Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Fullkominn
ferðafélagi
21. ágúst 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 107.41 107.93 107.67
Sterlingspund 136.84 137.5 137.17
Kanadadalur 82.13 82.61 82.37
Dönsk króna 16.421 16.517 16.469
Norsk króna 12.675 12.749 12.712
Sænsk króna 11.683 11.751 11.717
Svissn. franki 107.78 108.38 108.08
Japanskt jen 0.9703 0.9759 0.9731
SDR 149.11 149.99 149.55
Evra 122.49 123.17 122.83
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.8485
Hrávöruverð
Gull 1176.7 ($/únsa)
Ál 1998.0 ($/tonn) LME
Hráolía 71.35 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Bréf Símans hækkuðu um 0,48% í
viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær.
Námu viðskipti með bréf félagsins tæp-
um 295 milljónum króna og var veltan
með bréf félagsins meiri en í tilfelli ann-
arra félaga. Næstmest var veltan með
bréf Marel og nam hún 267 milljónum
króna. Hækkuðu bréf félagsins um tæp
0,68% í viðskiptunum. Þá nam velta
með bréf N1 226,4 milljónum og lækk-
aði gengi þeirra um tæp 0,4% í við-
skiptunum.
Í takmörkuðum viðskiptum með bréf
Arion banka lækkaði gengi hans um
1,3% og var það mesta lækkunin á
vettvangi aðallista Kauphallarinnar í
gær. Fast á hæla bankans komu bréf
Sjóvár og lækkuðu þau um ríflega 1,2%
í afar takmörkuðum viðskiptum. Mest
hækkuðu bréf fasteignafélagsins Reg-
ins um 1,2% í tæplega 146 milljóna við-
skiptum. Þá hækkuðu bréf Sýnar um
1,1% í óverulegum viðskiptum upp á
764 þúsund krónur.
Mest viðskipti með bréf
Símans í Kauphöllinni
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Mikil breyting hefur orðið til hins
betra í rekstri sauðfjárbúa og kúa-
búa í landinu frá árinu 2008, sam-
kvæmt upplýsingum sem Hagstofa
Íslands hefur tekið saman, en eins og
segir í frétt á vef Hagstofunnar er
þetta í fyrsta skipti sem upplýsingar
af þessu tagi um þessar greinar
landbúnaðarins eru birtar. Upplýs-
ingarnar eru byggðar á skattfram-
tölum og landbúnaðarskýrslum og
settar fram á formi hefðbundinna
rekstrar- og efnahagsreikninga.
Í tölunum kemur meðal annars
fram að eigið fé búanna hefur stór-
aukist. Árið 2008 var eigið fé kúabúa
í landinu neikvætt um samtals 17,6
milljarða króna, en í árslok 2016 var
staðan orðið mun betri, og eigið fé
neikvætt um 1,2 milljarða króna
samtals. Sé horft til sauðfjárbúanna
þá nam eigið fé þeirra samtals 646
milljónum króna árið 2008 en í lok
2016 nam eigið fé fjórum milljörðum
króna, sem er um 500% aukning.
Fækkar mest á Vestfjörðum
Í samantekt Hagstofunnar kemur
einnig fram að kúabúum hafi fækkað
um 11% á tímabilinu. Þau voru 707
árið 2008 en 631 í árslok 2016. Hlut-
fallslega varð mest fækkun kúabúa á
Vestfjörðum, eða tæplega 29% en
næstmesta fækkunin varð á Vestur-
landi. Aðeins fækkaði um eitt bú á
bæði Austurlandi og höfuðborgar-
svæðinu og á Suðurnesjum.
Sauðfjárbúum hefur sömuleiðis
fækkað en þau voru 1.712 árið 2008
en 1.477 árið 2016, sem er 14% fækk-
un. Mest var fækkun búa á Vest-
fjörðum, eða tæplega 24%, og næst-
mesta fækkunin varð á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurnesjum, eða um
rúm 23%.
Hagnaðartölur batna
Sé horft á hagnaðartölur sést að
rekstrarniðurstaða greinanna hefur
lagast mikið á tímabilinu. Árið 2008
var tap af rekstri sauðfjárbúanna
samtals 3,3 milljarðar króna, en árið
2016 var búið að snúa tapinu upp í
rúmlega milljarðs króna hagnað.
Viðsnúningur kúabúanna er enn
meiri, en árið 2008 töpuðu búin rúm-
um tuttugu milljörðum króna. Aftur
á móti var búið að snúa því tapi upp í
rúmlega þriggja milljarða króna
hagnað samtals árið 2016.
Það landsvæði sem skilaði mest-
um hagnaði í sauðfjárbúskap árið
2016 var Norðurland vestra, en
hagnaður það ár nam 256 milljónum
króna. Næst þar á eftir kom Norður-
land eystra með 216 milljónir. Í
kúabúskapnum var árið 2016 hagn-
aður mestur á Norðurlandi eystra,
eða 524 milljónir króna, en næst þar
á eftir kom Norðurland vestra með
455 milljónir króna.
Eigið fé sauðfjárbúa hefur
aukist um hundruð prósenta
Sauðfjárbú
Rekstrar- og efnahagsyfirlit sauðfjár- og kúabúa 2008 og 2016
2008 2016
Kúabú
1.712
1.477 13.080 13.064
-11.359 -11.366
4.021
17.412
13.684
-3.255
1.057
3.112
-1.151
646
707 631
22.880 23.940
-19.591 -18.889
-17.645
57.318
34.352
-20.415
Fjöldi
sauðfjárbúa
Fjöldi
kúabúa
Rekstrartekjur
alls
Eigið fé
Eigið fé
Hagnaður/tap
Hagnaður/tap
Skuldir
Skuldir
Rekstargjöld
alls
Rekstrartekjur
alls
Rekstargjöld
alls
2008 2016
Landbúnaður árið 2016
» Tekjur kúabúa 24 milljarðar
» Tekjur sauðfjárbúa 13 millj-
arðar.
» Tekjur annarra nautgripabúa
einn milljarður
» Sauðfjárbúum hefur fækkað
um 14% frá 2008
» Kúabúum hefur fækkað um
11%
Hagur sauðfjárbúa og kúabúa hefur batnað síðustu ár Búum hefur fækkað
Fasteignafélagið Reitir tapaði 876
milljónum króna á öðrum ársfjórð-
ungi, samanborið við ríflega 1,5
milljarða hagnað yfir sama tímabil
í fyrra. Þetta gerist þrátt fyrir að
hreinar leigutekjur félagsins hafi
aukist um 75 milljónir króna. Er
tapið komið til vegna neikvæðra
matsbreytinga fjárfestingareigna.
Reyndust þær á fjórðungnum nei-
kvæðar um 1,7 milljarða króna en
á öðrum fjórðungi síðasta árs
reyndust þær jákvæðar sem nam
972 milljónum.
Leigutekjur félagsins námu ríf-
lega 2,8 milljörðum á öðrum fjórð-
ungi og jukust um 6,8% frá sama
tímabili í fyrra.
Guðjón Auðunsson, forstjóri fé-
lagsins, segir að hinar neikvæðu
matsbreytingar megi rekja til
verulegra hækkana fasteigna-
gjalda. „Óvarlegt er að reikna með
því að leigumarkaðurinn taki að
fullu við þessum stórfelldu hækk-
unum á opinberum gjöldum til allr-
ar framtíðar. Sú forsenda markar
niðurstöðu rekstrarreiknings á
öðrum ársfjórðungi.“
Sé litið til fyrri árshelmings
námu leigutekjur félagsins tæpum
5,6 miljörðum króna, samanborið
við tæplega 5,3 milljarða yfir sama
tímabil í fyrra. Og nemur hækk-
unin 5,6%. Rekstrarkostnaður fjár-
festingareigna jókst úr 1.388 millj-
ónum í 1.537 milljónir, sem
jafngildir 10,7% aukningu.
Á árshelmingnum reyndist
matsbreyting fjárfestingareigna
neikvæð sem nemur 461 milljón,
samanborið við jákvæða mats-
breytingu upp á tæpa 1,9 milljarða
króna yfir fyrri helming ársins
2017.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Viðsnúningur Guðjón Auðunsson
bendir á að hærri fasteignagjöld
hafi neikvæð áhrif á reksturinn.
Tap Reita nam
876 milljónum
Matsbreytingar
reyndust neikvæð-
ar um 1,7 milljarða