Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 25 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Opið fyrir inni- og útipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 Yngingar yoga kl. 9.-9.50 allir velkomnir. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Boccia 10.40-11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur kl. 13:00. Opið kaffihús 14.30- 15.15. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14.-15.30. Félag eldri borgara í Garðabæ 565-6627 skrifstofa opin miðvikudaga 13.30-15.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30 útvarpsleikfimi kl. 9.45 hádegismatur kl. 11.30 bridge kl. 13. gönguferð kl. 13.30 og eftir- miðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. við hringborðið kl.8.50 listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16 brids kl.13, bókabíll kl.14.30 bónusbíll 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir óháð aldri nánari í síma 411-2790. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi Sundlaug Seltj. klukkan 7.15. Kaffispjall í króknum klukkan 10.30. Pútt á gólfvellinum klukkan 13.30. Bridge í Eyðismýri klukkan 13.30. Karlakaffi í kirkjunni klukkan 14. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn ke- mur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Til sölu Lok á heita potta og hitaveitu- skeljar Stærðir í cm: 200x200, 210x210, 220x220, 235x235, 235x217, 217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000 kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein- angruð og koma með 10 cm svuntu. Sterkustu lokin á markaðnum. Litir: Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að auðvelda opnun á loki. www.heitirpottar.is Sími 777 2000 Haffi og 777 2001 Grétar Bókhald NP Þjónusta Býð fram liðveislu við bókanir, reikn- ingsfærslur o.fl. Hafið samband í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á mbl.is alltaf - allstaðar Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is ✝ Kristján Ás-mundsson fæddist í Ferjunesi í Villingaholtshreppi 23. maí 1937. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands 5. ágúst 2018. Foreldrar hans voru hjónin Oddný Kristjánsdóttir, f. á Minna-Mosfelli í Mosfellssveit 3. september 1911, d. 5. maí 2007, og Ásmundur Eiríksson, f. 20. maí 1908 í Efri-Gróf, d. 27. nóv- ember 2006. Bræður Kristjáns eru Eiríkur, f. 10. september 1934, og Ingjaldur, f. 7. maí 1944, maki Kristín Þ. Ólafsdóttir, f. 13. maí 1959, d. 3. júlí 2016. Kristján kvæntist 6. október 1962 eftirlifandi eiginkonu sinni, Aðalheiði Kristínu Alfonsdóttur, f. í Bolungarvík 27. mars 1944. Foreldar hennar voru Hansína Kristín Hansdóttir, f. í Efsta-Dal í Ísafjarðardjúpi 5. nóvember skera- og kjólameistari. 4) Eirík- ur Steinn, járnsmiður, f. 4. júlí 1976, maki Kolbrún Inga Hoff- ritz. Þau eiga tvíburana Sesselju Þyrí og Þuríði Silju. 5) Benedikt Hans, vélsmiður og búfræðingur, f. 26. október 1977, sonur hans er Kristján Örn. Kristján ólst upp í Ferjunesi og bjó þar alla tíð, hann gekk í Vill- ingaholtsskóla en seinna fór hann í íþróttaskólann í Haukadal. Kristján vann við bú foreldra sinna ásamt bræðrum sínum í Ferjunesi. Hann hóf síðar at- vinnurekstur, en 19 ára eignaðist hann sinn fyrsta vörubíl og keyrði möl af eyrunum við Ferju- nes á Selfoss og víðsvegar um Suðurland, m.a. flutti hann rauðamöl frá Seyðishólum til Jóns Loftssonar. Kristján fór þrisvar á vertíð, bæði frá Þor- lákshöfn og Grindavík. Árið 1967 stofnuðu feðgarnir síðan félags- bú og hóf Kristján þá alfarið að starfa við búið, hann sinnti því þar til heilsu tók að hraka. Krist- ján var afar laghentur maður og smíðaði allt mögulegt sem van- hagaði um. Útför Kristjáns fer fram frá Villingaholtskirkju í dag, 21. ágúst 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. 1901, d. 16. sept- ember 1970, og Alf- ons Hannesson, f. á Helgafelli í Helga- fellssveit 3. ágúst 1900, d. 13. maí 1977. Kristján og Aðalheiður eign- uðust fimm börn, þau eru: 1) Oddný, klæðskerameistari, f. 24. september 1963, maki Eiríkur Ágúst Guðjónsson fornbókasali. Þau eiga tvær dætur: a) Ernu, unnusta hennar er Katrín Björg- vinsdóttir, og b) Eydísi Gauju. 2) Helga, garðyrkjufræðingur, f. 21. september 1965, maki Heimir Hoffritz bifreiðarstjóri. Þau eiga tvo syni: a) Adam, maki hans er Solveig Karlsdóttir, þau eiga þrjú börn, Magnús, Sigurbjörgu og Heimi, og b) Hermann Snorra. 3) Ásmundur, vél- og gullsmíðameistari, f. 14. maí 1969, maki Guðrún Hildur Ró- senkjær, sagnfræðingur, klæð- Örfá orð til pabba. Að alast upp með þér á mínum bæ var eins og að búa við fullkom- ið öryggi. Bæjarhlaðið fullt af fólki og alltaf einhver til að tala við, elta í verkunum, fá að taka þátt í störfunum og finnast að maður væri þátttakandi og mik- ilvægur hlekkur í öllu því stússi sem fylgir því að búa og alast upp í sveit. Fá að þvælast með pabba á traktornum lengst út í mýri, leggja og vitja um netin í Þjórsá, brenna sinu, vera í heyskap, eða taka þátt í að grafa upp mjólk- urbílinn fastan í snjósköflum á hreppamörkum. Bruna upp að gjósandi Heklu á Skátinum, alveg upp að gosrönd- inni, pabbi með vinnuvettlinga og skutlar glóandi hraunmola inn í bílinn. En auðvitað voru góðir vinnuvettlingar nauðsynlegur út- búnaður í vel útbúnum bíl í sveit. Á mínum bæ voru traktorar og vinnuvélar þrifnar og bónaðar og svo komið fyrir í vélabragganum. Á mínum bæ voru tækin ekki slit- in upp úr sinu síðasta árs þegar heyskapur var skollinn á. Tækin voru keyrð smurð og bónuð í flekkinn. Hjá okkur entust vél- arnar lengur en hjá flestum öðr- um og slógu sum hver einhver Ís- landsmet í endingu. Og ef það vantaði tæki þá smíðaði pabbi bara það sem vantaði. Þannig varð til fagurgult baggafæriband og allskonar tæki önnur. Og tvö- falda bílskúrshurðin, þung og flott, var meistarasmíð. Og við krakkarnir fengum að taka þátt í verkinu með að snúa smiðjunni á meðan pabbi barði járnið í eldin- um. Pabbi gat smíðað hvað sem vantaði, bæði úr timbri og járni. Og svo ógleymanlegur kvöld- lesturinn. Þá las pabbi jafnt fyrir okkur þjóðlegan fróðleik, þjóð- sögur og svo Tinnabækur. Allt með sömu rólegu röddinni, þannig að Mannlíf og mórar í Dölum og Tinni í Tíbet höfðu sama trausta, hlýja tóninn. Pabbi var bóndi mesta sína starfsævi en líklega var hann í hjarta sér meiri vélamaður en skepnumaður. Hans bestu stundir voru við vélavinnu og akstur, sér- staklega á vörubílum. Hann var ánægður undir stýri á slíkum bíl- um, vegagerð, heyflutningar og framkvæmdir við varnargarðana í Þjórsá, þar var hann á heimavelli. Pabbi var ekki sjálfsupptekinn maður. Afkoma og velferð okkar krakkanna, afa og ömmu og allra í Ferjunesi átti hug hans allan, allt til síðustu stundar. Að leiðarlokum langar mig að fá að þakka þér, pabbi, fyrir að fylla bernsku mína öryggi og fyrir að leyfa mér að finna til mín, gera mig að hlekk í lífskeðjunni okkar í Ferjunesi. Það eru forréttindi að búa við og fá að alast upp við slíka tilfinningu. Þín Oddný. Nú er faðir minn búinn að ljúka sinni jarðvist eftir erfið veikindi, fyrir tæpum tuttugu árum greind- ist hann með krabbamein sem fylgdi honum æ síðan og lagði hann að lokum. Pabbi hóf að gera út vörubíl 1957 en hætti því 1967 þegar hann stofnaði félagsbú í Ferjunesi ásamt eldri bróður sín- um og föður. Hann vann ötullega að búrekstrinum alla tíð og hafði jafnan frumkvæði að vexti í rekstrinum og fjárfestingum sem því fylgja. Hann var afskaplega vinnusamur, duglegur og einstak- ur verkmaður, það var alltaf fram- kvæmdahugur í honum og réðst hann stundum í að byggja útihús af eigin rammleik. Eins smíðaði hann það sem þurfti úr járni og gerði við tæki og verkfæri búsins. Pabbi vildi vera sjálfbjarga við reksturinn og kom sér aftur upp vörubíl en það var líka áhugamál hans, hann var bíla- og tækjamað- ur. Fjórar Scaniur gerði hann upp, einnig Wyllis-jeppa sem afi fékk nýjan 1955. Pabbi hafði alltaf gaman af laxveiði í ánni og stund- aði hana á meðan hann hafði heilsu til. Þjórsáin var pabba mik- ið hjartans mál og barðist hann í mörg ár fyrir því að byggðir yrðu varnargarðar í ána til varnar landbroti, það hafðist og voru gerðir margir stuttir garðar fyrir landi Ferjuness og Mjósunds sem hann síðan bætti grjótvörn á í mörg ár á eftir en garðar þessir hafa reynst vel og gefið af sér góða nýja veiðistaði. Ég man ekki eftir mér öðruvísi en með pabba í hans daglegu verkum sem voru fjölbreytt, það var góður skóli sem maður byggir á og getur því lagt hönd á flest verk. Ég var mjög heppinn að alast upp á sveitabæ þar sem alltaf var nóg að gera við ýmis störf og í fé- lagsskap við afa og ömmu og allt hitt fólkið, læt ég fylgja þessum línum ljóð eftir ömmu. Einhversstaðar endar þessi ferð einhver merkið gefur stansa verð lögð er hönd á litla bílinn minn lokið upp og spurt um skilríkin. Hvert skal haldið, hvaðan komið er hvernig ekið, viltu segja mér allt um þess ferð sem farin er, þú ferð ei lengra brautin endar hér. (Oddný Kristjánsdóttir) Nú þegar pabbi er farinn og ég lít yfir farinn veg þá sér maður kannski betur hversu heppinn ég var í uppvextinum. Öllum sem syrgja pabba votta ég samúð mína og vona að guð gefi mömmu styrk í þeim miklu breytingum sem nú hafa orðið í hennar lífi. Ásmundur Kristjánsson frá Ferjunesi. Í dag kveðjum við yndislegan frænda í hinsta sinn. Við systkinin vorum þeirrar lukku aðnjótandi að fá að alast upp með hann hand- an vegarins. Kristján frændi var einstaklega hjartahlýr og um- hyggjusamur maður, honum var mjög umhugað um að allir væru vel mettir, bæði menn og dýr, og var iðulega spurt þegar við kom- um inn til þeirra Öllu hvort við værum ekki svöng. Hann var allt- af þolinmóður í garð okkar krakk- anna og við fengum að fylgja hon- um í öll verk hvort sem það var úti í fjósi eða á traktor úti á túni. Kristján var alltaf áhugasamur um það sem við vorum að gera hverju sinni og fylgdist vel með öllu. Síðasta árið var ansi líflegt á torfunni, tvær húsbyggingar, tor- færubílasmíð og tvö börn bættust í hópinn í vor. Það veitti honum mikla gleði að geta fylgst með og þar sem hann var mjög heimakær þá leiddist honum ekki að það væri nóg um að vera á bænum. Hann kenndi okkur svo margt, við gátum alltaf leitað til hans og fyrir það verðum við ævinlega þakklát. Elsku frændi, sjáumst síðar. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt. Margrét, Ólafur, Oddný Ása og Ásmundur. Kristján Ásmundsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.