Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 ✝ Árni Jón Bald-vinsson fædd- ist 8. október 1952 á Ísafirði. Hann lést á sjúkrahúsi Færeyja 7. ágúst 2018. Foreldrar hans eru Halldóra Benediktsdóttir, f. 9. október 1925, og Baldvin Árna- son, f. 30. apríl 1924, d. 2. október 2014. Systkini Árna eru Erna Rún Baldvinsdóttir, f. 20.mars 1950, og Gunnar Baldvinsson f. 4. september 1954. Árni giftist eftirfarandi kon- um: 1) Ingunni Guðmunds- dóttur, þau giftust árið 1971 og áttu þau börnin Júlíu Björk Árnadóttur, f. 25. maí 1969, og Guðmund Rúnar Árnason, f. 26. desember 1974. 2) Minnie theater 1991-1992. Ásamt því að taka að sér lýsingu og sviðsmynd fyrir ýmsa leik- hópa, svo fátt sé talið; Alþýðu- leikhúsið, EGG-leikhúsið og áhugaleikhópinn Hugleik sem fór með sýningar víðsvegar um Evrópu. Allt frá árinu 1983 fór Árni reglulega til Færeyja og tók að sér lýs- ingar á leikritum fyrir sýn- ingar þar. Árið 2007 fluttist Árni til Færeyja og bjó þar með Poulinu Jóanesardóttur og syni hennar Njál Jensen, þar vann hann við lýsingar á leik- sýningum hjá Norðurlanda- húsinu, Þjóðpalli Færeyja, sjónleikahúsi Þórshafnar og hjá ýmsum áhugaleikhópum. Árni hóf samstarf fyrir nokkr- um árum við færeyska leik- hópinn Teatur Grugg sem setti meðal annars upp leik- sýninguna Hellisbúann sem þau fóru með víða um Fær- eyjar og einnig til Danmerk- ur. Útför Árna fer fram frá Digraneskirkju í dag, 21. ágúst 2018, klukkan 11. Karen Walton, þau giftust árið 1975 og áttu þau soninn Baldvin Árnason, f. 23. nóvember 1976. 3) Vilborgu Valgarðsdóttur, þau giftust árið 2000, þau áttu engin börn saman. Eftirlifandi sam- býliskona Árna er Poulina Jóanes- ardóttir og áttu þau engin börn saman. Árni ólst upp í Kópavogi ásamt systkinum sínum. Hann lauk meistaraprófi við raf- virkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík, síðar sérhæfði hann sig sem ljósameistari. Starfsferill Árna hófst í Þjóðleikhúsinu árið 1973-1985. Hann starfaði hjá RÚV 1985- 2007, Jönköpings Lands- Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskraut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár, en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðjan hljómar, svo hrygg við erum því við söknum þín, í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar, sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd, í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er (Guðrún Elísabet Vormsdóttir) Minnie. Elsku hjartans pabbi, nú ertu farinn frá okkur langt fyrir ald- ur fram, loksins þegar þú ætl- aðir að njóta lífsins þá slokknar ljósið. Það er ekki hægt annað en fella tár þegar minningar um þig streyma fram í huga okkar, þú varst alltaf svo kátur og lífs- glaður og hafðir svo góða nær- veru enda dróst fólk að þér vegna góða skapsins og já- kvæðni þinnar, þú varst alltaf til í allt og tilbúinn að hjálpa öllum ef eitthvað var að. Mikið er sárt að hugsa til þess að geta ekki hitt þig á ætt- arreitnum okkar fyrir vestan þar sem þú tókst svo vel á móti okkur og elskaðir að njóta hverrar einustu mínútu þar þeg- ar færi gafst, eða að geta ekki hringt í pabba til að spjalla um daginn og veginn eða bara fá góðar ráðleggingar. Alltaf varst þú duglegur að hringja í okkur eftir að þú fluttir til Færeyja og varst fyrstur til að smala okkur saman í bíó þeg- ar þú komst til Íslands, svo brunaðir þú vestur því þar mátti engan tíma missa. Mikið erum við þakklát fyrir þessa viku sem við fengum með þér núna í lok júlí á ættarmóti fyrir vestan, þú varst orðinn svo veikur en samt svo ánægður og jákvæður, það var þín síðasta ósk að koma heim og fá að kveðja fjölskyldu, vini og sveit- ina þína, Reykhólasveit, þar sagðir þú okkur að þú værir bú- inn að eiga gott líf og það mildar þessa miklu sorg sem er í hjört- um okkar núna þegar þú ert far- inn frá okkur. Elsku pabbi, þú barðist eins og hetja við illvígan sjúkdóm, duglegri og sterkari mann var ekki hægt að finna. Þú hélst alltaf í vonina, fékkst ekki einu sinni til að fara úr þínum eigin fötum þegar þú þurftir að leggj- ast inn á spítala, því þú varst bara þar til að hvíla þig, ekki til að leggjast inn. Þetta segir svo margt um þig! Það að gefast upp var ekki valkostur. Elsku pabbi, nú er komið að kveðjustund og engin orð fá því lýst hvað við söknum þín mikið. Nú ert þú kominn í annan heim þar sem ljós þitt skín skært, við vitum að þú lítur allt- af eftir okkur þar til við hitt- umst á ný. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum okkar hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur ok kar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem fórum við um land- ið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Pabbi, við elskum þig af öllu hjarta, minning þín lifir sem ljós í hjörtum okkar. Hvíl þú í friði. Júlía Björk Árnadóttir, Baldvin Árnason, Guðmundur Árnason. Til minningar um Árna, kær- an samstarfsfélaga okkar. Það er svo stutt síðan að við unnum með Árna. Í mars frum- sýndum við leikritið Djarfi Mac- beth í Sjónleikarahúsinu, og í apríl og maí vorum við á leik- ferðalagi með Hellisbúann. Og nú er Árni farinn. Fyrsta vinnuferð Árna til Færeyja var farin á 9. áratugn- um í sambandi við uppsetningu á þekkta leikritinu Brúðuheim- ilið í Norðurlandahúsinu. Það varð upphafið að löngu og þroskandi samstafi við ljósa- meistarann mikla, hann Árna okkar, samstarfi sem hefur þróast áfram og auðgað sviðs- listina á ríkan hátt. Leikhópurinn Gríma kallaði oft í Árna til Íslands þegar stór- ar leiksýningar voru settar upp, og í hvert skipti var það krafta- verki líkast. Hann var með í óteljandi uppfærslum hjá Grímu, bæði í Norðurlandahús- inu, á Meiaríinu og í Leikhúsinu hérna í Havn og síðar einnig á Þjóðpalli Færeyja, Havnar Leikfélagi og hjá ýmsum áhugaleikfélögum um allt land, í menntaskólasöngleikjum, leik- sýningum, á alls konar hljóm- leikum, já, listinn er langur. Á sviði ljóshönnunar og ljóssetn- ingar hérna í Færeyjum er fátt sem Árni á ekki hlutdeild í og fyrir hans tíma var eiginlega myrkur á sviðinu. Sviðsljós var einungis að kveikja og slökkva, en Árni kom með kunnáttu, innsæi og listræna innlifun á sviði ljóshönnunar, skapaði virðingu fyrir greininni og gerði kröfur til fagmennsku og gæða. Sagt er að ljós slokkni þegar einhver deyr. Þetta á ekki við um Árna. Ljós hans skín skær- ar og bjartar með hverjum degi sem líður, því eiginleiki hans var að gefa frá sér. Alls staðar þar sem hann var var hann reiðubúinn að gefa góð ráð og leiðbeiningar, ekki bara í sam- bandi við ljós, heldur líka í sam- bandi við innréttingu á húsnæði og sviði. Einnig hefur Árni kennt og hvatt unga aðstoðar- fólkið okkar með faglegum áhuga og ég held ekki að ég taki djúpt í árinni er ég segi að hann hefur verið drifkraftur og hvatt fleiri Færeyinga til náms í faginu. Þessir nemendur Árna bera ljós hans áfram. Árni var hluti af leikhópnum Teatur Grugg og við höfum haft mikla ánægju af að vinna með honum, ekki síst þrjú undanfar- in ár. Við höfum undirbúið leik- sýningar og sett þær á svið bæði í Sjónleikarahúsinu og á ýmsum stöðum í bænum og úti á landi. Hann var hugmyndarík- ur og hafði fram á síðasta dag alls konar áætlanir. Við upp- lifðum innblástur og skapandi orku, þrjósku og eldsál – sem sjúkdómurinn gat ekki stoppað. Kæri Árni, þitt eigið ljós er ekki slokknað. Okkur ber skylda til að bera það áfram, og það förum við að gera. Á heið- skíru kvöldi, þegar við horfum upp í himininn og sjáum stjörnuhrap, rifjast upp fyrir okkur gamalt stjörnuhrap á Meiaríinu, gert úr nælonþræði og öðru sem þú hannaðir, og einhvern tíma þegar við sjáum sérstakt ljósbrigði yfir Nólsey, og sólin sendir stafi sína gegn- um skýin og lýsir á blett sem við höfum ekki séð áður, förum við brosandi að minnast þín, okkar eigin ljósameistara, sem kenndi okkur, að án myrkurs og skugga er ekkert ljós. Takk fyrir allt, kæri Árni. Kærar kveðjur frá okkur í Teatur Grugg, Meira: mbl.is/minningar Ria og Súsanna. Árni Baldvinsson kom fyrst við sögu leikfélagsins Hugleiks árið 1990. Sýning þess vetrar markaði að ýmsu leyti tímamót í sögu félagsins, ekki síst fyrir að vera fyrsta verkið sem ekki gerðist í sveitasælu fortíðar- innar heldur í köldum pólitísk- um raunveruleika nútímans. Þessu skilaði leikmynd og lýs- ing Árna firnavel í þrengslunum á Galdraloftinu í Hafnarstræti. Fyrsta aðkoma þessa skemmtilega og hugmyndaríka þúsundþjalasmiðs voru þannig líka mikilvæg tímamót og næstu árin tók Árni þátt í flestum verkefnum Hugleiks. Stundum sem fagmaður á sviði ljósahönn- unar, en líka til að fá útrás fyrir sköpunargáfu sína á öðrum sviðum, aðallega við hönnun og smíði leikmynda en einnig reyndi Árni sig við leikstjórn smærri leikþátta. Hann tók sem sagt virkan þátt í starfsemi fé- lagsins og sat m.a. í stjórn þess frá 1995 til 1999 og lagði margt gott til mála. Færni og frumleg hugsun Árna, og næmur skilningur á möguleikum og kröfum leik- sviðsins, birtist kannski best í leikmyndinni sem hann og Magnús Pétur Þorgrímsson hönnuðu fyrir leikritið Stút- ungasögu árið 1992. Að reisa þriggja metra háa bók á sviði Tjarnarbíós og mála leiktjöld á hverja opnu sem birtust þegar blöðunum var flett var brilljant hugmynd og lifir í minni allra sem sáu. Eftirminnilegt er að tæknileg útfærsla lá alls ekki fyrir þegar við hófum störf við að smíða síðurnar, strengja á þær striga og búa undir vinnu leiktjaldamálaranna. Árni vissi að lausnin birtist honum fyrr eða síðar, sem og varð raunin. Sjálfstraust var líka í vopnabúri þessa tækni- og listamanns. Við treystum honum líka. Haustið 1999 hélt Hugleikur í leikferð til Færeyja með söng- leikinn Sálir Jónanna ganga aft- ur. Viðamikil leikmynd og mikl- ar tæknikröfur kölluðu að sjálfsögðu á krafta Árna. Hann hafði þá unnið talsvert sem ljósahönnuður í eyjunum og það duldist engum að þar leið hon- um vel. Það kom okkur því lítið á óvart þegar hann loks settist þar að fyrir fullt og allt. Stórt skarð fyrir okkur en heimkoma fyrir Árna. Leikfélagið Hugleikur vottar fjölskyldu Árna Baldvinssonar samúð sína. Við hugsum með þakklæti um hans snjöllu og góðu verk fyrir okkur. Þorgeir Tryggvason. Árni Jón Baldvinsson Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR EYJÓLFSSON frá Hömrum, Grímsnesi, til heimilis í Veghúsum 1, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 9. ágúst. Útför fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 22. ágúst klukkan 13. Guðmundur Kr. Guðmundss. Sandra R. Gunnarsdóttir Margrét E. Guðmundsdóttir Halldór Heiðar Sigurðsson Eyjólfur B. Guðmundsson Idania Guðmundsson Hulda B. Guðmundsdóttir Þór Eiríksson Ágúst I. Guðmundsson Anna Gunnlaugsdóttir Hanna G. Kristinsdóttir Pétur Hjaltested Guðleifur R. Kristinsson Heiðrún Gunnarsdóttir Ágúst Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓR ARASON, Skagaströnd, sem lést laugardaginn 11. ágúst, verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 25. ágúst klukkan 14. Fjóla Jónsdóttir Ari Jón Þórsson Þórarinn Kári Þórsson Ann Þórsson Atli Þór Þórsson María Kristín Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÖGNU BJÖRGVINSDÓTTUR frá Kálfsá í Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Dyngju á Egilsstöðum fyrir góða og hlýja umönnun. Björgvin Sveinbjörnsson Sigrún Gunnlaugsdóttir Árni Sveinbjörnsson Elín A.Þ. Björnsdóttir Sveinbjörn Þ. Sveinbjörns. Stefanía Ó. Sveinbjörnsd. Sigfús Guttormsson Hallfríður Sveinbjörnsdóttir Knut Nordbö Guðrún B. Sveinbjörnsdóttir Stian Ersland barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og afa, OTTOS DAVIDS TYNES flugstjóra. Bryndís Guðmundsdóttir Sverrir Tynes Ása Kolka Salome Tynes Pálmi Kristinsson Ottó Davíð Tynes Gunnar Örn Tynes og aðrir aðstandendur Elskuleg móðir mín, systir okkar og frænka, GUÐNÝ MAGNEA GUÐMUNDSDÓTTIR, Boðagranda 7, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 27. júlí. Útför hennar fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 9. ágúst að ósk hinnar látnu. Guðmundur Geir Sigurðsson Guðmundur Guðmundsson Þorgerður Guðmundsdóttir Birgitta Bára Hassenstein og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.