Morgunblaðið - 20.08.2018, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
»Gestir Menningarnætur fengu á
laugardag tækifæri til að sjá brot úr
dagskrá komandi starfsárs tónlistar-
hússins Hörpu, sem vígt var á Menn-
ingarnótt árið 2011. Sinfóníuhljómsveit
Íslands hélt tvenna tónleika. Tónlist-
arhópar á borð við Umbra Ensemble,
Voces Thules og Óperuakademíu unga
fólksins glöddu gesti með tónum og há-
tíðirnar Reykjavík Classics og Blúshá-
tíð í Reykjavík sem og Múlinn kynntu
brot úr dagskrám sínum. Leikhópurinn
Lotta steig á stokk og tónlistarmúsin
Maxímús Músíkús lét sig auðvitað ekki
vanta.
á opnu húsi í Hörpu á Menningarnótt
Skemmtun Björgvin Marinó, Matthildur og Íris Scheving.
Fjör Barbara, Rakel Eva og Karólína Júlía létu sig ekki vanta.Morgunblaðið/Valli
Gaman Guðrún Hrund Harðardóttir
og Margrét Hrafnsdóttir.
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
frá Evrópu og Japan og efndu til sýn-
inga á heimsmælikvarða. Svo komum
við Alexander og höfum haldið um
stjórnartaumana í um fjögur ár.“
Virkjun danssamfélagsins
Það var undir stjórn Ásgerðar og
Alexanders að úr varð að búta
Reykjavík Dance Festival í þrennt: „Í
ár byrjuðum við í mars með hátíð sem
hét Únglingurinn í Reykjavik. Eins
og nafnið gefur til kynna var hátíðin
sniðin að heimi unglinganna og unn-
um við að hátíðinni í samstarfi við
listrænt ráðgjafateymi unglinga,“
segir Ásgerður. „Á hátíðinni í ágúst
er áherslan aftur á móti á dans-
samfélagið, endurmenntun og vinnu-
stofur. Unglingaþemað lifir þó áfram
og haldnar eru vinnustofur fyrir ung-
linga samhliða öðrum dagskrárliðum.
Í nóvember störfum við síðan með
leiklistarhátíðinni Lókal og fram-
leiðum saman alþjóðlegu sviðs-
listahátíðina Everybody’s Spectacul-
ar.“
Af viðburðum ágústhátíðarinnar er
rétt að vekja sérstaka athygli á flutn-
ingi á verkinu Shadows of Tomorrow
eftir Ingri Fiksdal. „Dagskráin sam-
anstendur aðallega af vinnustofum á
Dansverkstæðinu á Hjarðarhaga, en
verk Fiskdal sýnum við um miðbik
hátíðarinnar í fjölnota rými Lista-
safns Reykjavíkur í Hafnarhúsi.“
Ingri Fiksdal er merkilegur dans-
höfundur. Hún er frá Noregi og
stundar doktorsnám í listrann-
sóknum þar sem hún leggur áherslu
á rannsóknir á kóreógrafískum að-
ferðum til að ná fram áhrifum hjá
áhorfendum. „Shadows of Tomorrow
sprettur upp úr verkinu Band sem
hún samdi árið 2012 en í stuttu máli
sagt fær hún til liðs við sig um 20
ungmenni frá Íslandi og Ítalíu og
vinnur með þeim í fimm daga að und-
irbúningi sýningarinnar. Dans-
ararnir fá töluvert frelsi og taka þátt
í sköpuninni en innan ramma sem
Fiksdal hefur markað. Hún freistar
þess m.a. að hreyfing líkamans komi
í stað tónlistar, og það framkalli hug-
víkkandi áhrif hjá þeim sem fylgist
með,“ segir Ásgerður en Shadows of
Tomorrow verður sýnt á laugardag
kl. 18 og aftur kl. 20 og aðgangur
ókeypis.
Hvar á dansinn heima?
Ásgerður segir Reykjavik Dance
Festival hafa reynst mikilvæg víta-
mínsprauta fyrir íslenska dansara
og danshöfunda. Þar hafi tekist að
skapa brú út í heim, og vettvang þar
sem innlendir og erlendir listamenn
starfa saman, blómstra, þroskast og
stækka tengslanetið. „Íslenska
danslistasenan er orðin miklu betur
tengd umheiminum og ný tækifæri
að bjóðast íslenskum dans-
listamönnum til að starfa erlendis,“
bendir hún á.
En betur má ef duga skal og segir
Ásgerður að danslistir á Íslandi líði
fyrir það að hafa ekki sitt eigið hús
helgað þessu listformi. „Ótrúlega
mikið hefur gerst á skömmum tíma,
og nú síðast að Dansverkstæðið opn-
aði aðstöðu sína á ný á Hjarðarhaga í
rými sem áður hýsti þjónustu-
miðstöð Reykjavíkurborgar. Rým-
inu hefur verið breytt í framúrskar-
andi vinnurými fyrir sjálfstætt
starfandi danslistamenn en sýning-
arrými fyrir danssýningar vantar
enn.“
Danslistamenn hafa aðallega
fengið inni hjá Tjarnarbíói en keppa
við sýningar af öðrum toga um laus
pláss enda er sjálfstæða listasenan
orðin æði stór og heldur bara áfram
að stækka. „Ekki er heldur hægt að
stóla á að geta komist að hjá stofn-
unum eins og Borgarleikhúsinu eða
Þjóðleikhúsinu enda þau með sínar
eigin sýningar og þær hafa oftast
forgang. Hvergi er það dansinn sem
fær að vera í aðalhlutverki, og fær að
eiga vísan samastað – og því þarf að
breyta,“ segir Ásgerður.
Aðspurð hvernig hún myndi vilja
að íslenskt danshús væri úr garði
gert segir Ásgerður að leita megi
fyrirmynda í höfuðborgum hinna
Norðurlandaríkjanna sem allar eru
með sitt eigið danshús. „En við þurf-
um umfram allt að finna það módel
sem hentar okkar þörfum. Ég sé fyr-
ir mér hús þar sem Íslenski dans-
flokkurinn gæti haft aðsetur sitt, en
væri líka aðsetur fyrir sjálfstæða
geirann. Þar væru haldnir opnir
danstímar á daginn fyrir áhugasamt
fólk á öllum aldri og síðan danssýn-
ingar á kvöldin. Fyrir mestu væri að
þetta hús væri staður þar sem Ís-
lendingar myndu vita að dansinn
ætti heima.“
fyrir dansinn
Ljósmynd / Anders Linden
Hnútur Úr verkinu Shadows of Tomorrow sem sýnt verður um næstu helgi.