Morgunblaðið - 20.08.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Ég er gæfumaður að hafa átt þess kost að starfa á vettvangikirkjunnar. Starfið felst í fjölbreyttri þjónustu við fólk í ólík-um aðstæðum út frá boðskap sem lifað hefur í þúsundir ára
og staðið af sér hugmyndir og heimsveldi,“ segir sr. Skúli Sigurður
Ólafsson sóknarprestur við Neskirkju sem er fimmtugur í dag.
Sr. Skúli er fæddur í Reykjavík og fljótlega eftir stúdentspróf hóf
hann nám við guðfræðideild Háskóla Íslands. Hann vígðist svo til
prestþjónustu á Ísafirði árið 1997. „Við konan mín, Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, nú lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, fórum til
náms í Kaupmannahöfn árið 1995, svo lá leiðin vestur á Ísafjörð þar
sem við vorum í tæpan áratug með drjúgri millilendingu í Svíþjóð. Ár-
ið 2006 tókum við hvort við sínu embættinu í Keflavík, og þar bjugg-
um við til ársins 2015 þegar við komum aftur til Reykjavíkur og til
starfa hér. Þetta var tuttugu ára viðburðaríkt ferðalag.“
Sr. Skúli og Sigríður Björk eiga þrjú börn, á aldrinum 27 til sjö ára
og eitt barnabarn og búa í Vesturbænum í Reykjavík. Því fylgir að
Skúli, sem er að upplagi Víkingur, hefur nú auga með KR og fylgist
með yngsta syninum á leikjum og æfingum í Frostaskjóli.
„Afmælisdagurinn hjá mér fer í vinnu; fermingarfræðsluna sem er
skemmtileg. Krakkar eru eldklárir og þekkja ekki annað en vel skipu-
lagt og uppbyggjandi starf í skólum og íþróttum. Það veganesti
þeirra skilar sér beint út í lífið,“ segir sr. Skúli. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Prestur Þetta var tuttugu ára viðburðaríkt ferðalag, segir sr. Skúli
Starfið er bæði boð-
skapur og þjónusta
Sr. Skúli Sigurður Ólafsson er 50 ára í dag
H
líf Sturludóttir fæddist
á Fæðingarheimilinu í
Reykjavík 20.8. 1968
og ólst upp í Árbæn-
um fram að tíu ára
aldri og flutti þaðan í Seljahverfið.
Hún var í Árbæjarskóla, Öldusels-
skóla og lauk grunnskólanámi í Selja-
skóla. Þá var hún mikið hjá ömmu
sinni í Kópavogi svo þar á hún einnig
æskuslóðir: „Foreldrar mínir áttu
sumarhús í Eilífsdal í Kjós og vorum
við þar langdvölum. Milli okkar og
ábúendanna í Eilífsdal þróaðist mikil
vinátta sem stendur enn óhögguð.
Þar komst ég í návígi við húsdýr af
ýmsu tagi, einkum hesta sem ég tók
snemma ástfóstri við. Í Eilífsdal hóf
ég mína hestamennsku á barnsaldri
en Hulda Þorsteinsdóttir í Eilífsdal
var uppalandi minn í hestamennsku.
Ég sótti mikið í Kjósina, dvaldi í sveit
á sumrin í Eilífsdal og á því þar einn-
ig mikilvægar æskuslóðir og minn-
ingar úr Kjósinni.“
Hlíf lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1988, stundaði nám
í viðskiptafræði við Háskóla Íslands
og lauk þaðan cand.oecon.- prófi árið
1993 af fjármála- og markaðssviði.
Að námi loknu varð Hlíf fjármála-
stjóri hjá Saga film, var síðan aðal-
bókari hjá Glitni – eignaleigu-
fyrirtæki og síðan ráðgjafi í eigna-
stýringu hjá VÍB.
Árið 1999 flutti fjölskyldan til Skot-
lands þar sem Hlíf stundaði nám við
Edinborgarháskóla og lauk MBA-
prófi árið 2000.
Hlíf hóf störf hjá Kaupási 2002 og
var deildarstjóri fjárreiðudeildar
Samskipa 2003-2005. Þá ákvað hún að
starfa á eigin vegum á sviði fjárfest-
inga, eignastýringar, ráðgjafar og
stjórnarstarfa og hefur sinnt fyrir-
tækjarekstri síðan. Hún er nú m.a.
stjórnarformaður GAMMA, Fram-
tíðarinnar – lánasjóðs og Húss versl-
unarinnar, situr í stjórn Norlax A/S
og ýmissa annarra félaga.
Hlíf var skáti á unglingsárunum og
félagi í skátafélaginu Garðbúum: „Ég
stundaði alltaf útiveru og göngur en í
Hlíf Sturludóttir framkvæmdastjóri – 50 ára
Börnin Talið frá vinstri: Magnús, Andri, Nína Kristín, Birta og Áslaug Arna.
Bændablóðið ólgar
í æðum bissnesskonu
Hlíf og Sigurbjörn Þau þekkja bæði Kjósina, hann ættaður frá Kiðafelli.
Hvanneyri Rafnar Ægir
Hannesarson fæddist hinn
20.12. 2017 kl. 6.23. Hann
vó 4.190 g og var 52 cm
langur.
Foreldrar hans eru Anna
Kristín Gunnarsdóttir og
Hannes Bjarki Þor-
steinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is