Morgunblaðið - 11.08.2018, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2018
Hans-Ola Ericsson, organisti og
prófessor við McGill-háskólann í
Montréal, leikur á tvennum tón-
leikum í Hallgrímskirkju um
helgina. Fyrri tónleikarnir eru í
dag kl. 12 og þar leikur hann verk
eftir Lindberg og Bach. Á seinni
tónleikunum, á morgun kl. 17, leik-
ur hann verk eftir Bach, Wagner og
Liszt.
Ericsson stundaði orgelnám í Sví-
þjóð, Þýskalandi, Bandaríkjunum
og Feneyjum. Árið 1989 var hann
skipaður prófessor í kirkjutónlist
og orgelleik við tónlistardeild Há-
skólans í Piteå/Luleå í Svíþjóð.
Hann hefur verið gestaprófessor
bæði í Ríga, Kaupmannahöfn, Hels-
inki og Amsterdam auk þess sem
hann hefur verið eftirsóttur kons-
ertorganisti og fyrirlesari á fjölda
orgelhátíða þar sem hann hefur
lagt ríka áherslu á nýja org-
eltónlist. Árið 1996 varð hann fast-
ur gestaprófessor í Bremen, Þýska-
landi og árið 2011 var hann
skipaður orgelprófessor við McGill
háskólann í Montréal í Kanada.
Ericsson leikur á Alþjóðlegu orgelsumri
Tónn Hans-Ola Ericsson við orgelið.
Hönnunarsafn Íslands
stendur fyrir sápukúlu-
vinnustofu á morgun,
sunnudag, milli kl. 13 og 15.
„Kúluformið var Einari
Þorsteini Ásgeirssyni arki-
tekt og stærðfræðingi afar
hugleikið, enda eitt af hag-
kvæmustu formum náttúr-
unnar. Í tengslum við skrán-
ingu á verkum Einars
Þorsteins í Hönnunarsafni
Íslands bjóða hönnuðirnir Björn Steinar Blumenstein og Steinunn Eyja
Halldórsdóttir upp á sápukúluvinnustofu fyrir börn og fullorðna. Þátttak-
endur búa til sín eigin sápukúluverkfæri og prófa sig áfram,“ segir í til-
kynningu.
Sápukúluvinnustofa í Hönnunarsafni
Sápa Vinnustofan er ætluð börnum og fullorðnum.
» Kammersveitin Eljaog Ung nordisk mus-
ik (UNM) stóðu fyrir
tónleikum í gærkvöldi í
Tjarnarbíói og endur-
taka leikinn í kvöld kl.
19.30. Elja, sem var
stofnuð fyrir ári, er
skipuð ungu tónlist-
arfólki sem flest er vel á
veg komið með að skapa
sér sess sem einleik-
arar, hljómsveitar-
spilarar og við hljóm-
sveitarstjórn eða
listræna stjórnun. Sam-
starf Elju og UNM er
liður í að tengja saman
unga flytjendur og ung
tónskáld á Íslandi til að
byggja upp góð vinnu-
sambönd og ýta undir
áframhaldandi sam-
vinnu þeirra á milli.
Kammersveitin Elja spilaði í Tjarnarbíói í gærkvöldi
Glöð Kjartan Þórsson og Anna Marín Þórsdóttir spöruðu ekki brosið.
Sæta fólkið Gunnar Kristinn Óskarsson, Saga Rut Sunnevudóttir og Steinn
Völundur Halldórsson á tónleikum í Tjarnarbíói í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
Lyklahús
Sláttuorf
3.495
5.495
rrulás
1.995
1.995
7.995
4.995
3.995
3.995
Kerrulás
Hjólastandur
á bíl
1.995
Tjaldstæðatengi
Tengi
12v í 230v
Hraðsuðuketill 12v
USB 12v tengi
ICQC 2018-20
» Kvikmyndin TheMeg var frumsýnd í
Bandaríkjunum fyrr í
vikunni. Hún fjallar um
áhættusama leit að risa-
hákarli. Jason Statham
leikur kafarann sem á
frumkvæðið að leitinni,
en meðal leikara er Ólaf-
ur Darri Ólafsson. Leik-
stjóri er Jon Turteltaub.
Myndin The Meg frumsýnd vestanhafs
Stuðboltar Vel fór á með þeim Sylvester Stallone og Jason Statham í frum-
sýningarboðinu, þar sem Stallone sýndi hvernig á að hnykla vöðvana.
Glaður Persónan sem Ólafur Darri
Ólafsson leikur í The Meg nefnist
The Wall. Hann var glaður á rauða
dreglinum þegar myndin var frum-
sýnd í Los Angeles. Myndin er úr
smiðju Warner Brothers Pictures.
AFP