Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Fjölbreytt dagskrá fyrir tónlistarunnendur
Harpa Rósa Jónsdóttir, Birgir Thorlacius, Vaka Rúnarsdóttir og Magnús
Thorlacius fóru í bæinn og fylgdust með því sem boðið var upp á.
Menningarnótt Kristín Maguire, Aldís Jónsdóttir og Andrea.
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
Von er á fjölda innlendra og er-
lendra listamanna á viðburðinn en
hátíðin er styrkt af mennta-
málaráðuneytinu, Reykjavíkurborg,
Nordbuk, Menningaráætlun ESB og
Erasmus+.
Metnaður og ástríða
Reykjavik Dance Festival hóf
göngu sína árið 2002 og hefur með
árunum orðið ein af meginstoðum ís-
lensks danssamfélags. „Hátíðin var
stofnuð af ungum íslenskum dans-
höfundum og áttu þau það flest sam-
eiginlegt að vera nýkomin heim til
Íslands eftir nám erlendis. Það vakti
m.a. fyrir þeim að skapa nýjan vett-
vang til að sýna verk sín, til að geta
starfað á eigin forsendum. Úr varð
að efna til hátíðar þar sem þau gætu
komið sér og verkum sínum á fram-
færi,“ segir Ásgerður og bætir við að
fyrir þennan tíma hafi íslenskir
danshöfundar einkum getað komið
verkum sínum fyrir augu almenn-
ings á sýningum Íslenska dans-
flokksins eða á sjálfstæðum sýn-
ingum sem voru æði fáar.
Að sögn Ásgerðar voru stofnendur
hátíðarinnar drifnir áfram af miklum
metnaði og ástríðu og hátíðin bæði
óx og þróaðist í tímans rás. „Árið
2012 ákvað stjórn hátíðarinnar að
ráða í fyrsta skipti tvo listræna
stjórnendur, og voru það Halla
Ólafsdóttir og Emma Kim Hagdahl
sem tóku við keflinu. Þær umturn-
uðu hátíðinni á ýmsan hátt og buðu
15 íslenskum og 15 erlendum döns-
urum og danshöfundum að leiða
hesta sína saman í lauslega skipu-
lagðri dagskrá samvinnu og sýninga.
Útkoman varð líflegt og skapandi
samfélag, og heilmikið pönk,“ út-
skýrir Ásgerður. „Ári síðar tóku
Erna Ólafsdóttir og maðurinn henn-
ar Valdimar Jóhannsson við stjórnun
hátíðarinnar og þau fóru alveg í hinn
pólinn: fluttu inn samtímadansverk
Vildu skapa nýjan vettvang
Reykjavik Dance Festival hefst í dag
og von á þátttakendum frá fjölda landa
Danslistirnar njóta mikils meðbyrs
en eiga ekki enn sitt eigið heimili
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Á flugi „Íslenska dans-
listasenan er orðin
miklu betur tengd um-
heiminum og ný tæki-
færi að bjóðast íslensk-
um danslistamönnum
til að starfa erlendis,“
segir Ásgerður Gunn-
arsdóttir.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Kannski er óhætt að ganga svo langt
að segja að blómaskeið sé runnið upp
á íslensku danslistasenunni. Fjöldi
efnilegra íslenskra dansara og dans-
höfunda hefur komið fram á sjón-
arsviðið á undanförnum árum og um
leið er eins og almenningur sé farinn
að gefa danslistunum meiri gaum en
áður.
Þegar Ásgerður Gunnarsdóttir er
beðin um að útskýra hvað það sé sem
valdi segir hún að það hafi vafalítið
haft mikil áhrif þegar byrjað var að
bjóða upp á listdansnám á há-
skólastigi við LHÍ um miðjan síðasta
áratug. Öll umgjörð danslista hafi
líka batnað jafnt og þétt: „Íslenskir
dansarar fengu betra tækifæri til að
mennta sig, bæði innanlands og er-
lendis, og til að halda áfram að þróast
sem listamenn. Það getur hæglega
tekið dansara eða danshöfund nokk-
ur ár að uppgötva nákvæmlega hvar
hann stendur í sinni list, svo að
sprengingin kom ekki um leið, en í
dag búum við að því að eiga fjöl-
mennan og ört stækkandi hóp sem
kominn er á þennan stað og jafnvel
lengra,“ segir Ásgerður. „Áhorf-
endur eru líka orðnir betur meðvit-
aðir um hvað dans gengur út á, og
hvað dansheimurinn er fjölbreyttur.
Úrvalið af danssýningum er allt ann-
að en það var, og flestir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.“
Ásgerður á líka sinn þátt í þessari
þróun en hún er, ásamt Alexander
Roberts, listrænn stjórnandi Reykja-
vik Dance Festival (www.reykjavik-
dancefestival.is). Hátíðin skiptist í
þrjár lotur sem dreifast á vor, sumar
og haustmánuðina. Sumarlotan,
ágústhátíðin, hefst í dag, 20. ágúst,
og lýkur 1. september.