við þig þessa dagana og þér er óhætt að njóta þess með- an það stendur. Sýndu þolinmæði og fylgdu reglunum sem settar hafa verið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Sættu þig við orðinn hlut og láttu það vera að réttlæta málin eða afsaka þau fyrir sjálfum þér eða öðrum. Kynntu vini af gagnstæðu kyni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þolinmæði þín er ekki mikil þessa dag- ana. Sjáðu til þess að þú fáir næga hvíld. Sund er allra meina bót. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það getur verið fróðlegt að sækja fundi þar sem málin eru rædd vítt og breitt. Yfirlýsingar þínar tilheyra augnablikinu og svo líður það. Ekkert er eins vont og óviss- an. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér verður treyst fyrir miklu leynd- armáli og mátt alls ekki bregðast því trausti. Fæst er eins og virðist í fljótu bragði svo það skiptir sköpum að þú gefir þér nægan tíma. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að gera það upp við þig hvort þú ætlir að halda áfram í vinnunni eða ekki. Hlutirnir munu að öllum líkindum fara á allt annan veg en þú gerir ráð fyrir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er engin ástæða til þess að láta aðra sjá öll spilin, sem þú hefur á hend- inni. Mundu að treysta á þig eingöngu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Blandaðu ekki saman raunveru- leika og ímyndun því sú blanda getur reynst hin mesta ólyfjan. Fólk lofar þér miklu en á ekki eftir að standa við orð sín þegar til kastanna kemur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur afskaplega mikið á þinni könnu í dag. Aðili í ráðandi stöðu kann að hafa eitthvað mikilvægt að segja þér. Reyndu að halda í jákvæðnina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Í vændum er skemmtilegur og líf- legur tími. Ferðalög, fjörugt félagslíf og óvæntar fréttir. Gerðu hlutina vel eða slepptu þeim. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hann er burðarbjálki sver. Bestur á hendi þykir mér. Býsna hratt í hringi fer Hæð, sem fremur lágreist er. Sigmar Ingason svarar: Ásinn þakið uppi ber, ás í spilum bestur er, sveifarásinn sífellt snýst, syðst við Ásinn skjól er víst. Helgi Seljan á þessa lausn: Í húsi ásinn hugnast mér, hæsta spil í vist mun fá. Ás sem möndull einnig hér, við ásinn borna Hyrnu sá. Þá er það lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Mun hér átt við mæniás. Mannspil drepur ás. Sveiflast hringi sveifarás. Sveitir skilur ás. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Heila minn ei beysinn brýt um bjálka, öxul, spil og hæðina sem litla lít. Lausnin ás er til. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Fer undir mænisás í whist, hef ásinn, get þá slaginn kysst. Knastás ber mig heila heim um háan ás, frá spilum þeim. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Ás er burðarbjálki sver. Bestur ás á hendi mér. Ásinn hratt í hringi fer. Hæð er ás, sem lágreist er. Þá er limra: Lítill og grannur var Lenni lásasmiður frá Enni, og lítill var Lási frá Laugarási, en þeir voru mikilmenni. Og síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Lít, hvar úti leika sér litlu börnin kátu, meðan samið hef nú hér handa ykkur gátu: Ber það heiti bær í Ljósuvík. Á borðinu, sem útı́á gólfi stendur. Bara eintómt bull er saga slík. Bersýnilega er sá talsvert kenndur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kastað ás og daus Í klípu „HANN ER U.Þ.B. 20 SKREFUM TIL VINSTRI VIÐ ÞIG. NÆST SKALTU NOTA SOKKABUXUR EN EKKI GAMMÓSÍUR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JAFNVEL ÉG GET MÁLAÐ BETUR EN ÞETTA.!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera umhyggjusamur. SAGT ER AÐ ÞAÐ AÐ TALA VIÐ PLÖNTUR HJÁLPI ÞEIM AÐ VAXA ÉG HELD AÐ OLNBOGARNIR Á MÉR SÉU ÓSAMSTÆÐIR ÞÚ DRAPST HANA, FÍFLIÐ ÞITT! EKKI ALLTAF! VEISTU, SONUR SÆLL, STÚLKUR ÞROSKAST FYRR EN STRÁKAR! AMMA ER BARA NÝKOMIN MEÐ BÚKONUHÁR! Heimska er að vera alltaf heima hjásér. Víkverji reynir að flýja úr borginni hverja helgi. Fyrr í sumar heimsótti hann ónefndan hrepp á Vesturlandi og talaði í heila viku um að hann ætlaði vestur á land. Víkverji er, eins og nafnið gefur til kynna, úr Reykjavík og fór því í raun réttri norður á land, ekki vestur. x x x Reykvískir vinir Víkverja bentuhonum ekki á að hreppur þessi er í beinni línu norðan við höfuðborgina. Þeir eru ekki fróðari en hann sjálfur. Hann fór sem sagt með fleipur um höfuðáttirnar. Og átti eftir að fara með frekara fleipur þegar á vegi hans varð yfirgefið mannvirki frá síðustu öld og Víkverji deildi reynslu sinni með vinum sínum á samfélags- miðlum. x x x Obbolítill ruglingur varð í sagn-fræði staðarins hjá Víkverja. Hann hefði mátt orða sumt nákvæm- ar. Og honum hefndist fyrir það. Heimamaður dúkkaði upp í at- hugasemdum við færsluna sem lét Víkverja sannarlega heyra það. Vík- verja þótti auðvitað leitt að fara rangt með en vill þó meina að viðbrögðin hefðu mátt vera yfirvegaðri. x x x Kannski er ekki góð hugmynd aðláta forvitna ferðamenn mæta þessu viðhorfi. Það er ekki sjálfsagt fyrir byggðir landsins, eins og Vest- urland, að fólk leggi leið sína þangað. Heimamenn skulu ekki ganga að því vísu og það er ekki náttúrulögmál að ferðamenn hætti sér á þessar slóðir. Það er gæfa fyrir byggðir sem njóta góðs af túrismanum. Því liggur kannski beinar við að sýna þakklæti og auðmýkt. x x x Iðulega eru menn þó þakklátir að fáfólk í heimsókn. Tekið er vel á móti gestum og gangandi og lítil þorp úti á landi gleðjast yfir áhuga ferðamanna á staðnum. Víkverji lenti þó í einum sem virtist helst vilja að enginn kæmi á þennan afskekkta stað. Hann vildi eiga staðinn fyrir sjálfan sig því hann einn vissi hvað væri honum fyrir bestu. vikverji@mbl.is Víkverji Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálmarnir 106.1)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.