Morgunblaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku . 595 1000 BENIDORM 60+ Frá kr. 124.995 9. SEPTEMBER 11 NÆTUR Frá kr. 139.995 6. SEPTEMBER 14 NÆTUR .A th. að ve MEÐ BIRGITTE BENGTSON Á HÓTEL MELIA BENIDORM **** Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Það er gott að niðurstaða sé komin í málið. Það var búið að bíða lengi eftir þessu og það er ánægjulegt að niðurstaðan sé svona afgerandi. Það gerir það að verkum að það þarf ekki að velkjast í vafa um þetta leng- ur,“ segir Leó Árnason, fram- kvæmdastjóri Sigtúns þróunar- félags, sem hefja mun framkvæmdir við byggingu nýs miðbæjar á Sel- fossi í september. Kosið var um deili- og aðalskipu- lag vegna miðbæjarins í íbúakosn- ingu í Árborg á laugardag og voru 58,5% hlynntir nýju aðalskipulagi og 39,1% andvígir. Hristi samfélagið saman „Það vilja allir íbúar nýjan miðbæ, en við verðum aldrei sammála um það nákvæmlega hvernig hann á að vera. Þetta er skýr niðurstaða og ég á von á því að þetta hristi samfélagið saman og að við fáum nú miðbæinn sem allir hafa beðið eftir,“ segir Leó. Áform Sigtúns gera ráð fyrir byggingu um 30 húsa sem byggð verða í tveimur áföngum. Húsin eiga það sammerkt að hafa horfið af sjón- arsviðinu, verið rifin eða brunnið og verða þau endurbyggð í miðbænum. Sigtún þróunarfélag hefur samið við Borgarverk um jarðvinnu og JÁ- VERK um byggingaframkvæmdir. „Næsta skref er að sækja um framkvæmdaleyfi og í framhaldinu munum við hefjast handa. Fyrsta skóflustunga verður í lok septem- ber,“ segir Leó. Aðspurður segir hann að þrátt fyrir að ekki hafi verið kosið um húsform í íbúakosning- unni, verði byggt í þeim stíl sem Sig- tún hafi kynnt. „Í samningi milli þróunarfélagsins og sveitarfélagsins er kveðið á um að okkur sé skylt að byggja í þessum stíl. Um leið og deiliskipulagið verður samþykkt, þá tekur þessi samningur gildi,“ segir hann. Ráðgert er að fyrsti áfangi verði tekinn í notkun um páska árið 2020 og seint á næsta ári hefjast fram- kvæmdir við síðari áfanga. Áætlað er að framkvæmdunum verði að fullu lokið árið 2021. Stærsta ein- staka framkvæmdin í fyrri áfanga er mathöll og skyrsetur Mjólkursam- sölunnar í endurbyggðu Mjólkurbúi Flóamanna. Boltinn er nú hjá Sigtúni Helgi S. Haraldsson, forseti bæj- arstjórnar Árborgar, lýsti yfir ánægju með góða kjörsókn í samtali við mbl.is í gær. „Síðan liggur það bara fyrir hvað íbúarnir vilja, að samþykkja þetta skipulag. Þetta fer nú áfram í lokaferli svo viðkomandi aðilar geti hafið framkvæmdir,“ sagði hann. Skiptar skoðanir voru meðal íbúa um hinn nýja miðbæ og einnig voru skiptar skoðanir í bæjarstjórn. „Það voru ekki allir bæjarfulltrú- ar meðmæltir þessu verkefni. Þegar málið var afgreitt á sínum tíma var það ekki gert með atkvæðum allra bæjarfulltrúa. Það var meirihluti bæjarstjórnar sem samþykkti þetta skipulag í febrúar,“ sagði Helgi. „Í framhaldi af því kom svo þessi undirskriftasöfnun með ósk um íbúakosningu sem var svo sam- þykkt í maí. Núverandi meirihluti bæjarstjórnar gaf það svo út fyrir kosningarnar að ef 29% tækju þátt yrði niðurstaðan bindandi. Í raun og veru hefur bæjarstjórn ekki meira um þetta að segja, við gáfum boltann til íbúanna að ákveða þetta. Það eina sem bæjarstjórn gerir núna er að klára lögformlegu hlið- ina á þessu og svo geta fram- kvæmdaaðilar hafist handa,“ sagði hann. Að því er fram kemur í áætlunum er m.a. ráðgert að í nýjum miðbæ Selfoss verði starfrækt verði mat- höll, söfn, verslanir, skrifstofur, skemmtistaðir, brugghús, tónleika- salir, krár og upplýsingamiðstöð. Í sumum húsanna verði einnig íbúðir. Hefjast handa strax í næsta mánuði  Vinna við miðbæ á Selfossi hefst í september  Ánægja með afgerandi niðurstöðu í íbúakosningu Miðbær Ráðgert er að fjölbreytt starfsemi verði í 30 húsum sem rísa í nýj- um miðbæ á Selfossi. Fyrsti áfangi verður tekinn í notkun um páska 2020. Ljósmynd/Sigtún „Þetta er mikilvægt verkefni. Að- staða iðkenda í knattspyrnu hefur verið mjög bágborin yfir vetr- armánuðina,“ segir Viðar Hall- dórsson, formaður Fimleikafélags Hafnarfjarðar, FH, sem í gær tók fyrstu skóflustunguna að nýju knatthúsi félagsins ásamt hópi barna og unglinga úr yngri flokk- um félagsins í knattspyrnu. Knatthúsið er þriðja knatt- spyrnuhúsið í Kaplakrika, fé- lagssvæði FH, og það langstærsta. Það er byggt fyrir fjármuni sem fé- lagið fær með því að Hafnarfjarð- arbær kaupir íþróttahús á svæðinu. Það mál veldur deilum í bæj- arstjórninni. Löglegur knattspyrnuvöllur rúmast í húsinu sem byggt verður á hluta æfingasvæðis knattspyrn- unnar. Viðar segir að félagið sé far- ið að huga að framkvæmdum og sjái fram á að geta gert þetta á hag- kvæman hátt. Stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun næsta vor. Morgunblaðið/Valli Iðkendur hófu fram- kvæmdir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir góða kartöfluuppskeru á Norðurlandi í haust. Lítil uppskera verður á Suðurlandi nema gott veður og frostlaust verði fram eftir hausti. „Það eru ágætis horfur á Eyja- fjarðarsvæðinu. Sæmilegar í Horna- firði en mismunandi annars staðar,“ segir Bergvin Jóhannsson á Áshóli í Grýtubakkahreppi, formaður Landssambands kartöflubænda. Bergvin telur að uppskeran í Eyjafirði verði vel í meðallagi en tek- ur fram að næstu tvær viku ráði miklu um niðurstöðuna. Ástæðan fyrir góðri uppskeru á Norðurlandi er gott veður í sumar. Hægt var að setja útsæðið niður snemma. Að vísu var maí frekar kaldur og hægði á sprettu. „Uppskeran væri enn betri ef sólar hefði notið meira við og þá væru menn byrjaðir að taka upp kartöflur og koma í hús, til að geyma til vetrarins,“ segir Bergvin. Töluvert er síðan kartöflubændur byrjuðu almennt að taka upp kart- öflur til að setja nýjar á markað, fyrst fljótsprottnu afbrigðin. Kartöflugarðar í Þykkvabæ fóru illa í rigningum í vor, sérstaklega í úrhellinu um og í kringum kosninga- helgina. „Það fór allt á flot, kartöflu- grös drukknuðu í einhverjum görð- um og skemmdust að hluta í öðrum,“ segir Óskar Kristinsson, kartöflu- bóndi í Þykkvabæ. Hann segir að sumir bændur hafi þá verið búnir að setja niður í um eða meira en helm- ing garða sinna og hafi farið illa út úr bleytunni. Hætta á næturfrostum Eftir mikið rigninga- og sólarleys- issumar hefur ágústmánuður verið ágætur. „Það hefur heilmikið gerst síðustu þrjár vikur en enn vantar heilmikið upp á viðunandi uppskeru. Við þurfum lengra sumar, gott veður og frostlaust fram eftir september. Þá gæti uppskeran orðin þolanleg en hætta er á að það geti gert nætur- frost,“ segir Óskar. Áburður skolaðist úr görðunum í rigningunum og hafa bændur í Þykkvabæ verið að úða áburði á blöðin til að þess að reyna að bæta úr. Segir Óskar að því fylgi töluverð- ur kostnaður. Þurfum lengra sumar  Útlit fyrir lélega uppskeru í Þykkvabæ en góða í Eyjafirði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þykkvibær Ekki er byrjað að taka upp kartöflur til vetrarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.