Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 ✝ Jóna SólbjörtÓlafsdóttir fæddist í Hraunkoti í Grindavík 27. apr- íl 1932. Hún lést á Hrafnistu í Njarð- vík 9. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jónsson, f. 1897, sjómaður í Grinda- vík, og Helga Þór- arinsdóttir, f. 1903, verkakona í Grindavík. Systkini Jónu eru Albert Egilsson, f. 1923, d. 1953, Þórarinn Ingi- bergur Ólafsson, f. 1926, d. 2009, Hulda Sigríður Ólafs- dóttir, f. 1927, Guðmundur Ólafsson, f. 1928, Guðbergur Hafsteinn Ólafsson, f. 1929, d. 2012, Aldinía Ólöf Ólafsdóttir, f. 1934, Helgi Óli Ólafsson, f. 1936, og Sigurður Ragnar Ólafsson, f. 1951. Jóna Sólbjört giftist Arnbirni Hans Ólafssyni, Keflavík, f. 1930. Eignuðust þau sjö börn, Ingu Þóru, f. 1951, d. 1997, maki Ágúst Þór Skarphéðinsson, f. 1945, Láru Huldu, f. 1954, maki Þorleifur Ingólfsson, f. 1951, Önnu Jónu, f. 1956, maki Sig- urður Leifsson, f. 1950, Ólaf, f. 1957, maki Hall- dóra Júlíusdóttir, f. 1957, Gylfa, f. 1958, maki Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, f. 1960, Arnbjörn Hannes, f. 1965, maki Stefanía Helga Björnsdóttir, f. 1965, og Ellert, f. 1967, maki Sigrún Alda Jensdóttir, f. 1967. Barnabörn Jónu Sólbjartar eru 20 og barnabarnabörn eru 20. Jóna Sólbjört ólst upp í Grindavík og vann ýmis þjón- ustustörf í Reykjavík þar til hún fluttist til Keflavíkur með Arn- birni og starfaði þar sem fisk- verkakona og við afgreiðslu- störf í kaupfélaginu og húsgagnaversluninni Bústoð. Jóna Sólbjört tók virkan þátt í starfi Slysavarnafélagsins og Kvenfélaginu í Keflavík og sat nokkur þing beggja samtakanna og síðar starfaði hún með Lio- nessuklúbbnum í Keflavík þar til heilsan fór að gefa sig. Útför Jónu Sólbjartar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 21. ágúst 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Jóna frænka var gull af manni. Hún var allt í senn hlý, skapgóð, spaugsöm, hláturmild og skemmtileg í hvívetna, en um fram allt atorkusöm og dugleg. En hún gat líka verið hvöss þegar það átti við. Þær mamma voru ekki bara nánar systur, þar sem tvö ár skildu á milli, heldur voru þær alla tíð bestu vinkonur. Það er ríkt í æskuminningunni að þegar þær áttu hvorugar bíl en sæg af börnum, þá hittust þær á þann hátt að taka leigubíl frá Grindavík til Keflavíkur og öfugt með allan skarann. Þá var gist í að minnsta kosti eina nótt. Þetta var meiriháttar fjör. Seinna þeg- ar þær eignuðust bíl urðu heim- sóknirnar fleiri. Einnig er í fersku minni þegar ég kom heim eftir annasaman dag á leikvelli lífsins að búið var að breyta öllu í stofunni hjá mömmu. Þá var vitað mál að Jóna frænka hafði verið í heimsókn. Þegar ég fullorðnaðist og eign- aðist sjálfur fjölskyldu slitnuðu böndin ekkert. Við fórum oft í heimsókn á Blikabrautina og ekki síður í sumarbústaðinn, Sóltún, og börnin mín kunnu vel að meta að heimsækja Jónu og Bjössa og kynntust þeim vel. Ég kveð þessa miklu og góðu frænku mína með fullt af falleg- um minningum um hana. Það þarf ekki að taka það fram að ég er að sjálfsögðu að drekka gansa meðan ég skrifa þessi orð. Bjössa og allri fjölskyldunni samhryggist ég innilega. Ólafur Þór Jóhannsson. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar við skrifum kveðjuorð um ömmu okkar í Keflavík. Hún var glæsileg kona hún Jóna Sólbjört og ekki furða að hann afi hafi orðið skotinn í henni þegar hann stalst inn í Grindavík með vörubíl á afmæl- isdaginn sinn eitt árið, og sá hana þar í fyrsta skiptið að passa Lóu systur sína. Amma var alltaf fín og flott, sama hvað hún hafði fyrir stafni. Það var heldur ekki draslið hjá henni ömmu. Alltaf allt hvítskúr- að og hreint. Það var alltaf mikil tilhlökkun þegar við vorum á suð- urleið að komast til ömmu og afa, fyrst á Faxabrautina og síðan á Blikabrautina eftir að þau fluttu þangað. Alltaf mátti búast við að amma ætti eitthvað nýbakað. Hún bakaði t.d. besta hveitibrauð sem hægt var að fá ýmist með kæfu eða túnfisksalati. Alltaf mátti líka bóka að það væri til út- lenskt nammi eins og saltpillur, spýtubrjóstsykur, After Eight og Mackintosh. Síðustu 30 ár höfum við öll átt mjög góða tíma með ömmu og afa í Sóltúni í Grímsnesi sem var sumarhús fjölskyldunnar. Þar undu þau hag sínum vel. Afi sá um útiverkin en amma um inni- verkin á milli þess sem hún prjónaði og heklaði. Amma var mikil prjónakona og prjónaði þar til sjónin fór að versna fyrir nokkrum árum. Hún hafði líka mjög gaman af því að horfa á íþróttir í sjónvarpinu, og lét leikmenn heyra það ef henni fannst þeir ekki leggja sig fram. Amma hugsaði alla tíð vel um afa og alla stórfjölskylduna og því var fallegt að fylgjast með því þegar hlutverkin snerust og afi var farinn að hugsa um ömmu eftir að hún fór á Hrafnistu. Hann vissi að amma vildi vera vel til fara og því var passað upp á að hárið væri fínt og valin hálsfesti áður en rölt var í matsalinn. En enginn stöðvar tímans þunga nið. Nú hefur amma feng- ið hvíldina og hugur okkar er hjá afa sem gengið hefur veginn með ömmu í hartnær 70 ár. Söknuður okkar allra er mikill og við minn- umst ömmu með virðingu og þökk. Guð blessi minningu Jónu Sólbjartar Ólafsdóttur. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þín barnabörn, Ingólfur, Ása, Ösp og Arna. Jóna Sólbjört Ólafsdóttir Deila heilbrigð- isráðherra við bæjarstjórn Akureyrar um greiðslu halla af hjúkrunarheimilum á Akureyri blossaði upp fyrir skömmu. Slík deila við hvaða annað sveitarfélag sem er hefði getað verið í sviðsljósinu. Hjúkr- unarheimilin eru alls staðar rekin með halla; þó eru þau undirmönnuð og tilfinn- anlega vantar fagmenntað fólk á flest þeirra, einkum hjúkr- unarfræðinga. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, hafa glímt við þetta vandamál lengi og hafa átt í viðræðum við sjúkratrygg- ingar um málið mestallt þetta ár. SFV segir hallann á hjúkrunarheimilunum 30- 40%. Daggjöldin eru sem því nemur of lág. Með hliðsjón af þessu er afgreiðsla heilbrigðisráðherra á erindi bæj- arstjórnar Akureyrar með ólíkindum. Hún er harkalegri en afgreiðsla heil- brigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins á slíkum málum. Núverandi heilbrigðisráðherra, Svan- dís Svavarsdóttir, situr í ríkisstjórninni fyrir hönd VG, „róttæks sósíalista- flokks“, og hefur sagt að hún beri um- hyggju fyrir heilbrigðismálum og ekki síst hjúkrunarheimilum. En hún synjaði samt með einu pennastriki erindi bæjar- stjórnar Akureyrar um að fá greiddan uppsafnaðan halla af rekstri hjúkr- unarheimila á Akureyri. Heilbrigðisyfirvöld (landlæknir) hafa um langt skeið gert athugasemdir við það að ekki væru nægilega margir hjúkr- unarfræðingar á hjúkrunarheimilunum. Ráðning þeirra er mikilvægt fjárhagsmál fyrir hjúkrunarheimilin. Hjúkrunar- fræðingar eru dýrari en sjúkraliðar og ófaglært aðstoðarfólk, auk þess sem erf- itt er að fá hjúkrunarfræðinga til starfa, m.a. vegna neikvæðrar afstöðu stjórn- valda til kröfu þeirra um laun í samræmi við menntun. Þegar ástandið er eins og hér hefur verið lýst skýtur það skökku við að heilbrigðisráðherra skuli hreyta því í bæjarstjórn Akureyrar að ríkið eigi ekki að greiða halla hjúkrunarheimila á Akureyri þar sem bæj- arstjórn Akureyrar hafi ákveðið að greiða hallann! Þessi afgreiðsla ráðherra þýðir aðeins eitt; að Ak- ureyrarbær hafi fremur átt að láta rekstur hjúkr- unarheimilanna stöðvast en leggja út fyrir hallanum. Þetta kalla ég „hundaló- gík“. Þessi afgreiðsla ráð- herra lýsir ekki mikilli um- hyggju fyrir veikum eldri borgurum sem þurfa að vera á hjúkr- unarheimilum. Og það er ekki unnt í öðru orðinu að gera kröfu til ráðningar á fleiri sérmenntuðum starfsmönnum en í hinu orðinu neita að greiða aukinn kostn- að. Lögum samkvæmt eiga sjúkratrygg- ingar og eldri borgarar sem vistast á hjúkrunarheimilum að greiða kostnað hjúkrunarheimila. Bæjarfélögin eða sveitarfélögin eiga ekki að greiða kostn- aðinn. Um leið og eldri borgari vistast á hjúkrunarheimili eru greiðslur á lífeyri hans frá TR felldar niður og látnar renna til hjúkrunarheimilisins. Aðeins örlítil upphæð, svokallaðir vasapeningar (50-60 þúsund á mánuði), renna áfram til eldri borgarans. Þessir vasapeningar eru þó tekjutengdir þannig að þeir eru felldir niður ef eldri borgarinn hefur örlitlar fjármagnstekjur. Það tíðkast hvergi ann- ars staðar á Norðurlöndunum að allur lífeyririnn sé á þennan hátt rifinn af eldri borgurum og það án þess að tala við þá. Hjá hinum norrænu þjóðunum fá eldri borgarar áfram sinn lífeyri og greiða síð- an sjálfir kostnað hjúkrunarheimilis; þannig halda þeir reisn sinni. Ég tel að þannig eigi þetta að vera hér einnig. Hjúkrunarheimili eru mikilvægar stofnanir. En það verður að tryggja að rekstur þeirra sé í lagi. Þær verða að hafa nauðsynlegt fjármagn til að unnt sé að tryggja eldri borgurum sem þar vist- ast næga læknisþjónustu og nægan fjölda hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Talsverður misbrestur hefur verið á því. Landlæknisembættið hefur hvað eft- ir annað þurft að áminna hjúkrunarheim- ili um að hafa nægilega marga hjúkr- unarfræðinga í sinni þjónustu. Læknisþjónusta hefur einnig í vissum til- vikum verið á mörkum þess að vera næg. Það er alvarlegt mál ef ekki eru starfandi nægilega margir faglærðir starfsmenn á hverju hjúkrunarheimili. Stjórnvöld, heilbrigðisráðuneyti og sjúkratryggingar hafa haldið hjúkrunarheimilunum í fjár- hagslegu svelti. Þau hafa af þeim sökum verið undirmönnuð. Þegar það liggur fyr- ir er það furðulegt að heilbrigðisráðherra skuli hreyta ónotum í bæjarstjórn Ak- ureyrar fyrir að hafa haldið hjúkr- unarheimilum bæjarins gangandi þrátt fyrir mikinn hallarekstur þeirra. Eðli- legra hefði verið að ráðherrann hefði sent bæjarstjórn Akureyrar þakkir fyrir að halda heimilunum gangandi. Mikill skortur er nú á hjúkrunar- heimilum. Biðlisti eftir rými er langur, alltof langur. Þetta vandamál hefur lengi verið til staðar. Þegar við Albert Guð- mundsson sátum saman í borgarstjórn Reykjavíkur varpaði hann fram þeirri til- lögu að stofnaður yrði framkvæmdasjóð- ur til þess að kosta byggingu nýrra hjúkrunarheimila. Hugmyndin hlaut góð- ar undirtektir. Hún náði fram að ganga. Albert lagði til að lagður yrði skattur á hvern gjaldanda til þess að kosta þennan sjóð. Sjóðurinn byggðist upp og varð öfl- ugur og hefur kostað byggingu margra hjúkrunarheimila. En stjórnmálamenn á Alþingi gátu ekki látið sjóðinn í friði. Þeir fóru að seilast í hann til annarra þarfa. Ríkið verður að endurgreiða það fjár- magn sem tekið var þannig til annarra nota. Ríkið hefur vanrækt hjúkrunarheimilin Eftir Björgvin Guðmundsson » Samtök fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu segja hallann á hjúkrunarheim- ilunum vera 30-40%. Dag- gjöldin eru sem því nemur of lág. Björgvin Guðmundsson Höfundur er fv. borgaarfulltrúi. vennig@btnet.is Þegar þér finnst þú lít- ils virði, líður illa, ert umkomulaus, horfðu þá í augun á Jesú. Eftir því sem þú horfir lengur og dýpra í augun á honum muntu finna að þú ert elskaður af ómót- stæðilegri ást. Þú munt finna hve óendanlega dýrmæt/ur þú ert. Elsk- aður eða elskuð út af líf- inu. Elskuð eða elskaður af sjálfu lífinu. Lífgefandi afl kærleikans Nú er tími sem aldrei fyrr til að minna á hið eilífa kærleiksríka og um- vefjandi faðmlag Guðs. Faðmlag hins skapandi Guðs, höfundar og fullkomn- ara lífsins. Guðs sem son- ur hans, frelsari heimsins, birti okkur með lífi sínu og orðum, veru og breytni, dauða, upprisu og uppstigningu til himna. Við erum að tala um lif- andi frelsara, afl lífsins sem vill þér allt hið besta. Aflið sem sigraði dauðann. Við erum að tala um kærleika Guðs sem Jesús Kristur birtir okkur. Hann sem kom ekki að- eins til að taka á sig okkar mislögðu hendur eða öll okkar misjöfnu verk, heldur til að styðja okkur og styrkja til góðra verka og leiða út úr erfiðum að- stæðum, myrkri og glötun. Við erum að tala um anda sátta og friðar, fyrirgefningar og frelsis. Hann sem býður upp á eilíft líf eftir að augu okkar bresta og hjartað hættir að slá. Já, eílíft líf. Það er náðarverk Guðs, sem hefur andstyggð á óréttlæti og mismunun, hvers konar ranglæti og ofbeldi, sama í hvaða mynd það kann að birtast. Höfnun, sjúkdómum og dauða. Handarfar skaparans Eitt sinn varst þú aðeins draumur. Fallegur draumur í huga Guðs. Draumur sem rættist. Í lófa Guðs er nafn þitt ritað. Þú ert handarfar skaparans í þessum heimi og líf þitt hið fegursta ljóð. Heilagur andi Guðs hefur blásið þér líf, anda og kraft í brjóst til að vera sá sem þú ert. Þú ert leikflétta í undri kærleik- ans. Njóttu þess í þakklæti og og láttu muna um þig. Mætti ljós lífsins, hamingja, gæfa og gleði anda Guðs, kærleikur hans, friður og blessun fylla líf þitt og þinna ómótstæðilegri elsku hans og fylgja ykkur í dag og að eilífu. Með friðar- og kærleikskveðju. Lifi lífið! Faðmlag Guðs Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Við erum að tala um anda sátta, friðar, fyr- irgefningar og frelsis. Hann sem býður upp á ei- líft líf eftir að augu okkar bresta og hjartað hættir að slá Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla út- gáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.