Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Nánar á www.BILO.is Ford Transit Double Cab 350 - L3 FWDNÝR Eigumeinnig 4WDá lager hendingar strax TILBOÐ 3.999.000 +vsk Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Efnt verður NATO-heræfingarinnar Trident Juncture 25. október nk. Að því er fram kemur á vef Varðbergs verður undanfari aðalæfingarinnar hér á landi og á hafinu umhverfis Ís- land. „Í aðdragandanum fer lítill hluti Trident Juncture fram hér á landi, en það er enn verið að útfæra ná- kvæmlega með hvaða hætti það verður. Þetta er formlegur hluti æf- ingarinnar, en aðalhluti hennar fer þó fram í Noregi,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi ut- anríkisráðuneytisins, en hann segir að íslenski hluti æfingarinnar verði mun smærri í sniðum en aðalæfing- in. Von er á skipum NATO-þjóða hingað til lands sem taka munu þátt í æfingunum hér áður en þau halda til Noregs. Fyrirhugað er að Landhelg- isgæslan eigi sameiginlega æfingu með dönskum varðskipum á sviði leitar og björgunar, í tengslum við Trident Juncture. Í aðalæfingunni í Noregi verður þýskt stórfylki í fararbroddi, um 8 þúsund menn, að því er fram kemur á vef þýska fréttamiðilsins DW. Um 40 þúsund menn munu taka þátt frá meira en þrjátíu löndum. Hervarnir í lofti, á sjó og landi verða æfðar. 120 flugvélar, 70 skip og 10 þúsund far- artæki munu taka þátt í æfingunni og stefnt er að því að Þjóðverjar sendi 200 brynvarða vígdreka til æf- ingarinnar, þar af 20 Leopard skrið- dreka. Farartæki þýskra hermanna verða um tvö þúsund alls. „Þetta er afar stór æfing, um 40 þúsund manna lið tekur þátt í henni undir 5. gr. NATO-sáttmálans um sameiginlegar varnir. Það er líka at- hyglisvert að Svíar og Finnar, sem eru ekki NATO-þjóðir, taka líka þátt í æfingunni,“ segir Sveinn, en í frétt DW segir að heræfingin gæti verið sú stærsta frá lokum kalda stríðsins. „Þegar aðalæfingunni er lokið verður síðan haldin svokölluð skrif- borðsæfing þar sem netvarnir verða í brennidepli. Það verður athyglis- vert líka,“ segir Sveinn. Fást við ís, leðju, regn og snjó Bandaríski flotaforinginn James G. Foggo III, fer með æðstu stjórn æfingarinnar, en í júní sagði hann að tilgangurinn með æfingunni væri að æfa varnir og að hún ætti að sýna að brugðist yrði hart við hvers kyns ógn, úr hvaða átt sem væri á hvaða tíma sem væri. Foggo er sjálfur kaf- bátaforingi og verður á hafi úti við strönd Noregs meðan á æfingunni stendur. Foggo hefur fagnað þátt- töku Svía og Finna í æfingunni og sagt þá nánustu og færustu banda- menn NATO. Christian Juneau, kan- adískur hershöfðingi, mun stjórna landher NATO í Noregi. Fulltrúi Noregs í hermálanefnd NATO, norski flotaforinginn Ketil Olsen, sagði að Norðmönnum gæfist kostur á því með æfingunni að láta reyna á varnir sínar við krefjandi veðurfar, þar sem hitastig yrði í kringum frostmark. Sveitir NATO myndu fást við ís, leðju, regn og snjó og fá reynslu af sameiginlegum vörnum rétt neðan norðurheim- skautsbaugs. Ennfremur myndu Norðmenn læra hvernig það reynist að taka á móti liðsauka. Æfing NATO hefst á Íslandi  Nákvæm útfærsla liggur ekki fyrir Morgunblaðið/Ómar Þór Varðskipið Þór í Reykjavík. Áformað er að Landhelgisgæslan eigi með dönskum varðskipum sameiginlega æf- ingu á sviði leitar og björgunar í tengslum við Trident Juncture. Þá fer lítill hluti heræfingarinnar fram hér á landi. Alls voru 14.579 hlauparar skráðir til þátttöku í Reykjavíkurmaraþon- inu sem haldið var á laugardag í 35. sinn. Veður var hið besta sem gerði daginn góðan, bæði fyrir hlaupara og áhorfendur. Áheitasöfnun gekk frábærlega en 24% hærri upphæð safnaðist en í fyrra. Í heildina voru söfnuð áheit 130 milljónir króna, borið saman við 118 milljónir króna á síðasta ári. Söfnun áheita er opin til miðnættis í kvöld, mánudag. Benjamin Paul Zywicki frá Bandaríkjunum sigraði í maraþoni karla í Reykjavíkurmaraþoninu að þessu sinni. Hann hljóp á 2:23:43, sem er 9. besti tíminn sem náðst hefur í karlaflokki frá upphafi. Maraþonið er einnig Íslands- meistaramót og var sigurvegari þar og jafnframt þriðji í heild- arkeppninni Arnar Pétursson. Hann hljóp á 2:26:43 sem er besti tími sem Íslendingur hefur náð í maraþoni karla í Reykjavík- urmaraþoni frá upphafi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ÍBR, en starfsfólk þess hafði venju sam- kvæmt undirbúning og framkvæmd viðburðarins með höndum. Morgunblaðið/Valli Reykjavíkurmaraþon Þátttakan í ár var góð enda eru hlaup almenn- ingsíþrótt sem æ fleiri stunda. Gott veður nú jók á gleði keppenda. 14.579 hlauparar  Arnar náði besta tíma Íslendings

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.