Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Harpa Stórar byggingar bjóða gjarnan upp á marga möguleika og Harpa er engin undantekning. Þar er til dæmis aðstaða fyrir mótttökur og sýningar og sumir fá sér þar blund á milli stríða. Eggert Tommy Robinson verður dreginn fyrir rétt í byrjun sept- ember í hinu hálf- íslamska Bretlandi. Tommy skal kastað fyrir öskrandi dólga og illmenni gegnt moskunni í Onley- fangelsi. Brexit er á hröðu undanhaldi enda skulu breskir ekki komast upp með að svíkja kommisarana í Brussel, þótt Junker sé reikull sem aldrei fyrr. Atlaga Omarosu í Ameríku er perfekt. Stelpan hjólar í fíflið Trump og kallar rasista, fasista og kvenhatara. Vandræðagangi Reykjavíkur er sópað undir teppi Dýrabæjar. Vandamál, fleiri vandamál, stærri vandamál, vanda- mál alls staðar. Dásamlegt. Skútan sannarlega á kúrs inn í hið fyr- irheitna land fátæktarvitundar þar sem enginn á neitt þótt allir eigi Dýrabæ. Félagi Napóleon gengur út á svalir Dýrabæjar á turni Efstaleit- is og horfir yfir ríki sitt Reykjavík. Svalirnar gnæfa yfir uppsteypt virkið í kring. Félagi Napóleon rýtir sæll og glaður. Rýtið berg- málar um Efstaleitið. Borgarleik- húsið blasir við; bandalagið er traust sem aldrei fyrr líkt og bandalagið við ráðhúsið; perfekt! Félagi Napóleon er í góðu skapi. Góða fólkið kemur jafnan saman á planinu og hyllir hann eftir vel heppnað einelti DO, SDG og Bj. Ben. Þá var magnað þegar H. Birna hrökklaðist úr pólitík en ein- eltið gegn Piu var endasleppt. Eig- inlega alveg glatað. Og sama á við um Siggu litlu sem nær vart upp fyrir púltið. Félagar í Samfó og Pírötum verða að gera betur. Félagi Napóleon grettir sig en réttir svo úr sér og rymur ábúðarfullur: „Bara finna nýja lygi!“ Kíkirinn fyrir blinda augað Lítið vita þeir! Fífl- in halda að hann, fé- lagi Napóleon, sé umræðustjóri ríkisins af því hjörðin kemur sam- an til funda djúpt í iðrum Dýra- bæjar undir mynd hans á veggnum og frelsið liggur hlekkjað í horni. Kjánar. Félagi Napóleon hrín og rýtir rosalega svo bylgja fer um vömbina. Svalirnar svigna og hon- um bregður svakalega þegar brestur í gólfinu og svalirnar sveiflast. Hann grípur um hand- riðið. „Félagar!“ öskrar félagi Napóleon ógurlega. Djúp röddin glymur um ganga allt niður í kjall- ara dýpst í iðrum Dýrabæjar þar sem myndin góða hangir í öndvegi. Hjörðin hrín ringluð og óttasleg- in, líkt og jafnan þegar félagi Napóleon kallar. Fát og fum gríp- ur um sig. Hjörðin tekur á rás í átt að dyrunum og ryðst út. Gauragangurinn glymur um ganga. Marteinn Mosdal stendur lymskulegur einn eftir; mundar fingurinn, sveiflar lokknum, lagar gleraugun og muldrar: „Ein rík- isgleraugu … ein ríkisskoðun,“ reigir sig og skrækir: „Einn rík- isflokkur.“ Það glymur í hlekkjum í horni. Hjörðin ryðst upp stigana og gauragangurinn berst alla leið upp á svalir. Félagi Napóleon bregður kík- inum fyrir blinda augað. Valdabarátta í Washington Í Bandaríkjunum fer fram harð- vítugasta valdabarátta bandarískr- ar sögu, ef frá er tekið þrælastr- íðið. Watergate Nixons er líkt og teboð. Aldrei hafa fjölmiðlar verið jafn einhuga í baráttu gegn for- seta, jafn virkir þátttakendur í valdatafli Washington DC né póli- tíkin jafn illskeytt. Demókratar leggja allt í sölurnar að koma frá völdum Donald J. Trump, 45. for- seta landsins; sem tístir fúkyrði og svívirðingar um falsmiðla, óvini fólksins og vill ræsa út mýrina í Washington. Fyrir rúmum hálfum mánuði neyddist dómsmálaráðuneyti BNA til að birta skjöl sem staðfesta að Hillary Clinton og Demókrata- flokkurinn réðu lögfræðifirma Fu- sion GPS, sem réð rannsóknarf- irma sem réð fyrrverandi MI-6-njósnarann Christopher Steele til þess að afla gagna í Rússlandi sem áttu að bregða fæti fyrir Donald Trump í kapphlaup- inu um Hvíta húsið. Steele setti saman „Trump- gögn“ sem gengu á milli æðstu embættismanna dómsmálaráðu- neytis Baracks Obama og alrík- islögreglunnar FBI sem fór með „dossierinn“ fyrir FISA – njósna- dómstól og aflaði heimilda til að njósna um framboð Donalds Trumps. „No-name“ Carter Page, sem fullyrt var að væri rússneskur njósnari í framboði Trumps, er nú gleymdur. FISA var blekkt um til- urð dossiersins. Beiðnir til gjörninganna voru undirritaðar af dómsmálaráðherra BNA. Ásamt ráðherranum und- irrituðu beiðnir Jim Comey og Andrew McCabe frá FBI og Rob Rosenstein aðstoðarráðherra, sem síðar skipaði Robert Muller sér- stakan saksóknara til þess að rannsaka Trump og „rússneska samráðið“. Njósnir gegn Trump fóru af stað eftir að FBI setti rannsókn á 33.000 netpóstum Hillary Clinton ofan í skúffu en hún var grunuð um að selja hernaðarleyndarmál um meðal annars dróna og gervihnetti í skiptum fyrir hundruð milljóna dollara í Clinton Foundation. Trump kallar frú Clinton jafnan „Crooked Hillary“ þegar hann tíst- ir um þennan mótframbjóðanda sinn. „Við stöðvum [Trump]“ Hinn umtalaði Peter Strzok FBI-maður, sem sagði í frægum tölvupóstum „We’ll stop [Trump]“, var rekinn á dögunum. Njósnarinn Steele, sem var á launum hjá FBI fyrir og eftir kosningar, lak „ó“skandalsögum af Trump í fjöl- miðla, sem kjömsuðu. FBI og njósnaþjónustur héldu sumsé áfram tilraunum sínum til þess að knésetja Trump eftir að hann hafði verið kjörinn forseti. Níu FBI- agentar hafa horfið úr starfi og hálfur tugur úr ráðuneytinu. Gamli kommúnistinn, fyrrverandi CIA- forstjóri, ítrekað staðinn að lygi og nú ráðgjafi CNN, John Brennan, var sviptur öryggisaðgangi eftir hafa sakað Trump um landráð sem þýðir karlinn í rafmagnsstólinn. Robert Muller spjallar við hórur og saksækir þótt ekkert hafi fund- ist á Trump. Aldrei skal þó segja aldrei. Trump skal frá. Karlinn kjaftfor, hvatvís og magnar sjálfur andstöðu með tísti sem oft fóðrar óvininn. „Kjósendur kjósa með peninga- buddunni,“ var sagt fyrir ald- arfjórðungi. Í boði Trumps, sem hefur verið uppnefndur rasisti, fas- isti og kvenhatari, mældist á öðr- um ársfjórðungi hagvöxtur í BNA 4,1%; skattar hafa verið lækkaðir og þúsundum reglugerða hent í tætara. Fjórar milljónir starfa hafa orðið til á valdatíma Trumps og tæplega fjórar milljónir fátækra hætt að þiggja matarmiða. Trump mælist frá rúmum 40% og allt í 51% fylgi og 90% meðal repúblik- ana. Aldrei í sögu bandarískra stjórnmála hefur alþýðufólk flykkst á fundi stjórnmálamanns sem Trumps; pakkaðir salir og úti risaskjáir fyrir þá sem ekki rúmast innandyra. Fjárfestingar vaxa og viðskiptajöfnuður var jákvæður í júlí. Atvinnuleysi meðal blökku- manna, spænskumælandi og as- ískra er í sögulegu lágmarki og kvenna í 66 ár; stuðningur blökku- manna vaxið úr 13% í 29%, spænskumælandi 10%. Þetta er ekki í fréttum Dýra- bæjar. Félagi Napóleon vill stjórna skoðun þinni, kæri lesandi. Eftir Hall Hallsson » Í boði Trumps … mældist á öðrum ársfjórðungi hagvöxtur í BNA 4,1%; skattar hafa verið lækkaðir og þús- undum reglugerða hent í tætara. Hallur Hallsson Höfundur er fréttamaður og sagnfræðingur. Félagi Napóleon á svölum Dýrabæjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.