Morgunblaðið - 21.08.2018, Side 10

Morgunblaðið - 21.08.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 * V ið m ið u n a rt ö lu r fr a m le ið a n d a u m e ld s n e y ti s n o tk u n í b lö n d u ð u m a k s tr i. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 3 3 8 TÖFFARINN Í FJÖLSKYLDUNNISTAÐALBÚNAÐUR Í NISSAN JUKE ACENTA+ ER M.A.:Lykillaust aðgengi og ræsing, 18“ álfelgur, rafdrifið sólþak, bakkmyndavél, leiðsögukerfi með Íslandskorti o.m.fl. ALMENNTVERÐ: 4.290.000 KR. TILBOÐSVERÐ: 3.890.000KR. NISSAN JUKEACENTA+ BENSÍN / FJÓRHJÓLADRIFINN / SJÁLFSKIPTUR 190 HESTÖFL / EYÐSLA 6,5 L/100 KM* Jessenius-læknaskólinn er í há- skólabænum Martin í norðurhluta landsins, nærri landamærunum að Póllandi og Tékklandi. Þar búa ríf- lega 60 þúsund manns. Runólfur segir námið mikils metið á Norðurlöndum, til dæmis í Noregi og Svíþjóð. Nokkrir íslenskir nem- endur hafi tekið fyrstu þrjú árin í Slóvakíu og svo hafið nám við lækna- deild Háskólans í Suður-Danmörku, SDU. Það vitni um gæði námsins. Hann segir íslensku nemendurna standa sig vel á inntökuprófinu. Um 80% þeirra nái prófinu. Til saman- burðar nái innan við helmingur þátt- takenda inntökuprófinu í Noregi. Undanfarin ár hafi um 25 íslenskir nemendur hafið nám við skólann. „Nú stefnir hins vegar í að þeir verði um 40. Það eru nemendur sem eru staðráðnir í að standa sig. Það er skyldumæting í tíma í byrjun náms. Ef nemandi er tekinn tvisvar upp ólesinn er hann sendur heim. Slíkt gera nemendur aðeins einu sinni. Það er byrjað strax á verklegu námi. Þetta er erfitt nám,“ segir Runólfur. Nýtt sjúkrahús í smíðum Runólfur segir íslensku nemend- urna afar ánægða með aðstöðuna. Aðbúnaður sé eins og best verður á kosið og tækjabúnaður í verklegum deildum góður. Nýtt kennslusjúkra- hús sé í smíðum með 440 rúmum. Þá sé veðurfarið gott og kostnaður við uppihald miklu lægri en á Íslandi. Húsnæði sé um þrisvar sinnum ódýrara en matur fjórum sinnum ódýrari en á Íslandi. Þá séu flugsam- göngur góðar til og frá Íslandi og flugfargjöld hagstæð. Borgin sé í Mið-Evrópu og þægilegt að ferðast um álfuna. Stutt sé í skíðasvæði. Árið kostar 1,2 milljónir Námsárið kostar 9.900 evrur, eða sem svarar 1.220 þúsund krónum. Sex ára nám kostar því 7,3 milljónir og er námið lánshæft hjá LÍN. Ár- gjaldið er óbreytt út námsferilinn. Þrettán deildir eru við Comenius- háskóla og þar eru skráðir um 30 þúsund nemendur frá yfir 40 þjóð- löndum. Erlenda deildin við Jessenius- læknaskólann var opnuð árið 1991. Stjórnendur skólans lögðu áherslu á að fá nemendur frá Skandinavíu. Það var svo eins og áður segir árið 2012 sem fyrstu nemendurnir komu frá Íslandi. Þeir þreyttu prófið síðla í ágúst og hófu námið í september. Fyrstu nemendurnir útskrifaðir  Árið 2012 tóku fyrstu íslensku nemendurnir inntökupróf í læknadeild Comenius-háskóla í Slóvakíu  Þeir fyrstu hafa lokið námi  Umboðsmaður skólans segir 160-170 íslenska nema verða þar í haust Ljósmynd/Luka Brase Útskrift í vor Talið frá vinstri: Erna Markúsdóttir, Þórdís Magnúsdóttir, Brynjar Jochumsson, Erika Halasova, varadeildarforseti alþjóðlegrar læknadeildar háskólans, Sveinn Rafnar Karlsson og Runólfur Oddsson. Á föstudaginn kemur » Inntökuprófið fer fram í stofu 205 í Menntaskólanum í Kópavogi næstkomandi föstu- dag, 24. ágúst, kl. 9. » Þátttakendur greiða ekki þátttökugjald fyrir prófið. » Tekið er á móti umsóknum á kaldasel@islandia.is. VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árið 2012 var haldið fyrsta inntöku- prófið á Íslandi í Jessenius-lækna- skólann í Martin í Slóvakíu. Tólf þreyttu prófið og níu náðu því. Fjórir þessara níu útskrifuðust nú í vor. Þá hafa nokkrir lokið læknaprófi frá Danmörku sem hófu nám í Martin. Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvakíu á Íslandi, er umboðsmaður Comenius-háskóla á Íslandi. Jess- enius-skólinn er deild í háskólanum. Hann segir áhugann á náminu hafa aukist ár frá ári. Um 60 íslensk- ir nemar muni þreyta inntökuprófið í ár. Að óbreyttu verði 160-170 ís- lenskir nemar við skólann í haust. Af þeim eru nokkrir tugir í sambúð. Comenius-háskóli í Bratislava er stærsti háskóli Slóvakíu með um 30 þúsund nemendur. Kennt á slóvakísku Tvær læknadeildir eru við skól- ann; önnur í höfuðborginni Bratis- lava en hin í Martin. Deildin í Martin er tvískipt. Annars vegar er um þús- und manna deild fyrir heimamenn þar sem kennslan fer fram á slóvak- ísku. Einn af hverjum tíu umsækj- endum kemst að. Hins vegar er al- þjóðleg læknadeild þar sem kennslan fer fram á ensku. Nemend- ur í þeirri deild þurfa þó að læra slóvakísku. Á þriðja ári þurfa þeir að tala málið fyrir verklega hlutann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.